Dagur - 16.12.1987, Síða 2
2 - DAGUR - 16. desember 1987
Nóvember:
Hverfandi lítið
atvinnuleysi
Aðeins voru skráðir 5.800
atvinnuleysisdagar í nóvember
á landinu öllu sem er ekki
nema fjórðungur af því sem
verið hefur í sama mánuði
undanfarin 5 ár. Svarar þetta
til þess að 270 manns hafi að
meðaltali verið á atvinnuleysis-
skrá í nóvember en það jafn-
Húsavík:
Loðnubátur með
vír í skrúfunni
Loðnubáturinn Hilmir 2. frá
Fáskrúðsfirði fékk snurpuvír í
skrúfuna þegar hann var að
veiðum norður af Melrakka-
sléttu á mánudaginn.
Grindvíkingur dró Hilmi að
Húsavíkurhöfn þar sem Sigþór
ÞH-100 tók við og dró bátinn að
bryggju skömmu eftir miðnætti.
Strax var hafist handa við að
klippa vírinn úr skrúfunni, gekk
það ágætlega og hélt báturinn aft-
ur til veiða um nóttina. IM
gildir 0,2%
mannafla á
mánuðinum.
af áætluðum
vinnumarkaði í
í nóvembermánuði ’86 voru
479 manns á skrá, eða 0,4% og ef
við förum aftur til ársins 1984 þá
voru 1.290 manns á atvinnu-
leysisskrá í mánuðinum, eða
1,1% af mannafla. Á Norður-
landi eystra voru 62 á skrá nú en
94 í fyrra og á Norðurlandi vestra
voru 35 á skrá nú en 63 í fyrra.
Eins og vant er hefur atvinnu-
leysi aukist á milli október og
nóvember en þó mun miniia nú
en á síðustu árum. Lítum á ein-
staka staði norðanlands, svigatöl-
ur tákna fjölda atvinnulausra í
október:
Sauðárkrókur 11 (9), Siglu-
fjörður 2 (0), Hólmavík 1 (1),
Hvammstangi 12 (5), Blönduós 7
(0), Skagaströnd 1 (0), Ólafs-
fjörður 4 (6), Dalvík 1 (0), Akur-
eyri 19 (34), Húsavík (og hreppar
í S.-Þing.) 32 (21), Árskógshrepp-
ur 2 (1), Kópasker 1 (2) og Rauf-
arhöfn 2 (0). SS
Álafoss og prjónastofur:
Aðaláherslan veiður
lögð á maikaðsmál
A mánudag var haldinn á
Sauðárkóki fundur flestallra
hagsmunaaðila í ullar- og
prjónaiðnaði á Norðurlandi
vestra með forráðamönnum
nýja risans í ullariðnaðinum,
Alafossi hinum nýja, þeim
Jóni Sigurðarsyni fram-
kvæmdastjóra og Aðalsteini
Helgasyni aðstoðarfram-
kvæmdastjóra. Tilgangur
fundarins var að kynna fyrir-
tækið, hvernig það komi til
með að starfa og á hvern hátt
það geti hugsanlega þjónað
þessum fyrirtækjum sem best.
En margar prjónastofanna áttu
stóran hiuta viðskipta sinna við
gamla Alafoss.
Miklar umræður urðu um þessi
mál á fundinum og ákveðið að
halda þeim áfram. Fram kom að
nauðsynlegt er og líklega mögu-
legt að ná fram verulegri verð-
hækkun á ullarvarningi á mörk-
uðunum. Þá ekki síst á innan-
landsmarkaðinum sem einkennst
hefur mjög af undirboðum.
