Dagur - 04.09.1987, Blaðsíða 20
ABAUTA
Frá 31. ágúst verður
opið frá kl. 10-22
alla daga.
En fyrst um sinn verður þó opið frá
kl. 8.00 alla daga.
Smiðjan
opin alla
daga bæði
í hádeginu
og á kvöldin.
Akureyri:
Byrjað á byggingu 70
nýrra íbúða á árinu
Eins og komið hefur fram er
húsnæðisvandamál á Akureyri
mikið. Erfiðlega gengur að fá
þar húsnæði og virðist mikill
skortur á íbúðarhúsnæði á leigu-
markaðinum. Þetta hefur haft
í för með sér að kippur hefur
komið í byggingu íbúðarhús-
næðis á Akureyri og hefur á
þessu ári verið byrjað á mun
fleiri nýjum íbúðum en á síð-
asta ári.
Um síðustu áramót voru í
heildina 96 íbúðir í byggingu á
Akureyri en þetta eru íbúðir í
einbýlishúsum, fjölbýlishúsum
og raðhúsum. Á síðasta ári var
byrjað á byggingu á 28 íbúðum
og árið 1985 var byrjað á bygg-
ingu á 17 íbúðum.
Mikill kippur hefur færst í
byggingariðnaðinn á þessu ári og
á skrifstofu byggingarfulltrúa
fengust þær upplýsingar að á
þessu ári hafi verið byrjað á 68
íbúðum á Akureyri, 49 íbúðum í
fjölbýli, 16 íbúðum í raðhúsuin
og 3 íbúðum í einbýlishúsum.
Þessu til viðbótar eru líkur á að
byrjað verði á fjölbýlishúsi með
12 íbúðum við Keilusíðu á þessu
ári og verða því í heildina 70
íbúðir sem byrjað verður að
byggja á árinu eða aukning um
rúmlega 40 íbúðir milli ára. JÓH
Leikfélag Akureyrar:
Æfingar hafnar
á Lokaæfingu
Skrafað á bekk í Miðbænum.
Mynd: TLV
Norðurljós hf. Akureyri:
Gera tilraun með tölvu-
búnað í mjólkurbíl KEA
í gær hófust æfingar á leikrit-
inu Lokaæfing eftir Svövu Ja-
kobsdóttur hjá Leikfélagi
Akureyrar og þar með er leik-
árið hafið. „Raunar hófst leik-
árið hjá okkur í ágústbyrjun
með æfingum á Afmælisveisl-
unni,“ sagði Pétur Einarsson
leikhússtjóri á blaðamanna-
fundi þar sem verkefni leikárs-
ins voru kynnt.
Verður Lokaæfing sýnd í nýrri
leikgerð sem Svava gerði
skömmu eftir að leikritið var sýnt
í Þjóðleikhúsinu. Pétur Einars-
son mun leikstýra Lokaæfingu og
þau Sunna Borg, Theodór
Theudur Jubssun fer með annað
aðalhlutverkið í Lukaæfingu ng
leikstýrir einnig Horft af brúnni.
Ákveðið hefur verið að efna til
náms í ferðamálafræði við
öldungadeild Menntaskólans á
Akureyri. Undanfarin ár hefur
aðeins verið hægt að stunda
nám á málabraut í öldunga-
deild og er þetta því þörf
nýbreytni í starfsemi skólans.
Að sögn Jóhanns Sigurjóns-
sonar, skólameistara, ski'ptist
nám i ferðamálafræði til stúd-
entsprófs í þrennt. í fyrsta lagi
nám tengt ferðaskrifstofum og
Júlíusson og Erla Rut Harðar-
dóttir fara með hlutverkin í verk-
inu. Frumsýning á Lokaæfingu
verður í lok október.
Fyrsta frumsýningin verður
hins vegar seinnipartinn í sept-
ember, en þá mun Þráinn Karls-
son sýna „Er þetta ekki einleik-
ið,“ eftir Böðvar Guðmundsson.
Eru það tveir einþáttungar. Þór-
hildur Þorleifsdóttir leikstýrir.
Börnin fá að sjálfsögðu éitt-
hvað við sitt hæfi. LA ætlar að
setja upp stutt barnaleikrit sem
heitir „Halló Einar Áskell.“ Er
það eftir Gunillu Bergström í
leikgerð Hans Kumlien. Soffía
Jakobsdóttir leikstýrir barna-
leikritinu. Marinó Þorsteinsson,
Skúli Gautason og Arnheiður
Ingimundardóttir fara með hlut-
verkin í verkinu og verður það
frumsýnt í byrjun október.
Jólaleikritið í ár verður „Piltur
og stúlka“ eftir Jón Thoroddsen í
leikgerð Emils Thoroddsen.
