Dagur - 04.11.1987, Blaðsíða 16
DACKJE
Akureyri, miðvikudagur 4. nóvember 1987
Tvær nætur með
morgunverði á
kr. 1.920
Helgaiyisting á Hótel Húsavík
Hötel ________
Húsavik sími 41220.
The M.dmghtiun
Hote!
Alþýðubandalagið:
Valdabaráttan
í algleymingi
Nú styttist í landsfund Alþýðu-
bandalagsins þar sem heitasta
málið verður án efa kosning
nýs formanns. Á laugardaginn
kl. 10 munu landsfundarfull-
trúar kjósa formann flokksins
og úrslitin eiga að liggja fyrir
skömmu síðar. í framhaldi af
því, eða eftir hádegi, verður
gengið frá kjöri stjórnar. En
hvernig standa leikar í for-
mannsslagnum?
Sá kvittur hefur komist á kreik
að búið væri að sætta stríðandi
fylkingar í flokknum með því að
semja um úrslitin. Ólafur Ragnar
á þannig að fá formannssætið en
Sigríður verður varaformaður.
Þeir alþýðubandalagsmenn sem
blaðið hefur haft samband við
laginu hefur haft veruleg áhrif á
fylgi flokksins, eins og fram kom
í skoðanakönnun Hagvangs. Þar
segjast aðeins 8,9% aðspurðra
styðja Alþýðubandalagið en
flokkurinn fékk 13,3% atkvæða í
síðustu alþingiskosningum.
Alþýðubandalagsmenn eru þó
handvissir um það að fylgið muni
aukast strax eftir landsfundinn,
hvernig sem formannsslagurinn
endar. Þeir segja það líka alls-
endis óvíst hvort sá sem verður
undir í formannskjörinu verði
kjörinn varaformaður. En við get-
um ekki treyst neinum spádóm-
um, úrslitin ráðast á landsfundin-
um um næstu helgi og víst er að
margir bíða hans með óþreyju.
SS
Bátar á legunni í Grímsey.
Mynd: ÁÞ.
segja þetta rakinn uppspuna.
Engir samningar hafi verið gerðir
heldur verður um hreina kosn-
ingu að ræða á landsfundinum.
Stuðningsmenn Sigríðar láta í
það skína að sögusagnir sem
þessar séu frá Ólafsmönnum
komnar og til þess fallnar að
freista þess að hafa áhrif á úrslit-
in. Þeir segja jafnframt að Sigríð-
ur njóti stuðnings meirihluta
landsfundarfulltrúa, en sá meiri-
hluti sé mjög naumur og því grípi
stuðningsmenn Ólafs til ýmissa
ráða.
Burtséð frá þessu er ljóst að
gauragangurinn í Alþýðubanda-
Dagvistun á Akureyri:
Stefnu-
mótun á
lokastigi
Um þessar mundir er félags-
málaráö Akureyrar að leggja
síðustu hönd á uppkast að
stefnumótun í dagvistarmál-
um. Að sögn Jóns Björnssonar
félagsmálastjóra er tilrauna-
verkefnið í Síðuhverfi liður í
þessari stefnumótun á þann
hátt að ef tilraunin tekst vel þá
gæti hún markað framtíðarfyr-
irkomulag í dagvistarmálum.
Jón sagði að stefnumótunin
væri á lokastigi en unnið hefur
verið við hana allt frá því í janú-
ar. Hann sagði að mikilvægt
hefði verið að meta dagvistar-
þörfina og í því sambandi að
kanna hve mikill hluti hvers ár-
gangs væri í hverri tegund dag-
vistar.
„Þá gerum við áætlanir um
uppbyggingu út þetta kjörtíma-
bil, hvernig næstu skref í dagvist-
un verði, hvar verði byggt
o.s.frv. Við setjum fram ansi
ítarleg ákvæði um starfshætti
allra dagvistarformanna, bæði
eru þar eldri reglur sem við söfn-
um saman og ýmis nýmæli. Eins
erum við með tillögur um nýtt
fyrirkomulag varðandi mönnun
dagvista,“ sagði Jón meðal
annars. SS
Sameinast Tíminn, Þjóðviljinn og Alþýðublaðið í eitt?
- segir Ingólfur Margeirsson ritstjóri Alþýðublaðsins
pólitík því forsendan fyrir svona
blaði er sú að flokkarnir geti séð
af sínum málgögnum, með öðru
móti verður ekki hægt að byggja
þetta upp sem „professional"
blað. Ég tel að svona hugmynd
verði að koma frá formönnum
flokkanna þriggja en því miður
tel ég litlar líkur á að svo verði,“
sagði Ingólfur. ET
Þref um girðingarmál í Skagafirði:
„Hefði klippt girð-
inguna með naglbit"
- segir Dúddi á Skörðugili
„Þetta eru nú ekki beint deil-
ur. Þetta er miklu frekar mein-
ingarmunur og ég hef bara
gaman að þessu,“ sagði Dúddi
á Skörðugili um þref vegna
girðingarmála við bændur í
Sæmundarhlíð, sem staðið hef-
ur í haust. Brotinn hliðstaur í
síðustu viku er það síðasta sem
gerðist í málinu.
