Dagur - 10.08.1988, Side 16
mmm
Akureyri, miðvikudagur 10. ágúst 1988
TEKJUBREF• KJARABREF
rFJÁRFESTINCARFÉlAGIÐ
FJARMAL ÞIN - SERGREIN OKKAR
Ráðhústorgi 3, Akureyri
Aldrei hafa fleiri unnið við
framkvæmdir á Gunnólfsvík-
urfjalli, en þar vinna nú um 70
manns. í fyrrahaust var rat-
sjárstöðvarhúsið gert fokhelt,
en það er um 1200 fermetrar
að stærð, á einni hæð og er
lofthæðin um 4 metrar. Nú er
unnið við að innrétta húsið,
leggja lagnir og einnig er verið
að steypa vatns- og olíutanka.
Almennri byggingavinnu á að
mestu að vera lokið í oktober.
Ratsjárstöðin verður að lík-
indum tekin í notkun eftir tvö ár.
Kristinn Pétursson fram-
kvæmdastjóri Gunnólfs hf. sem
sér um framkvæmdir á fjallinu,
sagði að framkvæmdir hefðu
gengið samkvæmt áætlun. Á síð-
asta ári var unnið við stöðvarhús-
ið fram í nóvember og oft við erf-
ið skilyrði þar sem ísing var mikil
á fjallinu. Á næsta ári á að setja
upp ratsjárhvelfinguna. Fyrirtæk-
ið Gunnólfur hf. var stofnað utan
um þetta verkefni og sagðist Krist-
Fjársöfnun vegna sundlaug-
arbyggingar við Sólborg:
Lokaátakið
á fóstu-
daginn
- 2 milljónir vantar til að
ljúka byggingunni
Nefnd áhugafólks úr röðum
starfsmanna Sólborgar, sem
stofnuð var fyrir rúmum mán-
uði, ætlar á föstudaginn að
standa fyrir lokaátaki í söfnun
fyrir byggingu sundlaugar á
Vistheimilinu Sólborg. Þetta
átak er gert í samvinnu við
Ríkisútvarpið Rás 2 en um 2
milljónir króna vantar til að
hægt sé að Ijúka við byggingu
laugarinnar.
Nefndin hefur sent út bréf til
sveitarfélaga og fyrirtækja á
Norðurlandi þar sem söfnunin er
kynnt. Útsending Rásar 2 á
föstudaginn verður tileinkuð
söfnuninni og mun dagskrárgerð-
arfólk kynna söfnunina og bjóða
upp á efni tengt henni. Þá verður
útsending Svæðisútvarpsins á
Akureyri á föstudagskvöld einnig
tileinkuð þessari söfnun en henni
lýkur kl. 19 sama kvöld. Hægt er
að hringja inn framlög hjá Rás 2
og Svæðisútvarpinu á Akureyri
og einnig getur fólk lagt fé inn á
póstgíróreikning 544655.
Fjórði og síðasti áfangi bygg-
ingarinnar kostar um 3,6 milljón-
ir króna, samkvæmt nýrri áætlun
arkitekta hússins. Nokkur upp-
hæð hefur þegar fengist upp í
þennan kostnað þar sem Fram-
kvæmdasjóður fatlaðra veitti í
fyrsta sinn fé til framkvæmdanna
nú í vor. Sjóðurinn veitti 1,5
milljónum króna og í júní færði
Lionsklúbbur Akureyrar stofn-
uninni 420.000 kr.
í samtali við Dag sögðust
nefndarmenn vera fullvissir um
að fólk taki þessari söfnun vel.
„Við stefnum að því að safna
þessum 2 milljónum og erum
ákveðin í að það tekst. Sundað-
staða fyrir þroskahefta og fatlaða
er engan veginn fullnægjandi hér
á svæðinu í dag en ef vel tekst til
gæti sundlaugin við Sólborg orðið
til um áramót,“ sagði þetta fram-
takssama starfsfólk Sólborgar.
JÓH
Skyld’ann bíta á?
Gunnólfsvíkurfjall:
Aldrei fleiri verið í
viimu við ratsjárstöðina
- „eigum í sömu rekstrarerfiðleikunum og annar atvinnurekstur,“
segir framkvæmdastjóri Gunnólfs
inn ekki geta sagt neitt fyrir um
hver framtíð fyrirtækisins yrði
þegar framkvæmdum á fjallinu
lyki.
