Dagur - 19.12.1987, Blaðsíða 16

Dagur - 19.12.1987, Blaðsíða 16
19. DESEMBER 1987 - DAGUR - - DAGUR 19. DESEMBER 1987 Urðakirkja í Svarfaðardal er 85 ára gömul á þessu ári. Urðir hefur þó verið kirkjustaður lengi og er annexía frá Tjöm. Urðakirkju er fyrst getið í Auðunnarmáldaga 1318 og átti kirkjan ekki hluta í jörðinni sjálfri en ýmsar jarðir í grennd við hana og alls konar ítök. Um 1850 er byggð kirkja á Urðum en ekki er að finna í heimildum nákvæmar upplýsingar um vígsluár hennar. Kirkjan sem í dag stendur á Urðum er reist árið 1902 eftir að kirkjan fauk í miklu óveðri þann 20. september árið 1900. Sóknarmenn tóku strax til við að undirbúa byggingu nýrrar kirkju og var nýja kirkjan vígð þann 20. júlí árið 1902. Urðakirkja er timburhús, teiknuð af Gísla Jónssyni á Syðra-Hvarfi sem einnig var yfirsmiður við bygginguna. Uppmnalega átti kirkjan að vera með tumi og kórhúsi þó að ekki yrði af því. Kórstafiiinn er þó þannig gerður að taka má stykki úr honum og byggja kórhús hvenær sem er. Urðakirkja er í dag lítið breytt frá því sem var er hönnuður hennar og yfirsmiður lauk sínu verki. Endurbætur fóm þó fram á húsinu árið 1985 en að þeim verður síðar komið. Fræðumst nánar um sögu kirkjustaðarins Urða í Svarfaðardal og þessa fallega guðshúss. Sem áður segir greina heim- ildir frá byggingu Urða- kirkju í Svarfaðardal laust upp úr 1850. Kirkjuna lét Hall- dór Þorkelsson, bóndi á Urðum byggja og er kirkjunni lýst á þennan hátt: Kirkjan er úr timbri, 15'/2 al. 4/3 þuml. að innanmáli á lengd, þar af var kór- inn 6xfi al. Innanmálsbreiddin var IVi þml. en hæð undir bita 3 al. 3 þuml. og frá neðri bitabrún í sperru - kverk 3 áln. 3 kv. 53/4 þml. Slík var nákvæmnin í málsetn- ingu í þá daga að jafnvel þuml- ungum var skipt í fjórðu hluta. Ekki skal farið nákvæmar út í innviði kirkjunnar en þó má geta predikunarstólsins sem er frá 1766 og gefinn af Lárusi Scheving sýslumanni, sem bjó á Urðum á síðari hluta 18. aldar. Urðakirkja var timburkirkja sem áður segir. Hún var koltjöru- bikuð fram að 1887 en þá var tjaran skafin af og kirkjan máluð. A hvorri hlið kirkjunnar vdru 3 í vetrarskrúða í febrúar árið 1986. gluggar, á kórstafni 2 gluggar og á framstafni einn gluggi. Upp af framstafni kirkjunnar var byggð- ur lítill turn með renndu og mál- uðu pflárverki en upp úr miðjum turninum stóð hvítmálaður kross. A næstu áratugum var kirkjan endurbætt og fjárhagur hennar hinn besti um aldamótin. En fljótt skipast veður í lofti og því fegnu sóknarbörn Urðasóknar og raunar allir Norðlendingar að kynnast aldamótaárið. Kirkjurokið Hinn 20. september 1900 gerði eitt hið mesta ofsaveður sem sög- ur fara af við Eyjafjörð. í þessu veðri skemmdust allar kirkjur byggðarlagsins meira og minna og tvær þeirra Upsa- og Urða- kirkja fuku og brotnuðu í spón. Auk þess að kirkjan eyðilagðist gjörsamlega í þessu veðri, týndist eða eyðilagðist margt af áhöldum hennar og búnaði. Einn þeirra muna sem bjargað- ist úr rústum Urðakirkju var alt- aristafla eftir Arngrím Gíslason málara og var gert við töfluna og hún sett upp í nýju kirkjunni. Þessi fallega altaristafla prýðir Urðakirkju enn þann dag í dag. Ymsir munir svo sem kerta- stjakar, kaleikur, messuklæði og ljósahjálmur björguðust einnig úr rústunum. Þá björguðust kirkjuklukkurnar báðar en stóra klukkan er talin vera frá 1534 eða frá kaþólskri tíð. Þessi klukka er ein elsta ef ekki elsta kirkju- klukka landsins. Minni klukkan er frá 1756, gefin kirkjunni af Lárusi Scheving. Timburbrakið var selt á upp- boði fyrir 176,90 kr. en auk þess var nokkuð af timbri úr kirkjunni notað í nýju kirkjuna t.d. voru bekkir nýju kirkjunnar smíðaðir úr þakborðum gömlu kirkjunnar. Ný kirkja