Dagur - 15.12.1988, Blaðsíða 5
15. desember 1988 - DAGUR - 5
gerði. Því ráða félagsleg viðhorf,
en ekki neinar efasemdir um að
kröfurnar séu lögmætar og án
formgalla.
Kröfurnar standast
Lögfræðingar Sambandsins og
Samvinnubankans hafa sýnt fram
á haldleysi þeirra fullyrðinga að
kröfurnar standist ekki. Ef Sam-
vinnubankinn þyrfti að lögsækja
ábyrgðarmennina til viðurkenn-
ingar á ábvrgð þeirra koma tvær
leiðir til greina. Önnur er sú að
höfða almennt mál til viðurkenn-
ingar á efni og inntaki ábyrgðar-
innar. Það leikur ekki vafi á því
hver niðurstaða þess málarekst-
urs yrði - ábyrgðirnar eru í fullu
gildi.
Hin leiðin, sem er bæði ein-
faldari og fljótvirkari, væri sú að
reka málið á grundvelli víxilrétt-
ar. Sú leið er einnig fyllilega fær,
gagnstætt því sem lögmenn
ábyrgðarmanna halda fram. Hér
eru ekki tök á því að fara út í
flóknar lögfræðilegar skýringar,
en þess aðeins getið að fordæmi
eru fyrir því bæði í bankavið-
skiptum almennt svo og úr
dómum, bæði undirréttar og
Hæstaréttar, að þegar víxill er
afhentur án þess að hann sé að
öllu leyti útfylltur, „felist í
afhendingunni umboð til víxil-
hafa til að fylla út í eyðuna“.
(Dómur bæjarþings Reykjavíkur
11.6. 1985, ennfremur Hrd.
1986:1413 og Hrd. 1950:173.)
Félagsleg og fjár-
hagsleg ábyrgð
Hér í lokin langar mig að viðra
persónulegt viðhorf mitt til þessa
máls, en mál þetta hefur verið
skekkt og skrumskælt í viðtölum
við fyrrum stjórnarmenn Kaup-
félags Svalbarðseyrar, bæði í
Ríkissjónvarpinu og dagblöðum.
Endalok Kaupfélags Sval-
barðseyrar voru öllum samvinnu-
mönnum mikið áfall. Það verður
hins vegar að segjast eins og er,
að stjórnendur þess stóðu ekki
vel að málum. Þeir fóru út í vafa-
sama fjárfestingu á kartöfluverk-
smiðju og það var flestum ljóst
þegar unnið var að því máli.
Verksmiðjan var banabiti kaup-
félagsins.
Engum öðrum en stjórnendum
kaupfélagsins, þ.m.t. stjórnar-
mönnum, átti að vera þetta betur
ljóst. Þeir hefðu því átt að sýna
meiri aðgæsju og varúð þegar
þeir voru að skrifa undir pers-
ónulegar ábyrgðir.
Þeim hlýtur að hafa verið það
ljóst, að menn afsala sér ekki
persónulegri ábyrgð méð því
einu að ganga í kaupfélag. Þeim
hlýtur einnig að hafa verið það
ljóst, að þeir báru ekki bara
ábyrgð gagnvart lánardrottnum
með undirskriftum sínum, heldur
einnig gagnvart félagsmönnum
kaupfélagsins, sem höfðu kosið
þá til þessara trúnaðarstarfa. Á
hinn bóginn má benda á það að
þessir menn tókust á hendur
þessa ábyrgð í þeirri trú, að þeir
væru að vinna félagsmönnum,
sveitungum sínum og byggðarlagi
vel, með því að stuðla að aukinni
atvinnuuppbyggingu.
Víðar samvinnumenn
en á Svalbarðseyri
Það eru takmörk fyrir því hversu
langt Sambandið, Samvinnu-
bankinn og samvinnuhreyfingin
almennt geta gengið í þessu máli.
Forystumenn þessara aðila bera
ábyrgð gagnvart fleirum en sam-
vinnumönnum á Svalbarðseyri
einum saman.
Bændur við Eyjafjörð, sem er
eitt búsældarlegasta hérað
landsins, hafa hingað til ekki ver-
ið taldir til neinna ölmusumanna.
Lausn sú sem Sambandið bauð í
þessu máli felur ekki í sér meiri
fjárhagsskuldbindingar fyrir
ábyrgðarmennina en sem nemur
því er hver og einn húsbyggjandi
síðustu ára hefur þurft að setja
sig í. Greiðslubyrði þeirra sem í
mestum ábyrgðum eru yrði ekki
meiri en sem nemur um 200 þús-
und krónum á ári í 15 ár.
