Dagur - 04.11.1987, Blaðsíða 13
4. nóvember 1987 - DAGUR - 13
1
íþróttir
Heil umferð í 1. deildinni í handbolta í kvöld:
Þór og KA mætast í
fyrsta skipti í 1. deild
- Víkingur og Valur leika í Laugardalshöll
í kvöld fer fram heil umferð í
1. deild íslandsmótsins í hand-
knattleik. Aðalleikur umferð-
arinnar fer fram í Höllinni á
Akureyri en þar mætast Þór og
KA ki. 20. Annar stórleikur
sem fram fer í kvöld er viður-
eign Víkings og Vals í Laugar-
dalshöll kl. 21.30, á undan
þeim leik mætast KR og
Stjarnan. ÍR og Fram leika í
Seljaskóla og í Hafnarfirði
leika FH og Breiðablik.
Það hafa margir handknatt-
leiksáhugamenn beðið spenntir
eftir því að Þór og KA mættust í
1. deildinni. En þetta er í fyrsta
skipti cem liðin leika samtímis í
1. deild. Þórsarar hafa enn ekki
náð stigi í deildinni og það er fátt
sem bendir til þess að liðinu tak-
ist að halda sæti sínu. KA-menn
hafa heldur ekki gert neinar rósir
til þessa. Þó átti liðið ágætan dag
gegn FH á sunnudag og Hafnfirð-
ingarnir máttu þakka fyrir að
sleppa heim með annað stigið.
Leikir KA og Þórs í gegnum
tíðina hafa oftast verið hörku-
Árni Slefánsson varnarmaður-
inn sterki úr Þór hefur ákveðið
að leika með nýliðum Leifturs
í 1. deildinni í knattspyrnu
næsta keppnistímabil. Leiftur
hefur þá þegar krækt í tvo
snjalla leikmenn en eins og
komið hefur fram, hyggst
Hörður Benónýsson framherji
úr Völsungi einnig leika með
Um síðustu helgi fór fram á
Sauðárkróki fjölliðamót í b-
riðli 4. flokks, það fyrsta af
þrem í vetur. Lið Akurnesinga
bar sigur úr býtum í mótinu, en
lið Tindastóls rak lestina og
féll niður í c-grúppu.
Akurnesingar unnu flesta leiki
sína örugglega og voru með áber-
andi besta lið mótsins. Grindvík-
ingar urðu í öðru sæti, KR í
Ieikir og þá hefur ekki skipt máli
þótt annað liðið væri í 1. deild og
hitt í 2. deild. Það má einnig
búast við fjörugum leik í kvöld
og víst er að handknattleiks-
áhugamenn á Akureyri munu
ekki láta þennan leik framhjá sér
fara.
liðinu.
Árni er einn leikreyndasti
leikmaður Þórsliðsins, með yfir
100 leiki að baki í 1. deild og
hann kemur til með að styrkja
Lciftursliðið mikið. Þetta er að
sama skapi mikið áfall fyrir Þórs-
ara, þar sem Árni hefur verið einn
besti leikmaður liðsins undanfar-
in ár.
þriðja, ÍR í fjórða og Tindastóll í
fimmta sæti. Töpuðu Sauð-
krækingarnir öllum sínum leikj-
um; 29:40 fyrir UMFG, 52:75
fyrir ÍR, 28:53 fyrir ÍA og 39:61
fyrir KR. Þeir Sigurður Levý og
Pétur Vopni Sigurðsson voru þeir
einu í Tindastólsliðinu sem
eitthvað létu að sér kveða.
Sigurður skoraði 61 stig og Pétur
56. -þá
Þór - KA í kvöld:
Hverju
spá þau?
I kvöld fer fram stórleikur í
1. deildinni í handbolta í
Höllinni á Akureyri. Þar
mætast Þór og KA eins og
fram kemur hér til hliðar á
síðunni. Dagur hafði sam-
band við nokkra handknatt-
leiksáhugamenn í bænum og
fékk þá til að spá um úrslit í
leiknum.
Reynir Karlsson:
„Ég geri ráð fyrir því að
Þórsarar vinni þennan leik.
