Dagur - 10.08.1988, Síða 2
2 - DAGUR - 10. ágúst 1988
Skipan íjarskipta-
mála endurskoðuð
Matthías Á. Mathiesen, sam-
gönguráðherra, hefur ákveðið
að endurskoða skuli skipan
Qarskiptamála á íslandi. Lýtur
endurskoðunin annars vegar
að stjórnun og rekstri Póst- og
símamálastofnunar og hins
vegar að löggjöf um fjarskipti.
í þessu skyni hefur ráðherra skip-
að nefnd, sem á að hafa umsjón
með athugun á stjórnun og
rekstri Póst- og símamálastofn-
unar með tilliti til þeirra breyt-
inga, tæknilegra og rekstrarlegra,
sem orðið hafa og fyrirsjáanlegar
eru á fjarskiptaþjónustu. For-
maður nefndarinnar er Árni Vil-
hjálmsson, prófessor, en auk
hans eiga þar sæti Guðmundur I.
Björnsson, aðstoðarpóst- og
símamálastjóri, og Sigurður
Þórðarson, vararíkisendurskoð-
andi. Starfsmaður nefndarinnar
verður Leifur Eysteinsson, deild-
arstjóri í Fjárlaga- og hagsýslu-
stofnun. Nefndin á að skila ráðu-
neytinu áfangaskýrslu fyrir 1.
janúar 1989.
Þá hefur ráðherra skipað
nefnd til að endurskoða gildandi
fjarskiptalög nr. 73/1984. Nefnd-
inni er sérstaklega ætlað að taka
afstöðu til einkaréttar til fjar-
skipta og hvaða þættir fjarskipta-
þjónustunnar eru þess eðlis að
samkeppni gæti talist eðlilegri.
Formaður nefndarinnar er
Hreinn Loftsson, aðstoðarmaður
samgönguráðherra, en auk hans
eru í nefndinni Guðmundur Ein-
arsson, framkvæmdastjóri, Har-
aldur Sigurðsson, verkfræðingur,
Þórður Ingvi Guðmundsson,
framkvæmdastjóri, og dr. Þor-
geir Pálsson, verkfræðingur.
Starfsmaður nefndarinnar verður
Ragnhildur Hjaltadóttir, deildar-
lögfræðingur. Nefndin á að ljúka
störfum fyrir 1. janúar 1989.
Nefndirnar starfa sjálfstætt, en
er ætlað að hafa samvinnu um
almenna stefnumörkun á sviði
fj arskiptaþ j ónustu.
Bygginganefnd hefur veitt eigendum þessara skúra frest til 15. ágúst
til að fjarlægja þá. Á myndinni að ofan er skúr sem stendur efst ■
Búðargili og innfellda myndin sýnir bakhús á lóð við Strandgötu sem
einnig skal hverfa. Þetta er liður í áætlun bæjaryfirvalda á Akureyri
að losa íbúa og gesti bæjarins við hrörlega og fánýta skúraræfla.
Myndir: GB
■nn
Skúraræflar látnir hverfa:
Afrani verður haldíð
segir byggingafulltrúi
Vinabæjamót:
Akureyringar íjöl-
menna til Randers
Á síðasta ári og þessu hefur
verið í gangi hjá bæjaryfir-
völdum Akureyrar áætlun
um að losa íbúa og gesti
bæjarins undan þeirri áþján
að þurfa að hafa hrörlega og
fánýta skúraræfla fyrir aug-
unum. Eigendum þeirra hef-
ur verið gert að fjarlægja hús-
in innan ákveðins frests elleg-
ar sjái bærinn um það á
kostnað eigenda.
Bygginganefnd samþykkti að
veita eigendum tveggja slíkra
húsa frest til 15. ágúst. Stuðst er
við ákvæði byggingarreglugerð-
ar þar sem segir að „ef hús sé
svo hrörlegt að nefndin telji að
ekki muni svara kostnaði að
gera við það,“ þá séu slíkar
aðgerðir heimilar.
Þessi hús eru hesthús efst í
Búðargili og bakhús á lóð núm-
er þrettán við Strandgötu, bæði
afar hrörleg.
Að sögn Jóns Geirs Ágústs-
sonar byggingafulltrúa eru
þessi mál oft viðkvæm og ótrú-
lega erfið viðureignar. Oft sé
fólk hreinlega búið að gleyma
þessum skúrum og hirði því
ekki um viðhald þeirra. I kring-
um afmæli Akureyrarbæjar síð-
astliðið sumar var eigendum
skúra boðið að losna við húsin
þeim að kostnaðarlausu og segir
Jón að ef til vill sé hægt að
semja um slíkt núna.
Hann segir að áfram verði
haldið á þessari braut enda sé
núverandi ástand algjörlega
óþolandi og öllum til skammar.
ET
Á föstudag heldur stór hópur
Akureyringa utan til Randers í
Danmörku, en þar verið hald-
ið vinabæjamót. Þátttakcndur
héðan eru 55 og hefst mótið á
sunnudag og stendur í viku. Á
meðan á mótinu stendur verð-
ur haldin svokölluð Randers-
vika, en það er heilmikil hátíð
sem haldin er árlega.
Stærsti hluti þátttakenda frá
Akureyri eru meðlimir í Big
Band sveit Tónlistarskólans og
mun hljómsveitin halda tónleika
á vinabæjamótinu. Þá verða í
hópnum þrír hópar ungra mynd-
listarmanna og einnig munu
verða sýnd verk nokkurra akur-
eyrskra listamanna. Tveir full-
trúar Akureyrarbæjar munu og
fara utan og einnig fulltrúar frá
Norræna félaginu.
