Dagur - 19.11.1988, Page 13
Aí'9. ’ nóvémbér 1S88 - DÁGUft - t3
Hólar í Hjaltadal:
Unnid hörðum höndmn \ið
að gera ldrkjuna Mára
- vígð 4. desember nk. eftir niiklar endurbætur
- 225 ár liðin á morgun frá vígslu kirkjunnar, 20. nóvember 1763
Þessa dagana er unnið hörðum höndum að því að ljúka framkvæmdum í
Hóladómkirkju að innan. Framkvæmdir hófust í byrjun janúar sl. og
hefur verið unnið sleitulaust síðan. Kirkjunni hefur verið umturnað að
innan, nánast skipt um allt sem fyrir var í henni. Kirkjan verður vígð,
eftir breytingarnar, sunnudaginn 4. desember nk. Á morgun,
sunnudaginn 20. nóvember, eru nákvæmlega 225 ár liðin síðan
Hólakirkja var vígð, eða 20. nóvember 1763. Á næsta ári er síðan stefnt
að því að endurbæta kirkjuna að utan, svo og umhverfi hennar.
Á morgun, 20. nóvember, verða liðin 225 ár frá því Hóladómkirkja var vígð,
árið 1763. Kirkjan verður vígð, eftir niiklar endurbætur og breytingar, 4.
desember nk. með mikilli viðhöfn. Mynd: KGA
Fyrir nokkru var blaðamaður
Dags á ferðinni í Hjaltadal og
kom m.a. við á Hólum og leit inn
í kirkjuna. Smiðir frá Trésmiðj-
unni Borg hf. á Sauðárkróki voru
þar að störfum og verið var að
undirbúa komu nýju kirkju-
bekkjanna. Þeir voru smíðaðir
hjá Borg hf., sem og aðrir kirkju-
munir sem þurfti að endursmíða,
og fluttir nýmálaðir frá Sauðár-
króki að Hólum. Ekki var síður
vandasamt að mála bekkina, en
að smíða þá, og var ekki betur
hægt að sjá en að vel hafi til
tekist.
Byrjað á að hreinsa allt
út úr kirkjunni
Blaðamaður Dags hitti að máli í
kirkjunni Björn Björnssoii frá
Trésmiðjunni Borg, sem hefur
verið yfirsmiður á Hólum á með-
an endurbætur á kirkjunni hafa
$taðið yfir. Björn var einnig yfir-
smiður á meðan endurbætur á
Hólaskóla fóru fram, þannig að
síðustu tvö ár hefur Björn verið
að vinna samfleytt á Hólum, auk
nokkurra tímabila áður, eða frá
því endurbygging Hólastaðar
hófst fyrir nokkrum árum. Það
eru því nokkur skiptin sem Björn
hefur þurft að keyra á milli Sauð-
árkróks og Hólastaðar. Aðspurð-
ur sagðist hann þó ekki vera á
þeim buxunum að flytja til Hóla.
Við endurbæturnar á kirkjunni
hafa að staðaldri unnið 5-10
manns. Björn var fyrst fenginn til
að segja frá því hvað búið væri að
gera við kirkjuna að innan
undanfarna mánuði.
„Það var auðvitað byrjað á að
hreinsa allt út úr kirkjunni. Síðan
var allur múr brotinn af veggjum
og neðan úr loftinu. Timbrið var
tekið neðan úr loftinu líka, allt
hreinsað niður. Svo var múrað
með gömlu aðferðinni allt upp á
nýtt. Það var skipt utn alla
glugga, þeir smíðaðir upp á nýtt
og sett tvöfalt gler í. Gluggarnir
eru geysilega mikil framkvæmd.
Það hefur orðið mikil og góð
breyting á þeim að mínu mati.
Fyrir voru járngluggar með ein-
földu gleri.“
Allt klárt fyrir 4. des.
- Var ekki líka skipt um allt í
gólfinu?
„Jú, það var allt grafið upp,
skipt um jarðveg svona 40-50 cm
niður. Þegar verið var að grafa
fyrir stokkum kom í ljós tölu-
vert af mannabeinum. Gólfið var
svo steypt og að því loknu var
Hólakirkjusmiðir frá Trésmiðjunni Borg hf. á Sauðárkróki. Frá vinstri: Skúli Skúlason, Björn Björnsson yfirsmið-
ur, Kári Þorsteinsson og Jens Kristjánsson. Mynd: -bjb
farið í að leggja steinflísarnar.
Þær voru unnar úr grjóti sem
fengið var í Hólabyrðu í sumar.
Lagning steinflísanna tók langan
tíma, rúman mánuð, var lokið um
miðjan október. Steinflísarnar
koma í krossinn, á kirkjugólfið,
frammi í forkirkjunni, í kringum
kórinn og legsteininn og inn í öll
gluggaskot. Síðan verður timb-
urgólf undir öllum bekkjunum.
