Dagur - 11.12.1987, Qupperneq 3
11. desember 1987 - DAGUR - 3
Lágheiði
fólksbílafær
Lágheiði milli Ólafsfjarðar og
Fljóta hefur verið fær í allt
haust ef undan er skilið hretið í
október. Á mánudag var hún
hreinsuð með veghefli, þó hún
væri þá vel jeppafær og er
þessa dagana fær öllum fólks-
bflum.
„Ég man ekki eftir að Lág-
heiðin hafi verið fær á þessum
tíma síðan mokstur hófst um
1960. Það er dálítil hálka á henni
Ólafsfjarðarmegin, sérstaklega í
Fossbrekkunum, en annars
kemstu yfir hana á fólksbíl. Ég
segi ekki á sumardekkjum en
örugglega á negldum vetrar-
dekkjum,“ sagði Gísli Gunnars-
son verkstjóri hjá Vegagerðinni á
Sauðárkróki í samtali við Dag.
-þá
Hegranesið
landaði í
gáma syðra
Hegranes landaði á þriðju-
dagsmorgun í Reykjavík lið-
lega eitt hundrað tonnum af
fiski, mestmegnis karfa. Var
megnið af aflanum sett í gáma
og selt til Þýskalands og
Frakklands.
Afgangurinn tæp 10 tonn af
ýsu voru síðan seld fyrir mjög
gott verð á Faxamarkaði á mið-
vikudagsmorgun.
Að sögn Marteins Friðriksson-
ar framkæmdastjóra Fiskiðjunn-
ar var hætt við að láta Hegra-
nesið sigla sökum þess að þorsk-
fiskiríið hefur algjörlega brugð-
ist undanfarið. Stefnt er að því að
skipið landi á Króknum í næstu
viku. Fiskiðjan keypti bátafisk á
Fiskmarkaði Norðurlands á
þriðjudag og náði með því 2ja
daga vinnslu. -þá
Útvarpsstöðvar:
Stjarnan og
Ljósvakinn
koma norður
- þó ekki á næstunni
„Það var tekin um það ákvörð-
un hér að fara norður en okkur
hefur ekki orðið eins mikið úr
verki og við ætluðum þannig
að ég get ekki svarað því á
þessari stundu hvenær Stjarn-
an byrjar að hljóma fyrir
norðan,“ sagði Þorgeir
Ástvaldsson á Stjörnunni,
vinsælli útvarpsstöð sunnan
heiða.
Norðlendingar sjá fram á auk-
ið framboð útvarpsefnis. Stjarn-
an er væntanleg og fyrir eru
Ríkisútvarpið, Svæðisútvarpið,
Rás 2, Hljóðbylgjan og Bylgjan.
Pá er gert ráð fyrir því að Ljós-
vakinn, ný útvarpsstöð þeirra
Bylgjumanna (íslenska útvarps-
félagsins), muni einnig hljóma
fyrir norðan í framtíðinni.
Að sögn Einars Sigurðssonar
útvarpsstjóra Bylgjunnar er
meiningin að vinna Ljósvakanum
fylgi í Reykjavík áður en stöðin
fer út á land og því mega Norð-
lendingar ekki búast við að fá að
hlusta á rólega og klassíska tón-
list Ljósvakans alveg á næstunni.
Hann sagðist hafa fengið margar
fyrirspumir frá Norðlendingum og
greinilegt að þeir væru spenntir
fyrir þessari nýju útvarpsstöð.
SS
AKURVÖOS
• 12 bolla kafflvél, eilíföar filter. Mæliskeið,
vatnsmælir og hitaplata.
• Elnita 140 saumavélin. Einföld, sterkog
ótrúlega fjölhæf. Saumaröll nauösynlegu
sporin. Saumavélin fyrir þá sem bæta og laga en
eyða ekki öllum fritima i saumaskap. Verðið er
eftir því.
• Gufustraujárn. Létt
og handhægt. Breiður
sjálfhreinsandi álsóli
með 35 gufuventlum.
Nákvæmur hitastillir.
Vatnsmælir.
1800cl vatnsgeymir.
Philips Maxim eldhúsvélin þarf
litla utanaökomandi hjálp. öflug
hrærivél, grænmetiskvöm,
hakkavél og blandari. Fjölhæfni
Philips Maxim ern lítil takmörk
sett.
Innifalið í verði: Stórskál • þeytari • hnoöari
lítil skál • grænmetiskvöm • hakkavél •
blandari • spaöi.
• Kraftmikil ryksuga. Mikill sogkraftur en hljóð-
látur mótor. Fóthnappur. Tveir auka hausar.
Þessi er góð í jólahreingeminguna.
AKURVIK
ÍS HF. - GLERÁRGÖTU 20 - AKUREYRI - SÍMI 22233
Mýjar vörur
- vandaðar vörur
Kaupmannafélag
Akureyrar