Dagur - 04.11.1987, Side 5
lesendahornið
Vissujega
er SVFÍ sveit
á Akureyri
Svar til „áhugamanns“. Vegna
lesendabréfs 29. október, þar
sem spurt er hvort björgunarsveit
Slysavarnafélags íslands sé til á
Akureyri, vil ég benda þessum
áhugamanni á að hann getur
fengið allar upplýsingar hjá
undirrituðum í síma 2 53 24, eftir
kl. 18. Vissulega er björgunar-
sveit SVFÍ starfrækt á Akureyri.
Þetta er sjóbjörgunarsveit og
starfar því á öðrum vettvangi en
Hjálparsveit skáta og Flugbjörg-
unarsveitin. Öllum, sem hafa
áhuga á því að starfa með okkur,
er velkomið að hafa samband við
undirritaðan og kynna sér starf-
semina. Stefán Heiðarsson
4. nóvember 1987 - DAGUR - 5
Harmonikudansleikur |
verður haldinn í Alþýðuhúsinu laugardaginn 7.
nóvember frá kl. 22-03.
Dansstjóri sér um að allir skemmti sér.
Uppákomur - glens og grín.
Mætið vel og stundvíslega.
Allir velkomnir.
Félag harmonikuunnenda.
Hvetjum
Þórsara
snargeggjuð!
til sigurs
Reykjahlíð
er í Skútu-
staðahreppi
Lesandi blaðsins í hópi Mývetn-
inga hafði samband við blaðið
vegna fréttar sem birtist um fimm
ára afmæli Kaupþings hf. í Degi
22. október síðastliðinn. Fyrir-
tækið bauð til sín nokkrum jafn-
öldrum úr hópi barna og í frétt-
inni var ekki rétt farið með
landafræðina þegar sagt var frá
uppruna þeirra því talað var um
að Skútustaðahreppur væri, í
Reykjahlíð. Hið rétta er auðvit-
að að Reykjahlíð er í Skútu-
staðahreppi.
Lausir
hundar
Móðir á Brekkunni hringdi og
kvartaði yfir lausum hundum í
Hrafnagilsstræti og nágrenni.
„Sex ára dóttir mín þorir ekki ein
í skólann vegna stórra hunda sem
ganga lausir og gelta. Ég hef haft
samband við lögregluna vegna
þessa en hún hefur ekkert gert.
Mér skilst að hundar megi ekki
ganga lausir og það væri óskandi
að eitthvað yrði gert í þessu máli
svo börnin geti a.m.k. gengið
óhrædd í skólann."
Sem gamall og góður Þórsari get
ég ekki orða bundist. Strákarnir
hafa ekki fengið stig í 1. deild
íslandsmótsins í handknattleik
en nú er sannarlega tími til
kominn. Þórsarar hafa hvað eftir
annað verið nálægt sigri en alltaf
hefur óheppnin hellt sér yfir þá.
Auðvitað eru þetta ungir strákar,
nýkomnir upp úr 2. deild og því
ekki vanir stóru köllunum í 1.
deild. Þeir hafa þó sýnt að þeir
geta staðið í þessum liðum, töp-
uðu naumlega fyrir Fram á úti-
velli í síðustu umferð. Nú eiga
Þórsarar heimaleik gegn KA og
þeir bókstaflega verða að vinna.
Hvernig væri að áhangendur liðs-
ins létu í sér heyra? Mætum í
Höllina og hvetjum drengina til
sigurs gegn KA. Þórsari
Frá björgunaræfingu á vegum SVFÍ á Dalvík.
í fyrra var útsalan léttgeggjuð
Nú verður hún
Og hitt og þetta voða, voða skemmtilegt.
PS: Ekki láta það fara lengra en útsalan verður opin í
Verslun Iðnaðardeildar.
Föstudaginn 6. nóvember kl. 09.00-18.00 og
laugardaginn 7. nóvember kl. 10.00-17.00.
Iðnaðardeild
Sambandsins
—>pi frá 10 kr. kg (ertu með eitthvað á prjónunum?).
Terylene frá 50 kr. m (nú er að vera sniðugur og sníða).
Sokkar og hosur (að vísu ekki grænar).
Peysur, jakkar og værðarvoðir
(handa Peter Paul og Mary og öllum hinum sem mega ekki fara í
jólaköttinn í útlöndum).
UH Aðalfundur
Framsóknarfélags Akureyrar
verður haldinn á Hótel KEA laugardaginn 7.
nóvember n.k. og hefst kl. 14.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Starfið framundan.
Önnur mál.
Félagar takið þátt í vetrarstarfinu og fjölmennið á
fundinn.
Sunnuhlíð 5 ára
miðvikudaginn 4. nóv.
Af því tilefni bjóðum við 10% afslátt af öllum
hljómtækjum, sjónvarpstækjum og myndbands-
tækjum á afmælisdaginn.
m
lUNÁRÚÐIN aupiiAsuMiJfo
-----uuuuw s 96.22111
Huld Sunnuhlíð
í tilefni 5 ára afmælis Sunnuhlíðar bjóðum við dag-
ana 4. nóvember til 6. nóvember 20% afslátt af leik-
föngum, gjafavörum, töskum, jólavörum og fleiru.
Ýmsar eldri bækur fást á tilboðsverði, verið vel-
komin.
Bókabúðin Huld Sunnuhlíð.
Stórhættulegur
ökumaður
Ökumaður hringdi, og hafi
eftirfarandi sögu að segja!
„Það er ekki ofsögum sagt af
ökulagi sumra bílstjóra hér á
Akureyri. Ég var á leið til vinnu
rétt fyrir kl. 13, mánudaginn 2.
nóvember og ók sem leið lá ofan
af Brekkunni og niður í bæ. Þrem
bifreiðum framan við mig ók hvít
„station-bifreið" og tel ég vægast
sagt að ökumaður hennar, sem
reyndist kona, sé stórhættulegur í
umferðinni. Það tók hana
nákvæmlega átta mínútur að aka
frá spennistöðinni við KA-heim-
ilið og niður að ljósunum á
Drottningarbraut.
Konan ók á 10-15 km hraða
þessa leið auk þess sem hún
stöðvaði bifreiðina af og til á
ólíklegustu stöðum, að því er
virtist algerlega að ástæðulausu.
Á þessum tíma er fjöldi manns
á leið til vinnu eftir hádegis-
verðarhlé og hafði blessuð konan
safnað aftan við sig röð bifreiða
svo langt sem augað eygði. Sá
framúrakstur sem átti sér stað
loks þegar kostur gafst var svo
háskalegur að telja má til heppni
að ekki skyldi hljótast af árekst-
ur.
Því miður er það ekki eins-
dæmi að ökumenn stöðvi bifreið-
ar sínar á akbrautum t.d. til þess
að hleypa fólki út, eða spjalla við
kunningja sem á leið hjá.