Kristinn sagði að miklar gæða-
kröfur væru gerðar varðandi
bygginguna og væru eftirlitsaðilar
frá íslenskum aðalverktökum á
staðnum auk fulltrúa frá Banda-
ríkjamönnum. Hann sagði kröf-
urnar hærri en almennt tíðkaðist
hér á landi og erfitt að uppfylla
þær. Nákvæmlega er athugað að
steypan sem notuð er í bygging-
una sé sú besta sem völ er á og
eru teknar prufur úr hverjum
steypubíl, svo eitt dæmi sé tekið.
„Það má segja að við vinnum
þetta verk á gjörgæslu,“ sagði
Kristinn og bætti við að hann liti
svo á að það að kynnast þessum
kröfum væri góður verkmennta-
skóli. Hingað til hafa starfsmenn
við byggingu ratsjárstöðvarinnar
staðist allar þær kröfur sem gerð-
ar hafa verið.
„Okkur er þröngur stakkur
skorinn varðandi þessa fram-
kvæmd og við eigum í sömu
rekstrarerfiðleikum og annar
atvinnurekstur í landinu vegna
sífelldra kostnaðarhækkana
innanlands," sagði Kristinn.
mþþ
Nokkuð góð aðsókn hefur ver-
ið að Borgarbíói á Akureyri í
sumar að sögn Sigurðar Arn-
finnssonar bíóstjóra. Hann
sagðist ekki hafa yflr neinu að
kvarta nema ef helst væri
umgengni bíógesta.
„Ég er óhress með umgengn-
ina í bíóinu,“ sagði hann. „Það
hefur borið á því að sæti hafa ver-
ið skorin í sundur og til þess eru
sennilega notaðir flipar af gos-
dósum. Mér gremst þetta mjög
og við ætlum að fara að fylgjast
mjög vel með hverjir gera þetta.“
Sigurður taldi aðsóknina að
bíóinu vera betri í sumar en í
fyrra. Þakkaði hann það helst
góðum myndum en einnig hefði
veðrið nokkuð að segja. „Þegar
rigndi sem mest um daginn þá
lifnaði yfir aðsókninni,“ sagði
hann.
í fyrrasumar var bryddað upp á
þeirri nýjung að hafa ókeypis á
barnasýningar í júní, júlí og
ágúst. Sigurður sagði þetta hafa
reynst mjög vel þótt ekki væri
mikið upp úr því að hafa. Þetta
væri gert til að ekki þyrfti að
hætta barnasýningum á sumrin.
„Sumarið hefur alltaf verið veik-
ur tími hjá okkur en mér finnst
ekki hægt annað en krakkarnir
komist í bíó,“ sagði hann. KR
Svínakjötsframleiðendur:
Þakka auglýsingu
aukningu í sölu
gerðu þeir allt sem þeir gætu til
þess að auka söluna. Þeir ætluðu
samt ekki að fara að undirbjóða
hver annan- í vitleysu eins og
gerst hefði hjá kjúklingafram-
leiðendum. „Þess vegna fórum
við út í auglýsinguna þó svo hún
væri dýr.“
Hann taldi að þar sem margir
íslendingar ættu nú orðið útigrill
þá væri það tilvalinn markaður
fyrir svínaframleiðendur eins og
kemur fram í auglýsingunni.
„Þetta er tiltölulega nýr markað-
ur og þvf keppa allir kjötfram-
leiðendur um hann,“ sagði
Halldór. KR
Svínakjötsbirgðir voru farnar
að safnast upp í landinu í vor
vegna aukinnar framleiðslu.
Framleiðendur ákváðu því að
gera sjónvarpsauglýsingu þar
sem Flosi Ólafsson leikarinn
góðkunni sést vera að grilla
svínakjöt. Halldór H. Kristins-
son formaður Svínaræktarfélags
Islands segir að auglýsingin
hafi haft tilætluð áhrif því sala
hefði aukist og því grynnkað á
birgðunum.
Aukning hefur verið bæði í
framleiðslu og á markaði fyrir
svínakjöt undanfarin ár. En
birgðir söfnuðust síðan upp á
tímabili í vor vegna aukinnar
framleiðslu milli ára.
Mynd: TLV
„Það spilar líka inn í að sumar-
ið er alltaf lakari sölutími og þess
vegna var ákveðið að prófa þetta.
Það gekk upp, þannig að við erum
að komast í jafnvægi þó svo að
framleiðslan sé enn of mikil mið-
að við markað," sagði Halldór.
Hann bætti við að þar sem svína-
kjötsframleiðendur hefðu enga
tryggingu fyrir verði eða afkomu
Borgarbíó Akureyri:
Góð aðsókn, en slæm umgengni