Dagur - 04.09.1987, Síða 12

Dagur - 04.09.1987, Síða 12
er - RUÐAQ - yger ladínaíqee i 12 - DAGUR - 4. september 1987 Byggingavörur Lónsbakka Sími 96-21400 N-Þingeyjarsýsla: íbúum fækkaði um 12,8% á 20 árum Fjórðungssamband Norölend- inga hefur gert úttekt á aldurs- skiptingu og aldurshreyfíngum íbúa eftir sveitarfélögum í N.- Þingeyjarsýslu fyrir árin 1965- 1985. Gunnar Hilmarsson, sveitarstjóri Raufarhafnar- hrepps, fór þess á leit við fjórðungssambandið að könn- unin yrði framkvæmd. Niður- stöður könnunarinnar eru um margt athyglisverðar. Sveitarfélögum í sýslunni var skipt í þrjú athugunarsvæði. Þau eru Keldunes-, Öxarfjarðar-, Fjalla-, og Presthólahreppur í eitt svæði, Svalbarðs-, Þórshafn- ar- og Sauðaneshreppur í annað svæði og Raufarhafnarhreppur sem sérstakt svæði. Við aldursskiptingu eru íbúar flokkaðir í fimm aldurshópa og íbúafjöldi karla og kvenna tekinn saman. Sýnt er hlutfall íbúa í hverjum aldurshópi og og hversu mikil breyting hefur orðið í hverjum hópi á þessu tuttugu ára tímabili Af könnuninni er ljóst að fæð- ingum hefur fækkað gífurlega milli áranna 1965 og 1985 ef N.- Þingeyjarsýsla er skoðuð sem heild. Börnum á aldrinum 0-14 ára hefur fækkað úr 659 árið 1965 í 382 árið 1985 eða um 42%. Ástæðurnar eru lækkandi fæð- ingartíðni ásamt brottflutningi fólks. Útlitið er enn svartara þar sem nú koma fámennari aldurs- hópar inn á svonefndan frjósem- isaldur kvenna. Allt útlit er því fyrir áframhaldandi fækkun íbúa nema takist að snúa óhagstæðum flutningsjöfnuði við, t.d. með því að halda betur í ungt fólk sem er að hefja búskap. í aldurshópnum 15-24 ára, sem segja má að sé framhaldsskóla- aldurinn, hefur íbúum í N.-Þing. þó fjölgað úr 322 í 345 á þessu tuttugu ára tímabili, eða um 7,1%. Á sama tímabili hefur fólki á „vinnufærum aldri“, þ.e. 25 - 69 ára, fjölgað hlutfallslega mjög mikið eða úr 41,5% íbúa í 48,4% af íbúafjölda. Lítil sem engin breyting hefur orðið á hlutfalli fólks 70 ára og eldra í sýslunni milli áranna 1965- 1985 en samanburður aldurshóp- anna 15-19 og 30-34 ára sýnir svo ekki verður um villst að mikill fjöldi fólks fiyst brott á þessu tímabili, þ.e. frá 20 ára til 29 ára. Petta er aðallega tengt skóla- göngu og einnig er ljóst ef við- komandi aldurshópum er fylgt lengra að fæstir snúa aftur til síns heima. Þegar niðurstöðutölur könnun- arinnar yfir aldursskiptingu íbúa í N.-Þing. á þessu tímabili eru skoðaðar kemur í ljós að í heild- ina hefur íbúum fækkað um 244 eða 12,8 prósent og hlýtur slíkt að vera öfugþróun. Ráðstefna um iðnað og atvinnumál á Norðurlandi: „Meiri þörf fyrir ný störf á landsbyggðinni" - segir Haraldur Sumarliðason forseti Landssambands iðnaðarmanna Síðastliðinn föstudag var hald- in í Svartfugli ráðstefna um iðnað og atvinnumál á Norður- landi. Ráðstefnan var um margt fróðleg og ekki síður skemmtileg. Frummælendur komu víða við en aðaláherslan var lögð á Norðurland og þá sérstaklega Akureyri. Fyrir- spurnir af ýmsum toga kveiktu umræður og verður ráðstefn- unni nú lýst í stórum dráttum. Friðrik Sophusson iðnaðarráð- herra var fyrsti framsögumaður ráðstefnunnar. Hann skýrði frá iðnaðarstefnu ríkisstjórnarinnar og talaði um áhrifaválda á borð við verðbólgu. „Stórir sigrar hafa unnist í baráttunni við verðbólg- una hérlendis en aðrar þjóðir hafa gert enn betur. í dag er stað- an þannig að verðbólgan hér á landi er sjöfalt meiri en f sam- keppnislöndunum. Verðbólgu- draugurinn, aðalóvinur atvinnu- lífsins, verðmætasköpunar og launafólks, hefur ekki verið kveðinn niður.