Dagur - 03.02.1988, Page 15
íþróttir
3. febrúar 1988 - DAGUR - 15
f
„Það næst árangur ef menn em
tilbúnir að leggja mikið á sig
- en það tekur tíma og kostar mikinn svita,“ segir Gustave Velberg badmintonþjálfari hjá TBA
Undanfarna þrjá mánuði hefur
hollenskur badmintonþjálfari
starfað hér á Akureyri á veg-
um TBA. Nafn hans er Gust-
ave Velberg og hann mun
starfa hjá félaginu næstu 4
mánuði til viðbótar. Hann er
fæddur og uppalinn í Indónes-
íu en fluttist til Hollands árið
1951 og hefur búið þar síðan.
Velberg er tæknifræðingur að
mennt og starfar sem slíkur í
heimalandi sínu, auk þess sem
hann hefur þjálfað badminton
til fjölda ára. Dagur fékk Vel-
berg í viðtal og hann var fyrst
spurður um fyrstu kynnin af
badmintoníþróttinni.
„Badminton er geysilega vin-
sæl íþrótt í Indónesíu og senni-
lega jafn vinsæl þar og handbolti
hér á landi. Eg kynntist því
íþróttinni snemma og spilaði alla
daga ásamt félögum mínum. I
Indónesíu er badminton útiíþrótt
og best er að spila seinni part
dagsins á meðan vindur er lítill.
Árið 1951 flutti ég til Hollands
en ég var með hollenskt vegabréf
og allir sem það höfðu þurftu að
yfirgefa Indónesíu það ár vegna
breytinga á stjórnarháttum
landsins. Ég settist að í Haag og
gekk þar fljótlega í badminton-
Jdúbb sem í voru rúmlega 200
félagsmenn. Fljótlega var ég
fenginn til þess að þjálfa hjá
klúbbnum og auk þess keppti ég
undir merki hans. Árið 1954
þjáífaði ég hjá fimm klúbbum í
Haag og þar í kring.“
Er með hæstu
þjálfaragráðu
- Hefurðu einhverja menntun
sem badmintonþjálfari?
„Já ég hef hæstu þjálfaragráðu
í badminton og hef réttindi bæði
til að þjálfa og kenna þjálfun. Þá
er ég með alþjóðleg dómararétt-
indi og hef dæmt m.a. á mótum í
Malmö, Kaupmannahöfn og
Glasgow."
- Hefurðu einungis starfað
sem þjálfari?
„Nei ekki aldeilis. Ég er
tæknifræðingur að mennt og
starfa sem slíkur í Hollandi. Mér
var veitt 7 mánaða leyfi frá störf-
um svo ég gæti komið til Akur-
eyrar og þjálfað hjá TBA. Það
gekk nú ekkert allt of vel að fá
svona langt frí en hafðist að
lokum. Þegar ég kem út aftur
held ég áfram í mínu starfi þar
sem frá var horfiö."
- Hefurðu gert mikið af því
að þjálfa í öðrum löndum?
„Ég hef þjálfað svolítið á Ítalíu
en í mun styttri tíma í einu.“
Hafði einnig tilboð
frá Guatemala
- En af hverju varð ísland fyrir
valinu?
„Ég hafði einnig tilboð frá
Guatemala en vegna rósturs þar
vildi ég frekar koma hingað til
lands. Kannski á ég þó eftir að
þjálfa þar einhvern tíma, þegar
fer að róast hjá þeim.“
- Vissirðu eitthvað um ísland
áður en þú komst?
„Já ég vissi þó nokkuð urn
landið. Bæði hafði ég lesið mér til
og auk þess hafði Otto Mallant
landsliðsþjálfari íslands í
badminton, sagt mér frá landinu.
En ég og Otto þekkjumst vel og
erum miklir vinir.“
- Hvernig kanntu svo við þig á
íslandi?
