Dagur - 03.02.1988, Blaðsíða 1
Útsala
Útsala
Útsala
71. árgangur Akureyri, miðvikudagur 3. febrúar 1988 23. tölublað
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Litlar breytingar á veðri
á Norðurlandi
Talsverð snjókoma var á svæð-
inu frá Langanesi vestur til
Borgarfjarðar í alian gærdag.
Færð var víðast hvar slæm og
sums staðar slæmt veður. Sam-
kvæmt uppiýsingum Veður-
stofunnar er búist við að held-
ur kólni í veðri en ekki er búist
við öðrum breytingum.
Ófært var vestur um Öxnadals-
heiði en Vegagerðarmenn
aðstoðuðu jeppa og stóra bíla
beggja vegna frá. Veður var
slæmt efst í Öxnadal og þurfti lest
fólksbíla að hverfa frá af þeim
sökum.
í gær var rudd leiðin til Dalvík-
ur en Ólafsfjarðarmúlinn var
ófær og ekki ruddur.
Austur um var fært til Greni-
víkur, vegirnir um Víkurskarð og
Ljósavatnsskarð voru aðeins fær-
ir jeppum og stórum bílum en
þaðan góð færð til Húsavíkur.
Dalsmynni var vel fært en þar er
jafnan nokkur snjóflóðahætta.
Vegurinn yfir Fljótsheiði og
„Kísilvegurinn" voru ófærir en
fært var jeppum og stórum bílum
um Reykjadal og Mývatnsheiði.
Þrjár vélar fóru á vegum FN til
Reykjavíkur en ekki var flogið á
aðra staði. Athuga átti með flug
milli Akureyrar og Reykjavíkur í
gærkvöld. ET
Fjörugar umræður
- í bæjarstjórn Akureyrar
um sölu hlutabréfa bæjarins og
stefnumótun í
Miklar og fjörugar umræður
urðu á fundi bæjarstjórnar
Akureyrar í gær vegna tillögu
bæjarfulltrúanna Sigurðar
Jóhannessonar og Úlfhildar
Rögnvaldsdóttur um, að
bæjarstjórn ræddi stefnumót-
un með tilliti til sölu á hluta-
bréfaeign bæjarins í ýmsum
fyrirtækjum.
Tillagan, sem vakti svo miklar
umræður, hljóðaði þannig:
„Bæjarfulltrúar Framsóknar-
flokksins leggja til að rædd verði
í bæjarstjórn mótun heildar-
stefnu bæjarstjórnar Akureyrar
um sölu á hlutabréfaeign Akur-
eyrarbæjar í einstökum fyrirtækj-
um og sölu á atvinnufyrirtækjum
í eigu Akureyrarbæjar.“ Með til-
lögunni fylgdi greinargerð, og
segir þar að umrædd tillaga sé til
komin vegna umræðna að undan-
förnu um hugsanlega sölu á
hlutabréfaeign ríkisins í Slipp-
stöðinni hf., en sala bréfanna
myndi valda verulegum breyting-
um á eignaraðild að fyrirtæki sem
Akureyrarbær á stóran hlut í, og
er eitt af undirstöðufyrirtækjum í
atvinnulífi á Akureyri.
Þá hefur heyrst um áhuga ein-
stakra ráðamanna bæjarins um
hugsanlega sölu á Krossa-
þeim málum
nesverksmiðjunni og e.t.v. fleiri
fyrirtækjum sem eru að einhverju
leyti eða alfarið á vegum bæjar-
ins.
Gunnar Ragnars, forseti
bæjarstjórnar, sagði m.a. að
umræða um þessi mál væri, að
sínu mati, fjórum árum of seint á
ferðinni. Fyrir lægi, að ríkið
vildi selja eignarhluta sinn í
Slippstöðinni, auglýsing þess efn-
is hefði birst í desember 1983, og
að þessu máli væri fyrst og fremst
velt upp gegn sér persónulega
sem sorstjóra slippstöðvarinnar.
Björn Jósef Arnviðarson taldi
umræður sem þessar nauðsynleg-
ar, því starf bæjarstjórnar væri of
oft með yfirbragði afgreiðslu-
stofnunar, þar sem mál væru
afgreidd án þess að pólitísk
stefna kæmi beinlínis fram. Freyr
Ófeigsson sagði að afstaða sín til
sölu hlutabréfa bæjarins mótaðist
m.a. af því hvort bærinn hefði
yfir að ráða meirihluta í viðkom-
andi fyrirtæki eða ekki.
Sigurður Jóhannesson þakkaði
bæjarfulltrúum umræðuna og
kvað margt merkilegt hafa komið
fram um afstöðu manna til þess-
ara mála. Samþykkt var að fresta
umræðu um málið þar til sfðar.
