Dagur - 11.05.1988, Page 6
6 - DAGUR - 11. maí 1988
Laus staða
Viö lagadeild Háskóla íslands er laus til umsóknar tíma-
bundin lektorsstaöa í lögfræði. Gert er ráö fyrir aö ráöiö
verði í stööuna til þriggja ára.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf
umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og
störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 150 Reykjavík, fyrir 6. júní nk.
Menntamálaráðuneytið,
6. maí 1988.
4™ Akureyringar
athugið
Firmakeppni Léttis verður haldin laugardaginn
14. maí á Breiðholtsvelli og hefst kl. 13.30.
Skráning knapa hefst kl. 12.45 viö Félagsheimilið.
Kaffisala veröur í Félagsheimilinu kl. 15.00.
Dansleikur í Svartfugli um kvöldiö.
Húsiö opnaö kl. 22.30.
Hljómsveitin „Helena fagra" sér um fjöriö.
Mætum Öll. Nefndin.
Matreiðslumenn
Hótel Húsavík óskar að ráða
matreiðslumann nú þegar.
Nánari upplýsingar veita hótelstjóri og yfirmat-
reiöslumaður í síma 96-41220.
Skriflegar umsóknir sendist til:
Hótel Húsavík
v/Ketilsbraut, 640 Húsavík.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
Á NORÐURLANDI EYSTRA
Lausar stöður
Lausar eru tvær stööur á næturvakt viö sumarbúð-
irnar aö Botni í Eyjafirði.
Einnig viljum við ráöa 2-4 starfsmenn á dagvaktir og
hvetjum viö karlmenn sérstaklega til aö sækja um
þær stööur.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 26960.
Lausar stöður
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar rannsóknastööur við
Raunvísindastofnun Háskólans sem veittar eru til 1 -3 ára:
a) Ein staða sérfræöings viö Eðlisfræðistofu.
b) Tvær stöður viö Jaröfræöistofu.
Öörum sérfræöingnum er einkum ætlað aö starfa aö
rannsóknum í setlagafræöi.
Hinum sérfræöingnum er einkum ætlaö aö starfa aö
rannsóknum í ísaldarjarðfræði.
c) Þrjár stööur sérfræðinga viö Stærðfræðistofu.
Stöðurnar veröa veittar frá 1. september nk.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi eöa tilsvar-
andi háskólanámi og starfað minnst eitt ár við rannsóknir.
Starfsmennirnir veröa ráönir til rannsóknastarfa, en
kennsla þeirra viö Háskóla íslands er háð samkomulagi
milli deildarráðs raunvísindadeildar og stjórnar Raunvís-
indastofnunar Háskólans, og skal þá m.a. ákveðið, hvort
kennsla skuli teljast hluti starfsskyldu viökomandi
starfsmanns.
Umsóknir, ásamt ítarlegri greinargerö og skilríkjum um
menntun og vísindaleg störf, skulu hafa borist mennta-
málaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir
3. maí nk.
Æskilegt er, aö umsókn fylgi umsagnir frá 1-3 dómbærum
mönnum á vísindasviði umsækjenda um menntun hans
og vísindaleg störf. Umsagnir þessar skulu vera í lokuöu
umslagi sem trúnaöarmál og má senda þær beint til
menntamálaráöuneytisins.
Auglýsing þessi kemur í staö fyrri auglýsingar dags. 27.
apríl sl.
Menntamálaráðuneytið,
6. maí 1988.
Nú fer hver að
verða aðastur
Frá síðustu mánaðamótum varð
ólöglegt að aka um á negldum
hjólbörðum, og síðustu daga
apríl var mikil örtröð á dekkja-
verkstæðum á Akureyri. Að
mörgu er að hyggja þegar skipta
á yfir á sumarhjólbarða, og marg-
ir þurfa að kaupa sér nýjan gang
undir bílinn.
Verðlag á hjólbörðum lækkaði
verulega við tollalagabreytingu á
síðasta ári, og að sögn kostar ný
dekkjagangur nú svipaða upp-
hæð og fyrir tveimur árum. Hægt
er að fá sóluð sumardekk á 1500-
1800 krónur, en ný dekk kosta
yfirleitt frá 2000 til 3000 krónur.
Samkvæmt þessum tölum kosta
fjögur sumardekk því frá 6000 og
upp í 12000 krónur.
Þegar skipt er yfir á sumardekk
er mikilvægt að yfirfara þau vel
áður, en lágmarksdýpt mynsturs í
dekkjum er 1 mm, mælt þar sem
slit er mest. Pá er mikilvægt að
láta jafnvægisstilla felgurnar eftir
að búið er að umfelga, því
nákvæm jafnvægisstilling minnk-
ar slit hjólbarða, stýrisgangs og í
hjólalegum bílsins. Á hjólbarða-
verkstæðum má fá allar nánari
upplýsingar um hvaðeina sem lýt-
ur að umhirðu dekkja og við-
haldi, en nú fer hver að verða
síðastur að skipta yfir á sumar-
dekkin. EHB