Dagur - 16.12.1987, Qupperneq 14
14 - DAGUR ^ 16. desember 1987
AEG
ALVEG
EINSTÖK
GÆÐI
Þvottavélar
Það borgar sig
fyrir tollahækkun
★ Þvottekta gæði ★
Vinsældalisti
Hljóðbylgjunnar
- vikuna 11/12-18/12 1987
Sæti Áóur Vikur Lag Flytjandi
1. (D 5 Tears on the ballroom floor Cry/no/more
2. (6) 3 Aldrei fór ég suður Bubbi Mortens
3. 0) 4 Little lies Fleetwood Mac
4. (2) 5 Járnkarlinn Bjartmar Guðlaugs og Eiríkur F
5. (7) 3 Cant take my eyes of you ... Kim Ross
6. (16) 2 Jóla-stund Stuðkompaníið
7. (3) 6 Rent Pet Shop Boys
8. (5) 6 (I can’t stand) loosing you .. Fate
9. (N) 1 Come back and stay Bad boys blue
10. (N) 1 Jólahjól Sniglabandiö
11. (8) 4 Týnda kynslóðin Bjartmar Guðlaugsson
12. (N) 1 Ástar-bréf (Merkt-x) Model
13. (24) 2 China in your hand T’pau
14. (23) 2 Snjókorn falla Laddi
15. (11) 7 Loner Gary Moore
16. (13) 4 So emotional Withney Flouston
17. (14) 4 Faith George Michael
18. (18) 8 Pump up the volume M/A/R/R/S
19. (15) 3 Just like heaven Cure
20. (10) 7 Mony mony Billyldol
21. (12) 4 Got my mind set on you George Harrison
22. (25) 2 Boys Sabryna
23. (17) 7 Love in the first degree Bananarama
24. (N) 1 Púla Greifarnir
25. (N) 1 Everlasting love Sandra
Vinsældalisti Hljóöbylgjunnar er valinn á föstudagskvöldum, milli kl. 20 og 22, í símum
27710 og 27711. Listinn er spilaöur á laugardagskvöldum milli kl. 20 og 23. Auk þess
sem ný lög eru kynnt.
Ritstjórn • Afgreiðsla • Auglýsingar
Strandgötu 31 - Sími 24222.
AB hljóðsnældur
- Afasögur,
Afburðaþjónusta,
Slakaðu á
Almenna bókafélagið hefur hafið
hljóðsnælduútgáfu. Meðal út-
gáfuverkefna er að finna barna-
efni, viðskiptaefni, sjálfshjálp og
sígilt bókmenntaefni.
Sögumenn hljóðsnældunnar
Afasögur eru allir afar sem segja
barnabörnunum sínum sögu.
Þeir eru Eiríkur Hreinn Finn-
bogason, Gunnlaugur Þórðar-
son, Ólafur Skúlason, Róbert
Arnfinnsson, Valur Arnþórsson
og Þórarinn Guðnason.
Á snældunni Slakaðu á, fer dr.
Eiríkur Örn Arnarson sál-
fræðingur með slökunaræfingar
sem hann hefur kennt um árabil.
Með fylgja leiðbeiningar og
fjögurra vikna slökunardagbók.
Afburðaþjónusta er nafn á
hljóðsnældu um viðskipti. Á
henni fjallar Bjarni Sigtryggsson
viðskiptafræðingur um afburða-
þjónustu. Efnið á erindi til allra
þeirra sem áhuga hafa á viðskipt-
um og ekki síst til þeirra, sem
stunda stjórnunarstörf í þjónustu-
fyrirtækjum.
Á næstunni er Njála væntanleg
á tíu hljóðsnældum í upplestri
Einars Ól. Sveinssonar.
Upptökur á Afasögum,
Afburðaþjónustu og Slakaðu á
fóru fram í hljóðveri Blindra-
félags íslands. Upptökumaður
var Gísli Helgason.
Gestur IV
- Safnrit um
íslenskar fróðleik
Iðunn hefur gefið út fjórða bindi
í flokki bóka um íslenskan fróð-
leik sem Gesfur nefnist, en efni í
þessar bækur hefur Gils Guð-
mundsson tekið saman og
ritstýrt.
í þessu nýja bindi er sem í hin-
um fyrri margt forvitnilegra frá-
sagna úr íslensku þjóðlífi. Tölu-
verður hluti efnisins er áður
óprentaður.
Fyrst fer fróðleiksþáttur um
tvo menn sem báðir höfðu viður-
nefnið „rosi" og lifðu á síðustu
öld. Lengstur áður óbirtra þátta
segir af fjórum Hornstrending-
um, lifandi lýsing á mannlífi vest-
ur þar framan af þessari öld. Hér
er einnig greint frá laufabrauðs-
gerð og fallegum hvítum kjólum,
og svo frá erfiðum ferðalögum og
sjóhrakningum.
Umsjónarmaður verksins hef-
ur tekið saman þátt um útilegu-
mannatrú fyrrum, „um hulin
pláss". Af áður prentuðu en
fágætu efni er ástæða til að benda
á frásögn Þorsteins skálds Erlings-
sonar af Bessastaðaför 1903. Þá
er nýr þáttur um minnilegan
þjóðmálaskörung, Pál Zóphónías-
son, og fróðlegt viðtal þar sem
segir frá störfum lögreglumanna í
Reykjavík á fyrri hluta aldarinn-
ar, og ýmislegt fleira.