Vinabæir Ákureyrar eru fyrir
utan Randers, Álasund í Noregi,
Vásterás í Svíþjóð og Lahti í
Finnlandi. Vinabæjamót eiga sér
langa sögu, en samskipti land-
anna hafa einkum verið á sviði
íþrótta- og æskulýðsmála. Mótið
sem nú er að hefjast er hið fyrsta
í fimm ára áætlun þar sem fyrir-
hugað er að stefna að víðtækari
samskiptum.
Á mótinu í Randers verður
myndlistin í fyrirrúmi, þó að
tónlist skipi einnig stóran sess. í
Vásterás verður tónlistin í önd-
vegi og einnig verður þingað um
safna- og félagsmál. Á mótinu
sem haldið verður á Akureyri
verður fjallað um bókmenntir og
leiklist á mótinu í Lahti í Finn-
landi.
Hótelnýting minnkar:
Hátt verðlag fælir
ferðamenn frá landinu
- dæmi um að hópar dragi pantanir sínar til baka
Dýrtíð og tíð verkföll á íslandi
virðast, að mati hótelstjóra,
vera helsta ástæða þess, að
nokkuð ber á samdrætti í
hótelnýtingu víðast hvar í
sumar. Það eru aðallega er-
lendir ferðamenn dregið hafa
úr komum sínum hótelin og
eru þess jafnvel dæmi að heilu
Á Raufarhöfn er nú unnið af
fullum krafti við að undir-
byggja götur, en leggja á bund-
ið slitlag á fjórar götur seinna í
þessum mánuði.
Gunnar Hilmarsson sveitar-
stjóri sagði að á fjárhagsáætlun
hóparnir hafí dregið bókanir
sínar til baka.
Inga Hafsteinsdóttir á Hótel
Akureyri sagði nýtingu í sumar
ekki eins góða og í fyrrasumar.
Töluvert hafi verið um afbókanir
og þar eigi aðallega í hlut erlend-
ir ferðamenn. Þá sagði hún það
hafa aukist að íslendingar gisti á
þessa árs væru um fjórar milljón-
ir króna áætlaðar í gatnagerðina.
Auk þess að leggja slitlag á göt-
urnar fjórar er ætlunin að leggja
einnig ofan á malbik sem fyrir er
á aðalgötu bæjarins, eða á tæpa
tvo kílómetra. mþþ
hótelum á ferðalögum sínum.
Á Hótel KEA var heildarnýt-
ing í júní 78,5% sem má telja
nokkuð gott að sögn Gunnars
Karlssonar hótelstjóra. Framan
af júlí var nýting sömuleiðis góð,
en hún datt niður úr 91% í 61%
seinnihluta mánaðarins. Heildar-
nýting í júlí varð því um 71% en
var í fyrra 86%. Þrátt fyrir það
voru gistinætur um 200 fleiri í júíí
í ár en í fyrra en vegna fjölgunar
herbergja er nýtingin hlutfalls-
lega lakari. Þá er útlitið fyrir ágúst
mjög gott, að sögn Gunnars.
Aðspurður sagði hann geysilega
mikið hafa verið um afbókanir
snemma í sumar og þar væri
verkfalii verslunarmanna að ein-
hverju leyti um að kenna.
Rafn Kjartansson hótelstjóri
Hótel Eddu á Menntaskólanum á
Akureyri sagði sumarið heldur
lakara en í fyrra. Júní skilaði
sömu krónutölu og á síðasta ári,
en til þess að hafa hliðstæða nýt-
ingu, vantaði 30% hærri tekjur.
„Það vantaði greinilega verð-
bólguna hjá okkur,“ sagði Rafn.
Júlí var nokkuð góður þrátt fyrir
slæma byrjun, en Rafn sagði
ferðamannastraumi'rin heldur að
glæðast nú og að hann væri bjart-
sýnn varðandi ágúst. „Það er
sjálfsagt að bæta við því sem allir
í ferðaþjónustu kvarta yfir nú, en
það er verðlagið. Skattheimtan
sem veldur hækkandi verðlagi, er
að fæla erlenda ferðamenn frá
landinu."
Á Hótel Stefaníu hefur nýting-
in verið nokkuð góð miðað við
önnur hótel, að sögn Ingunnar
Árnadóttur hótelstjóra, en minni
en í fyrra. Þar hafði sömuleiðis
orðið vart við töluverða fækkun
erlendra ferðamanna.
Arnfinnur Arnfinnsson á
Hótel Varðborg sagði þetta sum-
ar heldur verra en í fyrra og
kenndi um háu verðlagi og fjölg-
un gistirýma á hótelum bæjarins.
VG
í næstu viku, þegar vinabæja-
mótið stendur yfir verður svo-
kölluð Randersvika í gangi. Slík-
ar vikur hafa verið haldnar
undanfarin 12 ár og skartar bær-
inn hátíðarbúningi við það
tilefni. Sannkölluð karnival-
stemmning er yfir öllum bæjar-
bragnum og fjölmörg dagskrár-
atriði í boði. Akureyringarnir
eiga því eflaust eftirminnilega
daga í vændum. mþþ
DAGIIR
Sauðárkróki
S 95-5960
Norðlenskt dagblað
Raufarhöfn:
SUtlag á götur
- unnið af fullum krafti