Dagur - 15.12.1987, Síða 5
15. desember 1987 - DAGUR - 5
Farsímaþjónustan:
Langmest notkun um
borð í skipum
Frá því að sjálfvirk farsíma-
þjónusta hófst hjá Pósti og
síma í júlí 1986, hefur notend-
um farsímaþjónustunnar fjölg-
að úr um 2100 í rúmlega 4800,
eða um 130%. Stækkun kerfis-
ins hefur ekki náð að fylgja
þessari miklu fjölgun eftir.
Rásum farsímakerfisins hefur
að vísu fjölgað um því sem næst
100% en þær eru nú orðnar 185.
Gert er ráð fyrir um 30 rásum til
viðbótar í lok ársins. Minnst
fjölgun hefur orðið í radíó-
móðurstöðvum en 6 nýjar hafa
bæst við á þessu ári. Móðurstöðv-
ar kerfisins eru nú 35 talsins og er
vonast til að þær verði 40 í
árslok.
Á næsta ári er gert ráð fyrir að
fjölga rásum um rúmlega 100 og
einnig að taka í notkun margar
nýjar móðurstöðvar, fáist nauð-
synlegar fjárfestingarheimildir til
verksins.
Notkun farsíma á íslandi er
mjög mikil. Farsímanotendur
hringja að meðaltali 3 símtöl á
dag og er meðallengd þeirra
um 3 mínútur. Fetta er mikil
notkun ef miðað er við nágranna-
HÚSAVÍK’JS-
FJALL
iÁTUNGI
0121 .
BJ0R6/I
fcGRAMEl
ÍELLISJ
JAR-
IFJALL
GAGN
FARSIMAÞJONUSTA NMT-450
MÓOURSTÖOVAR OG RÁSAFJÖLDI
IJARBUNGA
iARNES
G STVK
igJldruholti —.
------------A NiESTUNNI
lönd okkar og ekki síst er hin
mikla þörf fyrir þetta kerfi
athyglisverð ef hafður er í huga
hinn mikli fjöldi tengdra númera
í hinu almenna kerfi, en þau eru
47 á hverja 100 íbúa.
Ársfjórðungs- og mínútugjöld
fyrir farsíma eru lægri hér á landi
en annars staðar á Norðurlönd-
um en hins vegar er stofngjald
nokkru hærra.
Könnun sem gerð var síðastlið-
ið sumar á notkun farsímakerfis-
ins leiddi í ljós að 20% farsíma-
tækja væru um borð í bátum og
skipum en að um 60% af heildar-
upphæð reikninga fyrir farsíma-
þjónustu væri fyrir notkun þess-
ara tækja og annarra tækja
tengdum úrgerð. Algengt er orðið
að í stærri skipum séu tveir far-
símar og í smæstu bátum eru
farsímar orðnir algengir. Þessi
mikla notkun farsíma í skipum
hefur leitt til þess að samtölum í
gegnum strandstöðvar hefur
fækkað um nær 50% en hins veg-
ar hefur samtölum í báðum
kerfunum samanlagt fjölgað nær
fimmfalt. ET
flerrasloppa*
og náttíöt.
Tonirfluöft
Vorum ao \***
upp bindi. bindisnæliw
0g ermaVmappa.
íSú verða
a\Urkar\meimmeðbmdi
0g nælu um jóbn. -
Tfekan í dag.
iski.sk jaktafot
loða&uototverö.
pýsku hettahuxumai, ný sendine
Ótrúlcftt únaH «nm
u\\ og galla
(96) 21400