Dagur - 25.03.1988, Side 17
25. mars 1988 -DAGUR - 17
Fínull hf:
„Vel í stakk búin
að gera gæðavöru
Á síöasta ári hófst hér á landi
framleiösla á fatnaði úr kan-
ínuull. Verksmiðjan sem fram-
leiðir þennan fatnað er í eigu
FínuIIar hf. sem er eina fyrir-
tækið á landinu sem framleiðir
band og fatnað úr kanínuull.
Fínull hf. var stofnað árið 1986
og tók til starfa í mars á síðasta
ári en þá hafði fyrirtækið keypt
þýska fyrirtækið Teufel sem
starfað hefur í Döffingen frá
því það var stofnað árið 1932.
Með í kaupunum fylgdu allar
vélar, framleiðsluþekking,
framleiðsluvörur og dreifíngar-
kerfí í Þýskalandi. Fínull hf. er
í eigu kanínubænda, Byggða-
stofnunar, Álafoss hf. og Kan-
ínumiðstöðvarinnar í
Njarðvík, sem er stærsta kan-
ínubú landsins. Sigurður Sig-
urðsson sölustjóri FínuIIar hf.
var nú á dögunum staddur á
Norðurlandi til þess að kynna
framleiðslu Fínullar. Sigurður
var spurður frekar um rekstur
Fínullar og framleiðslu fyrir-
tækisins.
„Það er mikill kostnaður sam-
fara því að læra inn á þessa tækni
og þekking liggur ekki á lausu.
Við höfum í dag bæði tæki og
þekkingu til að vinna úr angóru-
ullinni og erum komnir með
erlenda markaði sem við erum að
vinna upp og teljum okkur vera
mjög vel í stakk búin til að gera
gæðavöru. Við höfum fengið ein-
róma lof frá Bandaríkjamönn-
um, Svíum, Norðmönnum, Dön-
um, Kanadamönnum og fleirum
fyrir okkar framleiðslu,“ segir
Sigurður.
Framleiðum 40 tegundir
Fínull hf. framleiðir undir merk-
inu Iceland Angora. Framleiðslan
miðast einkurn við þær vötur sem
þýska fyrirtækið Teufel fram-
leiddi og má skipta framleiðsl-
unni í tvo flokka, annars vegar
nærfatnað fyrir allan almenning
og hins vegar sérhannaðan skjól-
fatnað sem ætlaður er til verndar
og hlífðar við ýmsum kvillum.
Þessi fatnaður er kallaður heilsu-
fatnaður.
„Þessi fatnaður andar mjög vel
og getur hentað vel fyrir t.d.
vinnandi fólk svo ekki sé talað
um fólk sem stundar t.d. útivist.
Ekki má gleyma því að þetta er
ný vara sem er úr innlendri ull,
ekki úr erlendum efnum eins og
t.d. „föðurlandið". í fötunum er
100% angóruull og galdurinn við
einangrun þessarar ullar er sá að
því fínni sem þræðirnir eru, því
meira lofti geta þeir haldið kyrr-
stæðu á milli sín. Hárin í þessari
ull er margfalt fínni en't.d. í ull af
íslenskú sauðkindinni sem gerir
að verkum að hitinn helst betur
og líkamshitinn helst stöðugur
þrátt fyrir ólíkar ytri aðstæður,"
segir Sigurður.
Hjá Fínull eru skrásettir um
100 framleiðendur, víðs vegar
um landið. Nú eru framleiddar
um 40 tegundir og þrátt fyrir að
verksmiðjan sé fyrir stuttu komin
í notkun þá annar hún ekki þeirri
eftirspurn sem er á framleiðsl-
unni í Þýskalandi.
til enga fitukirtla sem smitað geta
í ullina og valdið þannig óhrein-
indum. Kanínurnar eru mjög
þrifnar, hreinsa allt rusl og
óhreinindi sem á þeim lenda úr
fóðri og umhverfi. Þetta skiptir
verulegu máli þegar til fram-
leiðslunnar kemur vegna þess að
ekki þarf að þvo ullina áður en
hún er spunnin.
Ef gerður er samanburður á
angóruullinni og ullinni af
íslensku sauðkindinni kemur í
ljós að angóruullin mælist sterk-
ari þrátt fyrir að hún sé mjög fín.
Auk þess er eðlisþyngd hennar
mun minni en kindaullarinnar
sem gerir angóruullina mjög
eftirsóknarverða.
Upphaflega komu angórakanínur frá Svartahafslöndum til Frakklands árið
1723. Myml: TLV
Nægir markaðir og
framleiðslugeta
Nú eru framleidd um það bil 3000
tonn af angóruull í heiminum á
ári. Um 80% framleiðslunnar
kemur frá Kína en þaðan er hún
flutt óunnin til Evrópu og Banda-
ríkjanna. Auk þess er nokkuð
Angórukanínur eru þrifnar skepnur
og ull þeirra því mjög hrein. Þetta
skiptir miklu þegar til vinnslu ullar-
innar kemur. Mynd: TLV
framleitt í Argentínu, Brasilíu og
á seinni árum á Nýja Sjálandi. Af
Evrópulöndum er framleiðsla
mest í Frakklandi og Tékkó-
slóvakíu. Þjóðverjar og Danir
framleiða talsvert af angóruull
þótt hlutur þeirra í heimsfram-
leiðslunni sé frekar lítill.
Sigurður Sigurðsson segir að
nú geti Fínull hf. framleitt úr
meiri ull en berst til verksmiðj-
unnar. Ársframleiðsla á íslandi
er um 4 tonn af ull en fram-
leiðslugeta verksmiðjunnar er
um 80 tonn. Til þess að skapa
verksmiöjunni meiri verkefni
hefur % af ullinni komið erlendis
frá.
