Dagur - 03.02.1988, Síða 10
! f 0 - ÐAGUR—Bftí febfúðí' '1988
AKUREYRARHÖFN
PÓSTHÓLF 407 - 602 AKUREYRI
Smábátaeigendur
Þeir smábátaeigendur sem ekki hafa enn gert skil
á legufæragjaldi fyrir áriö 1987 eru vinsamlegast
áminntir að greiða það hið fyrsta.
Hafi greiðsla ekki borist fyrir 10. febrúar n.k.
verða gjöldin sett í innheimtu og legufærahafar
eiga á hættu að missa legur sínar.
Hafnarstjóri.
Bjóðum fullkomna viðgerðarþjónustu á sjón-
varpstækjum, útvarpstækjum, steríomögnur-
um, plötuspilurum, segulbandstækjum, bíl-
tækjum, talstöðvum, fiskileitartækjum og sigl-
ingartækjum.
ísetning á bíltækjum.
Opnið augun!
Krógaból er foreldrarekin dagvist á Akur-
eyri.
Okkur vantar fóstru eða vanan starfsmann til að
vinna með okkur eftir hádegi sem fyrst.
Börnin eru 20, á aldrinum 2ja-6 ára, hvert öðru
skemmtilegra.
Einnig vantar starfsmann í afleysingar.
Nánari upplýsingar gefur Björg í síma 27060.
Gæslumenn
Kristnesspítali óskar að ráða gæslumenn til starfa á
hjúkrunardeild sem fyrst.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 96-31100.
Kristnesspítali.
Smiðir óskast strax
Draupnisgötu 7m
96-23248 Pósthólf 535 602 Akureyri.
Minning:
Þóninn Sigríður Pétursdóttir
Fædd 18. mars 1896 - Dáin 19. nóvember 1987
Þann 28. nóvember síöastliöinn
var jarðsungin frá Akureyrar-
kirkju Þórunn Sigríður Péturs-
dóttir frá Selskerjum, eða hún
Sigríður frá Lynghóli eins og mér
er tamara að nefna hana.
Sigríður fæddist að Selskerjum
við Breiðafjörð 18. mars 1896 og
var sú áttunda í röðinni af ellefu
systkinum. Þar ólst hún upp og
lærði snemma að taka til hendi
við hin ýmsu störf, eins og títt er
um þá er alast upp í stórum systk-
inahópi. Á unglingsárum sínum
missti hún föður sinn og réðst
fljótlega eftir það vinnukona að
Skálmarnesmúla við Breiðafjörð.
Líkaði henni vistin þar vel og
gekk að öllum störfum með at-
orku og dugnaði eins og hennar
var vani. Gætti hún meðal annars
varps í eyjum út af Skálmarnes-
múía og sigldi hraðbyri eftir bár-
um Breiðafjarðar með unglings-
stúlku sér til aðstoðar. Þótti þá
oft nokkuð djarflega siglt en Sig-
ríður hélt ótrauð áfram og sigldi
jafnan fleyi sínu heilu í höfn.
Segir frá þessum svaðilförum
hennar í tólfta bindi bókaflokks-
ins „Aldnir hafa orðið“, en þar
rifjar hún upp minningar sínar
frá árunum á Skálmarnesmúla.
Rúmlega tvítug giftist Sigríður
Sigurði G. Sigurðssyni er ættaður
var úr Reykhólasveit. Bjuggu
þau fyrstu árin á Vestfjörðum en
fluttu þaðan til Akureyrar þar
sem heimili þeirra var eftir það.
Lengst bjuggu þau að Lynghóli í
Glerárhverfi og þar höfðu þau
alltaf dálítinn búskap sér til
ánægju og búdrýginda. Hvíldi
hann að mestu á herðum Sigríð-
ar, þar sem niaður hennar stund-
aði lengst af vinnu á Ullarverk-
smiðjunni Gefjun, enda var hún
vandanum vaxin og annaðist
skepnurnar sínar af einstakri ást-
úð og nærgætni.
Þeim hjónum varð fimm barna
auðið og eru þau hér talin í ald-
ursröð. Pétur er var búsettur í
Reykjavík en látinn er fyrir
nokkrum árum, Sigríður hús-
freyja í Reykjavík, Sólveig hús-
freyja á Húsavík, Sigvaldi rak-
arameistari á Akureyri og Gunn-
steinn Sólberg búfræðingur
búsettur á Akureyri. Öll eru þau
systkin mikið myndar- og dugn-
aðarfólk sem sérhver móðir gat
verið stolt af, enda sagði Sigríður
oft eftir að hún varð vistmaður á
Dvalarheimilinu Hlíð á Akur-
eyri, að góð börn væru gulli betri.
