Dagur - 04.11.1987, Síða 12
12 - DAGUR - 4. nóvember 1987
„Við erum að hleypa útlendingum
aftur inn í landhelgina"
- ræða Þrastar Ólafssonar, framkvæmdastjóra Dagsbrúnar, á þingi VMSÍ
Góðir þingfulltrúar.
Pað hefur löngum verið haft á
orði að ísland sé fátækt land á
hefðbundinn mælikvarða - land-
kostir rýrir. engir málmar í
jörðu. óblíð veðrátta og langt úr
alfaraleið. Eina auðlind eigum
við þó sem hefur gert okkur
bjargálna og breytt lúsugu
fátækrabæli í bjart og reisulegt
slot. Fiskimiðin kringum landið
eru dýrmætasta auðlind okkar. Ég
segi alltaf okkar því ég tel mér
trú um að við - þjóðin öll - eigum
miðin í kringum landið. Pjóðin
barðist sameiginlega fyrir sjálfs-
forræði sínu. Hún barðist öll í
mörgunt landhelgisdeilum um
yfirráð yfir ntiðunum. Hún hefur
sameiginlega skapað þann auð og
þá tækni sem gerir okkur kleift
að hagnýta þessa auðlind.
Hvað sem líður öllum umræð-
unt unt verðbólgu. fjárlagahalla
eða sláturhúsaleyfi. þá er varð-
veisla fiskimiðanna og skynsam-
leg nýting þeirra viðamesta og
afdrifaríkasta mál stjórnmála nú.
Málið er líka óvenju viðkvæmt
eins og gefur að skilja og það sem
hér er sagt er ekki til að vega að
neinum. hvorki einstaklingum né
stéttum.
Frá árinu 1984 hafa verið í gildi
lög unt stjórnun fiskveiða. Þau
lög höfðu það að meginmarkmiði
í fyrsta lagi að vernda fiskistofn-
ana og í öðru lagi að draga úr
sóknarkostnaði og stuðla að sem
skynsamlegastri nýtingu fiski-
stofnanna. Til þess að ná þeini
takmörkunum var settur svokall-
aður kvóti á skipin. Kvótinn
sagði til um það hve mikið af
botnfiski hvert skip mætti veiða á
hverju ári. En lögin sögðu líka að
þeir sem öfluðu fisksins fengju
einkarétt til að ráðstafa honum.
Miðin voru þannig afhent
útgerðaraðilum til einkaráð-
stöfunar. Þeir ráða mestu um það
hvort siglt er með aflann eða hann
er seldur til fiskvinnslu í landi.
Þeir ráða sínum kvóta - selja
hann á milli landshluta og fiskinn
úr landi. ef þeim svo býður við að
horfa. Eina takmörkunin á þessu
er þar sem eignarhald útgerðar er
á hendi fiskvinnslunnar. Með
þessu vil ég alls ekki hvítþvo
vinnslumenn sjálfa. þeir selja
einnig hráefni til vinnslu erlendis
- því miður. Allt er þetta gert
vegna stundarhagsmuna og skjót-
fengins gróða.
Fiskurinn veitir þúsundum
manna um allt land atvinnu. Lífs-
björg þeirra er undir því komin
hvort fiskur berst á land eða
ekki. Ráðstöfun aflans er því
ekki bara inál útgerðar og sjó-
manna heldur líka fiskvinnslu-
fólks í landi. Því höfum við
hreyft við hugmyndinni um að
skipta ráðstöfunarréttinum milli
þeirra sem afla þ.e. útgerðar og
sjómanna og hinna sem vinna
hann þ.e. fiskvinnslu og verka-
fólks í landi. Meginrökin fyrir því
eru, að þannig finni báðir að þeir
eru hvor öðrum háðir.
