Dagur - 15.12.1988, Side 19
íþróttir
15. desember 1988 - DAGUR - 19
l
Sund:
Svavar með þrjú
ný Akureyrarmet
- Ómar með íslandsmet sveina
Elsa, Svavar og Birna voru áberandi á Akureyrarmótinu.
Síðari hluti Akureyrarmóts í
sundi fór fram um helgina 10.
og 11. desember. Mörg ágæt
afrek voru unnin á mótinu og
má þar t.d. nefna að Ómar
Arnason setti nýtt íslandsmet
sveina í 50 m flugsundi og synti
á 32,52.
Svavar Þór Guðmundsson
setti nýtt Akureyrarmet í sama
sundi og synti á 28,12. Hann setti
einnig Akureyrarmet í 50 m
baksundi og í 50 m skriðsundi. í
baksundinu synti hann á 31,09 og
í skriðsundinu á 26,69.
Sölvi Már Sveinsson setti nýtt
HSÞ-met í 50 m bringusundi og
synti á 35,74.
Elsa M. Guðmundsdóttir setti
Akureyrarmet kvenna og stúlkna
í 50 m bringusundi og synti á
38,02. Einnig setti hún Akureyr-
armet í 50 m baksundi og synti á
36,04.
Ómar Árnason setti þar að
auki met í 50 m baksundi og synti
á 37,03.
50 m flugsund karla: sek.
1. Svavar Þór Guðmundsson, Óðni 28,12
2. Hilmar Ágústsson, HSÞ 29,94
3. Ottó K. Túliníus, Óðni 31,48
50 m flugsund kvenna: sek.
1. Elsa M. Guðmundsdóttir, Óðni 32,81
2. Birna H. Sigurjónsdóttir, Óðni 36,03
3. Vala Magnúsdóttir, Óðni 36,90
50 m bringusund karla: sek.
1. Svavar Þór Guðmundsson, Óðni 34,32
2. Sölvi Már Sveinsson, HSÞ 35,74
3. Ottó K. Túliníus, Óðni 37,70
Ómar Árnason setti íslandsmet
sveina.
50 m bringusund kvenna:
1. Elsa M. Guðmundsdóttir, Óðni
2. Birna H. Sigurjónsdóttir, Óðni
3. Svava Magnúsdóttir, Óðni
50 m baksund karla:
1. Svavar Þór Guðmundsson, Óðni
2. Pétur Pétursson, Óðni
3. Hilmar Ágústsson, HSÞ
50 baksund kvenna:
1. Elsa M. Guðmundsdóttir, Óðni
2. Hrafnhildur Örlygsdóttir, Óðni
3. Birna H. Sigurjónsdóttir, Óðni
50 m skriðsund karla:
1. Svavar Þór Guðmundsson, Óðni
2. Ottó K. Túliníus, Óðni
3. Hilmar Ágústsson, HSÞ
50 m skriðsund kvenna:
1. Elsa M. Guðmundsdóttir, Óðni
2. Birna H. Sigurjónsdóttir, Óðni
3. Vala Magnúsdóttir, Óðni
sek.
38,02
40,20
40.91
sek.
31,09
33,75
34.92
sek.
36,04
39,73
40,25
sek.
26,69
27,87
28,11
sek.
30,16
30,89
32,55
Þessi mynd var tekin af Ingibjörgu fyrir tveimur árum í knattspyrnuleik KA og Tindastóls. Þar var hún að sjálfsögðu
að keppa með strákum.
KAvffl
Ingibjargarmálið:
vísa málinu M
- vegna formgalla
KA vill aö kæru Framara gegn
félaginu vegna spilamennsku
Ingibjargar H. Ólafsdóttur í 5.
flokki karla verði vísað frá
vegna formgalla. KA bendir á
aö kæran hafi komið of seint
fram og þar að auki hafi for-
ráðamenn Fram ekki gert
athugasemd fyrir leikinn og
undirritað leikskýrslu möglun-
arlaust.
Aö sögn forráðamanna KA
telja þeir einnig að hefð sé komin
á þátttöku Ingibjargar í karla-
flokkum. Benda þeir á að hún
hafi leikið handknattleik allan
seinasta vetur, án nokkurra
athugasemda.
Kæran var þingfest fyrir dóm-
stól HSÍ á þriðjudaginn og var þá
KA gefinn kostur á skila inn
greinargerð í málinu innan viku.
KA sendi þessa greinargerð í
fyrradag og má þvf búast við að
dómstóllinn fundi öðrum hvorum’
megin við helgi og má þá búast
við niðurstöðu í málinu.
Það liggur ljóst fyrir að reglur
HSÍ eru skýrar í þessu máli, þ.e.
að strákur megi ekki spila með
stelpuflokki og öfugt. Ef hins
vegar rök KA, að kæran hafi
komið of seint fram, verða tekin
til greina mun dómstóllinn vísa
kærunni frá og þar með mun KA
halda sæti sfnu í 1. deild.
