Dagur - 15.12.1988, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 15. desember 1988
Hljóðbylgjumenn þjást ekki af heimþrá:
Við höfum fengið
frábærar viðtökur
■ segir útvarpsstjórinn, sem segir stöðina komna til að vera
„Þetta hefur gengið alveg
Ijómandi vel,“ segir ánægður
Pálmi Guðmundsson Hljóð-
bylgjuútvarpsstjóri. Fyrsta
útsending Hljóðbylgjunnar í
Reykjavík var þann fyrsta
þessa mánaðar og fjölgaði þar
með mjög þeim er stillt geta
Flugleiðin Reykja-
vík-Sauðárkrókur:
Nóg pláss í
allar ferðir
fram að jólum
„Nóg pláss í allar ferðir fram
að jólum,“ sagði María Blön-
dal á afgreiðslu Flugleiða á
Sauðárkróki í samtali við Dag,
aðspurð um flugumferð tií
Sauðárkróks um jólin. Það
hefur sjaldan komið upp að
ferðir hafí verið fullbókaðar
fyrir jól, þetta hefur dreifst á
allra síðustu ferðir áður en
jólahátíðin hefur gengið í garð.
Að sögn Mariu hefur það að-
eins verið á annan í páskum og
annan í nýári sem flugferðir
hafa verið fullbókaðar frá
Sauðárkróki með Flugleiðum.
Að sögn Maríu hefur það auk-
ist að skólafólk nýti sér svokölluð
hopp-fargjöld, sem eru fargjöld
sem ekki er hægt að bóka sig í,
heldur eru miðarnir seldir um
klukkutíma áður en flugvélin fer
í loftið. Þessi hopp-fargjöld eru
mun ódýrari en venjuleg
fargjöld, jafnvel ódýrari en
barnafargjöld. María á ekki von
á að það verði fullt í eina einustu
vél fyrir jól. „Það verður kannski
fullt í eina vél einhvern daginn á
milli jóla og nýárs, og síðan á
annan í nýári. Meðan ekkert er
að færð þá notar fólk bílana sína,
það er nú það sem að er gagnvart
fluginu, hvað vegirnir eru orðnir
góðir,“ sagði María.
Það kom einnig fram í máli
Maríu að flugfrakt hefur aukist
undanfarna daga og sagði hún að
það ætti eftir að aukast þegar nær
dregur jólum. -bjb
Sauðárkrókur:
45 manns
á atvinnu-
leysisskrá
- á eftir að Qölga
Um síöustu mánaöamót voru
45 manns á atvinnuleysisskrá á
Sauðárkróki. Er þaö aðeins
meira en á sama tíma í fyrra.
Af þessum 45 er flest fisk-
vinnslufólk, sjómenn og físk-
verkunarfólk, en sem kunnugt
er hafa frystihúsin stöðvast
vegna hráefnisskorts og eru
komin í svokallað jólastopp.
Að sögn Matthíasar Viktors-
sonar félagsmálafulltrúa má
búast við að fjöldi atvinnu-
lausra eigi eftir að aukast það
sem eftir er af árinu, gæti farið
í 60-65 manns.
„Vonandi er þetta tímabundið
ástand, og lagast eftir áramót.
Það sem af er þessu ári hefur ver-
ið ágætt. Við verðum bara að
horfa björtum augum á framtíð-
ina,“ sagði Matthías. -bjb
inn á stöðina. Útvarpsstöðin
nær nú til eyrna rúmlega 80%
landsmanna og segir Pálmi að
það séu ívið fleiri eyru en stillt
geti inn á Bylgju og Stjörnu,
þar sem útsending stöðvarinn-
ar næst víðar á Norðurlandi.
„Hlustendur hafa verið mjög
ánægðir og við höfum fengið frá-
bærar viðtökur. Fólk er að koma
hingað með kökur og blóm að
færa okkur. Við áttum alls ekki
von á þessu,“ segir Pálmi og bæt-
ir við að menn þjáist síður en svo
af heimþrá.