byggð Srax var byrjað að undirbúa byggingu nýrrar kirkju. Ekkert var þó gert fyrr en 1901 en þá hófust menn handa við að gera grunn undir nýja kirkju og árið eftir var tekið til óspilltra mál- anna við bygginguna. Gísli Jóns- son var yfirsmiður og hönnuður kirkjunnar og með honum unnu 7 menn að byggingunni. Alls urðu dagsverkin við bygginguna 293 og kostnaður við hana á vígsludegi alls 2736,36 kr. Víst er um það að þessir menn seldu vinnu sína ekki dýrt en unnu verk sín með stakri prýði eins og kirkj- an ber merki enn þann dag í dag. Vígsludagurinn 20. júlí árið 1902 var gleðidagur sóknarbarna Urðasóknar. Til vígslunnar var kominn prófasturinn, séra Jónas Jónasson á Hrafnagili og í fylgd með honum var séra Jakob Björnsson í Saurbæ. Þá var þar sóknarprestur Urðakirkju, séra Kristján Eldjárn Þórarinsson á Tjörn. Á vígsludaginn var margt enn eftir ógert við kirkjuna. Hvelf- ingin hafði ekki verið sett í hana, forkirkjan hafði ekki verið þiljuð né heldur kirkjan verið máluð innan. Þessum verkum var lokið á næstu árum þó svo að fjárhagur kirkjunnar væri ekki sem bestur enda nam skuld hennar á annað þúsund krónum á vígsludegi. En sóknarnefndir unnu vel að mál- um kirkjunnar á komandi: árum og áratugum og hefur kirkjunni búnast vel á þeim 85 árum sem liðin eru frá vígslu hennar. Margir mætir munir prýða þessa litlu kirkju. Áður er minnst á altaristöflu Arngríms málara sem enn prýðir kirkjuna. Þá gaf Jón Bergsson, frá Hæringsstöð- um kirkjunni söngtöflu árið 1905 en taflan var hans eigin smíði. Ramminn utan um töfluna er gjöf frá Sigurhirti Jóhannessyni á Urðum, afhentur af ættingjum hans að honum látnum. Ramm- ann gerði Kristján Aðalsteinsson húsgagnasmiður á Akureyri. Orgel gaf söfnuðurinn kirkj- unni 1914 eða 1915. Orgelið kost- aði 370 kr. sem þótti í þá dagt mikið fé. Nýtt orgel var kirkjunn gefið árið 1968 af sonum o^ stjúpdóttur hjónanna á Melum, þeirra Hallgríms Halldórssonar og Soffíu Baldvinsdóttur. Ljósakross prýðir Urðakirkju og setur hann mikinn svip á hana. Krossinn er minningargjöf um Lilju Árnadóttur og Svein Bergs- son frá Hæringsstöðum og Svein Jónsson frá Hæringsstöðum. Krossinn var gefinn kirkjunni af systkinum þeirra, börnum, stjúp- börnum, tengdabörnum og barnabörnum árið 1965. Söfnuðurinn tekur við kirkjunni Á safnaðarfundi árið 1917 skýrði Sigurhjörtur Jóhannesson á Urð- um frá því að hann væri hættur búskap og óskaði hann þess að söfnuðurinn tæki við kirkjunni og fjárhaldi hennar og umsjón fram- vegis. Fundurinn samþykkti þetta og fór formleg afhending fram þann 20. júlí 1918, réttum 16 árum frá vígslu kirkjunnar. Með prófastsvísitasíu 29. júlf 1919 afhenti prófasturinn, séra Geir Sæmundsson á Akureyri sóknarnefndinni bréf þar sem hann tilkynnir söfnuði og sóknar- nefnd samþykki biskups á afhendingu kirkjunnar til safnað- arins. Organistar við Urðakirkju hafa verið 7. Þar af hafa verið þrír bræður, þeir Jóhann, Jakob og Ólafur Tryggvasynir en Ólafur er organisti kirkjunnar í dag. Auk þeirra hafa verið organistar við Urðakirkju þeir Hallgrímur Halldórsson á Melum, Björn Jónsson frá Hreiðarsstöðum, Gestur Hjörleifsson og Guð- mundur Þorsteinsson frá Hálsi. Meðhjálparar í Urðakirkju hafa verið 6, Halldór Hallgríms- son á Melum, Jóhann Páll Jóns- son í Hreiðarsstaðakoti, Jóhannes Stefánsson á Sandá, Valdemar Júlíusson á Göngustöðum, Sigur- vin Sigurhjartarson á Skeiði og núverandi meðhjálpari er Hreinn Jónsson á Klaufabrekkum. Séra Kristján Eldjárn Þórar- insson þjónaði kirkjunni allt þar til 1917 er séra Stefán B. Kristins- son tók við og þjónaði kirkjunni fram til ársins 1941. Lengst hefur Urðakirkju þjónað séra Stefán Snævarr frá 1941 til 1984, eða 43 ár. Nú þjónar