Dagur - 23.09.1988, Blaðsíða 11
10 - DAGUR - 23. september 1988
23. september 1988 - DAGUR - 11
Ætlarðu að vakna í nótt
til að fylgjast með útsendingu
frá leik íslendinga
og Svía í Seoul?
Kristinn Kristjánsson:
„Nei, ég hugsa aö ég sleppi því
vegna þess að ég þarf að
vakna snemma í vinnuna. En
maður horfir í staðinn á leikinn í
Sjónvarpinu eins og aðra leiki
liösins. “
Guðni Hauksson:
„Já, ég ætla að vakna og setj-
ast við útvarpstækið. Svo horfir
maður á leikinn í Sjónvarpinu í
fyrramálið. Jú, ég hef fylgst
með keppninni í Kóreu og er
bara ánægður með íslenska
liðið.“
Helgi Hallsson:
„Ég mundi fara á fætur í nótt ef
maður gæti farið snemma að
sofa. En ef barnabörnin leyfa
það ekki þá lendi ég í klípu
vegna þess að ég þarf hvort eð
er á fætur kl. 7. Ég væri vís með
að fara milliveginn og láta
klukkuna hringja þegar leiknum
er um það bil að Ijúka."
Jóhanna Hjartardóttir:
„Á fætur kl. 4 í nótt? Ég bara
veit það ekki en vel gæti það nú
gerst."
Sveinbjörn Enoksson:
„Nei, það ætla ég ekki að gera.
Hef bara ekki tíma til þess. Jú,
ég er búinn að fylgjast vel með
síðustu leikjum og er ánægður
með frammistöðu (slendinga
þótt ég vilji ekki spá hvar þeir
lenda í röðinni. Það getur margt
sþilað þar inn í.“
Dagur spyr um stjóramálaviðhorfið
Stjórnmál eru í brennidepli þessa dagana eftir að slitnaði upp úr stjórnarsamstarfi ríkis-
stjórnar Þorsteins Pálssonar. Hér heyrum við svör ellefu karla og kvenna við eftirfarandi
spurningum: Hvernig ríkisstjórn telur þú heppilegasta? og Viltu láta kjósa strax eða síðar?
Spurt var á Akureyri.
Snorri Kristjánsson, bakari:
Þessu er auðsvarað. Sjálf-
stæðisflokkurinn, Borgaraflokk-
urinn og Alþýðuflokkurinn eiga
að mynda stjórn því þannig
stjórn er sterkust. Síðasta stjórn
fór út um þúfur vegna persónu-
legrar misklíðar milli ráðherr-
anna. Pessi stjórnarslit eru eins-
dæmi, ég man ekki eftir öðru
eins. Ég tel að Steingrímur hafi
verið óánægður allan tímann,
hann vildi verða forsætisráðherra
og það var stærsti liðurinn í
misklíðinni.
Mér finnst ekki rétt að láta
kjósa strax aftur því þá fara efna-
hagsmálin alveg í hnút. Það tekur
svo langan tíma að mynda nýja
stjórn og valdahlutföllin hljóta að
breytast á þinginu við kosningar.
En mér finnst nauðsynlegt að
grípa strax til aðgerða.
Ingvi Guðmundsson, inn-
kaupastjóri:
Ég er á móti kosningum núna,
það er ekki ástæða til þess og
ekki tímabært heldur. Kosningar
gefa ekki betri mynd eins og stað-
an er í dag, ég vil heldur að þessir
flokkar reyni að koma sér saman
um einhverjar aðgerðir.
Stjórn allra flokka getur aldrei
gengið, það þarf einhverja góða
vinstri stjórn. Ég vil láta Stein-
grím Hermannsson velja menn í
þá stjórn, hann á að vera
forsætisráðherra, það er engin
spurning.
Fyrri stjórn sprakk vegna
úrræðaleysis, þessir þrír flokkar
eru svo ólíkir og það er ákaflega
erfitt fyrir vinstri menn að vera
með Sjálfstæðisflokknum í ríkis-
stjórn.
Gunnar Hallsson, forstöðu-
inaður tölvudeildar KEA:
Ég hugsa einna helst að alvöru
ríkisstjórn sé vart myndanleg í
dag. Sú stjórn sem ég hefði helst
viljað er vinstri stjórn Framsókn-
ar, Alþýðubandalags og Kvenna-
lista. Síðan yrði að fá annað
hvort Borgaraflokk eða Alþýðu-
flokk með. Ég myndi þá frekar
velja Borgaraflokkinn því ég hef
yfirleitt litið á Alþýðuflokkinn
sem anga út úr Sjálfstæðisflokkn-
um. Alþýðuflokkurinn hefur
staðið nær Sjálfstæðisflokknum
en Borgaraflokkurinn.
