Dagur - 04.11.1987, Page 3
4. nóvember 1987 - DAGUR - 3
Vilberg Ingi Héðinsson og Henning Henningsson.
Mynd: ÁÞ.
Ætlum að verða fuglafræðingar
- örstutt rabb við tvo unga menn í Grímsey
Vilberg Ingi Héðinsson og
Henning Henningsson voru á
hjóli í Grímsey um daginn.
Þetta eru ungir og hressir
drengir - báðir búsettir í eynni.
Strákarnir voru strax tilbúnir
til að ræða við Dag og sögðu
reyndar að það væri allt í lagi
þó að hann eyddi á þá eins og
einni filmu.
Hvað gera ungir sveinar í
Grímsey? Strákunum þótti frek-
ar heimskulega spurt en sögðu þó
að þeir væru í skóla eins og önnur
börn. „Við leikum okkur líka,“
sagði Henning og Vilberg tók
fram að það væri mun skemmti-
legra að vera í skólanum. Gamlar
frænkur spyrja gjarnan börn
hvað þau ætli að verða þegar þau
vaxa úr grasi. Dagur ákvað að
feta þá slóð og spurði strákana
þessarar spurningar. „Ég ætla að
verða fuglafræðingur," sagði Vil-
berg og Henning kvaðst einnig
ætla að leggja þá fræðigrein fyrir
sig. Nú eru til ýmsir fuglar svo
sem blaðamenn svo sú spurning
var lögð fyrir þá félaga hvers
konar fuglar það væru sem þeir
ætluðu að skoða. beir kváðu
strúta vera sinn uppáhaldsfugl.
„En það er bara enginn í Gríms-
ey,“ sagði Henning. „Hér er mest
af skeglu og langvíu.“ Nú hjól-
uðu þeir félagar af stað í suður-
átt. Myndarlegir strákar sem
gaman var að hitta.
A
Múlagöngin:
Olafsfjarðarbæ boðið afgangsefni
- áætlað að hátt í 100.000 rummetrar af efni
falli til við jarðgangagerðina
I bæjarráði Ólafsfjarðar var
nýlega fjallað um bréf frá
Vegagerð ríkisins þar sem m.a.
var boðið upp á nýtingu á efni
sem afgangs verður við jarð-
gangagerðina í Ólafsfjarðar-
múla þegar þar að kemur.
Bæjarráð samþykkti að fela
bæjartæknifræðingi, Baldri
Einarssyni að kanna mögu-
ieika á nýtingu á þessu efni.
Að sögn Baldurs er hér um að
ræða mikið magn af efni eða um
80-100.000 rúmmetra. Hann
sagði að samkvæmt upplýsingum
jarðfræðinga væri efni þetta frek-
ar í fínna lagi að það væri ekki
nothæft við t.d. gerð grjótgarða.
Hins vegar mætti nota það til
uppfyllingar t.d. vega eða fyrir
fyllingu undir hús eins og gert er
núna í Ólafsfirði.
„Við höfum ekkert skoðað
þetta mál en ég geri ráð fyrir að
það verði gert þegar þar að
kemur. Nýtingu á þessu efni fylg-
ir nokkur kostnaður og menn
verða að vega og meta hvort þeir
vilja kosta einhverju til. Við
fáum uppfyllingar frá hafnar-
dýpkunum hér á staðnum þannig
að okkur leggst til nokkurt efni
með því móti en við höfum ekki
sérstaka þörf fyrir efni á næstunni
og alls ekki svo mikið sem her er
verið að ræða um,“ sagði Baldur.
JÓH
'wVerslunin
#f Úitog
t iann
nnuhlíð 12, sími 22484.
Vegna 5 ára afmælis
verslunarmiðstöðvarinnar í
Sunnuhlíð, þann 4. nóvember,
bjóðum við upp á sérstakt tilboð
4. og 5. nóvember:
20% afsláttur
á peysum, jogginggöllum, blússum
og pilsum
gegn staögrciöslu.
Aðeins þessa 2 daga.
Akureyringar-
Nærsveitamenn
Verðum með MMC Minibus L-300 4WD
til sýnis og reynsluaksturs næstu daga
við bílasölu okkar.
Tryggvabraut 10 Símar: 27015 27385 - 21715
Komið, skoðið og
reynsluakið.
HöUurst
Hvernig skó
eigum við
að fá okkur?
Teg. 1827, st. 36-41 Teg. 1839, st. 36-41
Verð 3.490.- Verð 3.570.-
/ dag veitum við 10% afslátt af
öllum vörum vegna afmœlis Sunnuhlíðar
Sendum í póstkröfu
Sunnuhlíð - Sími: 26399