Dagur - 10.08.1988, Page 13
10. ágúst 1988 - DAGUR - 13
„Þagnar-
umsátur“
- Bók júlímánaðar hjá
Bókaklúbbi AB
Þagnarumsátur, BAB-bók júlí-
mánaðar, segir frá töku banda-
rísks sendiráðs í tilbúnu Suður-
Ameríkuríki sem nefnt er San
Carlo og er fyrirmyndin greini-
lega hertaka bandaríska sendi-
ráðsins í Teheran.
Pagnarumsátur er þriðja
spennusagan eftir A.J. Quinnell
sem boðin er í Bókaklúbbi AB
en verk Quinnells hafa hlotið
góðar viðtökur meðal íslenskra
lesenda.
Margir koma við sögu í Þagn-
arumsátri en aðalpersónurnar
eru þrjár, Peabody, sendiherra
Bandarfkjanna í San Carlo,
Jorge sendimaður og njósnari
Fidels Castros á Kúbu og
Slocum, ofursti í Bandaríkjaher.
Sagan gerist á 20 sólarhringum og
er þannig saman sett að frásögn-
inni er skipt niður milli þessara
þriggja manna. Fyrstu tveir kafl-
arnir eru til dæmis sagðir af
Peabody, þriðji kaflinn er frá-
sögn Jorges og svo framvegis.
Þagnarumsátur gerist að mikl-
um hluta í sendiráði Bandaríkj-
anna sem er á valdi byltingar-
manna. Par á sér stað þrátefli
milli Peabodys sendiherra og
Jorges. Sendiherranum er hald-
ið í einangrun við heldur slæma
vist. Jorge á að veiða upp úr hon-
um Kobraáætlunina, sem sendi-
herrann hefur átt þátt í að semja
og fjallar um hvernig koma skuli
Castro frá völdum á Kúbu. Lík-
amlegar pyndingar eru ekki not-
aðar heldur fremur andlegar og
verður þetta mikið þrátefli.
Allt sem Slocum ofursti, þriðji
sögumaðurinn, segir frá snertir
undirbúning að töku sendiráðsins
og frelsun gíslanna og gerist
ýmist í Washington eða í bæki-
stöðvum bandaríska hersins.
Hershöfðingjar hafa samið
sína áætlun, sem Slocum for-
dæmir og semur nýja, miklu ein-
faldari. í þessum köflum snýst
spennan um hvora áætlunina
forsetinn fyrirskipar að nota. Pað
verður einnig þrátefli. Og svo
hefst árásin til að frelsa sendiráð-
ið.
Þagnarumsátur er sem sagt
spennubók en um leið alvörusaga
um ástand heimsins nú og lýsir
vel aðstæðum og sálarlífi þeirra
sem þátt taka í slagnum.
A.J. Quinnell er dulnefni og
enginn veit, nema líklega útgef-
andi hans í Bretlandi, hvaða
maður og hvers lífsreynsla leynist
að baki hans mögnuðu sögum.
En víst er um það að margt hefur
þessi höfundur séð og hann þekk-
ir vel ástand heimsins nú og and-
rúmsloft á æðri stöðum - hann
ritar alvörusögur með aðferð
spennusagnahöfundar. Þýðandi
þessarar bókar er Helga Þórar-
insdóttir.
Þagnarumsátur er 237 bls. að
stærð. Setning og filmuvinna:
Filmur og prent hf., prentun:
Grafík hf., bókband: Félagsbók-
bandið-Bókfell.
■'ff a veginn!
Flestir slasast í umferðinni á sumrin. Þá er
enn meiri þörf á að halda athyglinni vak-
andi en ella. Látum ekki of hraðan akstur
eða kæruleysi spilla sumarleyfinu.
Tökum aldrei áhættu!
yp™
FfeiqÖF OG FAÐNINGAR
Við leitum að starfsmanni í hálft starf fyrir
Neytendafélag Akureyrar og nágrennis.
Meðal fjölbreyttra verkefna er að veita upplýsingar,
taka við kvörtunum og leysa úr málum, gefa út frétta-
bréf og vinna að verðkönnunum.
Þarf að hafa frumkvæði og geta unnið sjálfstætt í
samvinnu við stjórn félagsins.
Umsóknarfrestur er til 1. september nk.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni að Brekkugötu 1, sími
27577, opið kl. 13-16.
Stefanía Arnórsdóttir Valgerður Magnúsdóttir.
Ritstjórn • Afgreiðsla • Auglýsingar
Strandgötu 31 - Sími 24222.
Frá Hrafnagilsskóla
Starfsfólk óskast við Hrafnagilsskóla
næsta skólaár.
Um er að ræða störf í mötuneyti og við ræstingar.
Upplýsingar veita:
Sigurður Aðalgeirsson skólastjóri, sími 31230 og
Jóhannes Geir Sigurgeirsson formaður skólanefndar, sími
31227.
Atvinna - Konur
Viljum ráða nú þegar konur
til starfa í vetur
Bónusvinna.
Hálfs- eða heilsdagsstörf.
Ennfremur viljum við ráða konur á kvöldvakt, vinnu-
tími: 17.00-22.00.
Upplýsingar hjá verkstjórum á staðnum.
K. Jónsson & Co hf. Niðursuðuverksmiðja.
UTSALAN
ER HAFIN!
Allt að 70%
afsláttur
í SKÓDEILD:
Barna-, dömu- og herraskór.
Mikið úrval, stórkostleg verðlækkun.
Peysur
Áður Nú
3.670 - 1.900.-
2.980,- 1.490.-
2.920,- 1.490.-
Stakkar
Áður Nú
3.870,- 1.990.-
7.590.- 2.990.-
4.390.- 2.220.-
Frakkar
Áður
9.590,-
9.390.-
Nú
4.790.-
4.690.-
Stuttermabolir
Áður Nú
790,- 390.-
890.- 490.-
VEFNAÐARVÖRUDEILD:
Jakkar .....
Bolir .....
Gallabuxur
Gallajakkar
Peysur ....
Kakíbuxur .
Pils ......
Áður kr. 5.590.- Nú kr. 1.990.
Áður kr. 2.795.- Nú kr. 990.
Áður kr. 3.990.- Nú kr. 1.890.
Áður kr. 3.530.- Nú kr. 1.290.
Áður kr. 3.290.- Nú kr. 1.590.
Áður kr. 3.590.- Nú kr. 1.390.
Áður kr. 2.190.- Nú kr. 990.
HERRADEILD
Buxur
Áður Nú
3.950,- 1.290.-
2.590,- 990.-
2.790.- 990.- 3.690.
Langermabolir
Áður Nú
3.895 - 1.900.-
2.995,- 1.450.-
1.850.-
Skyrtur
Áður
2.190.-
1.850.-
1.490,-
Nú
990.-
950.-
600.-