Þetta verður hörkuleikur en
Þór vinnur 25:23. Ef liðið
nær að leika vel í vörninni er
þetta ekki spurning. Þórsar-
ar hafa skorað mikið af
mörkum í undanförnum
leikjum en varnarleikurinn
hefur ekki verið nógu
góður.“
Gunnar Gunnarsson:
„KA á að vinna þennan
leik samkvæmt öllu en það
geta oft skeð óvæntir hlutir í
handbolta. Ef KA-liðið nær
sér á strik í kvöld vinnur það
leikinn með 5 til 6 marka
mun og alveg örugglega ef
Erlingur verður í formi. Það
stefnir því miður allt í það
að Þórsarar falli í 2. deild og
KA-menn virðast heldur
ekki ætla að gera neinar rós-
ir í vetur. En það yrði að
mínu mati mjög óvænt tæk-
ist Þórsurum að sigra í
kvöld.“
Ragnar Sverrisson:
„Ég vona að þetta verði
hörkuleikur en mín spá er
sú að hann endi með jafn-
tcfli 19:19. KA-menn hafa á
að skipa sterkara liði en það
nýtist bara ekki í þessum
innbyrðisleikjum. Þetta er
svipað og það var í gamla
daga þegar ég og Leibbi
höfðum hár. Þá var alveg
sama hvort liðið var sterk-
ara, innbyrðisleikir KA og
Þórs voru alltaf hnífjafnir og
æsispennandi og gátu farið á
hvorn veginn sem var.“
Ingyeldur Jónsdóttir:
„Ég hef trú á því að KA
vinni leikinn 24:18. Liðið
hefur á að skipa bæði sterk-
ari og reyndari leikmönn-
um. Þetta verður mikill bar-
áttuleikur eins og alltaf þeg-
ar þessi lið mætast. Sigur
KA-manna verður ekki
átakalaus og Þórsarar munu
örugglega láta þá hafa fyrir
hlutunum."
Halldór Rafnsson:
„KA-menn vinna þennan
leik, þeir hafa á að skipa
betra liði. Þórsarana vantar
meiri styrk og reynslu en þó
hefur leikur liðsins batnað
til muna að undanförnu.
Þórsarar hafa það fram yfir
KA-menn að það er mun
meira barátta í þeim og þeir
fara langt á því en það eru
betri einstaklingar í KA-
liðinu. Þetta verður jafn og
spennandi leikur og ég vona
bara að bæjarbúar troðfylli
Höllina.“
Árni Stefánsson Þórsari átti mjög góðan leik gegn Fram um síðustu helgi og
hann á örugglega eftir að reynast KA-mönnum erfiður í kvöld. Mynd: Róbert
1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2
Þoivaldur vann og
skorar á Ingibjörgu
Þorvaldur Þorvaldsson er enn á sigurbraut í getraunaleiknuin.
Um helgina sigraöi hann Hauk Valtýsson tannlækni og þjálfara
KA í blaki. Þorvaldur var með 5 leiki rétta en Haukur aðeins 1
leik, enda voru mörg úrslitin óvænt að þessu sinni. Þorvaldur
heldur því áfram enn eina ferðina og hann hefur snúið sér að
kvenfólkinu á nýjan leik og að þessu sinni skorað á Ingibjörgu
Gísladóttur starfsmann í KA-heimilinu. Ingibjörgu leist ekkert
allt of vel á að taka þátt í leiknum en lét þó tilleiðast. Hún segist
ekki hafa nokkurt vit á ensku knattspyrnunni en á þó sitt uppá-
haldslið, sem er Manchester United. Oft er það nú þannig í get-
raunum, að þeir sem minnst hafa vit á hlutunum, standa sig
best. Spá þeirra lítur annars þannig út:
Þorvaldur:
Ingibjörg:
Charlton-Norwich x
Luton-Newcastle 1
Wimbledon-Southampton 1
Barnsley-Bradford 2
Blackburn-Bradford 1
Bournemouth-C.Palace x
Hull-Birmingham 1
Ipswich-Reading 1
Leeds-Shrewsbury 1
Leicester-Swindon 1
Sheff.Utd.-Middlesbro 2
Stoke-W.B.A. x
Charlton-Norwich 1
Luton-Newcastle x
Wimbledon-Southampton 1
Barnsley-Bradford 2
Blackburn-Bradford 1
Bournemouth-C.Palace 2
Hull-Birmingham 2
Ipswich-Reading 1
Leeds-Shrewsbury 1
Leicester-Swindon 1
Sheff.Utd.-Middlesbro x
Stoke-W.B.A. 2
Tipparar munið að skila seðlunum inn fyrir hádegi á fímmtudög-
um svo enginn verði nú af vinningi.
1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2
Pétur Vopni Sigurðsson leikmaður Tindastóls í körfubolta í baráttu við varn-
armenn Grindvíkinga í leik liðanna um helgina. Mynd: -þá
Knattspyrna:
Árni leikur
með Leiftri
Körfubolti 4. flokkur:
Tindastóll
féll í c-riðil