Símalínur segir hann rauðgló-
andi þegar hlustendum er boðið
upp á að hringja inn og til marks
um það tók Pálmi stjörnuspeki-.
þátt sinn síðasta laugardag. Svo
mikið hringdu menn inn með
stjörnumerkjafyrirspurnir að
stöðva þurfi innhringingar hlust-
enda.
Um auglýsingar og aukningu
þar að lútandi segir Pálmi að
nokkuð vel gangi að afla þeirra á
hinu nýja hlustunarsvæði. Þó seg-
ir hann nokkurn barlóm vera á
svæðinu og áberandi hræðsla hjá
forráðamönnum fyrirtækja á
höfuðborgarsvæðinu. „En það er
engan bilbug á okkur að finna.
Við erum komin til að vera.“
Pálmi segir að Hljóðbylgjan nái
upp í Borgarnes, á Selfossi hefur
stöðin náðst ágætlega sem og um
Suðurnesin. Nú vinna um 20
manns á útvarpsstöðinni og segir
Pálmi að þegar suðurfarar flytji
aftur norður og útvarpað verði
alfarið frá Akureyri, sé fyrir-
sjáaniegt að fækka þurfi starfs-
fólki. „Við erum með tvöfalt
gengi núna,- en þegar við fáum
dagskrárlínu suður þá er augljóst
að einhver niðurskurður verður í
mannahaldi.“ mþþ
Fegurðardrottning
í góðum félagsskap
Linda Pétursdóttir, sem valin var fegursta ungfrú heims fyrir skömmu, er
á þessari mynd með nokkrum leikfélögum í Sólbrekku á Húsavík fyrir 14
eða fimmtán árum. Linda er fremst til vinstri á myndinni. Hún átti heima
á Sólbrekku 4, við hlið hennar er Jón Örvar, sem átti heima á Sólbrekku
7, fyrir aftan þau eru: Ester, Sólbrekku 8, Magnús og Völundur, Sól-
brekku 5 og Nanna, Sólbrekku 6. Linda hefur verið á ferð um Evrópu eft-
ir sigurinn en kemur heim til íslands á morgun. Á laugardag verður síðan
sigurhátíð til heiðurs Lindu á Hótel íslandi. Mynd: im
Ekki allir á eitt sáttir um jarðarkaup í Hrafnagilshreppi:
Forkaupsrétturinn nyttur
til kaupa hreppsins á Arbæ
Við teljum best þjóna hags-
luununi sveitarfélagsins að
nýta forkaupsrétt á Arbæ. Fyr-
ir þeirri ákvörðun eru ríkar
ástæður og þeirra vegna telur
hreppsnefnd Hrafnagilshrepps
það réttlætanlegt að ganga inn
í kaup á jörðinni. Ég hef ekk-
ert frekar um málið að segja,“
sagði Haraldur Hannesson,
bóndi í Víðigerði og oddviti
Hrafnagilshrepps, um ástæður
þess að hreppsnefnd Hrafna-
gilshrepps ákvað á fundi sínum
í síðustu viku að nýta for-
kaupsrétt sveitarfélagsins, lög-
um samkvæmt, á jörðinni
Arbæ. Aður hafði verið gerður
kaupsamningur milli Kristins
Jónssonar, ábúanda í Árbæ,
og Benedikts Hjaltasonar,
bónda á Hrafnagili, um kaup
þess síðarnefnda á jörðinni.
Að þeirra sögn var samningur-
inn undirritaður 30. nóvember
að framkomnum orðum
oddvita um að hreppsnefnd
myndi ekki nýta sér forkaups-
rétt á jörðinni. Kaupsamning-
urinn var lagður fyrir hrepps-
nefnd og á fundi hennar fyrir
liðlega viku var ákveðið að
ganga inn í kaupsamning
þeirra Kristins og Benedikts.
