Dagur - 03.02.1988, Side 5
3. febrúar 1988 - DAGUR - 5
Neytendafélag á
villigötum?
Vegna skrifa Steinars Þorsteins-
sonar, tannlæknis, fyrrverandi
formanns Neytendafélags Akur-
eyrar og nágrennis (NAN), vill
núverandi stjórn félagsins taka
fram eftirfarandi:
Stjórn NAN mun hér eftir sem
hingað til styðja hvern þann, sem
með heiðarlegum og ábyrgum
hætti reynir að vinna að bættum
hag neytenda, hvort sem það er
verð á þjónustu tannlækna eða
annarra.
Vilhjálmur Ingi stjórnarmaður
í NAN fékk upplýsingar um for-
sendur gjaldskrár Tannlæknafé-
lags íslands í umboði og með
fullu samþykki stjórnar NAN,
enda eru það gögn sem eðlilegt er
að neytendafélög hafi aðgang að.
Margir neytendur hafa einmitt
kvartað yfir hárri gjaldskrá tann-
lækna.
Greinar Vilhjálms Inga eru
ekki skrifaðar fyrir hönd Neyt-
endafélags Akureyrar og ná-
grennis. Hann skrifar þær á eigin
ábyrgð sem áhugamaður um
neytendamál.
Markmið NAN
Markmið NAN eru enn þau
sömu og í stjórnartíð Steinars en
starfshættir hafa breyst. Eftir
kjarasamninga ASÍ og VSÍ í feb.
’86 gengu verkalýðsfélög á
Eyjafjarðarsvæðinu og NAN til
samstarfs um verðgæslu og verð-
kannanir á svæðinu. í framhaldi
af því var ráðinn starfsmaður í
hálft starf til þess að sinna því
verkefni.
Frá því að NAN fékk starfs-
mann hafa verið gerðar a.m.k. 1-
2 kannanir á vöruverði og þjón-
ustu á mánuði. Starfsmaðurinn
hefur einnig sinnt kvörtunum
vegna gallaðrar vöru og þjón-
ustu. Þau mál voru á annað
hundrað á síðasta ári. Pessi þjón-
usta NAN er mjög tímafrek og
ekki höfð í hámæli þar sem þessi
mál eru yfirleitt mjög viðkvæm.
Útgáfa og fjárhagur NAN
Það er rétt að útgáfa NAN-frétta
hefur nær lagst af. í NAN-frétt-
um var á sínum tíma yfirleitt birt
verðkönnun með fleira efni, nú
birtast verðkannanir NAN í
Degi, einnig er þeirra yfirleitt
getið í svæðisútvarpinu. Þetta
þótti okkur vænlegri leið og
kannanirnar nýtast fleirum en
félagsmönnum eingöngu. Óneit-
anlega dró það úr þörfinni á að
gefa fréttabréfið út. Þeir félags-
menn NAN sem þess óska geta
fengið kannanirnar sendar til sín.
NAN-fréttir hafa aldrei gefið
af sér neinar tekjur en fjárhag
félagsins er borgið í bili, það má
þakka verkalýðsfélögum hér á
svæðinu ásamt bæjarstjórn Akur-
eyrar. Skilningur á mikilvægi
félagsins er fyrir hendi og það er
mikið fyrirrennurum okkar í
NAN að þakka.
Árið 1987 var árgjald neyt-
endafélaganna á landinu kr. 700,-
og verður á þessu ári kr. 900,-.
Af þessum peningum fara 40% til
reksturs Neytendasamtakanna
(NS sem eru landssamtök neyt-
endafélaga) og til útgáfu Neyt-
endablaðsins. Neytendablaðið
hefur komið mjög stopult út síð-
ustu árin en nú er von til þess að
það breytist og blaðið komi jafn-
vel út 4 sinnum á ári.