Furstinn
— eftir Niccolo Machiavelli
Út er komin bókin Furstinn eftir
Niccolo Machiavelli, eitt frægasta
stjórnmálarit allra tíma. Bókin er
leiðarvísir handa furstum um
hvernig halda skuli völdum og
auka jrau, hvaða brögðum beri
að beita og hvaða lærdóm megi
draga af sögunni. Um leið sýnir
hún einkar vel hugsunarhátt og
aðferðir valdhafa gegnum aldirn-
ar.
Furstinn eftir Machiavelli varð
til á endurreisnarskeiðinu á Ítalíu,
miklum umbrotatíma þegar listir
blómstra, verslunin tekur
fjörkipp, heimsmyndin breytist
og nútíminn verður til. En um
leið er þetta tími mikilla átaka í
ítölsku borgríkjunum, hart er
barist um yfirráð og margir for-
ingjar koma við sögu. Machi-
avelli var áhrifamaður í Flórens í
byrjun 16. aldar, en var sviptur
embættum og áhrifum þegar
Medici-ættin komst til valda á ný
árið 1512. Þá skrifaði hann þessa
bók en hún kom fyrst út árið
1532. Furstinn telst nú til sígildra
bókmennta fyrir vægðarlausa
greiningu á hátterni stjórnmála-
manna.
Ásgrímur Albertsson þýddi
bókina og samdi skýringar og
eftirmála þar sem hann gerir
grein fyrir sögulegum bakgrunni
verksins. Bókin er 180 bls. að
stærð og er prýdd fjölda mynda.
Mál og menning gefur út.
Hringsól
Mál og menning hefur gefið út
skáldsöguna Hringsól eftir
Álfrúnu Gunnlaugsdóttur.
Álfrún rekur í þessari bók
örlagasögu íslenskrar konu. Sag-
an hefst í litlu þorpi við sjó á önd-
verðum fjórða áratugnum þegar
söguhetjan leggur upp í sína
ævireisu. Leiðin liggur ti Reykja-
víkur og síðar til meginlands Evr-
ópu, en ferðinni lýkur þar sem
hún hófst - fimm áratugum síðar.
Sérstæður frásagnastíll Álfrúnar
gerir það að verkum að sagan lík-
ist einna helst mósaíkmynd sem
fullkomnast ekki fyrr en síðasta
brotinu er komið fyrir.
Álfrún Gunnlaugsdóttir hefur
áður sent frá sér tvær bækur,
smásagnasafnið Af manna völd-
um og skáldsöguna Þel en fyrir
þá síðarnefndu hlaut hún menn-
ingarverðlaun DV.
Litríkt fólk
Litríkt fólk nefnist 2. bindi ævi-
minninga Emils Björnssonar, sem
Bókaútgáfan Örn og Örlygur
hefur gefið út. Segir Emil frá
samferðamönnum og atburðum á
4. og 5. tug aldarinnar. Fyrra
bindi æviminninganna Á mis-
jöfnu þrífast börnin best kom út
fyrir síðustu jól og hlaut hinar
bestu viðtökur.
Séra Emil segir svo í formáls-
orðum:
„Þessi bók geymir minningar
frá fjórða og fimmta tug tuttug-
ustu aldar á Islandi. Á þeim tíma
urðu mestu þáttaskil í sögu lands
og þjóðar. Þá var kreppa,
hernám, heimsstyrjöld og lýð-
veldisstofnun í brennidepli. Þá
varð Iífskjara- og lífsháttarbylt-
ingin. Nýfrjálsri þjóð opnaðist ný
veröld í viðsjálum heimi. Og kalt
stríð tók við af heitu.“
í Litríku fólki er straumur af
fólki á þjóðlífsbrautum sem
höfundur kynntist og starfaði
með, frömuðum í skólamálum,
skólafélögum, kolakörlum, há-
skólakennurum, hugsjónamönn-
um, alþingismönnum, guðs-
mönnum og útvarpsmönnum.
Höfundur helgar eiginkonu
sinni, Álfheiði L. Guðmunds-
dóttur, bókina.
Ný bók eftir
Stephen King
Frjálst framtak hf. hefur sent frá
sér bókina Eymd eftir bandaríska
rithöfundinn Stephen King. Er
þetta önnur bókin sem Frjálst
framtak hf. gefur út eftir þennan
höfund. í fyrra kom út bókin
Visnaðu!
Stephen King er í hópi vinsæl-
ustu rithöfunda Bandaríkjanna
og þegar nýjar bækur koma frá
honum skipa þær jafnan efsta
sætið á sölulistum vikur eftir
vikur.
Sagan Eymd fjallar um rithöf-
und sem hefur öðlast miklar vin-
sældir fyrir bókaflokk. Hann
ákveður að snúa sér að öðru við-
fangsefni en lendir í bílslysi og
verður fyrir alvarlegum meiðsl-
um. Hjúkrunarkona með vafa-
sama fortíð tekur hann upp á
arma sína og hefjast þá raunir rit-
höfundarins fyrir alvöru.