Dagur - 04.11.1987, Síða 8
8 - DAGUR - 4. nóvember 1987
J þá daga var éáns
ám makr á mturnkf
- spjallað við Erling Pálmason,yfirlögregluþjón á Akureyri
Erlingur Pálmason, yfirlög-
regluþjónn á Akureyri, á
að baki langan starfsdag
sem lögreglumaður. Næsta
vor verða liðin fjörutíu ár
síðan hann varð fastráðinn
lögreglumaður á Akureyri.
Erlingur byrjaði sem
óbreyttur lögregluþjónn á
þeim tíma sem aðeins átta
menn voru í lögregluliði
Akureyrar og man hann því
tímana tvenna. Hann féllst
á að ræða við blaðamann
um ævi og störf en þróun
lögreglumála á Akureyri
blandast óhjákvæmilega
inn í umræðuna.
- Ert þú Akureyringur, Erl-
ingur?
„Nei, það er ég ekki að upp-
runa. Ég er ættaður utan úr
Möðruvallasókn, fæddur að Hofi
í Hörgárdal. Ég ólst upp í sveit-
inni fram undir tvítugsaldur. For-
eldrar mínir voru hjónin Halldór
Pálmi Magnússon frá Hofi og
Elín Indriðadóttir, ættuð úr
Kelduhverfi. Ég er því Þingey-
ingur að hálfu og hef stundum
sagt í gamni mínu að ég hafi flot-
ið á því.
Það var ágætur búskapur hjá
foreldrum mínum að Hofi þótt'
búið væri ekki mjög stórt, a.m.k.
virðist mér að minna hafi
verið kvartað undan ástandinu í
landbúnaðarmálum á þeim tíma
Lögreglustöðin við Þórunnarstræti.
en gerist nú í seinni tíð. Á Hofi
var mjólkurframleiðsla og mjólk-
in var flutt með bíl til Akureyrar,
auðvitað í brúsum að þeirra tíma
hætti. Þegar ekki var bílfært -
sem gerðist iðulega á vetrum -
var mjólkin flutt með sleða tvisv-
ar í viku í bæinn. Ég var sjálfur
við mjólkurflutningana síðasta
veturinn áður en ég hóf störf í
lögreglunni."
- Hvenær hófst starfsferill
þinn í lögreglunni á Akureyri?
„Ég byrjaði 13. maí árið 1948.
Ég vissi auðvitað ekki þá að ég
ætti eftir að vera lögreglumaður í
svo langan tíma, það var óráðin
gáta á þeim tíma. Ég sótti um
auglýsta stöðu og var fastráðinn
þegar ég byrjaði, ég hafði ekkert
sinnt lögreglustörfum fyrir þenn-
an tíma í afleysingum.“
Við vorum átta
í lögreglunni
- Hvað voru margir starfandi
lögreglumenn á Akureyri þegar
þú byrjaðir?
„Peir voru átta að yfirlögreglu-
þjóni meðtöldum, en Jón Bene-
diktsson var yfirlögregluþjónn
þá. Gamla lögreglustöðin var til
húsa að Smáragötu 1, rétt hjá
slökkvistöðinni á Akureyri. Gat-
an en ennþá á sínum stað sunnan
við íþróttavöllinn en ekkert hús
stendur við hana eftir að gamla
stöðin var jöfnuð við jörðu.“
- Hvernig var starf lögregl-
unnar á Akureyri á þessum tíma,
var það eins umfangsmikið mið-
að við mannfjölda og er í dag?
„Nei, starfið var auðvitað ekki
eins umfangsmikið og er í dag.
Það voru að vísu staðnar vaktir
allan sólarhringinn þegar ég byrj-
aði en þetta var allt annað en síð-
Erlingur Pálmason, yfirlögregluþjónn.
ar tíðkaðist. Ég get nefnt sem
dæmi að í þá daga var aðeins einn
pfiaður á næturvakt á lögreglu-
stöðinni frá klukkan þrjú á nótt-
unni til klukkan hálf átta, en þá
kom Aðalsteinn Bergdal venju-
lega á morgnana.