Þar sem þessir menn voru öðr-
um þræði að gangast i þessa
ábyrgð vegna sveitunga sinna,
eins og áður er að vikið, mætti
einnig hugsa sér það að íbúarnir
almennt fyndu blóðið renna sér
til skyldunnar og dreifðu þessum
þriðjungi skuldbindinganna sín á
milli. Það væri samvinnuhugsjón
og náungakærleikur í verki. Þá
sýndi sig að margar hendur vinna
létt verk - máttur hinna mörgu.
Það verður að skrifast á reikn-
ing ábyrgðaraðila sjálfra og
þeirra ráðgjafa, ef lausn þessa
svokallaða Svalbarðseyrarmáls
næst ekki með þeim hætti sem
Sambandið lagði til og bæði Sam-
vinnubankinn og Iðnaðarbank-
inn hafa samþykkt.
Með samvinnukveðju,
9. desember 1988.
Hermann Svcinbjörnsson,
kynningarstjóri Sambandsins.
Um jólatréð á Ráðhústorgi
- og hlutverk 25 akureyrskra krakka
sem voru úti í Randers þegar tréð fór af stað
Foreldri hafði samband við
blaðið vegna athafnarinnar er
Ijós voru kveikt á jólatrénu við
Ráðhústorg á Akureyri.
„Tréð er sem kunnugt er gjöf
til Akureyringa frá vinabænum
Randers í Danmörku. Svo
skemmtilega vildi til að þegar
jólatréð var sent af stað hingað
frá Randers voru 25 akureyrskir
krakkar staddir úti í Randers.
Þessir krakkar tóku óformlega
við trénu fyrir okkar hönd.
Þegar svo tréð er komið til
Akureyrar og farið er að undir-
búa athöfnina, er þessum krökk-
um sagt að mæta. En hvað gerist
við athöfnina, krakkanna er í
engu getið. Ég veit að það eru
fleiri en ég óánægðir vegna
þessa,“ sagði foreldrið.
Þessu svarar Arni Steinar
Jóhannsson garðyrkjustjóri
Akureyrarbæjar: Það voru send
inn tilmæli til allra skóla og dag-
heimila um að krakkarnir tækju
þátt í athöfninni. Hins vegar var
ekki fyrirfram áætlað að krakk-
arnir sem voru úti í Randers
kæmu sérstaklega fram. Það voru
ákveðnir ræðumenn sem fluttu
ávörp og einnig var þarna kór og
hljómsveit. Fleira hafði ekki ver-
ið ákveðið að gera. Það var í
rauninni tilviljun að krakkarnir
voru staddir úti í Randers þegar
tréð var sent af stað. Það er mjög
gaman að krakkarnir skyldu vera
þarna, en vera þeirra úti var ekki
í beinum tengslum við afhend-
ingu jólatrésins. Núna eru krakk-
ar í öllum skólum bæjarins að
senda af stað kort til þeirra í
Randers og þakka fyrir tréð.
Viðskiptavimr
athugið!
Vöruafgreiðsla á Akureyrarflugvelli verður opin
til kl. 17.00 á laugardögum til jóla.
FLUGLEIDIR
Skautar
stœrðír 36-41.
Verð kr. 2.765.-
Póstsendum.
Sími 41337.
Akureyringar!
Stækkað og betra
kjötborð í Hagkaup
Hangikjöt
Hangilæri 1/i.................. Kr. 647.00 kg.
Hangilæri úrbeinað............. Kr. 947.00 kg.
Hangiframpartur úrbeinaður..... Kr. 802.50 kg.
Hangiframpartur í bitum ....... Kr. 674.00 kg.
Léttreykt lambakjöt
Londonlamb læri ............... Kr. 895.00 kg.
Londonlamb frampartur.......... Kr. 646.00 kg.
Lambahamborgarhryggur.......... Kr. 564.00 kg.
Svínakjöt
Svínakambur reyktur............ Kr. 840.00 kg.
Svínabógur reyktur úrbeinaður . Kr. 722.00 kg.
Svínabógur reyktur hringskorinn. Kr. 532.00 kg.
Svínalæri reykt ............... Kr. 570.00 kg.
Hamborgarhryggur .............. Kr. 920.00 kg.
Bayoneskinka .................. Kr. 765.00 kg.
Bautabúriö
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að eindagi
launaskatts fyrir mánuðina september og október er 15.
desember. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga skal
greiða dráttarvexti til viðbótar því sem vangreitt er, talið frá
og með gjalddaga.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til innheimtu-
manns ríkissjóðs, f Reykjavík tollstjóra, og afhenda um
leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Opið hús
í Hafnarstræti 90, laugard. 17. desemberfrá kl. 15-18.
Akureyringar og nágrannar!
Lítið inn og fáið ykkur hressingu.
FRAMSÓKNARFÉLAG AKUREYRAR.