„Mér líkar mjög vel hér á
landi. ísland er svo ólíkt Hol-
landi að öllu leyti. Holland er
flatt lítið land með um 40 milljón
íbúa og hvar sem þú ferð er fólk.
ísland er mun stærra og mjög
fallegt. Landið er ekki ósvipað
Indónesíu, mikið um fjöll og
vötn en mun minna af trjám.
íbúar eru fáir en fólkið er mjög
gott. Hér er hægt að labba um í
náttúrunni og maður þarf ekki að
fara langt til þess að geta verið út
af fyrir sig. Og ég fann strax
hversu loftið er hreint og heil-
næmt.“
Það tekur tíma og kostar
mikinn svita að ná árangri
- En ef við snúum okkur þá að
starfi þínu hjá TBA. Hvernig líst
þér á nemendur þína í félaginu?
„Mér líst vel á þá og það eru
nokkrir efnilegir spilarar í TBA.
En það er ljóst að til þess að ná
árangri þarf að leggja mjög hart
að sér. Félagar í TBA hafa t.d.
aldrei verið við æfingar í jafn
langan tíma í einu og núna. Ég sá
það á unglingamótinu hér um
daginn, hvar við stöndum gagn-
vart öðrum félögum. Ég veit að
ef menn eru tilbúnir til þess að
leggja mikið á sig, þá næst árang-
ur. Én það tekur tíma og kostar
mikinn svita.“
- Hvernig er æfingunum hátt-
að hjá þér?
„Hjá TBA æfa allir flokkar
saman. En menn þurfa mislangan
tíma við æfingar og það fer m.a.
eftir aldri og hvar þeir standa
getulega séð. Það þarf að skipta
hópnum niður, sumir vilja leið-
sögn hluta æfingartímans og spila
síðan frjálst á eftir. Þeir yngri
þurfa hins vegar að æfa vel og
geta lítið leikið sér á æfingum,
því þeir eru framtíðin. Badmint-
oníþróttin er í samkeppni við
hinar íþróttagreinarnar og það er
slagur um tímana í íþróttahúsun-
„I Indónesíu er badminton útiíþrótt,“ segir Gustave Velberg badminton-
þjálfari TBA m.a. í viðtali. Mynd: tlv
- Nú ert þú búinn að búa hér í
um þrjá mánuði, er margt sem
hefur komið þér á óvart?
Eins og að lenda
á tunglinu
„Það er ýmislegt sem hefur kom-
ið mér óvart. Ég varð t.d. strax
undrandi yfir landslaginu þegar
ég var koma til landsins og flug-
vélin var að lækka flugið yfir
Keflavík. Mér var hugsað til þess
þá hvort Armstrong hafi verið
eins innanbrjósts og mér, þegar
hann lenti á tunglinu. Þá kom
það mér einnig á óvart að hér
fara menn úr útiskóm í forstof-
unni en í Hollandi vaða menn um
allt hús á útiskónum. En mér
finnst þetta góður siður hjá
ykkur. Ég velti því einnig lengi
fyrir mér, af hverju menn skildu
bílana sína eftir í gangi hér og
þar um bæinn. Seinna var mér
sagt að þetta væri einungis gert til
að menn kæmu að þeim heitum í
kuldanum. Það fannst mér mjög
skrýtið, því að í Hollandi þurfa
menn að drepa á bílurn sínum ef
þeir stoppa lengi, t.d. við járn-
brautarljós og að sjálfsögðu
vegna mengunar."
Kæmi aftur fyrir hálft orð
- Þú munt starfa hér til maíloka
en gætirðu hugsað þér að koma
aftur til starfa hér á landi?
„Já alveg örugglega. Ef ég yröi
beðinn að koma hingað til lands
aftur og fengi frí í þeirri vinnu
sem ég stunda í Hollandi, kæmi
ég fyrir hálft orð. Hvort sem það
yrði til TBA eða einhvers annars
félags á íslandi," sagði Gustave
Velberg að lokum.