Prjónastofurnar spurðu mikið út
í verkefnastöðu Álafoss og hvers
mætti vænta í þeim efnum. í svari
Álafossmanna kom fram að ekki
yrði ráðist í fjárfestingu til auk-
innar framleiðslugetu heldur
verði aðaláherslan lögð á mark-
aðsmálin í þeirri von að á þann
hátt verði þörf fyrir aukna fram-
leiðslu í greininni. Þá væri í dag
ekki hægt að lofa neinum veru-
legum verkefnum, enda allsendis
óljóst hvernig samningum við
Sovétmenn verði háttað, en þeir
samningar eru mjög afgerandi
fyrir minni prjónastofur. Einnig
sé of snemmt að segja til um
hvernig salan á Vesturlöndum
muni ganga. -þá
Gylfi Arnbjörnsson, Jón Gauti Jónsson, Unnur Kristjánsdóttir,
Karlsdóttir. Á myndina vantar Sigurlaug Elíasson.
Margrét Soffía Björnsdóttir og Arnþrúður Ösp
Gránufélagið með aðstöðu í gömlu Gránu
Síðasta laugardag var formlega
tekin í notkun aðstaða sú sem
sexmenningar er kalla sig
Gránufélagið hafa komið sér
upp á efri hæð gömlu Gránu.
Buðu þeir þá vinum og velunn-
urum að skoða aðstöðuna og
kynntu þeim þá starfsemi sem
þarna mun fara fram. í Gránu
voru aðalbækistöðvar Kaup-
félags Skagfirðinga frá 1904 er
húsið var byggt og þar til félag-
ið flutti að Artorgi fyrir nokkr-
um árum. Er gamla Grána
orðin björt og hreinleg eftir
andlitslyftingu Gránufélags-
manna.
Meðal aðila í Gránufélaginu er
iðnráðgjafi Norðurlands vestra.
Iðnráðgjöf á vegum Iðnþróunar-
félags Norðurlands vestra hefur
verið starfrækt í 2 ár og hefur
reynslan sýnt að mikil og náin
tengsl við fyrirtæki er forsenda
góðs árangurs. Opnun skrifstofu
á Sauðárkróki er til að koma á
þessum tengslum og bæta þar
með þjónustuna í Skagafirði.
Opnunartími verður á þriðjudög-
um frá 9-16 og verður iðnráðgjaf-
inn Unnur Kristjánsdóttir þá til
viðtals. Þá má nefna myndlist-
armennina Margréti Soffíu
Björnsdóttur (Sossu) og Sigur-
laug Elíasson. Sossa er grafíker
frá Kaupmannahöfn 1984 og hef-
ur tekið þátt í samsýningum bæði
heima og erlendis. Verk hennar
eru til sölu. Sigurlaugur útskrif-
aðist úr málaradeild Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1983.
Hann hefur haldið 3 einkasýning-
ar á málverkum og grafík og tek-
ið þátt í samsýningum.
Árnþrúður Ösp Karlsdóttir
mun þrykkja sáldþrykk, mála á
efni og vinna ýmsa muni úr leðri.
Einnig býður hún félagasamtök-
um og fyrirtækjum upp á að
þrykkja á búninga, veifur, fána
o.fl.
Jón Gauti Jónsson landfræð-
ingur kallar fyrirtæki sitt í hand-
raðanum. Það er þjónustufyrir-
tæki sem býður upp á; gerð upp-
lýsinga- og auglýsingabæklinga,
fjölmiðlun og ferðaþjónustu, s.s.
gerð ferðamannabæklinga. Jón
Gauti hefur frá árinu 1987 unnið
að ýmiss konar bæklingagerð í
samstarfi við SÁST sf.
Gylfi Arnbjörnsson cand.
merc. í rekstrar- og svæðis-
hagfræði hefur stofnað ráðgjaf-
arfyrirtækið Hugmyndir sf. Hug-
myndir veitir annars vegar sér-
fræðilega ráðgjöf í gerð byggða-
áætlana, þar sem sú reynsla og
þekking sem fyrir er á hverjum
stað er höfð að leiðarljósi. Hins
vegar veitir Hugmyndir sf. ein-
stökum fyrirtækjum alhliða ráð-
gjöf og aðstoð við reksturinn.