Ég tel nauðsynlegt að kjósa því
ég kem ekki auga á að þeir flokk-
ar sem nú eru á þingi geti mynd-
að starfhæfa meirihlutastjó'rn
eins og er. Mér finnst að kosning-
ar ættu að fara frám eins fljótt og
hægt er.
Áslaug Kristjánsdóttir, starfs-
maður KEA:
Við höfum ekkert að gera með
kosningar því það yrði sama
ringulreiðin á þinginu. Meðan
stjórnarskráin leyfir ótakmarkað-
an fjölda flokka á íslandi verður
alltaf ringulreið í stjórnmálum.
Það þyrfti að vera tveggja til
þriggja flokka kerfi í landinu, þá
gæti fólk vitað hvað væri hægri,
vinstri og miðflokkur en ekki
þetta eilífa hringl eins og er
núna.
Eins og þingið er samsett núna
er ekki hægt að mynda neina
raunverulega starfhæfa meiri-
hlutastjórn, til þess er ágreining-
ur um of mörg smámál. Ég hefði
talið æskilegast að fá utanþings-
stjórn því Islendingar eru smá-
þjóð og það á ekki að kjósa oftar
en á fjögurra ára fresti. Við eig-
um að kjósa til fjögurra ára þann-
ig að hægt sé að stjórn landinu.
Dröfn Jónsdóttir, vinnur hjá
Álafossi hf:
Mér líst illa á þetta ástand í
stjórnmálum. Það er ekki heppi-
legt að fara aftur út í kosningar,
menn eiga að reyna að koma sér
saman. Sterkasta stjórnin yrði
Sjálfstæðisflokkur, Alþýðuflokk-
ur og Borgaraflokkur. Sú stjórn
ætti að reyna að bjarga málunum
í bili. Ég get ekki sagt til um hve-
nær ætti að kjósa næst, það færi
allt eftir því hvernig stjórnin
kæmi sér saman og hvað kæmi úr
úr starfi hennar.
Ég veit eiginlega ekki hvers
vegna stjórnin sprakk, e.t.v. voru
menn orðnir of persónulegir í
afstöðu sinni. Kvennalistinn virð-
ist ekki vilja taka þátt í stjórn í
bili.
Júlíus Snorrason, bakara-
nicistari:
Ég tel að ný Viðreisn, þ.e.
stjórn Alþýðuflokks og Sjálf-
stæðisflokks ásamt Borgara-
flokki, sé hentugasta og sterkasta
stjórnin nú. Þessir flokkar eru að
mínum dómi þeir einu sem geta
komið sér saman.
Það er ekki gott að spá í hverju
það var að kenna að stjórnin
flosnaði upp, ætli það hafi ekki
verið stjórnarandstaða Stein-
gríms Hermannssonar og Fram-
sóknarflokksins.
Ég vil skilyrðislaust láta kjósa
aftur í vetur, því fyrr því betra.
Þangað til verður bráðabirgða-
stjórn að sitja því nauðsynlegt er
að framkvæma fyrstu aðgerðir
áður en að kosningum kemur.
Konráð Aðalsteinsson, iðn-
verkamaður hjá Álafossi hf:
Það verður erfitt að taka við
eins og málin eru í dag en ég
hefði viljað prófa vinstri stjórn,
Alþýðuflokk, Alþýðubandalag,
Framsóknarflokk og jafnvel
Borgaraflokk. Ég get ekki sagt til
um hvort sú stjórn ætti að setja
lengur eða skemur eða hvort
grípa eigi til kosninga nú eða
síðar. Það virðist vera alveg sama
hvaða stjórn situr eða hvaða
flokkar fara með völd, það eru
alltaf sömu vandamálin. Ég veit
ekki hvort þau batna við kosning-
ar.
Það kom mér ekki á óvart
hvernig fór fyrir stjórninni, ég
var búinn að sjá þetta fyrir miðað
við fréttir af stjórnarsamstarfinu
undanfarið. En ég tel mjög tví-
sýnt að ástandið batni við kosn-
ingar.
Kristján Guðjónsson, vinnur
hjá Álafossi hf:
Ég vil stjórn sem gerir eitt-
hvað, það skiptir engu máli
hvernig hún er skipuð. Það þarf
að bjarga atvinnuvegunum, eru
þeir ekki alveg í lamasessi?
