Dagur - 19.11.1988, Blaðsíða 6

Dagur - 19.11.1988, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 19. nóvember 1988 Helga Kristjánsdótlir skrifar Ítalíuferð ir orðnir æði þreyttir eftir langan og strangan dag - en ekki var allt búið enn, því nú var eftir að aka í „einn og hálfan ítalskan tíma“ (sem gat orðið allt að þrír íslenskir tímar) áður en komið var til bæjarins Sottomarina. I Sottomarina gisti hópurinn á tveimur hótelum um nóttina. Tvær máltíðir á dag voru inni- faldar í ferðinni meðan við vor- um á Ítalíu. Einnig voru allar rútuferðirnar innifaldar nema skoðunarferðirnar sem farnar voru frá Sorrento og ferðir á diskótek á kvöldin. Feneyjar 10.09. Farið var í skoðunarferð til Chioggia, bæjar á austur- ströndinni um morguninn og síð- an var siglt þaðan til Feneyja. Siglingin tók ekki langan tíma, enda vorum við á alveg þokka- legri ferju. Efra þilfar ferjunnar var opið svo það var strax hægt að skella sér í sólbaðið. Allar vegalengdir í Feneyjum eru mjög stuttar og hægt er að ganga borgarenda á milli á 5 mínútum - þ.e.a.s. villist maður ekki, því borgin er mörgum völ- undarhús. Nú, við gengum þarna um í hóp eftir þröngum götun- um, horfandi ofan í græn sýki, upp á þvott sem hékk milli hús- anna, eða einfaldlega aftan á hnakkann á næsta manni. Pegar við höfðum m.a. skoðað Frari- kirkjuna og Rialtobrúna og í haust, þann 9. september hélt núverandi 4. bekkur MA upp í draumaferð sína. Skólaferð sem tilvonandi fjórðubekkingar fara venjulega á haustin, - rétt áður en sest er á skólabekk og alvara lífsins tekur við. í 3. bekk höfum við safnað í ferðasjóð með sjoppurekstri, dansleikjahaldi, happdrætti, áheitaakstri og öðru tilheyrandi eins og venja er. Afrakstur fjáröflunarinnar var góður miðað við undanfarin ár enda veitti ekki af því við vorum 93 sem fórum í þessa ferð. Ítalía var fyrirheitna landið að þessu sinni en einnig höfðum við viðkomu í Luxemborg og London. Ferðin var farin á vegum Ferðaskrifstofunnar Útsýnar. Fíér kemur ferðasagan en vonlaust er að gera öllu því sem við upplifðum tæmandi skil. 09.09. Brottför frá Keflavík til Luxemborgar eldsnemma morguns. Vegna þess að lagt var upp til Keflavíkur frá Reykjavík um kl. 5.00 um morguninn tók því auðvitað varla að fara að sofa, svo sumir skelltu sér bara í ellefubíó kvöldið áður og dund- uðu svo eitthvað til morguns. Partur af hópnum svaf heldur ekki fyrir spenningi - enda sumir að fara í fyrstu utanlandsferðina. Allir hressir með visakortið upp á vasann Það var meiri háttar gaman að hitta krakkana eftir sumarið, alla hressa og með visakortið upp á vasann. Mig minnir að á leiðinni til Luxemborgar hafi sumir verið farnir að syngja gömul ættjarð- arljóð, - já það var greinilegt að bjórinn hafði tekið við af hangi- kjöti og saltfiski... og bráðum yrði það pizzan. Upphaflega var alls ekki ætlun- in að koma við í Luxemborg, en vegna hagræðingar í utanlands- fluginu kom þetta til. Ferðin var því lengd um einn dag sem eytt var í Luxemborg okkur að kostn- aðarlausu. Um 25°C stiga hiti tók á móti okkur er við stigum út úr vélinni og á flugvellinum tók svo íslenski fararstjórinn, Halldór Laxness Einarsson (sonarsonur nóbels- Helga Fanney með dæmigert útsýni í Luxemborg í baksýn, því þar eru svona brýr víða. verðlaunahafans) á móti okkur og fór með þá sem vildu í skoð- unarferð um borgina. Ég held að það hafi komið okkur öllum á óvart hve glæsilegar byggingar borgin á og hve gott virki hún hefur verið í gegnum tíðina. Pað voru allir að leka niður í hitanum og menn fóru að ímynda sér hvernig það yrði þegar komið væri til Ítalíu... en þar reyndist ekkert heitara. Eftir skoðunar- ferðina var komið við í verslunar- hverfunum, þar sem kaupgleðin fékk útrás í fyrsta skipti í ferðinni en svo sannarlega ekki í það síð- asta. Seinni part dagsins var síð- an flogið frá Luxemborg til borg- arinnar Trieste á Ítalíu, skammt frá landamærum Júgóslavíu. Á flugvellinum í Trieste voru marg- Ferjan sem við fórum með til Feneyja. Fyrrihlutí heimsótt eina glerverksmiðju á þessari heilsubótargöngu okkar, hálfgrilluð í hitanum, komum við að lokum á Markhúsartorgið fræga. Þetta torg er stórglæsilegt og ábyggilega hið mesta á Ítalíu utan Péturstorgsins í Róm. Markhúsartorgið er eins og önn- ur torg sem við komum á, fullt af dúfum, minjagripasölum (sem hægt er að prútta við), veitinga- stöðum þar sem gestunum er þjónað til borðs undir berum himni og síðast en síst fullt af ferðamönnum. Eitt átti Mark- húsartorgið þó ekki sammerkt með öðrum torgum á Ítalíu, á því voru ekki leigubílar eða leigu- vagnar reiðubúnir handa ferða- mönnum, heldur biðu gondólar (leigubátar) við bryggjuna fyrir enda torgsins. Hópurinn skipti sér niður á gondóla og skellti sér í smá hringferð um borgina, - „prófa allt sem gefur lífsreynslu“ var mottó margra í ferðinni. Það er ógleymanlegt að sigla um í gondól og þannig fær fólk meiri tilfinningu fyrir sérstöðu Feneyja. Um kvöldið, áður en við héldum aftur á hótelið í Sottomarina, borðuðum við sam- an á veitingahúsi sem áður var fangelsi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.