Knattspyrna:
Leika Dalvíkingar í
3. deild í sumar?
- Taka líklega sæti HSÞ-c í deildinni
máli,“ sagði Páll Júlíusson skrif-
um.
Ég hef notið aðstoðar við þjálf-
unina en þeir Þórarinn Árnason
og Einar Jón Einarsson hafa ver-
ið mér innan handar. Það er
stefnt að því ég verði með þjálf-
aranámskeið hér innan skamms
fyrir hópa úr nagrannabyggðar-
lögunum, Húsavík, Siglufirði,
Ólafsfirði, Dalvík og jafnvel
fleiri stöðurn."
Naudsynlegt að læra
réttu handtökin strax
- En geta aðrir en félagar í TBA
fengið tilsögn hjá þér?
„Já það er minnsta mál. Ég
veit að það eru margir hópar sem
spila badminton hér á Akureyri
og eru utan við TBA, t.d. vinnu-
félagar, vinir og kunningjar. Ég
er tilbúinn að koma í tíma hjá
slíkum hópum og veita tilsögn en
fyrir það greiða menn til TBA.
Það er náttúrlega best að læra
réttu handtökin strax í upphafi
og eins reglurnar. Það er of mikið
um það að spilarar þekki ekki
reglurnar nægilega vel.“
Mjög miklar líkur eru á því aö
Dalvíkingar leiki í B-riöli 3.
deildar í í sumar, í stað HSÞ-c
sem ekki mun taka sæti í deild-
inni. Á ársþingi KSÍ í haust,
var ákveðið að fjölga um eitt
lið í B-riðli 3. deildar og stóð
það liði HSÞ-c næst að taka
það sæti.
HSÞ-c sem varð til við samein-
ingu tveggja liða í S.-Þing-
eyjarsýslu í fyrravetur, hefur nú
verið lagt niður. Liðið komst í
úrslit 4. deildar í fyrra og átti því
fyrsta rétt á að taka nýja sætið í
3. deildinni.
„Það er langlíklegast að lið
UMF. Svarfdæla taki þetta sæti.
Liðið var aðeins hársbreidd frá
því að komast í úrslitakeppnina í
fyrra og sat eftir á lakara marka-
hlutfalli en Hvöt sem síðan sigraði
í 4. deildinni. Við höfum fulla
heimild til þess að úthluta þeim
þessu sæti og þeir hjá mótanefnd
telja að UMFS sé líklegast til að
hljóta það. Á stjórnarfundi KSÍ á
fimmtudagskvöld verður senni-
lega gengið endanlega frá þessu
í kvöld leika KA og Víkingur í |
1. deild kvenna í blaki. Leikur-
inn fer frain í Höllinni á Akur-
eyri og hefst kl. 20.30. Þessum
leik var frestað á laugardaginn
var.
Kvennalið KA hefur átt erfið-
an vetur og liðið hefur aðeins
hlotið tvö stig. KA hefur nú misst
tvo af máttarstólpum liðsins en
þær Hrefna Brynjólfsdóttir og
Freydís Arngrímsdóttir, eiga
báðar von á sér og hafa ekkert
stofustjóri KSI í samtali við Dag í
gær.
leikið eftir áramót. Það er skarð
fyrir skildi, því Hrefna hefur ver-
ið aðalsmassari liðsins en Freydís
spilað hana uppi.
Karlalið KÁ átti að leika gegn
HSK á laugardaginn en þeim leik
var einnig frestað. Hann átti að
fara fram í kvöld en honum hefur
nú verið frestað á ný og fer ekki
fram fyrr en 13. febrúar. KA-
menn mæta HSK á Laugarvatni í
síðasta leik deildarinnar og þeir
ætla einnig að spila frestaða leik-
inn í þeirri ferð.
Blak 1. deild kvenna:
KA fær Víking í
heimsókn í kvöld