Dagur - 10.08.1988, Qupperneq 5
10. ágúst 1988 - DAGUR - 5
Hannes Örn Blandon:
Hrafnagilsrallið
- Ein lítil hugleiðing
!! ,:j'| t1 —, ! í' ., !■-. - ■ -I ,m\ i ., }
Arnarneshreppur:
Útimarkaður í
Reistarárrétt
Ég undirritaður hef undanfarin
ár verið þátttakandi í Hrafnagils-
rallinu svonefnda, sem er svona
óopinber keppni hér í Eyjafirði
fram. Ég er að vísu ekki vanur
rallmaður, því síður á nógu góð-
um bíl til þess arna (sem er Lada
1600, ’79, án vökvastýris og velti-
grindar) en reynslan vex með
degi hverjum. Ékki veit ég út í
hörgul hvernig góð rallbraut á að
vera en þori jafnframt að fullyrða
ef ekki veðja að vegur sá sem við
höfum hér í Hrafnagilshreppi er
sá almerkilegasti og skemmtileg-
asti á öllu landinu og þótt víðar
væri leitað og er jafnvel rallveg-
urinn í Kenya, sem við sjáum
stundum hjá Bjarna í Sjónvarp-
inu þar sem menn aka í myrkvið-
um innan um ljón og gíraffa,1
hreinasti barnaleikur í saman-
burði við okkar rallveg.
Svo ég lýsi aðstæðum ókunn-
um ökumanni þá eru á leiðinni
hólar og hæðir, hvörf og lægðir,
brekkur, holur, urð og grjót, þá
skyndilega sæmilegur kafli sem
endar allt í einu í freðmýrum og
fenjum þangað til að komið er á
beinu brautina við flugvöllinn.
Refsistig eru reyndar ekki reikn-
uð en tíminn er misjafn allt frá 10
mínútum upp í þrjú korter. Hið
alskemmtilegasta við þennan
rallveg er að við keppendur vit-
um aldrei hvernig hann er að
morgni svo spennan er í hámarki
við upphaf hverrar ferðar. t*ar
sem t.d. var hóll að kvöldi er allt
í einu hvarf að morgni og þar sem
áður var sendin freðmýri er
óvænt urð og grjót. Þannig var
keppandi frá Grund Bjarni,
bóndi, Aðalsteinsson (keppir á
Skoda, tékkneskum rallbíl) fyrir
því óhappi um daginn að lenda í
svona glænýju hvarfi með þeim
afleiðingum að bílinn stefndi til
himins og brotlenti skömmu síð-
ar og flestir höggdeýfar undir
bílnum lömdust til ónýtis. En
slíkum atvikum taka menn með
jafnaðargeði, gera við ökutækið
og búast til næsta dags.
Hið eina sem ég finn þessari
rallkeppni til foráttu er að hún er
ekki nógu vel skipulögð. Þar á ég
við að þarna eigast við í senn
smábílar, skafarar og vörubílar,
hverra ökumenn fara eftir ein-
hverjum allt öðrum reglum en
við hinir. Þeir eiga það til dæmis
til að þegar þeir mætast á miðri
leið stöðva þeir bílana og spjalla
eins og þeir hafi ekki hist svo
árum skiptir. Þetta er auðvitað
alveg forkastanlegt og fer ég auð-
mjúklegast þess á leit að einhver
ábyrgur aðili taki að sér að skipu-
leggja rallið næstu árin.
Ég vil þó að lokum leyfa mér
að lýsa því yfir að ég á varla orð
yfir umburðarlyndi þeirra íbúa í
Hrafnagilshreppi sem ekki hafa
viljað taka þátt í rallinu en þolað
mótlætið í langan tíma. Það er í
senn hákristilegt athæfi og hinn
besti náungakærleikur. Eiga þeir
aðdáun mína alla.
Hannes Örn Blandon.
