Dagur - 25.03.1988, Page 21
25. mars 1988 - DAGUR’- 2t
heimsmet. Þar má t.d. lesa að
stærsti maður heimsins (Gabriel
Estavao Monjane frá Mosambik)
er 2,457 metrar, sá elsti (Shige-
chiyo frá Japan) er 120 ára og 237
daga gamall, frjósamasta konan
(Leontina Albina frá Chile) eign-
aðist 55 börn og að sú hárprúð-
asta (Diane Witt frá Bandaríkj-
unum) skartar 2,59 m löngu hári.
Það eru þó miklu fremur fárán-
legu metin sem hafa gert Guinness
að metsölubók, t.d. heimsmetið í
lófaklappi (54 klukkustundir),
trommuslætti (44 sólarhringar og
ein klukkustund), brandararegni
(48V5 klukkustund) eða spila-
borgarbyggingu (3,9 metrar á
hæð). Norman Johnson frá
Blackpool hafði gúrkuskurð að
áhugamáli. Hann náði svo langt í
listinni að geta skorið 30,48 cm
langa gúrku í 244 sneiðar á 13
sekúndum. Atvinnulausum pilti
tókst að láta stafla af 132 smá-
peningum halda jafnvægi á oln-
boganum og grípa 100 þeirra aft-
ur með sömu hendi - og fékk sæti
í Heimsmetabókinni.
Pað er ekkert nýtilkomið, að
menn reyni að setja met. Hómer
þekkti þörf mannsins að „vera
alltaf fyrstur í einhverju og keppa
við aðra“. Grikkinn Herostatus
þurfti að kveikja í einu af undr-
um veraldar, Artemishofinu í
Ephesos, til að komast á síður
sögunnar. Pökk sé Guinness-for-
laginu, að nú er nóg að uppgötva
að maður er fljótastur að ein-
hverju, eins og t.d. að skræla
kartöflur, til þess að verða
frægur. Það verða þó að teljast
þjóðfélagslegar framfarir, ekki
satt?
Sú krafa er gerð að minnst tvö
hlutlaus vitni séu að metinu,
„helst bæjarstjórinn og einn af
okkar mönnum," segir Guinness-
Sú hárprúðasta.
. Að öðru leyti eru regl-
urnar einfaldar. Konunni sem
freistaði inngöngu með því að
þvo tveggja hæða strætisvagn í
London með tannbursta var vís-
að frá. „Óvíða í heiminum eiga
menn kost á tveggja hæða strætis-
vögnum til að slá metið, og því
hefði verið ósanngjarnt að viður-
kenna það,“ útskýrði einn af rit-
stjórunum. Hins vegar var Karen
Stevenson skráð fyrir að borða
2780 baunir á 30 mínútum með
tannstöngli, þar sem væntanlegir
keppinautar ættu auðvelt með að
afla sér bauna og tannstöngla
hvar sem er í heiminum.
Umsóknum um skráningu er
líka hafnað, ef talið er að þær
gefi of hættulegt fordæmi. Pannig
var til að mynda hætt að skrá hve
mörgu fólki tókst að troða inn í
smábíl eftir að ítrekað kom fyrir
að hópur fólks var nærri kafnað-
ur við tilraunir til að hnekkja
metinu.
Starfsmenn Guinness um heim
allan eru önnum kafnir við að
fylgjast með og skrá metin. Dag-
lega befast forlaginu hundruð
bréfa með fyrirspurnum, hug-
myndum að nýjum metum og
umsóknum um birtingu. Símleið-
is kemur annað eins. Ritstjórnin
hittist svo hvern föstudag, ber
saman bækur sínar og velur úr.
Minnsti bananinn er enn ekki
kominn í bókina. Drengur sendi
hann nýlega, 1,5 cm langan.
„Ykkur er guðvelkomið að borða
hann,“ skrifaði hann af miklum
höfðingsskap. En af virðingu fyr-
ir metinu stóðust ritstjórarnir
freistinguna. Svo nú liggur ávöxt-
urinn inni í skáp - og verður þar
sennilega þangað til enn minni
banani leysir hann af.
(Der Spicgel, þýtt.: Magnús Kristinsson.)
gáfu góða raun. Ágóðinn af
uppboðinu rann til golfklúbbs-
ins og var Guðmundur Lárus-
son, gjaldkeri G.A., sýnilega
hrifinn af framtakinu. Þess má
geta að Þórarinn B. Jónsson
gaf allar þær myndir, sem
boðnar voru upp og hafði
reyndar keypt þær sérstaklega
í þeim tilgangi.
Að málverkauppboðinu
loknu fluttu félagar úr leik-
klúbbnum Sögu nokkur atriði
úr söngleiknum „Grænjaxlar“,
sem sýndur er í Dynheimum
um þessar mundir. Síðan var
dansinn stiginn fram eftir
nóttu við undirleik hinna
landsfrægu Gauta frá Siglu-
firði. Meðfylgjandi myndir
voru teknar á opnunarhátíð-
inni.
Þeir skyldu þó ekki vera uA tala um
golf...? Hörður Túliníus og Gísli
Bragi Hjartarson létu sig ekki vanta
við opnuninu.
Þessi glæsilega terta var til sýnis opnunarkvöldið, en daginn eftir gerðu gestir Gísli Jónsson stjórnaði málverka-
henni góð skil, er þeir brugðu sér í kaffi að Jaðri. uppboðinu með „stæl".
Til leigu skrifstofu-
eða verslunarhúsnæði
ca. 100 fm í Miðbæ Akureyrar.
Upplýsingar í síma 24646.
I.D.L Páskamót
LETTIH
Fyrirhugað er að halda páskamót
laugardaginn 2. apríl.
Tekiö er viö skráningu í Hestasporti.
SBA
SÉRLEYFISBÍLAR
AKUREYRAR S/F
Breytt áætlun um páska
Akureyri - Mývatn - Akureyri
Frá Akureyri
30.03 kl. 16.30
04.04 kl. 14.00
08.04 kl. 16.30
10.04 kl. 14.00
Frá Reynihlíð
30.03 kl. 20.00
04.04 kl. 17.00
08.04 kl. 20.00
10.04 kl. 17.00
Afgreiðsla
Akureyri. Umferðarmiðstöðin Hafnarstræti 82,
sími 24442 og 24475.
Hótel Reynihlíð sími 96-44170.
sturtuklelar
Verslið við
fagmann.
DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI
SÍMI (96)22360
HREINLÆTiSTÆKI
STURTUKLEFAR 0G HURÐIR
BLÖNDUNARTÆKI
ALLT EFNI TIL PÍPULAGNA
JAFNAN FYRIRLIGGJANDI
Ðanssýning —
Danssýning
1. sýninj* nýstol'naös syniii«arnokks t'rá Dans-
stúdíói Alice veröur f'östuclaj>in 11 25. mars kl.
18.00. Uppselt.
2. sýning sama daj> kl. 20.30.
3. og síöasta sýniiig laugardaginn 26. mars
kl. 14.00.
Sýnt verðnr í Svartfngli, Skipagötn 14, 4. hæð.
Dansnemendur, látid ykkur ekki vanta.