Hross bændanna á Syðra-
Skörðugili hafa um árabil getað
farið óheft yfir Sæmundará í land
Skarðsár, þar sem einbúinn Pálína
Konráðsdóttir býr. Þaðan hafa
þau getað leitað hvort heldur til
fjalls eða farið eftir veginum út
Sæmundahlíð. Bændur í Sæ-
mundarhlíð voru orðnir lang-
þreyttir á þessu og tóku sig til fyr-
ir göngurnar í haust og girtu
meðfram Sæmundará, í samráði
við Vegagerðina sem útvegaði
efnið.
Seyluhreppingar sem þurfa að
fara þarna um í göngur gerðu
strax athugasemdir við staðsetn-
ingu hliðs og af þeim sökum var
komið fyrir öðru hliði á girðing-
unni. Við heimasmölun í haust
varð svo aftur ágreiningur út af
girðingunni. Þá sögðu Hlíðar-
menn bændurna á Syðra-Skörðu-
gili hafa farið inn í Skarðsárland
til að smala. Kærðu þeir til sýslu-
manns og fóru fram á að fénu
yrði skilað. Fyrir nokkru var
öðru hliðinu læst með keðju og
lás og fékk fjallskilastjóri í Stað-
arhreppi samþykki fjallskilastjór-
ans í Seyluhreppi fyrir því. í síð-
ustu viku var svo hlið þetta brotið
upp.
„Ég var þarna á ferð og opnaði
hliðið sem var búið að læsa. Mér
finnst það ekkert stórvægilegt.
Ég hef ekkert út á girðinguna að
setja, en ég læt þá ekki loka hlið-
inu. Það eru engin lög fyrir því að
loka hliðum á þennan hátt og ef
ég hefði verið með naglbít á mér
hefði ég klippt girðinguna í sund-
ur suður með ánni þar sem gamli
vegurinn lá, frekar en brjóta hlið-
staurinn. Ég átti allt eins von á
því að þeir mundu kæra mig en
það hafa þeir ekki gert ennþá,“
sagði Dúddi.
Bjarni Jónsson fjallskilastjóri á
Hóli sagði að annað hlið ólæst
væri á girðingunni og ætti Dúdda
að vera vel kunnugt um það. Seg-
ir hann Dúdda ekkert eiga með
að rjúfa girðinguna hvort heldur
að norðan- eða sunnanverðu.
Hún sé einfaldlega ekki í hans
landi. -þá
Fyrir um 10 árum kom sú hug-
mynd fyrst upp að flokksmál-
gögnin þrjú Tíminn, Þjóðvilj-
inn og Alþýðublaðið samcin-
uðust í eitt stórt og sterkt
dagblað til mótvægis við Morg-
unblaðið. Hugmyndin hefur
alltaf af og til skotið upp koli-
inum að nýju og nú síðast í
tilefni af væntanlegum búferla-
flutningum þessara þriggja
blaða þegar öll starfsemi þeirra
þar á meðal sameiginleg prent-
smiðja, flyst í tvö samliggjandi
hús að Lyngháisi í Reykjavík.
„Það er áhugi fyrir þessu hjá
sumum en öðrum ekki og því er
ekki að neita að málið hefur lifn-
að að nýju með þessum áformum
um flutninga," sagði Ingólfur
. Margeirsson ritstjóri Alþýðu-
blaðsins aðspurður um hvort
sameining blaðanna stæði fyrir
dyrum.
„Mér finnst það mjög spenn-
andi hugmynd að slá þessum
blöðum saman í eitt sterkt ár-
degisblað sem væri einhvers kon-
ar félagshyggjublað. Markaðs-
lega séð mælir allt með þessu því
þessi blöð berjast nú öll fyrir fjár-
hagslegri tilveru sinni og samein-
ing myndi auka hagkvæmnina
mikið.
Þetta er bara spurning um
í dag verður Aldís Einarsdótt-
ir, elsti núlifandi íslendingur-
inn, 103ja ára. Aldís er vist-
maður á Kristnesspítala þar
sem hún hefur dvalið um
tveggja ára skeið.
Aldís Einarsdóttir er fædd á
Gnúpufelli í Saurbæjarhreppi
árið 1884. Foreldrar hennar voru
Einar Sigfússon, ættaður frá
Gnúpufelli og Guðríður Brynj-
ólfsdóttir sem var Skagfirðingur
að ætt. Fjölskyldan tluttist að
Stokkahlöðum I í Hrafnagils-
hreppi árið 1891 en eftir að for-
eldrar Aldísar féllu frá tók hún,
ásamt tveimur systkinum sínum,
við jörðinni.
Á Stokkahlöðum bjó Aldís ein
eftir að systkini hennar, Bjarni
og Rósa, létust. Fyrir tveimur
árum flutti hún á Kristnesspítala
Elsti núlifandi íslendingurinn,
Aldís Einarsdóttir.
þar sem hún er nú vistmaður,
sem áður segir.
Dagur óskar Aldísi innilega til
hamingju með 103ja ára afmælið.
JÓH
„Bara spurning um pólitík“
Aldís Einarsdóttir
103 ára í dag