Hingað til hefur útgáfa blaðs-
ins ekki skilað umtalsverðum
tekjum enda eru því mjög þröngar
skorður settar varðandi auglýs-
ingar. Málefni blaðsins eru nú
mjög í deiglunni og á síðasta ári
var ráðinn ritstjóri, Elísabet
Þorgeirsdóttir, á nokkurs konar
verktakagrundvelli. Áskrift að
neytendablaðinu er innifalin í
árgjaldi auk þess fæst blaðið í
lausasölu um allt land.
Fulltrúar neytendafélaga
í samninganefndum
Steinar bendir á í grein sinni „að
hvorki Vilhjálmur Ingi né nokkur
annar fulltrúi neytendafélaga eða
landssamtaka neytenda eiga sæti
í þeim samninganefndum sem
semja fyrir hönd ríkisins við hin
ýmsu stéttarfélög". Hingað til
hefur það ekki þótt eðlilegt að
neytendafélög hefðu afskipti af
samningum um kaup og kjör.
Aftur á móti eiga Neytendasam-
tökin aðild að ýmsum öðrum
nefndum sem varða neytendur
sérstaklega, svo sem:
Siðanefnd um auglýsingar,
Siðanefnd Alþjóða verslunar-
ráðsins,
EAN nefnd (nefnd um vöru-
merkingar),
Kvörtunarnefnd NS og ferða-
skrifstofa,
Kvörtunarnefnd NS og Kaup-
mannasamtaka íslands og SÍS,
Staðalnefnd og
Nefnd um gæðamat á húsgögn-
um.
Það er spurning hvort ekki
væri eðlilegra að þannig samstarf
yrði tekið upp í mun meira mæli
en hingað til og á fleiri sviðum
t.d. samstarf NS og Tannlækna-
félags íslands. Við látum okkur
ekki detta í hug að tannlæknar
séu hafnir yfir gagnrýni frekar en
aðrir. Á þessu samstarfi gæti þó
verið sá hængur, að aðili sérfróð-
ur í tannlækningum sem gæti tek-
ið að sér að gæta hagsmuna neyt-
enda gæti verið vandfundinn,
ekki vegna þess að íslenskir tann-
læknar séu ekki starfinu vaxnir,
heldur vegna þess að hann yrði
að vera algjörlega óháður sam-
tökum tannlækna.
Að lokum
Starf neytendafélaga er nær ein-
göngu byggt á sjálfboðaliðum.
Hjá Neytendasamtökunum og
Neytendafélagi Reykjavíkur og
nágrennis eru nú samtals 1,9
stöðugildi. Hjá NAN er starfs-
maður í Vi stöðu. Það hljóta allir
menn að sjá að þrátt fyrir þennan
„fjölda" er lítið sem vinnst því
verkefnin eru óþrjótandi, en
dropinn holar steininn. Við erum
áratugum á eftir nágrannaþjóð-
um okkar í því að setja lög er
varða hagsmuni neytenda. Einn-
ig erum við mjög á eftir með alla
neytendafræðslu. Þetta eru e.t.v.
brýnustu verkefnin í dag.
Við viljum að endingu hvetja
alla til að ganga í Neytendafélag
Akureyrar og nágrennis svo og
önnur neytendafélög á landinu.
Einnig hvetjum við fólk til að
hafa samband við okkur á skrif-
stofu NAN, Gránufélagsgötu 4.
Skrifstofan er opin alla virka
daga milli kl. 11 og 15. Síminn er
96-22506 og símatími milli kl. 13
og 14. Þá er í ráði að hafa skrif-
stofuna opna eitt kvöld í mánuði
þ.e. I. fimmtudag í hverjum
mánuði milli kl. 20 og 22, fyrsta
sinn þann 4. febrúar nk. Við
hvetjum fólk til þess að koma, fá
sér kaffi og kíkja í neytendablöð
sem hér eru í þeim eru upplýsing-
ar um ótrúlegustu hluti.
Akureyri 28. janúar.
