Dagur - 04.09.1987, Side 8
8 -e 4.- mMBbtoWK .*
Háskaferð um hálendið
Galtaból, skálar RARIK. Þeir dvöldu í skálanum til hægri en í þeim til vinstri voru uppbúin rúm, hitunartæki og
matur til margra mánaða. Mynd: Rúnar Arason.
er orðinn að fangelsi. Skyldu fjöl-
skyldur okkar vita af okkar erfið-
leikum? Hugsunin um það veldur
okkur meiri áhyggjum en það
hvað verður um okkur.
Það er miðvikudagur og klukk-
an er 11.00. Við höfum útbúið 35
metra langa línu. Hún er okkar
síðasta von. Við verðum að
leggja af stað í norðurátt, á móti
storminum. Eftir hálftíma höfum
við einungis færst einn metra frá
kofanum. Línuna er mjög erfitt
að halda í, því hún verður sem
svipa í storminum. Aðferðin, að
ganga með „áttavitalínu“ fellur
um sjálfa sig.
í villtri bræði tek ég við stjórn-
inni, staðset vin minn þétt fyrir
aftan mig og geng ákveðinn af
stað. Með skíðastaf í annarri
hendi og áttavitann í hinni er ég
staðráðinn í að víkja ekki einu
skrefi frá 360 gráðu uppgefinni
átt. Nú gildir bara staðfesta og
áræðni. Ekki er hægt að gera
annað en að halda ferðinni áfram
á móti storminum og passa að
hrasa ekki. Ég sé einungis átta-
vitanálina.
Eftir sex klukkustunda gang
erum við algjörlega búnir. Þá tók
við þriggja tíma verk við það eitt
að reisa tjaldbúðir og útbúa okk-
ur mat. Eftir langan og erfiðan
dag skríðum við inn í tjald. Við
náum skónum af okkur með erf-
iðleikum því sokkarnir eru frosn-
ir við þá. Háfjallaklæðnaðurinn
gerði að mestu leyti sitt gagn, það
er að flytja rakann út í gegnum
búninginn, en málið er að rakinn
fraus á leiðinni og hefur myndað
þunna brynju sem ekki bráðnar.
Við skríðum því alklæddir í pok-
ana og tökum skóna með svo það
verði auðveldara að komast í þá
á morgun.
Við erum alveg dauðþreyttir,
en kuldinn verður óbærilegri með
hverri klukkustund sem líður.
Hann gefur okkur ekki kost á að
sofna; við liggjum bara og
skjálfum.
Nýr dagur rennur upp og við
sjáum að storminn hefur lægt.
Það er komið skínandi gott veður
og við sjáum á hitamæiinum að
frostið er 35 gráður. Þetta gefur
okkur ástæðu til að hreyfa okkur.
í dag ætlar Otto að vera fremri
maður, sjá um að halda ferðinni
og stýra eftir áttavitastefnunni
sem ég gaf honum upp. Og viti
menn, eftir tíu daga ferðalag sjá-
um við loks sýn sem gefur okkur
von. Sem dáleiddir drögum við
sporið og gefum ekkert eftir.
Seinni part dags stöndum við á
barmi fjallabarms. Þetta er ótrú-
legt, við stöndum á fjallabarmi
við enda Eyjafjarðardals, aðeins
dagsferð frá næsta bæ. Aftur og
aftur berum við saman kortin
okkar og reynum að átta okkur á
landslaginu til þess að vera vissir,
við gætum ekki afborið enn ein
vonbrigði. En ekkert bendir til
þess að okkur skjátlist og vonin
um að á morgun verðum við
hólpnir verður sterkari.
Um eftirmiðdag næsta dag
náum við í brjáluðu veðri til
bóndabæjarins Saurbæjar, sem er
í dal samsíða Eyjafjarðardal, ein-
ungis 10 km austar. „Svartolíu-
fangelsið" okkar er um 60 km í
hásuður frá Saurbæ, svo hefðum
við vikið 100 metra frá slóð okkar
eða gengið fram hjá dalnum í
slæmu veðri, hefðum við ekki
verið til frásagnar um þessa ferð.
Aftur verð ég hræddur um mitt
litla líf, þegar ég horfi út um
gluggann á tveggja hreyfla Fokk-
er-vél. Nokkra kílómetra fyrir
neðan okkur starir hið hvítlita
hálendi íslands á okkur með allri
sinni ró, eða svo er að sjá!
Aðeins nokkrum dögum áður
vorum við þarna niðri, leiksopp-
ar snjóstorms, óvægins kulda,
áttavilltir og ólýsanlega einmana.
Hið föla ljós og mikla víðátta
villti mönnum sýn, en hugurinn
losnar ekki við hið hvíta víti.
„Úthaldssamur hlýtur maður
að þurfa að vera þarna niðri,“
segir Otto biturri röddu „og
þarna ætluðum við yfir.“ VG
■Bokabúððn Eddal
Hafnarstræti 100 Akureyri Sími 24334
Takið eftír!
Fræðsluskrifstofa Norðurlandsumdæmis eystra
auglýsir eftir fjölskyldu, sem vill taka fatlað
barn í vistun í vetur.
Um er að ræða vistun, þrjá virka daga, vegna skóla-
göngu viðkomandi í Pjálfunarskóla ríkisins.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Thoroddsen, sál-
fræðingur á Fræðsluskrifstofu Norðurlands eystra,
ráðgjafar- og sálfræðideild í síma 24655.
Bjöm Sigurðsson, Baldursbrekku 7. Símar 41534 & 41666. Sérleyfisferðir. Hópferðir. Sætaferðir. Vöruflutningar
Haustáætlun frá 6. sept. ’87
S M Þ M F F L
Frá Húsavík kl.: 19 8 8 8
Frá Akureyri kl.: 21 16 16 16
ATH.
Morgunferðir frá Húsavík tengjast Norðurleið til Reykjavíkur.
Ferðist ódýrt - Ferðist með sérleyfisbílum.
Fargjald Húsavík-Akureyri kr. 450.-
Fargjald með Norðurleið Akureyri-Reykjavík kr. 1.650.-
Afgreiðsla hjá eftirtöldum aðilum:
Húsavík: Á. G. Guðmundsson, Stóragarði 7, sími 41580.
Akureyri: Farþegaafgreiðsla, Öndvegi hf., sími 24442.
Akureyri: Vöruafgreiðsla, Ríkisskip v/Sjávargötu, sími 23936.
Sérleyfishafi.
AKUREYRARBÆR
Félags- og
iðjuþjálfun
Starfsfólk óskast til félags- og iðjuþjálfunar á
dvalarheimilunum Hlíð og í Skjaldarvík.
Upplýsingar um störfin gefur Rannveig Guðna-
dóttir í símum 23174 og 27023.
Upplýsingar um kaup og kjör gefur starfsmanna-
stjóri í síma 21000.
MOL&SANDURHF.
Komið og skoðið
nýju hellulínuna
hjá okkur á Iðnsýningunni í íþróttahöllinni.
Erum með sýningarsvæði
úti og inni.
Sýningin er opin föstudag kl. 17-22 og
laugardag og sunnudag kl. 14-22.
MÖL&SANDUR HP.
v/SÚLUVEG - PÓSTHÓLF 618 - 602 AKUREYRI - SÍMI (96)21255
Slys gera ekki boð á undan sér!
gujJFEMW,
OKUM EINS OO MENNI