Dagur - 03.02.1988, Side 3
3. febrúar 1988 - DAGUR - 3
Halldór Ásgeirsson starfsmaður byggingavörudeildar raÖar vörum í hillur hinnar nýju verslunar aö Lónsbakka.
Mynd: TLV
Byggingavörudeild KEA:
„Við erum hálffluttir"
- segir Mikael Jóhannsson deildarstjóri
/S.ÖUV S.V.
swt(ut -
290-'
Kðuv w- 69o,- **
KðuvV.v-
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Undanfarna daga hafa starfs-
menn Byggingavörudeildar
KEA unnið að því að flytja
ýmsar vörutegundir út í hið
nýja húsnæði deildarinnar við
Lónsbakka. Um síðustu helgi
var farið með málningu, verk-
færi önnur en rafmagnsverk-
færi og ýmsa smávöru úteftir
en áður höfðu dúkar, teppi,
klæðningar og fleira verið ttutt
þangað.
„Það má segja að við séum
hálffluttir og ég vona að við get-
um nú tekið sæmilega vel á móti
viðskiptavinum okkar hér ytra.
Ég hcld að þetta húsnæði verði
nokkuð gott þegar breytingar eru
afstaönar,” sagði Mikael
Jóhannsson deildarstjóri í sam-
tali við Dag. Mikael sagði að
flutningarnir myndu standa yfir
með hléum alveg fram á sumar
þegar þungavaran verður flutt úr
„timburbrotinu“.
I eldra húsnæðinu við Glerár-
götu er ennþá að finna rafmagns-
verkfæri, blöndunartæki, flísar,
hreinlætistæki og vörur mið-
stöðvardeildar.
í húsnæðinu við Lónsbakka
Eftirmenntunarsjóður málmiðnaðarmanna:
Fyrstu námskeiðin
em hafin
í haust var gerður samningur
milli Málm- og skipasmiða-
sambands Islands og Sam-
bands málm- og skipasmiðja,
um stofnun eftirmenntunar-
sjóðs sem opna á öllum málm-
iðnaðarmönnum leið til þess
að auka við sína faglegu þekk-
ingu.
Hákon Hákonarson formaður
Félags málmiðnaðarmanna á
Akureyri sagði að nú væri unnið
við að útbúa námsefni. Um helg-
ina var fyrsta námskeiðið haldið
á Akureyri, en það var fyrir bif-
vélavirkja og var haldið á bif-
reiðaverkstæðinu Þórshamri.
Fleiri námskeið fyrir starfs-
menn hjá málmiðnaðarfyrirtækj-
um munu fylgja á eftir seinna á
þessum vetri og verður það næsta
12.-14. febrúar nk., einnig fyrir
bifvélavirkja.
„Nú þegar svo mikið hefur
áunnist varðandi vinnutíma í
greininni, en hann hefur styst
töluvert mikið, get ég vel hugsað
mér að mennirnir hætti vinnu
kl. 16.00 á daginn og setjist þá á
skólabekk í einn til tvo tíma,
tvisvar til þrisvar í viku til að
auka við sina þekkingu. Betra
væri að koma heim eftir slíkan
dag, en eftir erfiða 12 tíma vinnu
í smiðju,“ sagði Hákon.
Sjóðurinn er fjármagnaður
sameiginlega af stéttarfélögunum
og vinnuveitendum. VG
Strætisvagnar Akureyrar:
Ákveðið að fella
leið 6 niður
Frá 1. mars nk. mun leiö 6 hjá
Strætisvögnum Akureyrar
verða felld niöur. Hér er um
að ræða leiðina Glerárhverfi-
Brekkur-Glerárhverfi um
Hlíðarbraut en þessi leið hefur
verið ekin kl. 7-9 á morgnana.
Ingi Þór Jóhannsson, formaður
stjórnar Strætisvagna Akureyrar
sagði í samtali við blaðið að
ástæður fyrir að þessi leið væri
felld niður væri sú að leiðin hafi
lítið verið notuð. í upphafi hafi
hún fyrst og fremst verið hugsuð
til að aka fólki af Brekkunni til
vinnu í Glerárhverfi og einnig
fyrir skólafólk en raunin hafi hins
vegar orðið sú að leiðin væri lítið
notuð. JÓH
eru nú að störfum flestir eða allir
flokkar iðnaðarmanna, nema
málarar, og keppast þeir við að
koma húsnæðinu í endanlegt
horf. ET
SKATTFRAMTAU
MJ&AÐSKllA
í fœka fíð
- skil á skaftframtali erskilyrði fyrirskattleysi á launatekjur 7 987
Skattframtali ber að skila nú sem endranær.
Athugið að ef ekki er talið fram, verða gjöld áætluð
samkvæmt skattalögum og njóta menn þar með ekki
skattleysis vegna almennra launatekna ársins 1987.
FRAMTALSFRESUJR RENNUR ÚT
10.FEBRÚAR.
7