Þegar við verðum búnir að koma
bekkjunum fyrir, förum við í
gólfbríkina og klárum í kringum
altarið. Þá er uppsetningu á þess-
um föstu munum lokið, og þá
verða lausu munirnir eftir. Þann-
ig að þetta er allt á góðri leið og
við verðum búnir fyrir 4. des-
ember nk., það er alveg klárt.“
Kirkjubekkirnir bornir inn í kirkjuna, en þeir voru fluttir frá Sauðárkróki
þar sem þeir voru smíðaðir og síðan málaðir. Mynd: -bjb
Allt fært í upprunalegt horf
- Fjölgar kirkjubekkjum eitt-
hvað eftir breytinguna?
„Þeim fjölgar ekki, gæti fækk-
að um einn bekk sitt hvorum megin
við krossinn. Þetta er allt fært í
upprunalegt horf, gólfið fært neðar
um rúma 20 sentímetra eins og
það var fyrst. Það er verið að
reyna að halda kirkjunni mikið
eins og hún var, og færa hana til
betri vegar.“
Þá var Birni þakkað spjallið,
Maggi Svavars var mættur með
kirkjubekkina á vöruflutninga-
bílnum, þannig að blaðamaður
dró sig í hlé og vildi ekki trufla
smiðina meir við störf. Þeir fóru í
það að bera bekkina inn í kirkj-
una og komu sumum þeirra fyrir
á rétta staði. Kom þá í ljós að
fremsti bekkurinn sneri á móti
Kirkjugólfið gert klárt fyrir bekkina. A krossinn og altarið voru settar stein-
flísar, sem unnar voru úr grjóti úr Hólabyrðu, fjallinu fyrir ofan staðinn.
Mynd: -bjb
hinum og þótti okkur þetta
furðulegt. „Svona á þetta víst að
vera,“ sagði einhver, þannig að
menn veltu þessu ekki meir fyrir
sér. Án efa verður skringilegt að
sitja á þessum bekkjum, með
bakið í altarið, en það venst eins
og allt annað.
Framkvæmdir
gengið mjög vel
Vegna framkvæmdanna í Hóla-
kirkju var skipuð sérstök Hóla-
nefnd af ráðherra kirkjumála.
Fyrsta verk nefndarinnar var að
ráða framkvæmdastjóra og í það
starf var ráðinn Guðmundur
Guðmundsson framkvæmda-
stjóri Trésmiðjunnar Borgar hf.
Hafði hann yfirumsjón með verk-
inu. Að hans sögn hafa fram-
kvæmdir í kirkjunni gengið mjög
vel og nokkurn veginn eftir áætl-
un. Þegar kirkjan verður vígð 4.
desember nk. verða liðnir
nákvæmlega 11 mánuðir frá því
byrjað var á að rífa út úr kirkj-
unni. í fyrstu voru menn að gæla
við þá hugmynd að geta lokið
framkvæmdum fyrir 20. nóvem-
ber, á 225 ára afmæli kirkjunnar,
og vígt hana þá. En síðar kom í
ljós að það yrði ómögulegt.
í Hólanefnd eiga sæti sr.
Siguröur Guðmundsson vígslu-
biskup, Jón Bjarnason skóla-
stjóri Bændaskólans á Hólum, sr.
Hjálmar Jónsson prófastur á
Sauðárkróki og Trausti Pálsson
formaður sóknarnefndar Hóla-
kirkju. Hönnuðir á breytingun-
um og yfirumsjón höfðu arkitekt-
arnir Þorsteinn Gunnarsson og
Ríkharður Kristjánsson. Hita-
lagnir teiknaði Kristján Flygering
og hönnun raflagna var í höndum
Egils Skúla Ingibergssonar. Arki-
tekt breytinganna á Hólakirkju að
utan og umhverfi hennar er Árni
Ragnarsson.
Verktakar við endurbætur á
Hólakirkju hafa verið nokkrir.
Sem fyrr segir var það Trésmiðj-
an Borg hf. sem sá um tréverk,
raflagnir voru í höndum Rafsjár
hf. Sauðárkróki, hitalagnir sá
Blikksmiðjan Höfði Reykjavík
urn, Hörður Ólafsson var í pípu-
lögnum, Baldur Haraldsson var í
múrverkinu og stóð í grjótflutn-
ingunum úr Hólabyrðu í surnar
og öll málningarvinna var í hönd-
um Sigurðar Snorrasonar málara-
meistara og hans manna. Að lok-
um skal þess getið að uppgröftur
úr gólfi Hólakirkju var í umsjá
Þjóðminjasafns íslands. -bjb