Haraldur Hannesson oddviti
hreppsnefndar segir að ákvörðun
hreppsnefndar um þessa máls-
meðferð hafi verið fullkomlega
samhljóða. Hann segir að gengið
verði inn í allan fyrirliggjandi
samning, „allan pakkann", eins
og Haraldur orðar það. „Frá
þessu máli verður gengið ein-
hvern næstu daga. Við munum
ganga frá útborgun eins og samn-
ingurinn kveður á um,“ segir
Haraldur.
Samkvæmt upplýsingum Dags
var gangur samningagerðar
Benedikt og Kristins sá að Bene-
dikt gerði Kristni tilboð um kaup
á Árbæ 18. nóvember sl. Kauptil-
boðið hljóðaði upp á 11,2 millj-
ónir króna. Kristinn gekk að til-
boðinu og þann 22. nóvember,
daginn áður en auglýst þriðja
nauðungaruppboð á jörðinni átti
að fara fram, greiddi Benedikt
honum 1,5 milljónir króna upp í
umsamið kaupverð. Samningur-
inn var síðan undirritaður, eins
og áður segir, 30. nóvember sl.
Þann dag lét Benedikt Kristni í té
bifreið, metna á 1,2 milljónir
króna, sem viðbótargreiðslu upp
í umsamið kaupverð jarðarinn-
ar. Þannig mun hafa verið á það
litið af hálfu samningsaðila að
kaupandi hafi innt af hendi
greiðsiu til seljanda að upphæð
2,7 milljónir króna.
Á hreppurinn að greiða
2,7 milljónir?
Kristinn Jónsson, seljandi
Árbæjar, segist líta svo á að eftir
að Hrafnagilshreppur ákvað í
síðustu viku að ganga inn í kaup
á jörðinni beri sveitarfélaginu að
greiða 2,7 milljónir króna, sam-
kvæmt ákvæði kaupsamnings um
útborgun við undirritun hans.
Þessar greiðslur hafi hins vegar
enn ekki borist. Samkvæmt upp-
lýsingum sem Dagur hefur aflað
sér hjá lögfræðingi, sem vel
þekkir til slíkra mála, eru ekki
nein ákvæði í lögum sem kveða á
um að þeim sem nýtir forkaups-
rétt að jörð beri að ganga frá
fyrstu útborgun í jörðina strax og
ákvörðun um nýtingu forkaups-
réttar liggur fyrir. Hins vegar er
það álit lögfræðingsins að óeðli-
legt sé að sveitarfélagið dragi það
lengur en í mesta lagi viku að
inna af hendi fyrstu greiðslu sam-
kværnt gerðum kaupsamningi.
Lögfræðingurinn sagðist enn-
fremur telja að ef frekari dráttur
yrði á greiðslu forkaupsréttar-
hafa væri eðlilegt að seljandi gæfi
honum frest með bréfi, t.d. í tvo
daga, til að ganga frá umsömdum
greiðslum. Ellegar kæmi til
greina að rifta kaupunum. Sam-
kvæmt upplýsingum Magnúsar
Leopoldsonar hjá Fasteignamið-
stöðinni í Reykjavík, sem hefur
annast sölu á Árbæ, hafði honum
í gær ekki borist 2,7 milljóna
króna greiðsla frá Hrafnagils-
hreppi. Magnús kvað það ótví-
rætt að hreppnum bæri að greiða
þessa upphæð nú. Haraldur
Hannesson sagði hins vegar í
samtali við Dag að hann liti svo á
að það sem Benedikt hafi greitt
Kristni fyrirfram væri Hrafnagils-
hreppi óviðkomandi. „Hann
verður að gera það upp við þann
sem hann greiddi," sagði Harald-
ur.
„Sáttur við
þennan samning“
Kristinn segist undrast mjög
meðferð hreppsnefndar Hrafna-
gilshrepps á þessu máli. í því
sambandi vísar hann til þess að
ákveðnir aðilar þar „hafi greini-
lega skipt um skoðun á því eftir
að kaupsamningur við Benedikt
lá fyrir.“ Hann segist vilja taka
fram að ekki hafi verið gengið frá
sölu á Árbæ til Hrafnagilshrepps.
