Dagur - 10.08.1988, Qupperneq 1
Þetta var mátulegt á þig!
Mynd: TLV
Múlagöngin:
Framkvæmdir
að hefjast
Þessa dagana eru framkvæmd-
ir við jarðgöng í gegnum Ólaf's-
fjarðarmúla að hefjast. í fyrra-
kvöld var skipað upp í Ölafs-
firði stærstu jarðýtu landsins
en lagning vegar að gangaopi
er fyrsti verkþátturinn sem
ráðist verður í.
Sem kunnugt er átti verktaka-
fyrirtækið Krafttak lægsta til-
boðið í verkið en að Krafttaki
standa Ellert Skúlason hf. og
norska fyrirtækið Astrup-Hoyer
A/S. Nú er unnið að nákvæmri
verkáætlun fyrir verkið sem til-
búin verður um miðjan mánuð-
inn. Undir mánaðamót er vænt-
anlegt til Ólafsfjarðar skip frá
Noregi sem flytur um 80 gáma
fulla af búnaði sem notaður verð-
ur við gangagerðina.
Fjárveiting til verksins á þessu
ári er um 120 milljónir króna og á
verkinu að verða lokið í mars-
byrjun 1991. JÓH
Loðnuvertíðin:
Bátar famir
á imðin
Loðnuvertíðin er að hefjast og
þeir bátar sem verið hafa á
rækju eru nú yfirleitt að skipta
yfir í loðnuna. Búast má við að
fyrstu loðnubátarnir komi inn
til löndunar eftir viku og sagði
Geir Zoéga, forstjóri Krossa-
nesverksmiðjunnar, að senn
yrði verksmiðjan tilbúin til að
taka á móti loðnunni.
Landbúnaðarráðuneytið afgreiðir sláturleyfi:
Átján löggiltiim húsum
heimiluð slátrun í haust
- þrjú undanþáguhús á Norðurlandi hafa enn ekki fengið leyfi
í fyrradag sendi landbúnaðar-
ráðuneytið leyfi til löggiltra
sláturhúsa fyrir slátrun í haust.
AIIs var um 18 hús að ræða en
Húsnæðisstofnun:
Umsóknir
um 472
kaupleigu-
íbúðir
Umsóknir um byggingu kaup-
leiguíbúða hafa streymt til
Húsnæðisstofnunar ríkisins og
alls hefur verið sótt um bygg-
ingu á 472 slíkum íbúðum
vegna ársins 1988. Þar af er 51
íbúð á Norðurlandi vestra og
46 á Norðurlandi eystra.
Að sögn Hilmars Þórissonar
hjá Húsnæðisstofnun mun það
væntanlega liggja fyrir á næstunni
hverjir hefja framkvæmdir við
byggingu kaupleiguíbúða á þessu
ári.
Hilmar sagði einnig að ekki
væri enn ljóst hve margar íbúðir
hefði verið sótt um fyrir árið 1989
en verið væri að vinna úr þeim
umsóknum. SS
engin ákvörðun hefur verið
tekin um hús sem rekin hafa
verið á undanþágu. Alls sóttu
45 aðilar um sláturleyfi að
þessu sinni.
Samkvæmt upplýsingum Níels-
ar Árna Lund hjá landbúnaðar-
ráðuneytinu er líklegt að slátur-
húsið á Dalvík fái undanþágu
m.a. vegna þess að þar fer fram
mikil slátrun í haust vegna niður-
skurðar á riðufé. Kaupfélagshús-
in á Kópaskeri, Akureyri, Húsa-
vfk, Sauðárkróki, Blönduósi og
Hvammstanga eru öll löggilt og
fá sláturleyfi en óvíst er enh um
sláturhúsið á Þórshöfn, hús Slát-
urfélags Skagfirðinga auk hússins
á Dalvík.
Níels Árni segir að ástandið í
sláturhúsamálum á Norðurlandi
verði að teljast gott en sömu sögu
er ekki að segja af Austfjörðum.