kirkjunni séra Jón Helgi Þórarinsson. Endurbætur á kirkjunni Sem fyrr segir ber Urðakirkja glöggt merki um vandvirkni smiða hennar. Hún hefur ekki verið frek á viðhaldið og staðist vel tímans tönn. Þótt húsið sé Séra Jón Helgi Þórarinsson nicssar í júníiok 1985. Urðakirkja síðla vetrar 1986. Eftir að endurbótum á kirkj- unni lauk var kirkjan máluð og var verkið unnið af sóknarbörn- um Urðasóknar. Margar gjafir og áheit hafa kirkjunni borist í gegn- um árin, ekki síst eftir að endur- bæturnar á henni fóru fram sumarið 1985. Vorið 1986 barst kirkjunni skírnarfontur að gjöf. Skírnar- fonturinn er gefinn af Karli Karlssyni og Lilju Hallgrímsdótt- ur í Klaufabrekknakoti ásamt dætrum þeirra í minningu um látna dóttur þeirra, Jónasínu Dómhildi Karlsdóttur. Fonturinn er smíðaður af Margréti Jóns- dóttur og Henrik Petersen. Fyrsta messa eftir endurbæt- urnar var í október. 1985. Notalegt hús Sá prestur sem þjónað hefur Urðakirkju lengst er eins og áður segir séra Stefán Snævarr. Það er viðeigandi að orð hans um Urða- kirkju verði lokaorð þessarar greinar. „í fyrsta skipti sem ég kom að Urðum til að messa varð mér dálítið illt við. Þegar ég fór neðan úr dalnum sneru Vallakirkja og Tjarnarkirkja báðar þvert á dal- inn en þegar ég kom fram að Urðum sneri Urðakirkja langsum Skírn í Urðakirkju 31. ágúst 1986. Foreldrar Hreins Viðars eru Gunnlaugur eftir dalnum. Þá hélt ég að ég Sigurðsson og Soffía S. Hreinsdóttir á Klaufabrekkum. og tyllidögum sem setið var uppi á lofti en þó voru vissir nienn sem alltaf sátu uppi á lofti. Mér þótti, er ég kom í Svarfað- ardal, furðulegt að allar kirkjurn- ar voru turnlausar nema Upsa- kirkja. Einhver kunni þá skýr- ingu að það þætti oflæti að vera með turna á kirkjunum í Svarfað- ardal þegar móðurkirkjan, Hóla- kirkja, var turnlaus. Þetta sel ég þó ekki sem raunvísindi, en þetta er skemmtileg tilgáta," segir séra Stefán. „Ég átti mjög gott samstarf við sóknarfólk Urðasóknar og einnig heimilisfólk á Urðum. Ég er þakklátur fyrir það og sambandið við Urðafólk var yfirleitt mjög gott og alveg frábært eftir að Einar Hallgrímsson og Guðlaug Guðnadóttir tóku við búinu. Það var alltaf gott til þeirra að leita. Það var alltaf hugsað vel um kirkjuna og ég get fullyrt að sú vinna hefur ekki verið unnin samkvæmt uppmælingartöxtum. Við hjónin sendum bestu jóla- kveðjur í Urðasókn og næstu sóknir." JÓH Séra Stefán Snævarr fyrrverandi sóknarprestur Urðakirkju við kveðjumessu 19. ágúst 1984. orðið 85 ára gamalt hefur ekki þurft á stórum viðgerðum að halda utan þeirra sem gerðar voru sumarið 1985. Þá var skipt um glugga í kirkj- unni, bekkir yfirtrekktir, settir þilofnar í kirkjuna og teppi á gólf. Börn Tryggva Halldórsson- ar á Þorsteinsstöðum færðu kirkj- unni að gjöf áklæði á kirkjubekk- ina svo og vinnu við að bólstra bekkina. Þessi gjöf var gefin í tilefni af því að þann 22. febrúar 1985 voru 100 ár liðin frá fæðingu Tryggva Halldórssonar. Yfirum- sjón með bólstrun kirkjubekkj- anna hafði Hartmann Eymunds- son og vann hann verkið ásamt öðrum gefendum. Teppi á gólf kirkjunnar er einnig gjöf til hennar. Teppið gaf Ungmennafélagið Atli í Svarfað- ardal til minningar um látna félaga í ungmennafélaginu. væri orðinn áttavilltur. En allt á þetta sér eðlilegar orsakir og ég man að ég talaði við Gísla Jóns- son sem var yfirsmiður við kirkj- una og sagði honum að mér fynd- ist kirkjan ekki snúa rétt. Þá svaraði Gísli: „Ég skal ábyrgjast það að kirkjan snýr rétt því ég staðsetti hana.“ Urðakirkja er ágætishús að öllu leyti. Það var gott að vinna í henni, hún fór vel með tal og söng og hún var býsna rúmgóð. Að vísu var ekki nema á hátíða-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.