Dagur - 03.02.1988, Blaðsíða 16

Dagur - 03.02.1988, Blaðsíða 16
Tvær nætur með morgunverði á kr. 1.920 Helgaiyisting á Hótel Húsavik Hótel_________ Húsavik sími 41220. Strætisvagnar Akureyrar: Samið um akstur fyrir dagvistun aldraðra - SVA tekur að sér akstur starfsfólks í Skjaldarvík Forstöðumaður Strætisvagna Akureyrar og forstöðumaður dvalarheimilanna hafa gert með sér samkomulag sem felur í sér að frá og með 1. mars nk. taki SVA að sér akstur fyrir dagvistun aldraðra og með starfsfólk til Skjaldarvíkur. Til þessa er áætlað að kaupa nýja bifreið og samkvæmt frum- varpi til fjárlaga Akureyrar- Akureyri: Atvinnulausir fæni en á sama tíma í tyrra Ibæjar er gert ráð fyrir þeim bifreiðakaupum. Ferliþjónustubíll SVA hefur einnig verið notaður til aksturs fyrir dagvistun aldraðra undan- farið en þessi eini bíll þjónar eng- an veginn lengur akstri vegna dagvistunarinnar jafnframt ferli- þjónustu fatlaðra. Nýr bíll kemur til með að létta undir með gamla bílnum þó að aðeins annar verði búinn lyftu fyrir hjólastóla og geti sinnt ferliþjónustunni. Dagvistun aldraðra er starfrækt að Dvalar- heimilinu Hlíð á Akureyri. SVA tekur nú í fyrsta sinn upp akstur með starfsfólk til Skjaldar- víkur en hingað til hefur Dvalar- heimilið í Skjaldarvík sjálft ann- ast akstur með starfsfólk sitt til og frá Akureyri. í þennan akstur er ætlunin að hinn nýi bíll verði m.a. notaður. JÓH I gær fór fram hin árlega íþróttakeppni milli Glerárskóla, Þelamerkurskóla og Hrafnagilsskóla. Þar var tekið vel á að vanda, eins og glöggt má sjá á svip þessara kraftakarla úr Glerárskóla. Mynd: tlv Þrúgað and- rúmsloft hjá K. Jónssyni (Jm mánaðamótin tók gildi uppsögn starfsfólks hjá Niður- suðuverksmiðju K. Jónssonar á Akureyri á svokölluðum prem- íusamningi. Mjög mikil óánægja ríkir nú meðal starfs- fólks og var jafnvel búist við að það myndi fara sér hægar við vinnu þessa dagana en vant er. Frá því fyrir áramót hafa stað- ið yfir samningaviðræður milli Einingar og K. Jónssonar um leiðréttingu á premíusamningn- um. Um áramótin var tekin sú ákvörðun að segja samningnum upp. Samkvæmt heimildum Dags er andrúmsloftið á vinnustaðnum ákaflega þrúgað þessa dagana. Mikill hiti er í mönnum og ljóst að fólk er til í aðgerðir ef með þarf. Það virðast allir vera jafn óánægðir og ákveðnir í því að eitthvað verði að gera til að ná fram samningum. Næstu daga mun starfsfólk halda fund þar sem ákveðið verð- ur hvort og þá hvernig aðgerðum verður hagað. VG Akureyri: „Ekki ætlunin að þama rísi auðmannahverfi“ —segir Freyr Ófeigsson um fyrirhugaða byggð ofan við Spítalaveg Eitthvað virðist atvinnuástand vera betra á Akureyri nú en á sama tíma í fyrra. Þann 31. desember sl. voru 52 skráðir atvinnulausir á Akureyri, 19 konur og 33 karlar. Ári áður, voru 79 atvinnulausir á skrá hjá Vinnumiðlunarskrif- stofu Akureyrar, 15 konur og 64 karlar. Hér virðist því ekki vera um að ræða það sem Ólafsfirðingar eiga við nú, þegar mun færri konur voru skráðar atvinnulausar í janúar í ár en í fyrra. Ein skýring á því er sú, að margar séu nú hættar að vinna úti eftir að karlar þeirra fóru að vinna á frystitogurunum. VG Skipulagsnefnd Akureyrar- bæjar hefur samþykkt sam- keppnislýsingu vegna lokaðrar samkeppni þriggja arkitekta- stofa um byggð við Spítalaveg. Þar er gert ráð fyrir allt að 30 íbúðum í sérbýli, þ.e. einbýlis- húsum