Dagur - 25.03.1988, Side 5
25. mars 1988 - DÁGÍIR - 5
--------------------\
Meðal áhorfenda á Gvrópu-
söngvakeppninni voru að sjálf-
sögðu þeir Geirmundur Val-
týsson og séra Hjálmar
Jónsson. Eftir að úrslitin voru
kunn ræddi blaðamaður Dags
við þá og spurði hvort þeir
væru sáttir við fjórða sætið í
keppninnni.
Þokkalega ánægðir að
vera á svipuðu róli
- Rætt við Geirmund Valtýsson og séra Hjálmar Jónsson
„Svo lengi sem maður er á
svipuðu róli og áður þá er ég
þokkalega ánægður," sagði
höfundur lagsins Geirmundur
Valtýsson. „Annars var búið að
sefja þjóðina með þessu lagi
Sverris áður en úrslitin voru kunn
og því lítil spenna nú í kvöld.
Lagið hjá honum er annars ágætt
og ég vona að því gangi vel í úr-
slitakeppninni.“
- Nú hefur þú, Geirmundur,
lýst því yfir að þú ætlir ekki að
vera með aftur. Er það óbreytan-
leg afstaða?
„Ég ætla að minrista kosti að
taka mér frí í eitt ár. Þessi keppni
tekur gífurlegan tíma og má t.d.
nefna að ég hef þurft að fara sex
sinnum til Reykjavíkur síðan um
áramótin út af laginu mínu.“
Séra Hjálmar Jónsson, nú heit-
ir textinn þinn: „Látum sönginn
hljóma“. Er einhver merking bak
við það nafn?
„Geirmundur lætur mig fá lög-
in á snældu og ég spila þau oft í
bílnum til að fá innblástur fyrir
texta. Ég ákvað að tileinka þenn-
an texta skagfirskri söngmenn-
ingu því næstum hvenær sem
Skagfirðingar hittast þá er söng-
urinn látinn hljóma. Skagfirðing-
ar eru mjög söngelskt fólk og
héraðið þekkt fyrir að fóstra
marga góða söngvara og laga-
höfunda. Þannig fékk ég hug-
myndina að þessum texta og er
hann því tileinkaður íbúum hér-
aðsins sem ætíð láta sönginn
hljóma.“
- Nú hefur söngvakeppnin oft
verið gagnrýnd fyrir að vera inni-
haldslaus skemmtun. Hvað viltu
segja um þá skoðun?
„Ég er nú ekki sammála því.
Þetta er saklaus skemmtun og
jafnvel þó að eitt ónefnt skáld
telji keppnina leiðinlega þá er
það bara mátulegt á hann. Þjóðin
hefur þurft að hlusta á hann flytja
langar og leiðinlegar sögur í
útvarpi og því ágætt að hann fái
að „þjást“ í smátíma.“ AP
Hermann Gunnarsson kynnir ásamt Valgeiri Guðjónssyni og konu hans
Ástu Ragnarsdóttur námsráðgjafa HÍ.
Velkomin í Lindina vfó Leiruveg
Lindin við Leiruveg
Opnum um helgina glæsilega veitingastofu
á efri hæð Esso-nestisins við Leiruveg.
Kynnum í fyrsta skipti á Norðurlandi Ijúffengan rétt:
Reykglóðuð svínarif (spare ribs) með Ijúffengri „barbeque-sósu" og meðlæti.
Auk þess eru á matseðlinum bæði í lúgum og sal:
Söuthern Fried kjúklingar, mínútusteikur m/bernaisesósu, hamborgarar alls konar
og einnig ein nýjungin enn fyrir fjölskyldurnar:
Barnahamborgarar á mjög hagstæðu verði, djúpsteiktur fiskur
og margir fleiri smáréttir.
Nýr valkostur í sunnudags bíltúrnum:
Kaffi og meðlæti í fallegum sal Lindarinnar.
ís og gos ókeypis fyrir börnin alla helgina
meðan foreldrarnir njóta nýju spennandi réttanna,
eða fá sér kaffi og rjómastykki.
r
Siemens-vörur
til fermingargjafa
Vasadiskó ★ Útvörp með segulbandi.
★ Hljómtækjasamstæður.
Útvarpsvekjarar og hárblásarar.
★ Merkið tryggir gæðin ★
Reynishúsinu ■ Furuvöllum 1 ■ 600Akureyri ■ Sími27788
CTC fjölbrennslukatlar
til húshitunar!
Hinir fjölhæfu CTC
katlar, fyrir olíu,
rafmagn, og föst
brennsluefni eru búnir
að sanna ágæti sitt.
Ýmsar gerðir.
Önnumst sölu og upp-
setningu að öllu leyti.
Leitið upplýsinga.
Kaupangi, símar
96-26400 og 25951.
NVLAGNIR
VIDGEROIR
VIÐHALD
VERSLUN
///-
Einar Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28, sími 91-622900.
HÓTEL KEA
Laugardagurinn 26. mars
Dansleikur
Hinir frábæru
Miðaldamenn
frá Sigiufirði leika fyrir dansi til kl. 03.00
Húsið opnað fyrir aðra en matargesti kl. 23.00
★
Um leið og við óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra páska minnum við á
að opnunartími Súlnabergs og
annarra veitingasala hótelsins
verður óbreyttur yfir páskahátíðina,
nema hvað enginn dansleikur er
laugardagskvöldið 2. apríl