F.h. Neytendafélags Akureyrar
og nágrennis.
Sigfríður Þorsteinsdóttir,
formaður.
Vinsældalisti
Hljóðbylgjunnar
- vikuna 29/1-5/2 1988
Sæti Áður Vikur Lag__________________________________________________Flytjandi
1. 1 (4) Need you tonight ..................................... INXS
2. 3 (4) Always on my mind ........................ Pet Shop Boys
3. 2 (6) China in your hand .................................. T’pau
4. 4 (3) True devotion ............................. Sámantha Fox
5. 5 (4) Rauður bíll ................................... Geiri Sæm
6. 7 (4) Manstu .................................... Bubbi Mortens
7. 6 (9) Tears on the ballroom floor ................... Cry/no/more
8. 8 (4) Wonderful life ...................................... Black
9. 15 (4) Horfðu á björtu hliðarnar .............. Sverrir Stormsker
10. 9 (5) Everlasting love ................................... Sandra
11. 11 (5) Come back and stay ........................ Bad Boys Blue
12. 10 (9) Little lies ................................ Fleetwod Mac
13. 12 (7) Cant take my eyes of you ........................ Kim Ross
14. 13 (7) Aldrei fór ég suður ....................... Bubbi Mortens
15. 14 (5) Púla ........................................... Greifarnir
16. 18 (2) Hvitlaukurinn ................ Hallgrímur hvitlaukur (Laddi)
17. 17 (7) Ástar-bréf (Merkt-x) ................................ Model
18. 16 (3) Thedrum ...................................... RogerChapman
19. 21 (8) Soemotional ............................ Withney Houston
20. 19 (10) Can't stand (loosing you) ............................ Fate
21. 20 (3) Madonna (on the radio) ....................... The Flyers
22. 23 (2) Breytingar skeyðið .................................. Laddi
23. 22 (11) Loner ......................................... Gary Moore
24. 24 (2) What a night .................................. Dolly Dots
25. 29 (7) Týnda kynslóðin .................... Bjarlmar Guðlaugsson
Vinsældalisti Hljóðbylgjunnar er valinn á föstudagskvöldum, milli kl. 20 og 22, í símum
27710 og 27711. Listinn er spilaður á laugardagskvöldum milli kl. 20 og 23. Auk þess
sem ný lög eru kynnt. Vertu með.
Bifreiöaeigendur
Skíðagrindur og burðarbogar
í miklu úrvali.
Véladeild KEA
Óseyri 2, símar 21400 og 22997.
SVJNNaK
Bændur, bifreiðaeigendur,
verktakar og útgerðarmenn
Eigum ávallt fyrírliggjandi allar
stærðir SONNAK rafgeyma.
%r HLEÐSLA - VIÐGERÐIR - ÍSETNING
VÉLADEILD KEA
Óseyri 2, símar 21400 og 23084.
OrÖsending
til sparifjáreigenda
/ \
Einingabréf hafa nú þegar sannað
ótvírætt gildi sitt og stöðugleika
sem arðbær fjárfesting. Á síðasta
ári gáfu Einingabréf 1, eigendum
sínum 13,3% vexti umfram verð-
bólgu.
Við bendum eigendum Spari-
skírteina ríkissjóðs á að við tökum
innléysanleg spariskírteini sem
greiðslu fyrir ný spariskírteini eða
önnur verðbréf.
Með því að fjárfesta í Eininga-
bréfum tryggðu þér hámarks-
ávöxtun, lágmarksáhættu og að
auki er féð ætíð laust til útborgunar.
Einingabréf eru
öryggissjóður þinn og
þinna um ókomin ár.
Gengi Einingarbréfa 3. febrúar 1988.
Einingabréf 1 ............................. 2.632.-
Einingabréf 2 ............................ 1.534.-
Einingabréf 3 ............................ 1.637,-
Lífeyrisbréf .............................. 1.323,-
éél KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorg 5 Akureyri - Sími 96-24700