An atorku og dugnaðar sjó-
manna okkar bærist lítill fiskur á
land, án iðni og verkkunnáttu
landverkafólks yrði íslenskur
fiskur ekki að dýrmætustu fiski-
afurð í heimi. En það breytir því
ekki að binding kvóta og ráð-
stöfunarréttur hans við skipið
hefur leitt til afskræmingar á
mörgum sviðum.
Við lásunt í blöðunum um
söluna á Dagstjörnunni hingað til
Akureyrar. Hún kostaði litlar
180 m.kr. Skipið sjálft er talið
vera 40-60 m.kr. virði - vátrygg-
ingarverð þess er unt 80 m.kr.
Kvótinn um 2700 tonn er því
seldur á 120-140 nt.kr. Hvert
kvótatonn er því selt á um 50
þús. kr. eða hvert kíló í kvóta á
50 kr.
Hér er því verið að breyta út-
hlutuðum kvóta í mikla peninga
út á veiðiréttindi á mið sem eru í
sameign þjóðarinnar. En hverjir
hirða þennan auð? Getum við
sungið svona kerfi lof og dýrð?
En sagan er ekki öll með þessu.
Um leið og skipið er selt er
atvinna færð til, rétturinn til að
veiða og verka fisk flyst frá ein-
um stað til annars.
Við lifum í heimi sem er í örri
tæknilegri þróun. Tækniþróun
við veiðar Óeygir fram og fisk-
vinnslan stendur á þröskuldi
nýrra tíma. Það verður okkar
kynslóð sem nú lifir sem ákveður
hvort við ætlum að halda áfram
að vera fiskvinnsluþjóð eða
útgerðarþjóð. Hvort við viljum
vinna fiskinn sjálf eða selja hann
sem hráefni í evrópskar vinnslu-
stöðvar. Um það snýst málið. Ég
fullyrði, að það sé sjómönnum
Þröstur Ólafsson.
ekki minna hagsmunamál en
landverkafólki að hér dafni öflug
og sterk fiskvinnsla. Hvað er það
annað en verð unninna fisk-
afurða sent ákveður til lengri
tíma séð - hráefnisverð fisks er-
lendis? Hátt verð á unnum fiski
í Ameríku leiddi til sama háa
verðsins í Evrópu, sem svo aftur
dró hráefnisverðið upp.
Fiskvinnslan hefur unnið mikið
starf í markaðsöflun erlendis og
þeir markaðir tryggja okkur hátt
verð fyrir fiskinn. Ef íslensk fisk-
vinnsla drabbast niður og erlend-
ir fiskverkendur ná undirtökun-
um á mörkuðunum þá lækkar
hráefnisverð erlendis og tekjur
sjómanna lækka. Ef fiskvinnslan
stendur sig og heldur háu verði á
mörkuðunum framvegis þá mun
hráefnisverð haldast hátt eða
hækka.
Undanfarna mánuði hafa
söluaðilar fundið að markaðir
okkar hafa látið undan síga og
styrkur okkar þar fer dvínandi -
einkum í Bandaríkjunum. Stórir
kaupendur hafa kvatt og þakkað
góð viðskipti - nýir hafa ekki
komið í staðinn. Og það er ekki
vegna þess að gæðin séu slæm
eða verðið of hátt heldur vegna
þess að það er engan fisk að selja
- hann fer óunninn til Grimsby
eða Bremerhaven. Þar eru menn
í óða önn að endurreisa fisk-
vinnslu sína eftir hrun hennar
þegar norður-evrópsk ríki lok-
uðu fiskimiðum sínum fyrir
úthafsverksmiðjum Þjóðverja og
togaraflota Englendinga.
Með ótæpilegri sölu á vinnslu-
hráefni erlendis erum við að
hleypa útlendingum aftur inn í
landhelgina - en spörum þeim
útgerðarkostnað.