Verður það frumsýnt á 2. í
jólum. Leikstjóri verður Borgar
Garðarsson. Eftir áramót hefjast
síðan æfingar á verkinu „Horft af
brúnni." Leikstjóri verður Theo-
dór Júlíusson og verður það
frumsýnt um mánaðamótin
febrúar-mars. Ein sýning verður í
viðbót á leikárinu, en ekki er
ákveðið hvaða verk það verður.
HJS
ferðaþjónustu, í öðru lagi nám í
hótelfræðum og í þriðja lagi
leiðsögumannanám. Ákveðið var
að leiðsögumannanámið yrði sú
grein ferðamálafræði sem kennd
yrði við M.A.
„Þetta er eins og hvert annað
stúdentspróf og þessi braut hefur
sín séreinkenni eins og aðrar
námsbrautir við skólann. Þetta
nám kemur sem viðbót og val-
möguleiki við það nám sem fyrir
er í skólanum og við vitum að
Fyrirtækið Norðurljós hf. á
Akureyri er nú, í samvinnu við
Mjólkursamlag KEA, að gera
tilraun með nýjan tölvubúnað í
einum af mjólkurbflum sam-
lagsins. Þessi búnaður er
þyskur, framleiddur hjá fyrir-
tækinu Ultrakust. Búnaðurinn
sér um skráningu á mjólk,
jafnóðum og henni er dælt úr
mjólkurtank framleiðandans.
áhugi fyrir þessari námsgrein er
mikill og almennur í landinu.
Ætlunin er að bjóða einnig upp á
þetta við dagskólann en það,
verður ekki í vetur, við viljum
þreifa okkur áfram fyrst. Fyrst
um sinn þurfum við ekki að bæta
við kennurum því allir helstu
kennarar skólans í tungumálum,
landafræði og sögu eru vanir leið-
sögumenn og með réttindi sem
slíkir," sagði Jóhann Sigurjóns-
son. EHB
í mjólkurbílnum er nú tölva
sem tengd er við dælubúnað
bílsins. Þegar byrjað er að dæla
úr mjólkurtanknum setur tölvan
ýmsar upplýsingar inn á lítinn
kubb sem í tölvunni er. Þessar
upplýsingar eru t.d. upplýsingar
um magn mjólkur, sýrustig, hita-
stig og einnig upplýsingar um við-
komandi framleiðanda og númer
tankbíls og bílstjóra. Þegar bíll-
inn síðan kemur í samlagið er
kubbnum með upplýsingunum
stungið í sérstakan lesara sem
síðan getur verið tengdur við
stórt tölvukerfi, í þessu tilfelli
tölvukerfi KEA. Þannig geta
samdægurs borist upplýsingar til
móðurtölvunnar um hversu
mikla mjólk framleiðandi hefur
lagt inn og einnig er nú hægt að
sjá fyrr í samlaginu hver gæði
mjólkur hjá framleiðanda eru.
Búnaðurinn er nú í einum bíl
samlagsins og að sögn Magnúsar
Matthíassonar hjá Norðurljósi er
ráðgert að þessi tilraun standi yfir
í þrjá mánuði en byrjað var á til-
rauninni í ágústbyrjun. Þó mun
vera áhugi fyrir að reyna búnað-
inn við vetraraðstæður en ekki
hefur verið ákveðið hvort slíkt
verður gert. Þetta er í fyrsta sinn
sem búnaður af þessu tagi er
reyndur á íslandi. JÓH
Gagnfræðaskólinn:
Settur í dag
I dag verður Gagnfræðaskóli
Akureyrar settur í 57. sinn.
Setningin fer fram í Akureyr-
arkirkju og hefst kl. 14.
Að sögn Magnúsar Aðal-
björnssonar, yfirkennara, eru nú
506 nemendur skráðir í skólann
og er það svipað og undanfarin
ár. Það sem fyrst og fremst vekur
athygli er að 9. bekkur hefur
aldrei áður verið jafn stór.
Nemendur í 9. bekk verða 186,
sem er um 30 fleiri en verið
hefur, og verður þeim skipt í 8
bekkjardeildir.
Enn vantar þrjá kennara til að
fylla tvær stöður við skólann.
Sagðist Magnús vonast til að nú
væri að rætast úr því en þetta
mun vera í fyrsta sinn í fjölda-
mörg ár sem skólinn er ekki full-
mannaður við upphaf kennslu-
tímabils. Námsgreinarnar, sem
enn vantar kennara í, eru
danska, vélritun og líffræði. JHB
Ferðamálafræði við MA
- boðið upp á leiðsögumannanám við öldungadeildina