Ég lenti auðvitað í því eins og
aðrir að vera einn á vakt á næt-
urnar á þessum tíma. Ef útkall
varð þegar maður var á slíkri
næturvakt var lögreglustöðinni
læst. Ég er hræddur um að slíkt
þætti ekki gott í dag en annað var
ekki um að ræða í þá daga.“
- Þurfti lögreglan að hafa
afskipti af fólki á annan hátt á
árum áður en almennt gerist í
dag?
„Já, og sem dæmi um þetta
voru síldarsjómennirnir. Það
kom fyrir að hingað komu bátar
og áhafnirnar fóru í land. Sumir
hverjir gerðust sjómennirnir þá
nokkuð fyrirferðarmiklir."
Menn reyndu að
fara með löndum
- Lentuð þið þá ekki stundum
í þeirri aðstöðu að erfitt var að
hafa áhrif á gang mála?
„Þá var hafður sá háttur á að
lögreglumenn fóru meira með
löndum en tíðkast e.t.v. í dag.
Aðstæðurnar voru metnar í
hverju einstöku tilviki og farið í
þetta eftir því sem tilefni var til.
Rætt var við mennina, þeir
spurðir að því hvort þeir vildu
ekki vera góðir o.s.frv. og ekki
farið í neinn stólpa til að byrja
með a.m.k.
En eitt hefur mikið breyst og
það er að áður fyrr voru menn
með miklu meiri mótþróa við
lögregluna en síðar meir hefur
tíðkast. Það voru yfirleitt alltaf
átök og bardagar þegar drukknir
menn voru fjarlægðir eða við aðr-
ar svipaðar kringumstæður. Nú
er algengast að menn komi mót-
þróalítið með lögregluþjónunum
upp á stöð þótt auðvitað geti
brugðið til beggja vona með það
eins og annað.
Almenn slagsmál eru einnig að
verða sjaldgæf miðað við það
sem áður var. Að vísu lendir
mönnum saman og gefa hvor
öðrum á kjaftinn í Miðbænum
um helgar en ekki er mikið um
slíkt. Nú á dögum er mun algeng-
ara að menn séu barðir t.d. í and-
lit en hér áður flugust menn
meira á og voru í sjálfu sér jafn-
góðir eftir slagsmálin fyrir utan
rifin föt og óhreinindi. Nú á dög-
um berja menn náungann sem oft
situr eftir með blátt auga og brot-
ið nef, eins og þar stendur.
Sjúkrakarfan
- Þið höfðuð mjög takmark-
aða geymslu á þessum árum fyrir
þá sem vildu sofa úr sér eða
þurftu að gista fangageymslurnar
af öðrum orsökum.
„Jú, það er rétt, það var tak-
mörkuð aðstaða fyrir slíkt. Við
höfðum yfir að ráða þrem fanga-
klefum og þeir voru oftast allir setn-
ir. Við höfðum líka sjúkrakörfu
sem var góð geymsla fyrir þá sem
voru alveg meðvitundarlausir af
víndrykkju en við lögðum þá í
körfuna. Sjúkrakarfa er nokkuð
djúp og reimað yfir hana en járn-
handrið var allan hringinn. Það
fór vel um þá þarna, þeir höfðu
að vísu ekki mikið svigrúm til að
róta sér en yfirleitt voru þetta
menn sem voru ofurölvi og vissu
hvorki í þennan heim né annan.
Það góða við körfuna var að við
gátum tekið við einum manni
meira en við annars hefðum
getað.“
- Búnaður lögreglunnar, bæði
bílakostur og annað, hefur tekið
miklum stakkaskiptum gegnum
tíðina. Hvernig var bílakosturinn
þegar þú hófst störf?
„Þegar ég byrjaði var hérna
einn lögreglubíll, Dodge-trukkur
með drifi á öllum hjólum. Hann
hafði verið sjúkrabíll hjá
hernum, sennilega upphaflega
keyptur af setuliðsgóssi. Þetta
var ágætur bíll á sínum tíma en
hann hentaði okkur ekki vel því
að fyrir kom að við héldum á
stýrinu í höndunum þegar við
vorum að aka bílnum! Þá varð
maður að vera snöggur að bregð-
ast við og smeygja því niður aftur
í hvelli.
