Dagur - 03.02.1988, Side 11
3. febrúar 1988 - DAQUR -11
Bráðadauði í kúm:
„Skortur á
fjármagni til
rannsókna"
- segir Sigurður
Sigurðarson
dýralæknir á Keldum
I samtali við Dag, fyrir nokkr-
um dögum, sagöi Páll Þóröar-
son bóndi í Sauöanesi að hann
vissi ekki betur en að lítt væri
unnið að rannsóknum vegna
bráðadauða í kúm á tilrauna-
stöðinni á Keldum. Sýni sem
þangað hefðu verið send til
rannsóknar væru geymd í frysti
og ekkert aðhafst við rannsókn
þeirra.
Vegna ummæla Páls hafði
blaðamaður Dags tal af Sigurði
Sigurðarsyni dýralækni á Keldum
og spurði hann hvað gengi að
rannsaka sýnin.
Sagði Sigurður að skortur á
fjármagni hamlaði því að unnt
væri að vinna að þessu verkefni
af fullum krafti en þarna væri um
mjög viðamiklar rannsóknir að
ræða. í fyrstu hefði verið talið að
þarna væri um bakteríusýkingu
að ræða og hefði bólusetning á
kúm verið reynd á nokkrum
bæjum. Bólusetningin hefði, í
fyrstu, virst gera gagn á sumum
bæjunum en það virtist ekki hafa
komið að gagni á þessu svæði.
Sagði Sigurður að sótt hefði
verið um fjárveitingu úr Fram-
leiðnisjóði vegna þessa verkefnis,
en beiðnin hefði ekki verið
afgreidd. Þrátt fyrir það sagði
hann að rannsóknir á vefjasýnum
stæðu nú yfir.
Sigurður kvaðst ekki undrast,
að bændur sem hefðu orðið fyrir
stórfelldu tjóni af völdum bráða-
dauðans væru orðnir langþreyttir
á að bíða eftir lausn á vandanum,
en eins og fyrr segir, er það fyrst
og fremst fjármagnsskortur sem
hamlar því að rannsóknirnar geti
gengið með eðlilegum hætti.
Mótmælir
ummælum
félagsmála-
ráðherra
Á stjórnarfundi hjá Lands-
sambandi lífeyrissjóða 25.
janúar sl. gerði stjórnin eftir-
farandi bókun:
í sjónvarpsviðtali á Stöð 2,
þann 19. janúar sl. viðhafði fé-
lagsmálaráðherra Jóhanna Sig-
urðardóttir, mjög óviðeigandi
ummæli um formann Lands-
sambands lífeyrissjóða, Pétur H.
Blöndal. Var ráðherra með
dylgjur um að formaðurinn mis-
notaði félagslega aðstöðu sína í
eiginhagsmunaskyni.
Stjórn LL vísar þessum röngu
og órökstuddu fullyrðingum
algjörlega á bug og lýsir yfir fullu
trausti á formann LL. Pétur H.
Blöndal hefur á annan áratug
unnið að velferðarmálum lífeyr-
issjóðsfélaga og hafa fáir lagt
meira af mörkum í baráttunni
fyrir eflingu lífeyristrygginga í
landinu en formaður LL.
Stjórn LL telur það því ámæl-
isvert, þegar stjórnmálamenn, í
þessu tilfelli félagsmálaráðherra,
vega í skjóli valdsins, að félags-
lega kjörnum fulltrúum fólks í
varnarbaráttu þess gegn ásælni
hins opinbera í eignir lífeyris-
sjóðanna.
Meðan félagafrelsi ríkir á ís-
landi mun stjórn LL standa á
rétti lífeyrissjóðsfélaga og leitast
við að tryggja hag þeirra og rétt-
indi.
fjóra stórvinninga í áskriftendagetraun Dags
Gran Canaria, aðaláfangastaður okkar í vetur er þriðja
stærst sjö eyja, sem allar mynduðust á svipaðan hátt og
ísland, þ.e. við eldvirkni undir sjávarmáli. Það má greini-
lega sjá á eyjunni, því hún er í rauninni eldfjall og rís eins
og pýramídi úr sjó upp að toppi Pico de la Nieves fjallsins
í 1.980 metra hæð.
Hinar sérstöku aðstæður hafa gert Gran Canaria að því
sem menn kalla „örheimsálfu“, því náttúra og landslag
eyjunnar er ótrúlega íjölbreytt. Þar er hægt að ganga ofan
úr eldgíg niður grónar hlíðar; um banana-, appelsínu- og
tómataplantekrur innfæddra; um hraun ogútí eyðimörk;
sóla sig á gullnum ströndum eða ganga um ólgandi hring-
iðu stórborgarinnar, - allt á einum degi!
Þótt ótrúlegt megi virðast voru frumbyggjar eyjanna ljósir
á brún og brá, rétt eins og íslendingar. Þeir töluðu sína
eigin tungu, bjuggu í hellum sem enn má sjá í fjallshlíðun-
um og stunduðu friðsaman búskap.
Snemma á 15. öld hófu Spánverj-
ar að leggja eyjarnar undir sig og
innlimuðu hverja þeirra á fætur
annarri í spánska ríkið eftir mikl-
ar orrustur við innfædda.
Undir spánskum yfirráðum hófst
öld mikilla siglinga og fríverslun-
ar á eyjunum og gegndi hin sögu-
fræga höfn í Las Palmas þar lykil-
hlutverki. Þaðan sigldi til dæmis
Kólumbus í hina örlagaríku ferð
sína til Ameríku. Enn er Las
Palmas iðandi fríhöfn, þar sem
skip koma frá öllum heimshorn-
um með varning sinn og er hún
nú þriðja umsvifamesta höfn í
heimi.
íbúar Kanaríeyja líta fyrst og
fremst á sig sem Kanaríeyjabúa,
því menning þeirra er um margt
frábrugðin meginlandinu. Þeir
tala sína eigin mállýsku, dansa
sína eigin dansa við sína eigin
tónlist og elda sinn eigin rétt,
Gofio, sem á rætur sínar að rekja
til frumbyggjanna.
Þann 15. febrúar n.k. drögum við út
janúarvinninginn, en getraunaseðinn
birtist í Degi þann 14. janúar s.l.
Þú þaá einungis að svara tveimur laufléttum
spumingum - og vera skuldlaus áskrifandi.
Höfuðstöðvar farþega í vetur verða við hina
frægu Ensku Strönd - Playa del Inglés - á
suðurhluta Gran Canaria, sem er sólríkasti
staður Kanaríeyja.
Við um 30 kílómetra langa gullna strönd er allt
sem hugurinn girnist; hótel af öllum gerðum
og stærðum, veitingastaðir af öllu heimskort-
inu, diskótek, skemmtistaði, sýningar, versl-
anir, átján holu golfvöllur, spilavíti, fornminj-
ar, söguslóðir, sjóskíði, köfun, seglbretti, golf,
tennis, sjóstangveiði, útreiðar, fjallaklifur,
bílaleigubflar, mótorhjól, skoðunarferðir um
alla eyjuna og svona mætti lengi telja. Eina
reglan er: Það eru engar reglur um hvað hægt
er að taka sér fyrir hendur!
krift gerir g
iiiiiiui!
I