Efnahagsbandalagið er stað-
ráðið í að stjórna fiskveiðum
okkar - ekki af góðsemd við okk-
ur heldur til hagsbóta fyrir
evrópskan fiskiðnað. Til þess
þurfa þeir ekki endilega við-
skiptasamning heldur þurfa þeir
nægilegt hráefni til að byggja upp
sterkan fiskiðnað hjá sér. Þegar
svo er komið eru þeir orðnir
meðstjórnendur í fiskveiðum
okkar. Fiskvinnslan - sagði ég
áðan - stendur á þröskuldi nýrra
tíma. Hún þarf svo sannarlega að
bæta sig. Stjórnunin þarf að
verða markvissari og einingarnar
þurfa að stækka. Til að geta
keppt um hráefnið og borgað
hærri vinnulaun þarf að tækni-
væða frystihúsin og auka sjálf-
virkni; stuðla þarf að samruna
frystihúsa og sérhæfingu þar eins
og í öðrum iðnaði. Auka þarf
hráefnisaðstreymið í húsin og
lengja vinnslutímann. Þetta kost-
ar mikla peninga, en ef ekkert
verður að gert dalar þessi iðnað-
ur og verður þriðja flokks fyrr en
varir.
Það er þessi útsýn sem leitt
hefur huga okkar að fiskveiði-
stefnunni. Og þótt hún geti ekki
leyst öll vandkvæði íslensks
fiskiðnaðar þá er hún þó sá
grundvöllur sem fiskvinnslan
stendur á.
Ég vil nú fara nokkrum orðum
um það kerfi sem notað er við
stjórnun fiskveiða án þess að lýsa
því ítarlega.
Við skulum skoða fjögur atriði
til að athuga áhrif kvótakerfisins
- eða núverandi útfærslu þess.
1. Eitt af meginmarkmiðum
þess var að stuðla að minni sókn
- draga úr heildarafla. Þetta hef-
ur ekki gengið eftir sem skyldi
bæði vegna sveigjanleika í kerf-
inu (sóknarmark, smábátar) en
einnig vegna þess að ráðuneytið
hefur nteð rýmkunarákvörðun-
um opnað fyrir meiri veiðar. Sl.
þrjú ár hefur verið veitt u.þ.b.
200 þús. tonn untfram tillögur
fiskifræðinga. Nú er svo komið
að flestir fiskistofnar eru ofveidd-
ir og 70% af þeim þorski sem land-
að er, er ókynþroska og þetta
hlutfall hefur farið vaxandi. Þið
vitið hvað það þýðir! Það verður
að gera þá kröfu til nýrrar fisk-
veiðistefnu að hún fari í einu og
öllu að tillögum fiskifræðinga unt
heildarafla.
2. Annað aðalmarkmið fisk-
veiðistefnunnar er að draga úr
sókn, lækka sóknarkostnað,
smækka flotann. Vissulega hef-
ur núverandi fiskveiðistefna
leitt til þess að dregið hefur úr
sóknarkostnaði. Útgerðin er rek-
in hagkvæmari nú en fyrir Rvóta-
kerfið. Þetta breytir því þó ekki
að flotinn hefur stækkað þrátt
fyrir innflutningsbann. Hér eru
göt í kerfinu, sem stoppa verður í.
Nýtt kerfi verður að hafa inn-
byggða hvata til að smækka
flotann.
3. Megin ágalli núverandi
kerfis er þó sá aukni útflutningur
sem ójafn ráðstöfunarréttur á
aflanum hefur leitt af sér.
Útflutningur á þorski hefur t.d.
tvöfaldast bæði árin 1985 og 1986
og á þessu ári er enn um að ræða
verulega aukningu. Þar sem
þessu máli hafa þegar verið gerð
nokkur skil hér að framan, læt ég
þetta nægja. Ný fiskveiðistefna
má ekki líta dagsins Ijós án þess
að á þessu máli verði tekið, á
þann hátt að verulega verði dreg-
ið úr útflutningi óunnins fisks.
Þetta er meginmál.