Sigríður undi hag sínum alla tíð
vel í Lynghóli enda bjó hún þar í
næsta nágrenni við systur sína
Guðlaugu, er var kona Freysteins
Sigurðssonar og átti heima í
Baldursheimi. Hjá þeim dvaldi
oft langtímum saman Kristín,
systir þeirra Sigríðar og Guðlaug-
ar, er var búsett í Flatey á
Breiðafirði. Voru þá oft tíðar
ferðir milli bæjanna í rökkrinu,
enda ávallt mjög kært með þeim
systrum, og man ég að gaman
þótti okkur krökkunum að hlýða
á þær rifja upp minningar úr
Breiðafjarðareyjum og lýsa bú-
skaparháttum þar. Nú eru allar
þessar góðu konur, og þeirra
kynslóð horfin á braut, en
eyjarnar þar sem áður var svo
mikil búsæld og athafnalíf standa
auðar og yfirgefnar.
Hún Sigríður frá Lynghóli varð
aldrei það sem kallað er „auðug“
á veraldarvísu, en hún var þeim
mun auðugri af mannkærleika og
hjartahlýju og af þeim auði miðl-
aði hún samferðamönnunum svo
ríkulega sem raun bar vitni. Án
efa hafa einkunnarorð hennar í
lífinu verið reglan gullna „Allt
sem þér viljið að aðrir menn gjöri
yður, það skuluð þér og þeim
gjöra“, því engan hef ég þekkt
sem var því boðorði jafn trúr og
hún. Hún var ekki aðeins börn-
um sínum einstök móðir heldur
öllum nágrannabörnunum líka.
Ævinlega var okkur tekið með
sömu hlýjunni og ástúðinni hjá
Sigríði og aldrei kom ég svo í
Lynghól að hún gerði mér ekki
eitthvað gott. Var ég þó nær dag-
legur gestur þar um árabil, þar
sem við Gunnsteinn yngsti sonur
hennar erum jafnaldrar og leik-
félagar frá því ég man fyrst eftir
mér. Mig langar að segja hér
sögu sem sýnir ef til vill gleggst
höfðingsskap þessarar góðu konu
við okkur krakkana.
Það var að áliðnum degi að við
vorum að koma heim úr berja-
mó. Að venju komum við við í
Lynghóli á heimleiðinni enda
Gunnsteinn með í ferðinni. Sig-
ríður var úti við er okkur bar að
garði og þegar hún var búin að
líta ofan í ílátin okkar bað hún
okkur að doka við og brá sér inn
í bæ. Hún kom að vörmu spori
aftur með fína brúntertu á diski í
hendinni. Tertan var með þykku
kremi ofan á og ekki búið að
skera á henni. Sigríður kastaði
tölu á hópinn og undrun okkar
verður ekki með orðum lýst þeg-
ar hún skipti tertunni í sex jafn-
stór stykki. „Gjörið þið svo vel,
krakkar mínir,“ sagði hún svo,
og þegar sá síðasti var búinn að
fá sér tertustykki stóð hún Sigríð-
ur í Lynghóli á dyrahellunni með
tóman diskinn í hendinni. Þetta
atvik frá liðnum bernskudögum
hefur aldrei liðið mér úr minni og
nú þegar ég lít til baka finnst mér
það einmitt lýsa Sigríði best.
Þannig var hún, alltaf veitandi
þeim er á vegi hennar urðu, en
lét sér í léttu rúmi liggjá þó ékk-
ert væri eftir handa henni sjálfri.
Mér er líka í fersku minni hvað
það var gott að koma í Lynghól
þegar maður var búinn að renn-
bleyta sig í fæturna uppi í Lóni
og átti von á skömmum heima.
Þá var alltaf skilningi að mæta
hjá Sigríði, hún færði mann úr
sokkunum og lagði þá á eldavél-
arrörið, svo settist hún venjulega
inn á rúmið sitt með prjónana
sína og sagði okkur sögur meðan
sokkarnir þornuðu. Þegar árin
færast yfir er sjóður minninganna
flestum dýrmætur og við hann er
jafnan gott að ylja sér á köldum
vetrarkvöldum. í mínum huga
vegur innlegg Sigríðar frá Lyng-
hóli þungt í þeim sjóði og því vil
ég nú að leiðarlokum bera fram
mínar innilegustu þakkir fyrir
alla þá birtu og yl sem þessi góða
kona stráði á lífsbraut mína á
morgni bernskunnar. Aðstand-
endum öllum votta ég mína
dýpstu samúð og óska þeim allra
heilla á hinu nýbyrjaða ári.
Blessuð sé minning þín Sigríð-
ur frá Lynghóli með þökk fyrir
allt.
Ó kæra vina, hvíl í friði rótt
þig kvöldsins engill verndi dag og nótt
þinn anda leiði um Ijóssins æðsta geim
og lýsi þér að fótskör Drottins heim.
Guðrún Sveinsdóttir
frá Bandagerði.
Smáauglýsingar Dags
Það skal tekið fram vegna hinna fjölmörgu
sem notfæra sér smáauglýsingar Dags að
ef endurtaka á auglýsinguna strax í næsta
blaði eða í næstu viku bætast aðeins
120 kr. við verð fyrir eina birtingu.
Verð smáauglýsingar birt tvisvar er nú
700 kr. miðað við staðgreiðslu eða ef
greiðslan er send í pósti. Verð
smáauglýsingar sem ekki er staðgreidd er
700 kr. í hvert skipti.
Tekið skal fram að verð þetta miðast
eingöngu við staðgreiðslu.