Árlegur útimarkaður í réttinni að
Reistará í Arnarneshreppi nálg-
ast nú óðum. Markaður þessi
hefur notið mikiila vinsælda og
verður hann að þessu sinni laug-
ardaginn 20. ágúst og hefst kl.
13.30. Þarna hefur mætt mikili
fjöldi seljenda með margvíslegan
varning og kaupendur hafa skipt
mörgum hundruðum. Þarna er
selt allt sem nöfnum tjáir að
nefna og er hugmyndaflugið látið
ráða. Sumir seljendur hafa verið
með aflóga dót, sem ýmsum þyk-
ir drasl en öðrum dýrgripir. Aðrir
seijendur hafa verið með heima-
tilbúnar gersemar, stórar og
smáar, ætar eða óætar.
Það eru ungmennafélögin í
Möðruvallasókn og Skriðuhreppi
sem standa að markaðinum, en
öllum er frjálst að koma og selja
varning. Seljendur geta pantað
dilka í síðasta lagi 17. ágúst hjá
Árna Arnsteinssyni (s. 26783)
eða Bjarna E. Guðleifssyni
(vinna 24733 - heima 26824).
Dilkaleigan verður 300-400
krónur. Um kvöldið verður svo
að venju haldið körfuball að Mel-
um í Hörgárdal.
Verðköimun NAN
Neytendafélagi Akureyrar og nágrennis þótti ástæða til að kanna verð á þvottaefnum ýmiss konar, talsverður munur er á milli verslana á svæðinu og virðist KEA Hrísa- lundi koma best út núna er með 8 vörutegundir af 16 á lægstu verði. Verðkönnunin var gerð dagana 3. og 4. ágúst 1988. Skrifstofa Neytendafélags Akureyrar og nágrennis er opin 2 daga ■ viku þriðjudaga og fimmtudaga milli kl. 13-17. Símatími er alla virka daga milli 13-14. Ef skrifstofutími breytist verður það auglýst síðar.
Vörutegundir KEA Hrisalundi 1 Matvöru- markaðurinn Hagkaup 0KE Grenivik Svarfdæla- búö Siða Brynja Mismunur á hæsta og Xaq- sta verði Mismunur %
Vex þvottaduft 700gr 84.90 x 88.00 104.00 85.00 112.00 104.00 27.10 31.9 „
Milda þvottaduft 700qr 84.90 x 104.00 85.00 112.00 104.00 27.10 31.9
Iva þvottaduft 550gr 92.90 98.00 107.70 87.00 x 20.70 23.8
C-ll bvottaduft 650ctr 79.10 79.00 81.90 fi7.nn x id nn 2? 2
Dixan þvottaduft 900or 208.90 x 246.40 219.00 242.10 216.30 37.50 18.0
Ajax þvottaduft 20 dl(700gr) 134.30 145.00 155.70 139.00 127.00 x 2ÍL2Q 22.6
Ariel þvottaduft 960qr 178.00 x 215.40 199.00 206.30 37.40 2U3
Blik uppþvottaduft 950qr 128.90 162.00 133.00 158.00 128.00 X 171.00 43.00 26.6
Finish uppþvottaduft lkg 175.20 X 180.40 199.00 181.40 23.80 13.6
Upp uppþvottaduft 600gr 141.30 X 146.00 157.20 171.00 29.70 21.0
Vex uppþvottcLLögur 660gr 66.20 83.50 75.00 89.00 fifi.00 x 88.00 89.00 23.00 34.8
Þvol uppþvottalögur 505gr 64.40 75.20 64.00 x 74.70 11.20 17.5
Hreinol uppþvottalöqur 500ml 44.70 X 51.80 47.00 7.10 15.9
Plús mýkingarefni 1L 78.30 98.50 81.00 96.00 78.00X 104.00 95.00 26.00 33.3
Dún mýkingarefni 1L 89.70 X 96.00 98.00 8.30 9.3
Milda mýkingarefni 1L 98.60 78.00 X 104.00 90.00 26.00 33.3
X merkir Lægsta verð i 1