4. Hér mætti einnig ræða unt
þá byggðaröskun sem orðið getur
vegna tilflutnings á kvóta milli
héraða. Þá flyst ekki bara skip -
veiðitæki - heldur veiðiréttindi.
En þá er að lokum spurt: Hvað
vill Verkamannasambandið? Vill
það óbreytta fiskveiðistefnu eða
nýja og þá hvernig?
Ég hef í nefnd þeirri um mótun
fiskveiðistefnu sem ég sit í fyrir
hönd VMSÍ sett fram þau sjón-
armið að óeðlilegt sé að binda
veiðiheimildir eingöngu við báta
og skip. Ég hef talið að eðlilegra
sé að jafna aðstöðuna milli þeirra
sem í útgerð standa og hinna sem
í landi vinna.
Það finnst mér sanngirnismál.
Auk þess tel ég að með því sé
auðveldast að ná fram þeint
markmiðum sem ég setti fram
hér að framan. En mörgum þykja
það of róttækar tillögur og vilja
fara með meiri varúð. Auðvitað
er hægt að ná sumum af fyrr-
greindum markmiðum með öðr-
um leiðum. Förum þá yfir mögu-
leikana.
1. Ný stefna. Uppskipting
kvóta milli vinnslu og veiða.
2. Kvótinn fari á lögaðila þ.e.
eigendur skipanna. Myndi leiða
til samdráttar í flotanum án þess
að raska ráðstöfunarrétti útgerð-
araðila. Styrkja eilítið stöðu
vinnslu þar sem vinnslan er eig-
andi bátanna.
3. Kvótasjóður, kvótasala eða
auðlindaskattur. Stofnaður verði
e.d. sjóður sem selji veiðiheim-
ildir á markaði með eða án hindr-
ana. Hætt er við að veiðiheimild-
ir myndu fljótlega lenda hjá fjár-
sterkustu aðilum jafnvel útlend-
ingum sem hefðu fyrir sig leppa
hér. Ekki fýsilegur kostur.
4. Lagfæra núverandi kerfi.
a. Setja kvóta á úthafsrækju.
b. Setja kvóta á smábáta und-
ir 10 tonn.
c. Setja kvótaskerðingu á út-
flutning óunnins fisks.
d. Takmarka heildarafla enn
frekar.
e. Afnema eða takmarka
sóknarmark.
f. Frekari lagfæringar.
Við skulunt að lokum vera þess
minnug að fiskimiðin eru sant-
eign okkar allra. Afkoma þjóðar-
innar er undir því kontin að okk-
ur takist að nýta þau sem hag-
kvæmast og okkur takist að
byggja upp sterka fiskistofna.
Verkamannasambandið verð-
ur að móta heilstæða stefnu í
málefnum fiskvinnslu og fisk-
veiðistofna. Afkoma fólks er
ekki eingöngu háð kauptöxtum
heldur ekki síður stöðu og mögu-
leikum þeirrar atvinnugreinar
sem fólk starfar við.
32. kjördæmisþing
framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi eystra verður
haldið í Hrafnagilsskóla 13. og 14. nóvember n.k.
Þingið hefst kl. 20.30 á föstudagskvöld.
Sérmál þingsins eru heilbrigðismál.
Erindi flytja: Guðmundur Bjarnason heilbr. og tryggingaráðherra
Sigurður Halldórsson héraðslæknir Kópaskeri
Margrét Tómasdóttir námsbrautarstjóri Háskólans á Akureyri
Regína Sigurðardóttir fulltrúi Sjúkrahúss Húsav.
Halldór Halldórsson yfirlæknir Kristnesspítala
Gestir þingsins: Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins
ásamt fulltrúum frá Landssambandi framsóknarkvenna
og Sambandi ungra framsóknarmanna.
Nánar auglýst síðar.
Formenn félaga eru hvattir til að tilkynna þátttöku til skrifstofu KFNE í
síma 21180.