Þetta var eini lögreglubíllinn á
Akureyri í nokkur ár. Mig minnir
að árið 1951 kæmi annar bíll
4. nóvember 1987 - DAGUR - 9
Ekki voru margir lögreglumenn á Akureyri fyrir 25 árum miðað við þann fjölda sem er í dag. Á þessari mynd eru lögregluþjónar, fulltrúar og bæjarfógeti árið 1962.
hingað. Það var einnig Dodge en
alveg glænýr bíll og það voru
geysileg umskipti að fá hann.
Hann var með svipuðu sniði og
flestir lögreglubílar eru nú á
dögum, með sendibifreiðarlagi.
Hann reyndist okkur vel.“
Kofínn hélt varla
vindi eða vatni
- Hvaða ár flutti lögreglan á
Akureyri í núverandi húsakynni
við Þórunnarstræti?
„Það var árið 1968, þann 28.
ágúst. Húsið hafði verið nokkur
ár í byggingu, fjögur eða fimm ár
held ég. Aðstaða okkar í gömlu
lögreglustöðinni var þá nánast
engin orðin því varla var hægt að
segja að kofinn héldi vindi eða
vatni. Þar var þó bæði kolakynd-
ing og rafmagnsupphitun og
þetta var hvort tveggja notað til
hins ítrasta þegar kalt var í veðri.
Það var oft þröngt á þingi í gömlu
stöðinni síðustu árin áður en við
fluttum."
- Á næsta ári eru þá liðin tutt-
ugu ár síðan þetta hús var tekið í
notkun. Eruð þið búnir að
sprengja utan af ykkur á þessum
tíma?
„Nei, alls ekki. Þegar húsið var
byggt var það haft svo rúmt að
það átti að duga til fjölda ára.
Mér sýnist þó á öllu að ekki
munu líða mörg ár í vibót áður
en fer að þrengja að okkur.
Möguleikar eru á því að byggja
við lögreglustöðina og stækka
hana. Bifreiðaeftirlit ríkisins er
til húsa hérna og við hugsum
okkur að láta umferðardeild fá
inni í því húsnæði þegar Bifreiða-
eftirlitið flytur. Én fyrir utan
þetta má auðvitað lengja báðar
álmur hússins til beggja hliða.“
- Hvað eru margir menn í lög-
reglunni á Akureyri í dag?
„Það eru tuttugu og átta fast-
ráðnir lögregluþjónar hérna í
bænum núna og tveir á Dalvík.
Það eru því þrjátíu lögreglumenn
á fullum launum allt árið í þessu
umdæmi. Þetta er mikil aukning
því við vorum innan við tuttugu
þegar við fluttum hingað uppeftir
árið 1968.“
- Hefur lögreglustarfið breyst
mikið frá því sem áður var?
„Já, ekki er hægt að neita því.
Löggæslan fer nú miklu meira
fram samhliða notkun á lögreglu-
bílunum en áður var. Þá voru að
vísu sendir menn í göngu niður í
Miðbæ eins og enn tíðkast þegar
tími er til og svona er það ennþá.
En það er auðvitað eftirlit á bíl-
um og mótorhjólum sem hefur
stóraukist.“
- Er vinnuálagið á einstaka
starfsmenn meira eða minna en
það var hér áður?
„Ég geri mér kannski ekki
alveg grein fyrir því en þó finnst
mér að álagið sé heldur minna en
var því þá hafði lögreglan ekki í
nein önnur hús að venda með
fólk ef til einhverra átaka kom.
Lögregluliðið er miklu fjöl-
mennara og sterkara en var og að
því leyti held ég að minni spenna
og álag sé á mönnum en áður. Að
vísu er ýmislegt annað komið til
viðbótar við lögreglustarfið.
Eitt af þessu er aukið eftirlit
með bifreiðum og öðrum farar-
tækjum. Á þeim tíma þegar ég
byrjaði að starfa í lögreglunni var
ekki nema lítið brot af þeim öku-
tækjafjölda sem er í dag hér á
götunum en ég hef að vísu ekki
neina prósentutölu um þetta
handbæra.“
- Víkjum aðeins að rannsókn-
arlögreglunni. Hefur alltaf verið
starfandi sérstök rannsóknarlög-
regla hér í bæ?
„Nei, það hefur ekki alltaf
verið. Yfirlögregluþjónarnir
sinntu rannsóknum afbrotamála
á árum áður og síðar varðstjórar
eftir að þeir komu til sögunnar
Fyrsti rannsóknarlögreglumaður-
inn sem beinlínis var ráðinn sem
slíkur var Ófeigur Baldursson.