„Ég hef ekki skrifað undir neinn
samning við hreppinn og það sem
meira er að ég hef ekkert heyrt
frá forsvarsmönnum hans síðustu
daga. Ef ekkert fer að gerast í
málinu liggur ekkert annað fyrir
en að rifta gerðum kaupsamn-
ingi,“ sagði Kristinn Jónsson.
Heildarsöluverð Árbæjar er
eins og áður segir um 11,2 millj-
ónir króna. í þeim „pakka“ er
um 30 ha tún, allur bústofn, vélar
og hús. Kristinn Jónsson segist
vera sáttur við þennan samning.
Auk áðurnefndra greiðslna við
undirritun samningsins upp á 2,7
milljónir króna, á jörðin að
greiðast á eftirfarandi hátt: Þann
15. janúar er víxilgreiðsla upp á
1,5 milljónir, síðan eru tvær 930
þúsunda greiðslur dagana 10.
apríl og 1. júní á næsta ári.
Heildarupphæðin er því 6,06
milljónir króna. Mismunur 11,2
milljóna og 6,06 milljóna eru
veðskuldir sem skiptast á fjóra
aðila, drýgstur hluti þeirrar upp-
hæðar er skuld við Stofnlánadeild
landbúnaðarins.
Ekki borist erindi
til Stofnlánadeildar
Eins og fram kemur í máli Har-
aldar oddvita Hrafnagilshrepps
hér að framan ákvað hrepps-
nefndin að nýta sér forkaupsrétt
á Árbæ með hagsmuni sveitarfé-
lagsins að leiðarljósi. Spurður um
í hverju þeir hagsmunir væru
fólgnir vildi Haraldur ekki tjá sig
frekar. Hann sagði ekki Ijóst á
þessari stundu hvernig sveitar-
stjórn myndi ráðstafa jörðinni.
Ekki hafi verið tekin ákvörðun
um endursölu hennar eða sölu
fullvirðisréttar af jörðinni.
Leifur K. Jóhannesson, for-
stjóri Stofnlánadeildar landbún-
aðarins, sagði í samtali við Dag
að litið sé svo á að ekki sé heimilt
að selja framleiðslurétt af jörð
með áhvílandi láni Stofnlána-
deildar nema með leyfi hennar.
„Við höfum lögfræðilegt álit þess
efnis að framleiðslurétturinn fylgi
jörðinni. Það skiptir máli hvort
rétturinn er seldur eða leigður. Á
leiguna er litið sem eins konar
rekstur," sagði Leifur. Aðspurð-
ur um hvort erindi, formlegt eða
óformlegt, hafi borist Stofnlána-
deild um sölu fullvirðisréttar af
Árbæ sagði Leifur svo ekki vera.
Hann sagðist ekki vilja spá um
það hvernig hugsanlegt erindi um
sölu fullvirðisréttar af Árbæ yrði
afgreitt hjá Stofnlánadeild. „Það
hafa ekki komið upp mörg sam-
bærileg dæmi. í þeim tilfellum að
menn hafi selt fullvirðisréttinn
hafa flestir ávísað á afborganir í
Stofnlánadeild," sagði Leifur K.
Jóhannesson.
Þess má að lokum geta að
mjólkurlítrinn er nú verðlagður
á milli 44 og 45 krónur samkvæmt
útreikningum Framkvæmda-
nefndar búvörusamninga, sem
tekur mið af launahlut og vaxta-
kostnaði í verðlagsgrundvelli.
Samkvæmt upplýsingum sem
Dagur aflaði sér í gær hefur
mjólkurlítrinn í fullvirðisrétti
verið seldur á allt að 62 krónur.
Miðað við þetta hámarksverð er
framleiðsluréttur Árbæjar met-
inn á allt að 5,5 milljónir króna.
Ef miðað er hins vegar við 45
krónur má meta tæpra 90 þúsund
lítra framleiðslurétt Árbæjar á
um 4 milljónir króna. óþh