Dagur - 03.02.1988, Qupperneq 2
2 - ÖÁGÚB - 3. febrúar 1988
Eldvömum víða
áfátt á Akureyri
- og mörg fyrirtæki ekki með
viðvörunarkerfi tengt slökkvistöð
Hópurinn sem fékk starfsaldursmerki KEA. Með á myndinni eru Valur Arnþórsson kaupfélagsstjóri, Stefán Vil-
hjálmsson formaður Starfsmannafélags KEA, Jóhannes Sigvaldason stjórnarformaður KEA, Sigurður Jóhannesson
aðalfulltrúi og Guðbjörn Gíslason starfsmannastjóri.
Afhending starfsaldursmerkja KEA:
Tæplega 300 manns hafa
yfir 10 ára starfsreynslu
Fyrir nokkum árum var tekinn
upp sá siður hjá Kaupfélagi
Eyfirðinga að afhenda þeim
starfsmönnum sem starfaö
hafa hjá félaginu samfleytt í 10
ár starfsaldursmerki. Fram til
þessa hafa 275 starfsmenn
félagsins náð þessum áfanga.
Á dögunum var öllum þeim
sem hlotið hafa starfsaldurs-
merki boðið til kaflidrykkju á
Hótel KEA og við það tæki-
færi var 40 starfsmönnum
afhent starfsaldursmerki.
Peir 40 sem hlutu starfsaldurs-
merki hófu störf hjá félaginu á
árunum 1976 og 1977. Valur
Arnþórsson, kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Eyfirðinga afhenti
starfsaldursmerkin og þakkaði
þessum starfsmönnum tryggð í
starfi og sagði m.a. að það væri
hverju fyrirtæki ómetanlegur
hagur að hafa í starfshópnum svo
mikinn fjölda fólks sem þekkti
innviði félagsins og væru góðir
fulltrúar þess út á við.
Tæplega 100 manns voru við-
staddir afhendingu starfsaldurs-
merkjanna. JÓH
Húsavík:
Fyiirspurn um lóð fyrir
fiskímjölsverksmiðju
- frá Orlygi H. Jónssyni
Örlygur H. Jónsson lögfræð-
ingur á Húsavík hefur sent
bæjaryfirvöldum svohljóðandi
fyrirspurn: „Ræður Húsavík-
urkaupstaður yflr landi, þar
sem bæjaryfirvöld gætu fallist
á að heimila byggingu físki-
mjölsverksmiðju? Ef svarið er
jákvætt, gætu bæjaryfírvöld
t.d. fallist á að heimila bygg-
ingu slíkrar verksmiðju ásamt
mjölskemmu og tönkum á
fyrirhugaðri uppfyllingu norð-
an og utan hafnargarðs?“
„Ég vildi velta upp þessum
möguleika sem auðvitað má
skoða nánar. Málinu er varpað
fram sem fyrirspurn um hvort
land sé fyrir hendi og ef hugað er
að þessum möguleika í sambandi
við atvinnumál er allt hugsanlegt,
t.d. að stofna hlutafélag, ef þetta
er vænlegur kostur," sagði Örlyg-
ur er Dagur spurði hann um
málið.
Bjarna Þór Einarssyni bæjar-
stjóra var falið að svara fyrir-
spurn Örlygs og í bréfi hans kem-
ur fram að ekki sé mikið um lóðir
á hafnarsvæðinu fyrir slíka verk-
smiðju en hugsanlegt sé að lóð
fáist á uppfyllingu sem gera á
norðan Norðurgarðs.
Örlygur sagði að á síðustu
árum hefðu verið settar upp
loðnuverksmiðjur á Ólafsfirði,
Vopnafirði og Þórshöfn en Húsa-
vík hefði alveg verið utan við
þetta. Pó væri hér sú sérstaða að
hugsanlegt væri að nýta jarðgufu
frá Þeystareykjum en möguleikar
á slíku væru óvíða fyrir hendi. Ef
virkjað yrði á Þeystareykjum
mætti nýta jarðgufuna til annarra
verkefna samhliða. Athuganir
sem gerðar voru þegar til stóð að
byggja trjákvoðuverksmiðju ættu
að geta nýst ekki síst hvað varð-
aði orkuöflunina. Örlygur tók
fram að hér væru stórir óvissu-
þættir sem þyrfti að skoða, m.a.
möguleikar fyrir skip að koma inn
í höfnina með farma.
„Manni finnst uppbygging í
Um síðustu helgi stóð Félag
loðdýrabænda í Skagafírði fyr-
ir skinnasýningu í Selinu á
Sauðárkróki. Voru þar sýnd
skinn frá 12 refabúum og 7
minkabúum, en alls eru loð-
dýrabú í héraðinu um 35
talsins. Þetta er í fyrsta sinn
sem félagið stendur fyrir sýn-
ingu sem þessari.
Sýndar voru 4 tegundir af
skinnum, bæði af mink og ref,
auk hinna ýmsu litaafbrigða. Þrír
dómarar höfðu dagana á undan
flokkað skinnin eftir gæðum.
Stigahæsta búntið í refnum var
frá Ragnari Sverrissyni í Hyrnu
Lýtingsstaðahreppi. í minknum
fengu skinn frá Reyni Barðdal á
Sauðárkróki bestu einkunn.