EHB
Akureyri:
Dagvistargjöld hækka
Bæjarráð Akureyrar leggur til
að dagvistargjöld verði hækk-
uð um 10% frá 1. mars næst-
komandi og gert er ráð fyrir
þessari hækkun í fjárhagsáætl-
un bæjarstjórnar. Dagvistar-
gjöld hækkuðu um 15% þann
1. janúar þannig að einhver
ástæða hlýtur að liggja að baki
þessum öru hækkunum.
Sigríður Stefánsdóttir bæjar-
ráðsmaður sagði að þessa hækíc-
unarbeiðni mætti rekja beint til
samninga Akureyrarbæjar við
Mikil snjókoma var á Akureyri í gær og fyrrakvöld og snjóruðningstæki bæjarins standa því ekki verkefnalaus næstu
dagana. Þessi mynd var tekin er Þórunnarstræti var rutt í gær. Mynd: tlv
Gjaldskrá tannlækna:
Heilbrigðisráðherra
fær fjórar rósir
- Viðmiðunarreikningur Vilhjálms Inga
Að öllum líkindum mun Guð-
mundur Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra senn fá 4 rósir frá Vil-
hjálmi Inga Árnasyni. Vil-
hjálmur Ingi lagði fram reikn-
ing frá tannlækni, reyndar
sérfræðingi, þar sem fram kom
að sérfræðingurinn hafði haft
yfir 12.000 kr. á tímann, og hét
á ráðherra að gefa honum 1 rós
fyrir hverjar 1.000 krónur sem
hann gæti skorið af reikningn-
um.
um 10%
fóstrur, en þeir hefðu haft tölu-
verðan kostnaðarauka í för með
sér fyrir bæjarsjóð.
„Þetta er gert til að halda
nokkurn veginn hlutfallinu á milli
foreldra og bæjarins í rekstrar-
kostnaði dagvistanna. Auðvitað
væri æskilegt ef hægt væri að
hækka laun ófaglærðs starfsfólks
líka með þessari ráðstöfun en hitt
verður að taka með í reikninginn
að fóstrum á Akureyri mun vænt-
anlega fjölga á næstunni,“ sagði
Sigríður. SS
kaði um tæpar 4.000
Samkvæmt gjaldskrá fyrir
tannlækningar frá 1.-31. október
’87 lítur reikningurinn þannig út:
17 einingar, einingarverð 1.525,
samt. 25.925 kr. að viðbættu 40%
sérfræðingsálagi = 36.295 kr.
Launaliður tannlæknis er 45,47%
af grunnverði (11.788) plús 40%
sérfræðingsálag (10.370) eða
22.158 kr. Aðgerðin tók 105
mínútur og tímakaupið er því
12.662 kr.
Sjálfsagt er að geta þess að ein-
ingarnar sem hér um ræðir eru
álímdar festingar, notaðar við
tannréttingar. Samkvæmt nýrri
gjaldskrá, 1. janúar til 29. febrú-
ar ’88, hafa festingarnar lækkað
nokkuð eins og reyndar kom
fram í svarbréfi heilbrigðisráð-
herra til Vilhjálms Inga. Hefði
aðgerðin sem um ræðir verið
framkvæmd í dag, hefði viðkom-
andi sparað sér 11.124 krónur, og
þætti það ekki slæm kjarabót.
Jafnframt hefði launaliður
sérfræðingsins lækkað og tíma-
kaupið samkvæmt nýja taxtanum
„aðeins“ 8.781 kr. Mismunurinn
er 3.881 króna, eða hátt í 4.000,
og því ætti Guðmundur Bjarna-
son að fá 4 rósir á næstunni.
Vissulega er hér aðeins um eitt
dæmi að ræða, liðir í gjaldskránni
hafa yfirleitt hækkað en þó má
kr.
rinna nokkra, sérstaklega varð-
andi tannréttingar, sem hafa
lækkað. Þess má að lokum geta
að tímagjald tannlækna er nú 660
krónur fyrir hverjar byrjaðar 10
mínútur. Tannlæknar taka þetta
gjald m.a. fyrir viðtal, skoðun,
eftirlit og skróp. Klukkutíma
spjall við tannlækni kostar sem
sagt 3.960 krónur. SS
Akureyrarbær:
Afskrifar
aðstööugjöld
Smára
Á fundi bæjarráðs Akureyrar-
bæjar um miðjan janúar sl.
var m.a. rætt um þrotabú fyrir-
tækisins Smára hf.
Fyrirtækið skuldaði Akureyr-
arbæ aðstöðugjöld, en bæjarlög-
maður greindi frá því að lokið sé
skiptum í búinu og að ekkert hafi
fengist upp í kröfu Akureyrar-
bæjar. Verður því að afskrifa
skuldina, sem nernur 763.478
krónunr. VG