Þar sem Framarar kæra ein-
ungis leik KA og Fram er ljóst að
KA mun einungis, í versta falli,
tapa 1. deildarsæti sínu, og ekki
er hætta á því að félagið falli nið-
ur í 3. deild.
Stjórn KA hefur í hyggju að
sækja um undanþágu til stjórnar
Handknattleikur:
KA komst ekki
suður vegna veðurs
Fresta þurfti leik KA og
Gróttu í 1. deildinni vegna
jþess að KA-liðið komst ekki
suður. Einnig þurfti að fresta
leik Breiðabliks og Vest-
Imannaeyja vegna þess að
Eyjamenn komust ekki upp á
meginlandið.
Duranic þjálfari KA var ósköp
ánægður með að leiknum var
frestað. Bæði leist honum ekki á
veðrið og það sem meira var að
Axel Stefánsson markvörður
liðsins lá heima í flensu og hefði
ekki komist með.
Rætt var um í gær að ieikurinn
yrði jafnvel í kvöld en þó var tal-
ið líklegra að hann yrði á sunnu-
daginn.
Leik FH og Fram, sem vera
átti í gær, var einnig frestað að
ósk FH-inga, en þeir eiga að
leika í Evrópukeppninni á föstu-
dagskvöldið við rúmenskt lið.
HSÍ þannig að Ingibjörg geti
leikið áfram með strákunum í 5.
flokki. Það þýðir, ef HSÍ sam-
þykkir þá málaleitan, að ekki
verður að hægt að kæra KA fyrir
að nota hana í leikjum með
strákunum.
Mál Ingibjargar hefur vakið
mikla athygli og eru menn yfir-
leitt sammála að kæra Framara sé
félaginu til skammar. í greinar-
gerð KA segir að „meðal barna á
þessum aldri, á að ríkja jafnrétti
til þátttöku í handknattleik, sama
hvers kyns þau eru og hvar á
landinu þau eru.“
Það er athyglisvert að þetta
mál teygir anga sína víða. Fram-
arar hafa reynt að ná fótfestu í
hinu nýja hverfi í Grafarvogi í
Reykjavík, en þar var stofnað
ungmennafélag, Fjölnir, á sein-
asta ári. Á almennum borgara-
fundi í hverfinu fyrr í vikunni
voru þessi mál rædd og þar kom
fram hjá einum fundarmanni að
hann vildi ekki fá félag í hverfið
sem stæði í því að kæra 10 ára
stúlku í íþróttakappleik!
Aðalfundur
Knattspymu-
deildar l>órs
Aðalfundur Knattspyrnu-
deildar Þórs veröur haldinn
í Glerárskóla laugardaginn
17. desember og hefst kl.
13.00.
Allir Þórsarar eru hvattir til
að mæta, en á dagskrá eru
venjuleg aðalfundarstörf.
Hópur frá Sundfélaginu Óðni er nú í Kiel í V.-Þýskalandi og tekur þar þátt ■ alþjóðlegu sundmóti á sunnudaginn.
Hér sést hópurinn ásamt Önnu og Wolfgangi Shar fararstjórunum fyrir brottförina í gær. Mynd: tlv
Blak:
Þróttur Nes. kom,
sá og sigraði
- dapur árangur KA
íslandsmót í blaki 3. flokks
karla og kvenna fór fram í
íþróttahúsi Sauðárkróks um
síðustu helgi. Þar átti KA tvö
lið, eitt karlalið og eitt kvenna-
lið. Það er skemmst frá því að
segja að KA-stúlkur töpuðu
öllum sínum sex leikjum og
strákarnir unnu einn leik en
töpuðu fimm. Það voru krakk-
arnir frá Neskaupstað sem
komu, sáu og sigruðu, þau unnu
báða flokkana með miklum yf-
irburðum.
Mótið fór fram á laugardegi og
sunnudegi og auk KA og Þróttar
Neskaupstað sendu Fram, HK,
Stjarnan, Þróttur Reykjavík og
UBK lið til keppninnar. Það er
greinilega mikil gróska í blakinu
á Neskaupstað um þessar mund-
ir, Þróttur sendi a- og b-lið í bæði
karla- og kvennaflokki.
Úrslit leikja KA-manna urðu
sem hér segir:
Karlaflokkur:
KA-Fram 2:1
KA-HK 0:2
KA-Stjarnan 1:2
KA-Þróttur N a 0:2
KA-Þróttur N b 1:2
KA-Þróttur R 1:2
Kvennaflokkur:
KA-Fram 1:2
KA-HK 0:2
KA-UBK a 0:2
KA-UBK b 0:2
KA-Þróttur N a 0:2
KA-Þróttur N b 0:2
-bjb