Dagur


Dagur - 29.11.1988, Qupperneq 3

Dagur - 29.11.1988, Qupperneq 3
íbúðarhúsnæði á Akureyri: Verðhækkanir helmingi meiri en á Suðumesjum - hátt í 50% hækkun á einu ári Fyrri hluta þessa árs, janúar til júní, hækkaði söluverð íbúðar- húsnæðis á Akureyri um 46- 49% frá fyrri hluta árs 1987. Á sama tímabili hækkaði sölu- verð íbúða á Suðurnesjum um 24-27%. Hækkun umfram láns- kjaravísitölu er 20-22% á Akureyri en aðeins 2-4% á Suðurnesjum. Þó hefur dregið úr verðhækkunum á Akureyri á árinu, en þær voru verulegar árið 1987. Þessar tölur er að finna í Markaðsfréttum Fasteignamats ríkisins. Par kemur einnig fram að útborgunarhlutfall á Akureyri hefur lækkað um 5% á tímabilinu en nær staðið í stað á Suðurnesj- um. Hlutur verðtryggðra lána í viðskiptum hefur aukist á báðum stöðum. Meðalverð íbúða á Akureyri umrætt tímabil hefur hækkað úr 2.478 þúsundum króna í 3.680 þús. kr. Söluverð á fermetra hækkaði úr 24.745 kr. í 36.146 kr. Fermetrinn er dýrastur í 3ja herbergja íbúðum á Akureyri en í eins til tveggja herbergja íbúð- um á Suðurnesjum. Fermetrinn í Reykjavík kostar 48.331 kr. Lítum nánar á þessi þrjú svæði, svigatölur tákna fyrri hluta árs 1987. Útborgunarhlutfall var 76,3% (76,9) í Reykjavík, 74,1% (79,1) á Akureyri og 69,9% (70,8) á Suðurnesjum á fyrri hluta þessa árs. Hlutur verð- tryggðra lána var 15,6% (11,1) í Reykjavík, 22,2% (16,6) á Akur- eyri og 22,8% (19,6) á Suður- nesjum. Óverðtryggð lán voru aðeins 3,7% á Akureyri, 7,3% á Suðurnesjum og 8,1% í Reykja- vík. SS Einn kemur þá annar fer: Sá svarti skotirai grimmt á Ejjafirði Undanfarna daga hefur verið allgóð sjófuglsveiði á Eyja- firði. Á þessum síðustu og verstu kvótatímum er sjófugl- inn, sem tíðum er nefndur svartfugl, trillukörlum og öðr- um áhugamönnum mikil búbót. Dalvíkurbátar hafa „róið“ nokkuð stíft á svartfugl og gert það gott. Dagur hefur spurnir af allt að 150 fugla veiði yfir daginn og mun það afrakstur tveggja veiðimanna. Þá eru fregnir af fjórum skyttum sem náðu 80 fuglum. Fuglinn er nú sagður í mikla æti á Eyjafirði og því er holdafar hans með besta móti. Reyndar er svartfuglinn snemma á ferðinni í ár því oft fæst hann ekki í umtals- verðum mæli fyrr en vel er liðið á desember. Þessi nóvemberglaðningur skot- veiðimanna við Eyjafjörð er nokkur sárabót fyrir dapra rjúpna- veiði að undanförnu. Rjúpnatúr- ar skotveiðimanna hafa að undanförnu breyst í venjubundna fjallgöngu. Menn labba fram og aftur um fjöll og firnindi án þess að verða varir við jólasteikina. Algengur afrakstur yfir daginn er á bilinu 1-5 rjúpur. Nokkuð sem menn hrópa ekki húrra fyrir. Vanir veiðimenn telja að rjúp- an haldi sig þessa dagana á há- lendinu þar sem einhver umtals- verður snjór er. Þeir segja enn- fremur að hennar sé vart að vænta aftur á hefðbundnar rjúpna- slóðir í nágrenni byggðar fyrr en veðurguðir reiðast á nýjan leik og ausa aðventusnjónum á þíða jörð. óþh 29. nóvember 1988 - DAGUR - 3 Nýkomnir sfðir herrafrakkar Léttfóðraðir. Litir: Blátt og grátt Stærðir: S - M - L - XL. Verð aðeins!!! kr. 4.500.- Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275 I ~ VersIunarhiLsnæði Yerslunarhúsnæði til leigu í Kaupangi. Húsnæðið er laust til afnota 1. janúar n.k. Stærð ca. 40 fm á jarðhæð auk rýmis í kjallara af sömu stærð eða meira. Skriflegar umsóknir sendist í pósthólf 487 fyrir 7. desember n.k. Hitablásarar Andrews hitablásarar fyrir steinolíu og gas. Einhell hitablásarar fyrir gas. Stærðir: 9kW-47kW. Súluborvélar verð frá kr. 9.378.- Skeljungsbúðin, Shell Hjalteyrargötu 8, sími 22850. Ný áætlun Skipadeildar: Frá Reykjavík alla fímmtudaga. Á Akureyri á mánudagsmorgni. Þetta er þáttur í að gera Akureyri að miðstöð flutninga skipadeildar úti á landi. Athugið að nú er búið að stytta biðina eftir innflutningi frá Reykja- vík um 5 daga. Takið vikuna snemma með SKIPADEILD SAMBANDSINS AKUREYRI Hafnarstræti 91-95, sími 27797 TÁKN TRAUSTRA FLUTNINGA

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.