'þá
Blönduós:
ibróttahúsið verður væntan-
ega fokhelt næsta sumar
- fullkominn keppnisvöllur og 25 m löng sundlaug
Næsti áfangi við byggingu
íþróttahússins er að gera það
fokhelt og verður sá áfangi
boðinn út í vor. Samtals er
byggingin hátt í 14.000 rúm-
Áskrifendagetraun Dags:
Getraunaseðill desember-
mánaðar hefur verið birtur
Þá er búið að draga í áskrif-
endagetraun Dags fyrir
nóvembermánuð. Nafn Sævars
Arnasonar var dregið úr rétt-
um lausnum og hlaut hann því
hina glæsilegu Pioneer hljóm-
tækjasamstæðu.
Lesendur eru minntir á að
getraunaseðillinn fyrir desem-
bermánuð var birtur í blaðinu í
gær og nú er að drífa sig í að
finna rétt svör við spurningunum
á seðlinum og senda lausnir til
blaðsins. Munið samt að aðeins
áskrifendur að blaðinu hafa rétt
til að taka þátt í getrauninni.
Vinningur í desembergetraun-
inni er heldur ekki af lakari
endanum, draumaferð fyrir tvo
til Thailands með Samvinnuferð-
um/Landsýn að verðmæti
160.000 kr. Enginn má láta þetta
tækifæri fram hjá sér fara.
Berghildur Þóroddsdóttir dregur út nafn hins heppna.
Mynd: ÁÞ.
metrar að stærð. í húsinu verð-
ur fullkominn keppnisvöllur og
fyrir utan húsið 25 m löng
sundlaug. Kostnaðaráætlun
arkitekts hússins Jóns Guð-
mundssonar hefur hingað til
staðist.
Á 100 ára afmæli Blönduós-
hrepps árið 1976 var ákveðið að
ráðast í byggingu íþróttahúss.
Skyldi byggingu hússins vera lok-
ið innan ákveðinna ára. Árið
1981 var gerður hönnunarsamn-
ingur við Jón Guðmundsson
arkitekt og skilaði hann fullbún-
um teikningum að íþróttahúsinu
tveimur árum síðar.
Fyrsti hluti byggingarinnar var
svo boðinn út og var lokið við
sökkla og plötu 1985. Nú er 3.
áfanga hússins, sem er uppsteypa
á hreinlætisaðstöðu og veggjum
íþróttasalar upp að límtrésbitum,
við það að ljúka. Verktaki er
Stígandi hf. og var tilboð hans kr.
7,2 milljónir á verðlagi júlí-
mánaðar 1986.
Næsti áfangi er að gera húsið
fokhelt og verður sá áfangi boð-
inn út í vor. Reiknað er með að
kostnaður við þann verkþátt
verði um 20 milljónir króna.
Heildarkostnaður við bygging-
una á verði í dag er aftur á móti
áætlaður um 90 millj. króna sam-
kvæmt framreiknaðri áætlun
arkitektsins og samkv. upplýsing-
um tæknifræðings Blönduós-
hrepps þá hefur sú áætlun staðist
hingað til. pbv
Stöð 2 á Króknum:
Sést illa í
Hlíðarhverfi
íbúar í Hlíðarhverfi á Sauðár-
króki hafa margir hverjir verið
í hinum mestu vandræðum með
að ná sendingum Stöðvar 2 þrátt
fyrir að vera komnir með allan
búnað til þess. Á skermum
þeirra sést allt frá hárflnum
snjó upp í stórhríð.
Niðri í bænum sést útsendingin
ágætlega frá 10 vatta sendi á sím-
stöðvarhúsinu. En það er eins og
endurvarpssendirinn á sjúkrahús-
inu, sem er eitt vatt, nái ekki að
dreifa geislanum nægjanlega um
Hlíðarhverfið og verða sérstak-
lega jaðrar þess útundan, sam-
kvæmt upplýsingum Ágústs
Kárasonar rafeindavirkja sem
fólk hefur leitáð til í vandræðum
sínum. Eru dæmi þess að skilyrði
séu mjög mismunandi milli sam-
liggjandi húsa þrátt fyrir sama
búnað.
Að sögn írisar Erlingsdóttur
hjá Stöð 2 hafa engar kvartanir
borist frá Sauðkrækingum og því
ekkert meira um málið að segja.
-þá