Nú eru greiddar 2000 kr. fyrir
kílóið af 1. fl. angóruull en
Sigurður segir að með fjölbreytt-
ari notkun ullarinnar hafi dregið
úr sveiflum á verði. Gæðin ráða
einnig mestu um verð og eftir-
spurn en gæðaflokkun hefur lengi
verið ströng. Hagkvæmni fram-
leiðslunnar fer fyrst og fremst eft-
ir því hver stór hluti hennar
kemst í 1. flokk.
Ekki er að efa að fatnaður úr
angóruullinni á eftir að ryðja sér í
auknum mæli rúms hér á landi
enda oft þörf fyrir hlýjan fatnað á
frostköldum íslenskum vetrar-
morgnum. JÓH
iti
„Núna eru að gerast mikil
ævintýri í okkar markaðsmálum í
þessum löndum sem ég nefndi
áðan sem vonandi þýða miklar
upphæöir fyrir okkur. Þetta ár
þurfum við hins vegar að beina
krafti okkar í að kynna vöruna á
innanlandsmarkaði áður en við
snúum okkur af alvöru að út-
flutningi."
Ullin og kanínan
Angórukanínur bárust fyrst til
Evrópu árið 1723 og komu þær
með enskum sjómönnum til
Frakklands frá Svartahafslönd
um. Ræktun þeirra var fyrst í
stað í Englandi og þaðan breidd-
ist þessi búgrein út til annarra
Evrópulanda. Talið er að í Eng-
landi hafi þær verið nefndar
ángóra í samræmi við aðrar lang-
hærðar dýrategundir s.s. angóra-
geitur, angóra-ketti og angóra-
marsvín. Upphaflega mun þó
nafnið vera dregið af borginni
Ankara í Tyrklandi. Aðeins
hvíta angóra loðkanínan er nýtt,
mislitar angórukanínur hafa
miklu minna gildi í framleiðslu.
Angóruullin er mjög hrein sem
stafar af því að kanínan hefur svo
Eiginmaður minn
RAGNAR J. TRAMPE,
Hafnarstræti 29, Akureyri,
lést að morgni 24. mars.
Fyrir hönd aðstandenda
Guðrún Eiríksdóttir.
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför,
HELGU HALLGRÍMSDÓTTUR,
Aðalstræti 44, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks lyfjadeildar Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri fyrir góða ummönnun í veikindum hennar.
Indriði Jakobsson, Edda Indriðadóttir,
örn indriðason, Hallgrímur Indriðason
og fjölskyldur.
Drögum úr hraða -<£>>'
-ökum af skynsemi ! yU^EROAH
Fallegt
páskaskraut
★ Páskakerti
★ Páskaservíettur
★ Borðbúnaður
★ Fermingargiafir
og fl. og fl.
KOMPAN
SKIPAGÖTU 2 • AKUREYRI
SÍMI 96-2 59 17
Lifrnfí orð
„Allt hold er sem gras og öll
vegsemd þess sem blóm á
grasi; grasið skrætnar og
blómið fellur. En orð Drottins
varir að eilífu. “
1. Pét. 1.24-25.
Við erum börn tímans og
hinnar líðandi stundar. Okkur
er skammtaðuf tíminn líkt og
grasið sem sprettur úr sér en
skrælnar síðan. Margt í gróðr-
ar- og plönturíkinu má líkja við
mannsævina. Sumargróður-
inn stendur í blóma mjög
skamman tíma og þannig er
með okkur. „Þér vitiö ekki
hvernig líf yðar mun verða á
morgun. Því að þér eruð gufa,
sem sést um stutta stund en
hverfur síðan." Jak. 4.14.
Mannanna verk eru dauðleg,
en það sem Guð framkvæmii*
fyrirferst ekki og það sem
hann segir í orði sínu gildir
eilíflega.
Orðalagið „allt hold“ minnir
á það sem mannlegt er, and-
sþænis því sem er guðdóm-
legt. Hið mannlega er hverfult
en það sem Guöi tilheyrir var-
anlegt. Hér er um að ræða
vegsemd mannsins annars
vegar, en hins vegar vegsemd
Guðs. Sá tími er ekki langur,
frá því að við náum fullorðins
þroska, þar til hæfileikarnir
taka að dvína. Sá sem áttar
sig í alvöru á þessari stað-
reynd „öðlast viturt hjarta"
segir ritningin. „Ár vor líða
sem andvarp. Ævidagar vorir
eru sjötíu ár og þegar best
lætur áttatíu ár, og dýrsta
hnossið er mæða og hégómi,
því að þeir líða í skyndi og vér
fljúgum burt.“ „Kenn oss að
telja daga vora, aö vér megum
öðlast viturt hjarta.“ Sálm.
90.9-10,12.
Þar sem við erum slík
hálmstrá í Ijósi eilíföarinnar,
því meira þurfum við á þeim
Guöi að halda sem megnar aö
leiða okkur og blessa. Hann er
reiðubúinn og megnar að gefa
okkur allt í Kristi, en það er
okkar að þiggja Guðs náðar-
gjafir.
Stundum er sagt: „Maður-
inn í öndvegi." Það á við þeg-
ar rætt er um vélvæðingu og
annaö slíkt. En Guð er hafður
í öndvegi og hans vegsemd,
þá munu hugsjónir okkar falla
í réttan farveg. Ef hann fær
dýrðina og heiðurinn sem
honum ber, þá mun ekki
standa á því að maðurinn fái
að njóta sín undir hans leiö-
sögn.