Dagur - 04.11.1987, Síða 11
4. nóvember 1987 - DAGUR - 11
Rómeó á Húsavík
í haust var stofnuð ný hljóm-
sveit á Húsavík og ber hún
nafnið Rómeó. Hljómsveitina
skipa fimm hressir náungar
sem allir hafa leikið með öðr-
um hljómsveitum áður, sumir
til fjölda ára.
Meðlimir Rómeó eru: Bræð-
urnir Þorvaldur Daði og Kristján
Halldórssynir sem báðir leika á
gítara, Karl Hálfdánarson bassa-
leikari, Sigurjón Sigurðsson
trommuleikari og Sigurpáll
ísfjörð Aðalsteinsson sem leikur
á hljómborð en allir í hljómsveit-
inni eru liðtækir við sönginn.
Það var stuð á liðinu þegar
Dagur leit inn á æfingu hjá Rómeó
í síðustu viku. „Það er okkar
áhugamál að vera í hljómsveit og
við höfum allir gaman af þessu
nema Kalli sem var píndur til að
vera með. En það má koma fram
að okkur finnst öllum gott
slátur,“ sagði einn í hljómsveit-
inni.
Þeir félagar sögðust leika góða
alhliða dansmúsík fyrir alla
aldurshópa. Tíðnirnar væru tvær:
96,4 á rás 1 og 97,8 á rás 2.
Hljómsveitin er tilbúin til að
leika á árshátíðum, almennum
dansleikjum, jólaböllum, ára-
mótaböllum og þorrablótum um
allt land. Pantanasíminn er
41033, afpantanasíminn er 41657
en að vísu mun hann alltaf vera
lokaður.
Dagur spurði hvort hljómsveit-
in hefði ekki lent í einhverjum
ævintýrum á ferðalögum sínum á
haust. „Jú, við urðum veður-
tepptir á Kópaskeri 9. okt. og
okkur langar að senda kveðju til
eldhússtúlknanna á salatgerð-
inni. Svo lentum við í ævintýri á
gönguför með Pétri Skarphéðins-
syni hálfum mánuði síðar. Við
komumst að því að það er
klukkutíma gangur frá Héðins-
höfða til Húsavíkur og leggjum til
að ruddar verði gönguleiðir
þarna á milli, þær þurfa helst all-
ar að vera niðrímóti."
Nú var pásan hjá hljómsveit-
inni orðin nógu löng svo Dagur
þakkaði fyrir spjallið, óskaði
Rómeó góðs gengis í vetur og
hlakkar til að hitta Júlíu næsta
haust. IM
Ungmennafélag íslands 80 ára:
Ráðstefna í
Norræna húsinu
í tilefni 80 ára afmælis Ung-
mennafélags íslands hefur ver-
ið ákveðið að gangast fyrir
opinni ráðstefnu sem ber yfir-
skriftina „Ræktun lýðs og
lands“. Ráðstefnan verður
haldin í Norræna húsinu laug-
ardaginn 21. nóvember frá
09.00-17.00. Efni ráðstefnunn-
ar er: Hlutverk ungmennafé-
laganna í nútíð og framtíð.
Flutt verða átta framsöguer-
indi, um þau fjölþættu verk-
efni sem unginennafélög vinna
að, á sviði íþrótta, menningar-
og félagsmála.
Fyrirlesarar á ráðstefnunni
verða: Þórólfur Þórlindsson próf-
essor sem fjallar um efnið: „Hef-
ur þátttaka í íþróttum fyrirbyggj-
andi áhrif á neyslu ávana- og fíkni-
efna?“
Árni Johnsen varaþingmaður
sem fjallar um það hvert eigi að
vera hlutverk hins opinbera og
sveitarfélaga í fjármögnun á
starfsemi samtaka eins og ung-
mennafélaga, einnig flytur erindi
um svipað efni Bjarni Ibsen frá
Danmörku, sem gjörþekkir fjár-
mögnun dönsku ungmenna- og
íþróttahreyfingarinnar. Hjörleif-
ur Guttormsson alþingismaður
mun tala um hlutverk ungmenna-
félaganna í náttúruverndar- og
útivistarmálum. Óli Þ. Guð-
bjartsson alþingismaður fjallar
um hlutverk ungmennafélaga í
uppeldis- og tómstundastarfi frá
sjónarmiði bæjar- og sveitarfé-
laga. Pálmi Frímannsson læknir í
Stykkishólmi ræðir um þýðingu
íþrótta- og æskulýðsstarfs í fyrir-
byggjandi heilsugæslustarfi.
Arnór Benónýsson leikari flyt-
ur erindi um framlag ungmenna-
félaganna í menningar- og leiklist-
armálum þjóðarinnar.
Helgi Gunnarsson hagfræðing-
ur flytur erindi um tengsl félags-
málafræðslu ungmennafélaganna
við menntakerfið. Þráinn Haf-
steinsson íþróttakennari og
Magndís Alexandersdóttir bæjar-
fulltrúi munu fjalla f sínum erind-
um um íþróttastarf ungmennafé-
laganna frá sjónarhóli keppnis-
og almenningsíþrótta.
Á þessum tímamótum í sögu
UMFÍ er eðlilegt að staldraö sé
við og velt fyrir sér hlutverki
hreyfingarinnar og verkefnum
hennar á komandi árum, Þess
vegna er fitjað upp á ráðstefnu
sem þessari og er vonandi að þeir
sem láta sig einhverju varða
æskulýðs- og íþróttamál sjái
ástæðu til að sækja þessa ráð-
stefnu.
Eins og áður segir er ráðstefn-
an opin öllum sem áhuga hafa.
Innritun ráðstefnugesta fer
fram á skrifstofu UMFÍ, Öldu-
götu 14, Reykjavík. Síminn er
91-12546.
Eggert feldskeri á Akureyri.
Verð í versluninni Akurliljunni, Hafnarstrœti 106,
sími 24261, áfimmtudag, föstudag og laugardag.
Sala á loðfeldum og leðurfatnaði.
Pöntunum í sérsaumaða loðfeldi veitt móttaka.
Sjáumst.
EGGERT
i'.fsi ti Sktiltivöit)n.\n\;iiiiin. sinii 11121.