eða raðhúsum. í Innbæj- arskipulaginu var umrætt svæði skilið eftir og kveðið á um að samkeppni færi fram um skipulag þess, en byggð við Spítalaveg fylgja þó ýmsar hömlur. Freyr Ófeigsson, formaður skipulagsnefndar, sagði að þeir sem tækju þátt í samkeppninni hefðu nokkuð frjálsar hendur með húsagerð en húsin væru þó bundin Innbæjarskipulaginu útlitslega séð og þyrftu að falla vel inn í umhverfið. „Við settum í þessa skilmála ákvæði um fjölbreytni í stærð íbúðanna, þannig að þarna verði bæði hóflega stórar íbúðir og stórar og við hæfi flestra. Það er ekki meiningin að þarna rísi neitt auðmannahverfi,“ sagði Freyr, en lóðirnar sem um ræðir eru í brekkunni ofan við Spítalaveg, allt suður að Lækjargötu. Þegar úrslit liggja fyrir í sam- keppninni verða lóðirnar væntan- lega auglýstar og lysthafendur verða að hafa samband við sigur- vegara keppninnar um teikningu hússins. Freyr sagði að þetta væru hin raunverulegu verðlaun í samkeppninni; sigurvegarinn fengi einkarétt á því að teikna hluta af þessum húsum og sú kvöð fylgdi úthlutun lóðanna að umsækjandi yrði að leita til við- komandi arkitekts. „Við verðum að ganga nokkuð langt í því að binda þetta svæði ákveðnum skilmálum, óvenju langt miðað við það sem gerist hér á Akureyri og það eru auðvit- að skiptar skoðanir um það. En þetta er lítið og viðkvæmt svæði og því teljum við nauðsynlegt að setja byggð þar ákveðnar skorður," sagði Freyr. SS Fjáröflun: 1/ift nofnmct clm oMfi nnnu „vlu yUIUIIIM oKU ClVIVI U|J|J - segja nemendur 9. c í GA sem ætla að sitja á skólabekk í 24 tíma samfieytt „í skólanum, í skólanum er skemmtilegt að vera,“ segir í alkunnum texta sem flest okkar hafa eflaust sungið ein- hvern tíma á ævinni. A þess- um síðustu og verstu tímum gæti maður best ímyndað sér að það sem þarna segir, væri fjarri öllu því sem börn og unglingar hugsa. Eða hvað? Maraþonknattspyrna, mara- þondans, maraþonsund, mara- þon þetta og maraþon hitt. Hvað hefur ekki verið gert til að safna peningum til byggingar, kaupa eða ferðalaga? Jú. Mara- þonnám! Nemendur í 9. bekk C í Gagnfræðaskóla Akureyrar fengu þessa hugmynd þegar þau voru að velta fyrir sér fjáröflun- arleiðum fyrir skólaferðalag í sundi fyrir um viku. í fyrravetur báru nemendur níunda bekkjar GA bíl um götur bæjarins og því þurfti að finna upp á ein- hverju verulega sniðugu til að slá þetta út. Nemendur Gagnfræðaskólans setja örugglega Akurcyrarmet ef ekki lands- mct í samfelldri skólasetu um helgina. Mynd: tlv „Okkur fannst þctta náttúr- lega fáránlegt í fyrstu en svo fannst öllum þetta góð hugmynd. Kennararnir tóku vel í þetta og eru búnir að gera stundatöflu til að kenna eftir,“ sögðu krakkarnir þegar blaða- maður ræddi við þau. Kennslan hefst á hádegi á laugardaginn og ætlunin er að vera að til hádegis á sunnudag. Kennt verður í 45 mínútur en síðan er hlé í 15 mínútur. Fiinm kennarar ætla að skiptast á um kennsluna þar á meðal íþrótta- kennarinn sem ætlar að vera með létta síðdegisleikfimi á laugardaginn. Níundi bekkur hefur þegar safnað um hálfri milljón í ferða- sjóð með ýmsum hætti og ætl- unin er að leita til fyrirtækja um áheit fyrir uppátækið. „Þetta verður alvöru kennsla. Kennararnir ætla að vera með stöðug verkefni, en við gefumst sko ekki upp,“ sögðu þessir hugmyndaríku unglingar. ET

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.