Dagur - 04.11.1987, Side 1
70. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 4. nóvember 1987
210. tölublað
Filman þin
á skiliö þaö
besta!
. H-Lúx
|k gæðaframköllun
Hrað-
framköllun
Nýja Filmuhúsið
Hafnarstræti 106 Sími 27422' Pósthólf 196
Opið á
laugardögum
frá kl. 9-12.
Samtök tónlistarskólastjóra:
Uggandi um framtíö
tónlistarskólanna
- ef ríkið hættir þátttöku í rekstri
„Engin lög eru til um tónlistar-
skóla, önnur en lög um fjár-
Fóstruskortur:
Tillögu
minnihlutans
vísað frá
Meirihluti bæjarstjórnar
Akureyrar samþykkti í gær
frávísunartillögu við tillögu
bæjarfulltrúanna Úlfhildar
Rögnvaldsdóttur og Sigurðar
Jóhannessonar, sem þau fluttu
vegna hins alvarlega ástands
sem skapast hefur á dagvistum
bæjarins vegna skorts á
fóstrum.
Tillagan hljóðaði svo: „Ljóst
er að alvarlegt ástand hefur skap-
ast á dagvistum bæjarins vegna
skorts á sérmenntuðu starfsfólki.
Af þeirri ástæðu felur bæjar-
stjórn félagsmálaráði að skipa
þriggja manna nefnd er kanni
leiðir til lausnar vandanum.
Nefndin skili áliti fyrir 1. des-
ember nk.“
Sigurður J. Sigurðsson flutti
frávísunartillögu sem var sam-
þykkt með sjö atkvæðum gegn
fjórum atkvæðum Framsóknar-
flokks og Alþýðubandalags.
Bæjarfulltrúarnir Bergljót Rafn-
ar og Freyr Ófeigsson lögðust
einnig gegn tillögunni.
Miklar umræður urðu um dag-
vistarmál á fundinum vegna til-
lögunnar en hún fékk ekki
hljómgrunn fulltrúa meirihlutans
eins og áður sagði. EHB
hagslegan stuðning, og um leið
og þessi fjárhagslegi stuðning-
ur dettur út þá hafa skólarnir
engan lagalegan starfsgrund-
völl,“ sagði Jón Hlöðver
Áskelsson, skólastjóri Tónlist-
arskólans á Akureyri. Fyrir-
hugað er að ríkið hætti beinum
fjárhagslegum stuðningi við
tónlistarskólana og eru skóla-
stjórar mjög uggandi um fram-
tíðina.
Bæjarráði Akureyrar hefur
borist bréf frá samtökum tónlist-
arskólastjóra, sem ritað er í
tilefni fyrirhugaðrar breytingar á
verkaskiptingu ríkis og sveitar-
félaga og hvernig þau mál snerti
starfsemi tónlistarskóla landsins.
I bréfinu er heitið á sveitarstjórn-
armenn að íhuga afleiðingar þess
ef ríkið hættir beinum fjárhags-
legum stuðningi við tónlistarskól-
ana og hvatt til samstöðu um að
vernda þann árangur sem náðst
hefur.
Jón Hlöðver sagði að ríkið
greiddi helminginn af launa-
kostnaði tónlistarskólanna en
tæki aðeins óverulegan þátt í
rekstrinum að öðru leyti. „Það
sem menn óttast mest er það að
um leið og ríkið hættir að taka
þátt í kostnaðinum þá verði ýms-
um sveitarfélögum það um megn
að standa straum af kostnaði við
rekstur tónlistarskóla,“ sagði Jón
Hlöðver.
„Fólki finnst að hér sé verið að
stíga skref afturábak, miðað við
þá stefnu sem hefur verið ríkj-
andi. Tónlistarnámið hefur verið
að færast nær venjulegri og sjálf-
sagðri menntun í skólakerfinu,
en með þessu gæti það orðið að
einhvers konar aukagrein á ný,“
sagði Jón Hlöðver og bætti því
við að skólastjórar hefðu boðað
til fundar á næstunni um þetta
mál. SS
Bergþór Ævarsson er að læra á trompet ■ Tónlistarskóla Akureyrar.
Mynd: TLV.
Loðnuflotinn:
Tæpur helm-
ingur kominn
á veiðar
Síöan á föstudag hefur loðnu
verið landað fimm sinnum í
loðnuverksmiðjunni í Krossa-
nesi og hefur þá verið tekið á
móti um 6000 tonnum af loðnu
þessari vertíð á móti 25-30 þús-
und lestum á sama tíma á síð-
asta ári.
Á föstudaginn kom Örn KE
með 750 lestir og var síðan aftur
á ferðinni á sunnudag með sama
magn. Þá kom einnig Þórður
Jónasson EA með 700 lestir.
