Dagur - 04.11.1987, Síða 7
4. nóvember 1987 - DAGUR - 7
Safnaðarheimiliö:
Verkið hefur
tafist
„Þetta hefur ekki gengið alveg
nógu vel því það hefur verið
erfitt að fá mannskap í vinnu,
bæði iðnaðarmenn og verka-
menn. Okkur hefur vantað 3
smiði og 4 til 5 verkamenn til
að láta dæmið ganga betur
upp,“ sagði Jónas Sigurbjörns-
son, framkvæmdastjóri Norð-
urverks hf. á Akureyri, en fyr-
irtækið sér um byggingu safn-
aðarheimilis fyrir Akureyrar-
kirkju.
Að sögn Jónasar er nær allri
steypuvinnu lokið og því litla sem
eftir er verður lokið á næstu
dögum. Þá er eftir lóðafrágangur
og ýmis verk og verður ekki hægt
að ljúka þeim öllum fyrr en á
næsta ári.
„Við eigum eftir að fylla að og
græða lóðina upp eftir allt raskið
sem þarna verður vegna fram-
kvæmda. Þá er eftir að hellu-
leggja gangstíga. Við áttum að
vera búnir að þessu en verkið
tafðist vegna erfiðleika við að fá
starfsmenn. Þá var þetta meira
verk en ætlað var í fyrstu,“ sagði
Jónas Sigurbjörnsson. EHB
Siglufjörður:
Nokkrar götur
fá ný nöfn
Á fundi bygginga- og skipu-
lagsnefndar Siglufjarðarkaup-
staðar í síðasta mánuði voru
tekin fyrir ný götunöfn fyrir
svæðið Norðurtún - viðbót.
Einnig var samþykkt nafna-
breyting á einum kafla svo-
nefnds Fjarðarvegar (Flugvall-
arvegar) og veginum sem ligg-
ur frá vegamótum Fjarðarveg-
ar við hesthúsin yfir Hólsá að
Ráeyri, gefið nafn.
Göturnar á Norðurtúni eru
fjórar og verður gatan sem liggur
„norður - suður“ kölluð Eyrar-
flöt. Sú syðsta sem liggur „vestur
- austur“ mun heita Tjarnarflöt,
nyrsta gatan Bakkaflöt og sú sem
liggur þarna á milli, Markarflöt.
Nafn það er Fjarðarvegur fékk
er Langeyrarvegur og á við kafl-
ann frá enda Suðurgötu að Skóg-
ræktarhliði.
Vegurinn frá vegamótum
Fjarðarvegar að Ráeyri heitir nú
Ráeyrarvegur. VG
Akureyrarbær:
Sala hluta-
bréfa könnuð
„Það hefur engin ákvörðun
verið tekin. Nú er verið að
kanna viðhorf þeirra sem hugs-
anlega eiga forkaupsrétt á
bréfunum og hvort þeir myndu
vilja kaupa ef bréfin yrðu
seld,“ sagði Björn Jósef Arn-
viðarson, formaður atvinnu-
málanefndar. Nefndinni hefur
verið falið að kanna möguleika
á sölu hlutabréfa Akureyrar-
bæjar í Möl og sandi og Sana
hf.
Björn Jósef sagði að hlutur
Akureyrarbæjar í þessum fyrir-
tækjum væri afskaplega lítill,
sennilega innan við 1% í þeim
báðum. Hann taldi að nafnverð
bréfanna í dag væri á milli tvö og
þrjú hundruð þúsund krónur í
Möl og sandi og líklega eitthvað
ámóta í Sana.
Fáist kaupendur að þessum
hlutabréfum mun atvinnumála-
nefnd gera grein fyrir því og
leggja fyrir bæjarstjórn þar sem
ákvörðun um sölu verður tekin,
væntanlega innan skamms, að
sögn Björns Jósefs. SS
Skúrarnir sem á að fjarlægja.
Mynd: IM
Húsavík:
Skúrar
fjarlægðir
fyrir áramót
Verið er að vinna deiiiskipulag
fyrir hluta af svæðinu „neðan
við bakkann“ á Húsavík. Eig-
endum nokkurra skúra hefur
verið gert að fjarlægja þá fyrir
áramót.
Skúrarnir sem hér um ræðir
standa framan og norðan við ver-
búðirnar, norður að húsi Vísis hf.
„Þessir skúrar eru búnir að
standa þarna lengi réttindalausir,
margir þeirra eru hálfónýtir og
plássið þarna er illa nýtt. Það
þarf að skapa útgerðinni aðstöðu
til að byggja, yfir sig, í hvaða
formi sem það verður,“ sagði
Bjarni Þór Einarsson bæjarstjóri.
IM
Miðvikudag
Kynning frá Mjóikursamlagi KEA.
Kynning á Bragakaffi frá kl. 2-6
Sérfilboð verður miðvikudag,
fimmtudag og föstudag
meðan birgðir endast.
★ Nautahakk ★Hvítlaukspylsur
★Sana djús ★Maarud snakk
* Santos kaffi.
Föstudag
Kynning á hvítlaukspylsu frá
Kjötiðnaðarstöð KEA frá kl. 2-6