Dagur - 19.11.1988, Síða 3
19. nóvember 1988 - DAGUR - 3
Bjarni Magnússon og Svava Vígiundsdóttir í afgrciðslu Hótel Tanga á Vopnafirði. Við reynuni að reka hótelið á
sem heimilislegastan hátt og gestir okkar kunna að meta það. Mynd: tlv
Þetta gengur með tuttugu
og fjögurra tíma vinnudegi
- rætt við hjónin Bjarna og Svövu
sem reka Hótel Tanga á Vopnafirði
„Þetta gengur ágætlega með
tuttugu og fjögurra tíma vinnu-
degi,“ segja ung hjón á
Vopnafirði, þau Svava Víg-
lundsdóttir og Bjarni Magnús-
son en þau leigja hótelrekstur-
inn á staðnum. Hótel Tangi er
nafn hótelsins og leigja þau
reksturinn af Tanga hf. sem er
stærsta fyrirtækið á Vopna-
fírði. Á hótelinu eru tólf
tveggja manna herbergi auk
þess sem þau eiga einbýlishús
skammt frá, sem þau leigja út
sem orlofshús og nota til að
auka gistirými yfír sumartím-
ann. Allar almennar veitingar
er hægt að fá á hótelinu og þá
sjá þau einnig um heimsend-
ingarþjónustu á mat, þ.e.
skyndiréttum. Þau Bjarni og
Svava eiga þrjú börn á aldrin-
um frá átta til ellcfu ára.
„Það er heilmikil vinna í kring-
um reksturinn. Þetta er sjálfsagt
meira bindandi heldur en ef við
værum kúabændur," segja þau.
Undanfarið hafa staðið yfir við-
ræður á milli Bjarna og Svövu
annars vegar og Tanga hf. hins
vegar um hugsanleg kaup á hús-
næðinu. Þau segja að ef af kaup-
unum yrði myndu þau gera ýmsar
breytingar á hótelinu, en það var
upphaflega byggt sem verbúð,
„og ber þess ýmis merki,“ eins og
þau orðuðu það. Salurinn tekur
um 55 manns í mat og þau segja
að Vopnfirðingar fari talsvert út
að borða. Þá hafa þau einnig tek-
ið að sér að sjá um veislur fyrir
ýmsa aðila og nefndu að þau
hefðu jafnvel séð um veislur allt
norður til Þórshafnar.
„Það kom smávegis bakslag í
samningaumleitanir varðandi
kaup á húsinu og þá rukum við til
og létum teikna hótel. Við sáum
þó fljótlega að það var alveg
glórulaust að fara út í bygginga-
framkvæmdir. Það er bara von-
andi að samningar takist. Það er
nauðsynlegt fyrir bæ sem er þetta
stór að hér sé rekið hótel. Það
ber öllum saman um það.“
Þau Bjarni og Svava hafa séð
um rekstur hótelsins í sex ár og
hafa haft það opið allt árið. Eink-
um sögðu þau að á hótelinu
dveldi fólk í tengslum við
atvinnulífið, verkafólk í fisk-
vinnu, viðgerðar- og eftirlits-
menn. Geysimiklar rigningar í
sumar sögðu þau að hefðu dregið
úr ferðamannastraumi til Vopna-
fjarðar, en á sumrin byggist
reksturinn mikið til upp á ferða-
mönnum á eigin vegum, þó væru
hópar á skipulögðum ferðum að
koma meira til staðarins en verið
hefði.
Linda Pétursdóttir, sem í
fyrrakvöld var kjörin Ungfrú
heimur vann á hótelinu síðasta
sumar og sögðu þau Bjarni og
Svava að það hefði vakið mikla
athygli að hafa Ungfrú ísland við
vinnu á hótelinu. Þau sögðu að
Linda hefði ætlað að vinna hjá
sér næsta sumar, en eftir að úr-
slitin lágu fyrir er ljóst að hún hef-
ur öðrum hnöppum að hneppa.
„Við reynum að reka hótelið á
sem heimilislegastan hátt og fólk
metur það. Hér þýðir ekkert að
vera með einhvern sex stjörnu
klassa,“ segja þau hjónin. Pers-
ónuleg samskipti við gesti segja
þau að hafi ávallt fallið gestum
vel í geð og nefndu að fjölmargir
gestanna sendi þeim jólakort og
jafnvel gjafir. „Það voru þýsk
hjón hjá okkur eitt sumarið og
þau voru mjög ánægð. Þau
hringja alltaf í okkur á aðfanga-
dagskvöld síðan. Það er mjög
ánægjulegt.“ mþþ
Húsavík:
Skilvís finn-
andí á ferð
Peningar vaxa víst ekki á tr ján-
um og falla því ekki til jarðar
með haustlaufunum. Tryggvi
Isaksson, Hóli í Kelduhverfí
hefur því efalaust orðið tais-
vert undrandi er hann fann
nokkra peningaseðla liggjandi
á götu á Húsavík fyrir
skömmu.
Tryggvi hefur vafalaust heyrt
að lausafjárstaða fyrirtækja í
bænum væri slæm og heyrt fjölda
einstaklinga kvarta um blank-
heit. A.m.k. fannst honum
ótrúlegt að einhver sem ekki
þyrfti að nota peningana lengur
hefði hent þeim þarna á götuna.
Tryggvi spurði nærstadda vegfar-
endur hvort þeir hefðu orðið var-
ir við einhverja í peningaleit á
götunni og þegar svo var ekki
ákvað hann að fara og skila fundi
sínum til lögreglunnar. í sama
bili bar þarna að mæðgur í pen-
ingaleit.
Árný Ósk Hauksdóttir, níu ára
er einn blaðbera Dags á Húsavík.
Er hún fékk útborgað fyrir blað-
burðinn síðast vildi svo óheppi-
lega til að hún týndi peningunum
sínum á leiðinni heim frá skrif-
stofu Dags. Mamma Árnýjar
lagði af stað í leitarleiðangur með
henni og fljótlega fréttu þær af
Tryggva sem væri að leita að fólki
í peningaleit. Árný Ósk varð
himinsæl er hún fékk kaupið sitt í
hendur öðru sinni og þær mæðg-
ur komu við á skrifstofu Dags til
Árný Ósk Hauksdóttir, einn blað-
bera Dags á Húsavík týndi kaupinu
sínu en er nýbúin að fá peningana
aftur í hendurnar og mjög ánægð
eins og sjá má á myndinni.
að biðja um að Tryggva á Hóli
yrði send kveðja í blaðinu með
þakklæti fyrir skilvísina. Þess má
geta að Árný var búin að ákveða
til hvers hún ætlaði að verja
kaupinu þennan mánuð, um leið
og hún hljóp á milli húsa og stakk
blaðinu inn um bréfalúgurnar lét
hún sig dreyma um að eignast
hamstur. IM
Listin að grenna sig þægilega
Við bjóðum einn frían kynningartíma.
FLOTTFORM
Geislagötu 7, sími 27911
Aku rey r i ngar
og nágrannar
í tilefni 4ra ára afmælis verslunarinnar Vatnsrúm í Reykjavík verður
sölumaður að Hótel KEA frá kl. 14-21 laugardaginn 19. nóvember
nk.r með myndir og bæklinga til sýnis.
15% staðgreiðsluafsláttur.
7% afsláttur af greiðslukjörum - Lánstími allt að 12 mánuðir.
60 daga skilafrestur og 5 ára ábyrgö
á dýnum og hitara
Verslunin Vatnsrúm hf. Rúmgott sf.
Borgartúni 29, sími 91-621622
•85
Armúla 4, sími 91-689477.