Að sögn stjórnarmanna er til-
frumatvinnuvegum ekki hafa ver-
ið í samræmi við uppbyggingu á
þjónustu og að bæjarfélag eins og
Húsavík þurfi á því að halda að
hér sé velt meiru inn í gegnum
höfnina og þar með sköpuð meiri
verðmæti og aukin atvinna,“
sagði Örlygur. IM
gangur svona sýninga að bændur
þjálfist í að meta skinn sín og
kynnist um leið því besta hjá
öðrum. Samanburðurinn og
spjall manna á meðal um sín
hagsmunamál sé alltaf til bóta.
Stjórn Félags loðdýrabænda í
Skagafirði skipa þeir Sveinn
Sveinsson Frostastöðum formað-
ur og meðstjórnendur eru Vé-
steinn Vésteinsson Hofstaðaseli
og Úlfar Sveinsson Ingveldar-
stöðunt.
Mikið hefur verið rætt um
vanda loðdýrabænda vegna lækk-
andi skinnaverðs á heimsmarkaði
og mikils tilkostnaðar í fóðri og
aðstöðu, en kannski er sýning
sem þessi tákn þess að engin upp-
gjafartónn er í loðdýrabændum
þrátt fyrir hremmingar sem þeir
hafa þurft að þola. -þá
„Samkvæmt mínu áliti gætu
flest fyrirtæki á Akureyri gert
mun betur í eldvörnum. Miklir
hagsmunir eru í húfí, bæði
atvinnulegir og fjárhagslegir,
og því miður reka menn sig oft
ekki á í þessum efnum fyrr en
það er orðið of seint,“ sagði
Tómas Búi Böðvarsson,
slökkviliðsstjóri á Akureyri,
þegar hann var spurður um
brunavarnir í bænum.
Auðvelt er að finna dæmi um
samkomuhús, stofnanir og fyrir-
tæki á Akureyri, sem ekki upp-
fylla kröfur um eldvarnir að
meira og minna leyti. Sem dæmi
má nefna Sjallann og Niðursuðu-
verksmiðju K. Jónssonar & Co. Sé
tekið dæmi af einni deild Kaup-
félags Eyfirðinga, tölvudeild, þá
er þar ekki neitt viðvörunarkerfi
tengt slökkvistöð, en starfsmenn
hafa gert ráðstafanir til að verja
upplýsingar gegn eldi.
Hvað Sjallann snertir þá er
eldvörnum hans aðallega áfátt í
því efni að hann er ekki tengdur
beint við slökkvistöðina með
sjálfvirku viðvörunarkerfi. Einn-
ig vantar sjálflokandi hurðir,
tengdar viðvörunarkerfi. Vel er
fyrir útgönguleiðum séð úr Sjall-
anum og eru þær fimm.
í Niðursuðu K. Jónssonar er lítið
um eldvarnir og hafa brunamála-
yfirvöld bent forráðamönnum
fyrirtækisins á að úrbóta sé þörf.
Verksmiðjan er ekki tengd beint
við slökkvistöð með viðvörunar-
kerfi, þrátt fyrir að þar sé stór
frystigeymsla, en eldur hefur oft
kviknað í slíkum frystihúsum hér
á landi.
Gunnar Hallsson, forstöðu-
maður tölvudeildar KEA, sagði
að starfsmenn tækju reglulega
afrit af öllum mikilvægum gögn-
um á segulbönd, sem væru
geymd í eldvarnarhólfum í tölvu-
deildinni. Reyk- eða hitaskynjar-
ar væru ekki í aðalbyggingu
KEA, en húsvörður færi reglu-
lega um húsið til að aðgæta hvort
allt væri með felldu. Þá sagði
Gunnar að nýlega hefði hann
fengið sérstakt hólf í Landsbank-
anum til að geyma í mikilvæg
tölvugögn. Tölvur tölvudeildar
eru í eldtraustu herbergi í aðal-
byggingu KEA. EHB
Frá rannsóknar-
lögreglunni:
Ökumaöur úr
Akurgerði
gefi sig fram
Um klukkan 17.00 á mánudag-
inn varð það óhapp vestast í
Akurgerði á Akureyri, að
fólksbíll ók á 15 ára gamla
stúlku. Stúlkan og ökumaður
bílsins ræddust við, en þar sem
stúlkan taldi sig ómeidda var
lögreglan ekki kvödd á
staðinn.
Nú hefur komið á daginn að
stúlkan hlaut lítilsháttar meiðsli
og því er nauðsynlegt að öku-
maður bílsins, ung stúlka, hafi
samband við rannsóknarlögregl-
una á Akureyri, svo hægt sé að
taka skýrslu vegna málsins. ET
Leiðrétting
Á föstudaginn var haft eftir Ólafi
Erlendssyni, framkvæmdastjóra
sjúkrahússins á Húsavík, í frétt
hér í blaðinu, að öllu sérmennt-
uðu og fastráðnu starfsfólki
sjúkrahússins væri greidd 10 þús.
kr. launauppbót á mánaðarlaun.
Þetta er rétt hvað snertir hjúkr-
unarfræðinga í fullu starfi, en
ekki annað sérmenntað starfsfólk
sjúkrahússins, og leiðréttist þetta
hér með. EHB
Ragnar Sverrisson með stigahæstu refaskinnin og Reynir Barðdai með
minkaskinn sín sem fengu bestu einkunn.
Skagafjörður:
Félag loðdýrabænda
með skinnasýningu
- í fyrsta sinn sem félagið
stendur fyrir slíkri sýningu