Sláturhúsið á Vopnafirði fær að
líkindum undanþágu en löggild
hús eru aðeins á Breiðdalsvík og
Höfn í Hornafirði. Ólöggilt hús
eru hjá Kaupfélagi Héraðsbúa,
Verslunarfélagi Austurlands og á
Fáskrúðsfirði. Níels Árni segir
því ljóst að mikil þörf sé á upp-
byggingu sláturhúsa á Austur-
landi í framtíðinni.
Öllum undanþáguhúsum var
sent bréf þess efnis að forsenda
fyrir sláturleyfi í haust sé að gerð-
ar verði þær breytingar og lag-
færingar sem viðkomandi dýra-
læknir óskaði eftir. Níels segir að
sláturleyfi verði veitt strax og
staðfesting viðkomandi dýra-
læknis berist landbúnaðarráðu-
neytinu. JÓH
„Nei, ég vil ekkert segja til um
verðið sem við bjóðum," sagði
Geir, „það væri annað mál ef þú
værir með loðnu á leiðinni í land.
Þá skyldi ég gefa þér það upp.“
Hann tók það fram að allt benti
til þess að ákveðin skip myndu
alltaf landa í sömu höfn, fyrir-
komulagið yrði í fastari skorðum
en á síðustu vertíð og verðstríð
milli loðnuverksmiðja minna
áberandi. Geir sagði að bátar
frá Austfjörðum hefðu farið á
loðnumiðin á mánudag og þeir
myndu landa á Eskifirði. Aðrir
væru hins vegar í viðbragðsstöðu
og biðu frétta af miðunum. Hann
sagðist vona að loðnan léti sjá sig
og vertíðin gæti hafist sem allra
fyrst. SS
Kartöflurækt:
Hringrotstilfelli stað-
fest á Eyjafjarðarsvæðinu
- hætta á að einhverjir bændur missi leyfi til sölu stofnútsæðis
í sumar var staðfest hringrot í
kartöflum hjá einum fram-
leiðanda í Eyjafirði. Þetta er
annað tilfellið á Eyjafjarðar-
svæðinu sem upp kemur á
síðustu tveimur árum en
hringrot hefur verið útbreitt
hjá kartöflubændum í Þykkva-
bæ. Tólf kartöflubændur á
svæðinu hafa haft leyfi til að
selja stofnútsæði en sá bær
þar sem hringrotið kom upp
nú er ekki í þeim hópi.
Vegna nágrennis og samnotk-
unar á tækjum munu einhverjir
af þeim tólf bæjum sem hafa
söluleyfi á stofnútsæði missa
það a.m.k. næstu tvö árin. Ólaf-
ur Vagnsson, ráðunautur hjá
Búnaðarsambandi Eyjafjarðar,
segir að ekki sé ljóst hvaðan
smit hefur komið í þessu tilfelli.
Fyrir tveimur árum kom upp
hringrotstilfelli hjá einum fram-
leiðanda í Höfðahverfi en þá
hafði verið um að ræða kaup á
útsæði úr Þykkvabæ, skömmu
áður en hringrot uppgötvaðist
þar. En spillir þetta tilfelli nú
fyrir sölu á stofnútsæði frá
Eyjafjarðarsvæðinu?
„Vissulega eru menn hræddir
við að hringrot sé komið á fleiri
staði þar sem vélar og tæki eru
mikið samnýtt. Því miður er
veruleg hætta á smiti og því
munum við taka reglulega sýni
°g fylgjast með útbreiðslunni.
Hvað varðar sölu á stofnútsæði
þá hafa bændur úr Þykkvabæ
leitað eftir útsæði héðan að
norðan með það fyrir augum að
losna við hringrotið úr sínum
kartöflum og væntanlega verða
þeir ekki eins öruggir um að fá
ósýktar kartöflur," segir Ólaf-
ur. JÓH