Dagur - 15.12.1988, Síða 11
15. desember 1988 - DAGUR - 11
ðstöð á Hólum
r á skipan prófastsdæma og prestakalla
á Hólum er í fullu samræmi við tillögu sem samþykkt var á kirkjuþingi árið 1986 um eflingu kristilegs starfs og trúar
li kristnitökunnar árið 2000.“
stofnana í Evrópu. Samkvæmt
kenningu Lúthers skiptir starf
hins kristna manns verulegu
máli. Maðurinn á að þjóna Guði
með því að þjóna öðrum
mönnum, þ.e.a.s. starfið á að
vera slík guðsþjónusta. Pess
vegna lögðu akademíurnar
áherslu á að kalla starfsstéttirnar
saman því þannig má gera leik-
menn virkari en áður og hæfari til
starfa.
Efling kristilegs starfs og
trúar í landinu megin-
markmið hátíðarhalda
vegna þúsund ára afmælis
kristnitökunnar
Hugmyndin um menningarmið-
stöð á Hólum er í fullu samræmi
við tillögu sem samþykkt var á
kirkjuþingi 1986 og er bent á
hana sem hugsanlegan farveg
■ hugmyndarinnar, ef svo má að
orði komast. Kirkjuþing 1986
ályktaði á þessa leið:
„Efling kirkjulegs starfs og
kristinnar trúar hér á landi nú og
á komandi árum skal vera megin-
markmið hátíðarhalda vegna
þúsund ára afmælis kristnitök-
unnar.“ í sömu ályktun er vikið
að eflingu menningarstarfs á hin-
um fornu biskupsstólum í Skál-
holti og á Hólum. Það er því
augljóst að sú tillaga sem hér er
sett fram um kirkjulega menning-
armiðstöð á Hólum er í fullu
samræmi við tillögur kirkjuþings
frá 1986.“
- Pú nefndir í upphafi spjalls
okkar að þú værir ekki ánægður
með þær breytingar sem boðaðar
eru í frumvarpi til þingsályktunar
um breytingu á skipan presta-
kalla og prófastsdæma?
25 mótmæli vegna
hugmynda um breytingar
á prestaköllum
„Já, það er rétt, ég er ekki sáttur
við það sem kemur fram í þessari
tillögu. En ég er ekki einn um
þessa skoðun því 25 mótmæla-
bréf og skeyti bárust kirkjuþingi
frá sóknarnefndum úr prestaköll-
um sem leggja átti niður, víðs
vegar um landið. Víða ríkir mikil
óánægja meðal safnaða þar sem á
að leggja prestssetur niður og ótt-
ast margir að þjónusta kirkjunn-
ar dragist aftur úr og minnki
verulega í hinum dreifðu byggð-
um.
Við fjórmenningarnir rituðum
nöfn okkar undir eftirfarandi
athugasemd til kirkjuþings vegna
þessa frumvarps:
„Margt í framangreindu frum-
varpi miðar að því að fella starfs-
hætti kirkjunnar að breyttum
aðstæðum og aðlaga þá nútíman-
um. Á það einkum við hvað
varðar prestakallaskipan á suð-
vesturhorni landsins. í því sam-
bandi má benda á nauðsyn þess
að stofna nýtt prestakall í
Reykjavík og tilfærslu sókna þar
og á Reykjanesi, m.a. vegna
hinna öru búferlaflutninga þang-
að á undanförnum árum. Fleira
mætti nefna þessu frumvarpi til
ágætis, m.a. það sem miðar að
betri og virkari starfsháttum, svo
sem grein 6.6. um samstarf presta
og gr. 6.7. um niðurfellingu á
tvímenningsprestaköllum o.m.fl.
Aftur á móti gegnir öðu máli
um hvað varðar landsbyggðina.
Við erum því andvígir að fækkað
verði fleiri prestaköllum en orðið
er. í því sambandi viljum við
benda á þá staðreynd að í stað
niðurlagðs prestsembættis úti á
landsbyggðinni skapast autt rúm
í starfsmannahóp kirkjunnar sem
ekkert kemur í staðinn fyrir. í
annan stað er það skilningur okk-
ar að kirkjunni beri eigi síður
skylda til að þjóna hinum fá-
mennari en hinum fjölmennari
sóknum.
Söfnuðum dreifbýlisins sem og
öllum þjóðræknum íslendingum
er mjög í mun að prestssetur sem
um aldaraðir hafa varpað ljóma á
sögu lands og þjóðar fái að halda
stöðu sinni með þjóðinni, þrátt
fyrir tímabundið fámenni í sveit-
um landsins.
Hins vegar viljum við benda á
að nauðsyn getur rekið tii þess að
færa til sóknarmörk þar, eins og á
þéttbýlisstöðum landsins, en þá
eingöngu með vilja meirihluta
safnaða og presta.
Við teljum versnandi aðstæður
í landsbyggðarmálum eigi gefa
tilefni til fækkunar starfsmanna
hins opinbera úti á landsbyggð-
inni.
Firra aö kirkjan skuli
vilja veikja stööu sína
í sveitunum
Við viljum benda á, að til lausnar
á þeim ákvæðum frumvarpsins
sem kveða á um fækkun presta,
beri að fela prestum þeim, sem
skipa fámennustu prestaköllin,
aukin verkefni í fjölmennustu
prestaköllum prófastsdæmanna,
til þess m.a. að nýta starfskrafta
þeirra og spara útgjöld ríkis-
sjóðs. Einnig gæti komið til
nokkur kennsluskylda í kristin-
dómsfræðslu.
Við lýsum furðu okkar á þessu
frumvarpi, hvað varðar fækkun
starfsmanna kirkjunnar úti um
hinar dreifðu byggðir landsins.
Pykir mönnum það koma úr
hörðustu átt að kirkjan sjálf skuli
hafa frumkvæði að þeirri firru að
veikja stöðu sína í sveitum lands-
ins á sama tíma og þessum sókn-
um er meiri þörf á andlegum
styrk og trúarlegum bakhjarli en
nokkru sinni fyrr, þar eð að þeim
er vegið bæði félagslega og efna-
hagslega.
Við leggjuni megin áherslu á
að engin breyting verði gerð á
skipan prestakalla og prófasts-
dæma nema með samþykki
meirihluta safnaða og presta.
Þegar liggja fyrir mótmæli fjölda
safnaða og presta hvað varðar
róttækar breytingar sem frum-
varpið gerir ráð fyrir á lands-
byggðinni.“ EHB
Borgarbíó
Alltaf nýjar
myndir
Símsvari 23500
Aðalfundur
Knattspyrnudeildar Þórs
verður haldinn í Glerárskóla laugardaginn 17. des-
ember og hefst kl. 13.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Tækjaleiga, jarðvegsskipti, holræsagerð, múrbrot.
Snjómokstur
Tökum að okkur snjómokstur
á stórum og smáum plönum,
hjá fyrirtækjum og einstaklingum.
Húsasmíði, innréttingar, glugga- og hurðasmíði.
Ál- og járnsmíði - Hurðasmíði og fleira.
Tökum að okkur
stór og smá verk.
Leitið tilboða.
VOR”
BÁTASMIÐJA
Óseyri 16, Akureyri, símar 96-21782 og 96-21777.