Hann og Gísli Ólafsson, fyrrver-
andi yfirlögregluþjónn, sáu í
mörg ár saman um rannsóknir
slíkra mála.“
Ríkisfangelsið á Akureyri
- Hér er ríkisfangelsi til húsa?
„Já, það er rétt. Hérna eru að
staðaldri fjórir til sex gæslufangar
auk þeirra klefa sem við erum
með fyrir skammtímavistanir,
t.d. þegar drukkið fólk þarf að
sofa úr sér hérna á stöðinni.
En hvað varðar sérklefana fyr-
ir gæslufanga þá var þeim breytt
og þeir aðskildir frá hinum fanga-
klefunum með sérsöku grinda-
skilrúmi.“
- Er einhver sérstakur fangels-
isstjóri?
„Það er bæjarfógetinn á Akur-
eyri, Elías I. Elíasson, sem er
lögreglustjóri sýslunnar.“
- Finnst þér líklegt að í fram-
tíðinni verði gert ráð fyrir auknu
rými fyrir fanga á Akureyri?
„Ég veit það ekki, það er ákaf-
lega takmarkað sem hægt er að
hafa hér af föngum og sérstakir
menn þurfa að vera við gæslu á
þessum fjórum til sex föngum og
það er dýrt fyrir ríkið.“
- Eftir hverju fer það hvort
menn vistast í fangelsi á Akureyri
eða á öðrum stöðum? Fer það
eftir óskuni fanganna um stað-
setningu?
„Það getur farið eftir óskum
fanganna en þó þarf þessu ekki að
vera þannig varið. Þeir eru stund-
um fluttir hingað án tillits til þess
hvort þeir vilja það eða ekki.“
- Eru það frekar Akureyring-
ar sem vilja sitja af sér dóma hér
fyrir norðan?
„Akureyringar eru innanum
aðra fanga en langflestir koma af
Suðurnesjum eða Reykjavík.
Það má segja að fangarnir komi
af öllu landinu, bæði að austan og
vestan, eins og þar stendur.“
- Var ekki eitt sinn á dagskrá
að hafa kvennafangelsi hér til
frambúðar?
„Það var starfrækt um tíma en
síðan lagt niður. Kvennafangelsi
hefur eftir það verið á bænum
Bitru í Árnessýslu."
Vaktavinnan er
mjög þreytandi
- Hvernig finnst þér að hafa
starfað þetta lengi í lögreglunni.
Hefðirðu kannski viljað gera
eitthvað annað?
„Ég veit nú ekki með síðar-
nefnda atriðið. Þetta hefur ekki
verið slæmur tími, maður er auð-'
vitað orðinn dálítið leiður á
þessu. En eftir að vöktunum
sleppti þá er þetta stórum betra
en var. Vaktavinnan er mjög
erfið, bæði fyrir fjölskyldu lög-
reglumannsins og hann sjálfan.
Oft vill það verða þannig að þeg-
ar aðrir eiga frí þá er lögreglu-
maðurinn að vinna en fjölskyldan
að öðru leyti heima. Þetta er
voðalega þreytandi fyrir börnin
og konuna.“
- Er þessi mikla vinna og álag
vegna vakta nægilega metið til
launa?
„Það er greitt sérstakt álag á þá
vinnu sem unnin er utan venju-
legs vinnutíma sem kallað er
vaktaálag. Þetta er dálítil kjara-
bót en hvort hún er nægileg vil ég
ekki dæma um.
Það skiptir talsverðu máli á
hvaða aldri lögreglumennirnir
eru. Meðan menn eru ungir þá er
ekki erfitt fyrir þá að hafa breyti-
legan svefntíma en þegar þeir
fara að eldast verður þetta mjög
erfitt. Menn sofna kannski ekki
þegar þeir koma heim af nætur-
vakt og óregla kemst á svefntím-
ann. Það er margsannað mál að
vaktavinnumenn lifa skemur en
þeir sem hafa reglubundinn svefn
og vinnutíma á daginn." EHB
Gamall Ford lögrcglubíll en lögreglan á Akureyri notaði slíka bfla um árabil. Ljósmynd: Gísii óiafsson.