“ Friðrik ræddi einnig um fram- leiðniátak í iðnaði og sagði að starfsskilyrði þyrftu að vera jöfn milli atvinnugreina og boðaði minni afskipti ríkisins af iðnaði á næstu árum. Hann talaði um aukna nýsköpun og sölu á hluta- bréfum ríkisins í iðnfyrirtækjum. Þá sagði Friðrik að biðstaða væri í stóriðjumálum. „Talsvert er fjallað um fjár- mögnun atvinnulífsins og fjár- festingarsjóðina í stefnuyfirlýs- ingunni. Fjárfestingalánasjóðs- kerfið verður endurskoðað og stefnt að því að opna sjóðakerfið þannig að nýjar greinar, ekki síst í iðnaði, fái aðgang að lánsfé með sama hætti og eldri atvinnugrein- arnar. Smám saman hefur ríkis- valdið hætt beinum ríkisframlög- um til sjóðanna. Næsta skref er að losa um þau lagaákvæði sem skylda fjárfestingalánasjóðina, í suinum tilvikum, til að lána ein- göngu í vissar greinar," sagði Friðrik. Nauðsynlegt að fyrirtækin skili arði Næsti frummælandi, Ólafur Davíðsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda, fjallaði um það að uppspretta áhættufjár væri hagnaður fyrir- tækjanna og það væri nauðsyn- legt að fyrirtækin skiluðu arði til að geta stundað nýsköpun og þróun.Hann lýsti áhyggjum sín- um yfir því að vaxandi hluti af tekjum iðnaðarfyrirtækja í dag fer í fjármagnskostnað. „I opinberri skýrslu frá árinu 1977, skýrslu sem nefndist Hagur iðnaðar og gefin var út af Þjóð- hagsstofnun, segir meðal annars: Hvort sem litið er á þróun útlána fjárfestingalánasjóða eða banka- kerfisins f heild, hefur hlutur iðn- aðar í heildarútlánum heldur lækkað á síðari árum. Hvað varða almenn lánskjör virðist iðnaðurinn sæta öllu lakari kjör- um hjá innlánsstofnunum en sjáv- arútvegur og landbúnaður og hefur heldur þokast í átt til meiri mismununar en ríkti við upphaf þessa áratugar. I annarri opinberri skýrslu frá árinu 1982, skýrslu sem gefin var út af svokallaðri starfsskilyrða- nefnd og fjallar einmitt um samanburð á starfsskilyrðum atvinnuveganna, sagði meðal annars: Lánsfjármögnun fjárfest- ingar er áberandi lægri í almenn- um iðnaði en í sjávarútvegi. Ólíkar fjármögnunaróskir og geta til eigin fjármögnunar skýra þennan mismun í nokkrum mæli. Engu að síður er líklegt að mis- jafn aðgangur að lánsfé eigi hér hlut að máli,“ sagði Ölafur Davíðsson meðal annars. „Svona slys mega ekki eiga sér stað“ Þá tók til máls Haraldur Sumar- liðason forseti Landssambands iðnaðarmanna. Hann fjallaði um ýmsar opinberar aðgerðir í byggðamálum og iðnaðarmálum á síðustu áratugum og rakti það hvernig þær hafa þróast. Hann ræddi einnig um óarðbærar fjár- festingar, byggingariðnað, iðnám og fleira. „Ég nefndi í upphafi hver aðflutningur til höfuðborgar- svæðisins hefði verið á síðustu árum. Á síðustu misserum hefur ástandið væntanlega verið lands- býggðinni eitthvað hagstæðara vegna uppgangs í sjávarútvegi. Þó er líklegt að það jafnvægi sé aðeins tímabundið þar sem ýmis- legt bendir til að þáttaskil séu nú að verða í byggðaþróun. í því sambandi er vert að nefna nokk- ur atriði sem skipta verulegu máli: í fyrsta lagi: Útfærsla landhelg- innar, skuttogarabyltingin og sú aflaaukning sem fylgdi í kjölfarið er um garð gengin. í öðru lagi: Frumvinnslugreinar atvinnulífs- ins búa nú og ef til vill um næstu framtíð við sóknar- og fram- leiðslutakmarkanir. í þriðja lagi: Vaxandi markaður er fyrir fersk- an fisk á erlendum mörkuðum. Nýtækni í flutningum gerir kleift að koma ferskum fiski á markað frá öllu landinu. Fjárfesting og atvinna í fiskiðnaði virðist því frekar í rénun en vexti. í fjórða lagi: Ný störf sem til verða í atvinnulífinu eru yfirgnæfandi á sviði þjónustugreina. Þær vaxa mest á höfuðborgarsvæðinu eins og reikna mátti. Og í fimmta lagi: Aldursskipting íbúa landsins er þannig að hlutfallslega fleira ungt fólk býr nú á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Þar er því meiri þörf nýrra starfa ef jöfnuð- ur á að komast á í byggðaþróun. Ólafur Davíðsson í ræðustól á iðnþinginu.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.