Það kom mér eiginlega á óvart
hvernig fór fyrir stjórninni en þó
var ég ekki búinn að gera ráð fyr-
ir að hún yrði eins langlíf og raun
varð á. Fyrst þeir voru búnir að
hanga í þessu svona lengi hefði
ég haldið að þeir gætu það áfram.
Ég er hræddur um að æskilegt
sé að kjósa og fá sterka meiri-
hlutastjórn en ef ég á að segja
eitthvað um stjórnmálaástandið
almennt í landinu þá finnst mér
það vera dapurt, það er ekki
nema eitt orð yfir það.
Almenningur hefur, held ég,
ekki áhuga fyrir stjórnmálum auk
þess sem flokkarnir eru orðnir
svo margir að fólk á erfitt með að
gera upp við sig hverja það á að
kjósa.
Sigurjón Ingibjörnsson:
Mér finnst umræða um þessi
mál eiginlega vera þvaður fram
og aftur og það kemur ekki nógu
vel fram hvað menn eru að ræða
um. Stjórnmálaflokkar ræða
saman en mér finnst ekkert raun-
verulegt vera að gerast. Ég var
ekki óánægður með stjórnina
framan af en samstarfið fór hrað-
versnandi. Ástandið er sérlega
slæmt fyrir húsbyggjendur og
ástandið í húsnæðismálum hefur
farið versnandi. Ég verð að segja
að ég nenni varla að fylgjast með
þessum stjórnmálum. Þó finnst
mér ástandið vera orðið svo svart
að nauðsynlegt er að kjósa aftur,
fyrr en seinna.
María Sigurbjörnsdóttir:
Ég vil helst ekki kosningar og
er hætt að búast við að stjórn-
málamenn komi sér saman. Ég
hef misst trúna á þessa menn.
- En hvað finnst þér um
kvennalistakonurnar?
Þar fórstu alveg með það - ég
hefði haft trú á þeim en mér virð-
ist þær ekki þora að segja neitt
eða vilja bera ábyrgð á neinu.
Það kom mér ekki á óvart að
það skyldi slitna upp úr stjórnar-
samstarfinu. Þetta er alvarlegt
ástand því á meðan þetta er
svona getur fólk búist við að fleiri
frystihús loki, við sjáum bara
hvað er að gerast í Ólafsfirði.
Atvinna fólks er augljóslega í
hættu.
Níels Ragnarsson:
Kosningar væru til bóta úr því
sem komið er. Mér finnst skrýtið
ef það er hægt að mynda stjórn
án þess að efna til kosninga aftur
því það ætti að gerast sjálfkrafa
að gengið skuli til kosninga þegar
ríkisstjórn hættir.
Mér kom ekki á óvart að svona
fór fyrir stjórninni, þetta var
sundurlyndi. En þegar sú staða
kemur upp að stjórn getur ekki
setið út kjörtímabilið á að koma
af sjálfu sér að efnt verður til
nýrra kosninga.
- Hvernig litist þér á meiri-
hlutastjórn sem myndi sitja fram
á næsta ár? Ég er ekki beinlínis á
móti því en það fyrirkomulag
býður þó upp á mikið baktjalda-
makk því menn eru meira að
segja farnir að ræða um myndun
nýrrar stjórnar áður en sú gamla
er fallin. Stjórnmálaástandið í
landinu er ekki gott, það hljóta
allir að sjá. EHB
íbúð - Reykjavík
Rúmgóð 2ja herbergja íbúð, vel staðsett við
Miklubraut Reykjavík, til sölu.
Hagstætt 400 þúsund króna langtímalán fylgir.
Allar upplýsingar veittar í Fasteignahöllinni, Háa-
leitisbraut 58-60, símar 91-35300 og 91-35301.
Er við Bugðusíðu á móti Bjargi frá kl.
9-12 og við Hlíðarlund frá kl. 1-6 alla
virka daga.
Fiskur - kjöt - brauð frá Einarsbakaríi - mjólkur-
vörur - gos - sælgæti - tóbak og margt margt
fleira.
Kjörbíll Skutuls, síinl 985-28058.
Laugardagskvöld 24. september
Dansleikur
Hljómsveit
Ingimars Eydal
leikur fyrir dansi
Glæsilegur matseðill
Húsið opnað fyrir aðra en matargesti kl. 23.00
Fjölskyldutilboð sunnudag
Spergilsúpa - Lambalæri „beamaise"
Verð aðeins kr. 690,-
^ Frítt fyrir börn 0-6 ára, Vz gjald fyrir 6-12 ára
ll /I
Bordapantanir í síma 22200
i