Veiði er greinilega með þokka-
legasta móti því í fyrrinótt var
kom Örninn enn inn til löndunar
með 660 lestir. í gær var síðan
unnið við löndun úr Hrafni GK
sem var með um 650 lestir.
Hjá loðnunefnd fengust þær
fréttir að nú hefðu um 23 skip
hafið veiðar, eða tæpur helming-
ur loðnuflotans. í fyrradag til-
kynntu 9 skip samtals um 6400
lestir sem telst gott. Veiðar höfðu
þá gengið vel í vikutíma en í
fyrrinótt var komin bræla og gátu
þá ekki einu sinni togarar athafn-
að sig á Strandagrunni þar sem
loðnan er um þessar mundir. ET
Slökkvistöövarbygging á Siglufirði?
„Einfaldlega ekkert
fjarmagn til
- segir fsak Ólafsson bæjarstjóri
((
Eins og Dagur skýrði frá
er húsnæði það sem slökkvilið-
ið á Siglufirði hefur til umráða
í slæmu ásigkomulagi og að
sögn slökkviliðsstjóra ófull-
nægjandi fyrir starfsemi
slökkviliðsins. Dagur spurði
ísak Olafsson, bæjarstjóra á
Siglufirði hvers vegna hafi ekki
verið veitt fjármagni til bygg-
ingar slökkvistöðvar á Siglu-
firði eins og bæði Brunamála-
Byggðastofnun gaf grænt ijós í gær:
Slippstöðin fær lánsheimild
til að smíða tvo togara
Á fundi Byggðastofnunar í gær
var samþykkt lántökuheimild
til handa Slippstöðinni á Akur-
eyri til að standa straum af
byggingu tveggja togara á veg-
um fyrirtækisins á næsta ári.
„Stofnunin ákvað á fundi sín-
um í gær að samþykkja þessa
heimild,“ sagði Stefán Guð-
mundsson alþingismaður og for-
maður stjórnar Byggðastofnunar
í samtali við Dag: „Þetta veitir
Slippstöðinni heimild til að taka
lán og standa þannig straum af
byggingu þessara tveggja togara.
Þeir munu ekki verða seldir og
bætast þannig ekki í flotann,
heldur munu þeir verða settir á
„lager“. Þegar hins vegar útgerð-
armenn eða fyrirtæki af einhverj-
um orsökum þurfa að endurnýja
skip sín geta þeir gengið að þess-
um skipum hjá Slippstöðinni á
Akureyri,“ sagði Stefán að
lokum.
Samkvæmt heimildum Dags
hefur undirbúningur að þessu
máli staðið yfir síðan í vor og
með þessari lántökuheimild er
síðustu hindruninni rutt úr vegi
fyrir framkvæmdum. í ráði er að
Skip I smíðum
Akureyri.
í Slippstöðinni á
hefja smíði þessara skipa strax á
næsta ári.
„Þetta eru einhverjar allra
bestu fréttir sem ég hef fengið
lengi,“ sagði Hákon Hákonar-
son, formaður Félags málmiðn-
aðarmanna á Akureyri, í samtali
við Dag. „Við erum mörg sem
höfum barist fyrir því að fá verk-
efni fyrir íslenskar skipasmíða-
stöðvar. Þessi bardagi hefur ver-
ið langur og strangur, en þessi
úrslit sýna það og sanna að það
borgar sig að takast á við verk-
efnin þótt þau hafi virst vera
óleysanleg í upphafi." AP
sem er
er
stofnun og slökkviliðsstjóri
höfdu ítrekað farið fram á.
„Það hefur einfaldlega ekki
verið neitt fjármagn til. Auðvitað
lítum við þetta alvarlegum aug-
um en þetta er ekki það eina sem
veita þarf fjármagni í. Við erum
með áhaldahús sem er á undan-
þágu og við erum með barna-
heimili fyrir 100 börn
einnig á undanþágu. Þetta
bara spurning um hvar menn ætla
að láta bera niður," sagði ísak.
Aðspurður um hvort ekki væri
ákveðin forgangsröð á þessum
verkefnum sagði ísak að þar sem
ekki væru neinir peningar til í
þessi verkefni þá væri ekki um
neina forgangsröð að ræða.
Um þau ummæli slökkviliðs-
stjóra að hann hafi sparað bæn-
um fjármagn með tækjakaupum
sagði ísak að unnið hefði verið
undanfarið samkvæmt ákveðnu
plani sem miðaði að því að
byggja upp tækjabúnað slökkvi-
liðsins og húsakost. Nú sé tækja-
búnaður orðinn góður en ekkert
hafi hins vegar orðið úr húsbygg-
ingu. „Menn hafa á þessu tíma-
bili endurnýjað tæki og bætt bún-
að slökkviliðsins með því. Meira
hefur einfaldlega ekki verið hægt
að gera,“ sagði ísak. JÓH