Dagur - 28.12.1988, Side 5
28. desember 1988 - DAGUR - 5
kvikmyndarýni
UJmsjón: Jón Hjaltason
Robin Williams reynir að ná ástum hinnar víetnömsku Trinh sem Chintara Sukapatan leikur. En umhverfið er þeiin
ekki hliðhollt, tungumálið ekki heldur, hvað þá þjóðernið.
Það er þetta með
baunasúpuna
Borgarbíó sýnir:
Góðan daginn Víetnam (Good Morning
Vietnam).
Leikstjóri: Barry Levinson.
Helstu leikendur: Robin Williams, Forr-
est Whitaker og Tung Thanh Tran.
Touchstone Pictires 1988.
Ég hallast alltaf æ meira að því
að skopskyn Bandaríkjamanna
sé ekkert ólíkt því sem okkur
íslendingum er gefið. Því meiri
Iæti, ærsl og hávaði, hamagangur
og fíflaskapur, því fyndnara
þykir það sem fram fer. Góðan
daginn Víetnam er um fyndni í
útvarpi. Og furðulegt nokk, hún
er furðulega keimlík þeirri sem
okkur er ætlað að sjá með augun-
um. Byggir á því sama, hávaða
og látum.
Myndin greinir frá útvarps-
manninum Adrian Cronauer,
sem leikinn er af Robin Williams.
Hann er í þjónustu bandaríska
hersins og sem slíkur kemur hann
til Víetnam að hressa við landa
sína þar. Þetta er árið 1965,
einmitt um þær mundir þegar
Lyndon Baines Johnson forseti
er hvað hræddastur um að landið
sé að falla í hendur kommúnist-
um. Hann fyrirskipar loftárásir á
Norður-Víetnam og sendir í gríð
og erg nýjar hersveitir til
Víetnam að bjarga Bandaríkjun-
um. Á innan við þremur árum
hefur forsetinn fjölgað í
bandarísku hersveitunum í
Suður-Víetnam úr 20.000 í yfir
500.000. Kannski tengist koma
hins nýja þáttagerðarmanns til
landsins björgunaraðgerðum
forsetans. í það minnsta þykir
hann afbragð annarra manna um
hnyttiyrði og fyndni.
Williams tekur þegar til starfa
við útvarp hersins í Saigon og um
það þarf ekki að hafa mörg orð
nema hvað hann slær í gegn. Og
það er víst óhætt að segja að
Williams blómstrar ekki aðeins
sem brandarakarl í augum her-
mannanna, hann hlýtur einnig að
slá í gegn hjá öllum þeim er sjá
myndina. Leikur hans er vægast
sagt stórkostlegur.
En böggull fylgir skammrifi
fyrir stjórnendur útvarpsstöðvar-
innar. Þáttagerðarmaðurinn er
ósvífinn, spilar rokk í staðinn
fyrir polka, segir ljótar sögur af
veðrinu, en á hertímum er það
óyfirstíganleg regla að allt tal um
veður, satt eða logið, er bannað.
Að auki lætur hann berast út á
öldum ljósvakans fréttir af hinu
og þessu sem ritskoðunin hefur
dæmt óbirtingarhæft og í þokka-
bót skopast hann að virtum
stjórnmálamanni, Richard
Nixon. Sem sagt, Williams er
vandræðagemsi en snillingur í
sínu fagi.
Þessi mynd Levinsons minnir
um meginþætti á gerð baunasúp-
unnar í ævintýrinu. Flakkarinn
sauð gómsæta súpu af einum
nagla, Levinson reynir að gera
stórmynd í kringum eitt hljóðver.
Flakkarinn setti eitt og annað
saman með naglanum sínum,
Levinson reynir einnig að blanda
saman einhvers konar hljóðvers-
kokteil. Hann vill í senn segja
ástarsögu, að vísu mjög óvenju-
lega, svolitla stríðssögu og
brandara. Með þessu hefur hann
tvær skeiðar af harmrænu, lífs-
reynslusögu og oboðlítið af
blóði. Útkoman verður skemmti-
leg bíómynd en veigalítil.
Sannleikurinn er sá að Góðan
daginn Víetnam minnir mest á
MASH, nema hvað MASH var
eintómt gaman og grín og átti
ekki að vera neitt annað. Levin-
son virðist hins vegar vilja gefa
okkur mynd af stríðinu þar
eystra, kátínan á að blandast
með tárum. En tárin verða söm
og hrökkva af hvörmum
krókódíla og stríðsmyndin
Góðan daginn Víetnam verður
afkáraleg. Það sama verður ekki
sagt um skopmyndina Góðan
daginn Víetnam. Það er raunar
með ólíkindum að það skuli vera
hægt að gera sprelifjöruga og á
köflum nokkuð fyndna mynd
umhverfis hljóðver og masandi
útvarpsmann. En munið; forðum
varð dýrindiskrás af
einum nagla.
Leikfélag Skagafjarðar:
Uppreisnin á ísafirði
frumsýnt eftir áramót
Að undanförnu hafa staðið yfir I
æfingar hjá Leikfélagi Skaga-
fjarðar á leikritinu Uppreisnin I
á ísafirði, eftir Ragnar Arnalds
í leikstjórn Eddu Guðmunds-
dóttur. Að sögn Friðriks R.
Friðrikssonar formanns Leik-
félags Skagafjarðar hafa æfing-
ar gengið vel og á að frumsýna
stykkið eftir áramótin, nánar
tiltekið miðvikudaginn 4.
janúar nk. Uppreisnin á Isa-
firði er stórt og viðamikið
lcikrit í uppfærslu, en alls taka
um 30 leikarar þátt í því.
í upphafi var stefnt að því að
frumsýna á milli jóla og nýárs,
en ljóst er að það verður ekki
mögulegt. Uppfærslan er það
stór í sniðum og margt þarf að
fínpússa áður en leikstjóri verður
ánægður.
Alls eru 28 hlutverk í Upp-
reisninni, þar af 22 karlhlutverk.
Auk þess að koma úr sveitum
Skagafjarðar koma leikarar
einnig frá Sauðárkróki og úr
Reykjavík. Þetta er í fyrsta sinn
sem Úppreisnin á ísafirði er tekin
fyrir, eftir að Þjóðleikhúsið sýndi
leikritið við miklar vinsældir fyrir
tveim árum. Er það vel við hæfi
að Leikfélag Skagafjarðar hafi
valið stykkið, m.a. vegna þess að
höfundurinn, Ragnar Arnalds, er
búsettur í Varmahlíð. Þar hafa
æfingar farið fram, í Félagsheim-
ilinu Miðgarði, og þar verður
leikritið sýnt. Sem fyrr segir
verður frumsýning miðvikudag-
inn 4. janúar 1989 og önnur sýn-
ing verður föstudaginn 6. janúar.
-bjb
Laus staða
Staða sérfræðings á Rannsóknastofnun landbún-
aðarins, bútæknideild á Hvanneyri, er laus tii
umsóknar. Upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn
Tómasson, forstjóri, s. 91-82230 og Grétar Ein-
arsson, deildarstjóri, s. 93-7000.
Umsóknir um starfið ásamt gögnum skulu berast
landbúnaðarráðuneytinu eigi síðar en 10. janúar
1989.
Landbúnaðarráðuneytið, 20. desember 1988.
Rafvirkjar -
Rafverktakar
Próf í þeim áföngum, sem kenndir hafa verið á nám-
skeiðum Rafiðnaðarskólans til löggildingar í rafvirkj-
un, verða haldin í Tækniskóla Islands og Verk-
menntaskólanum á Akureyri fimmtudaginn 5. janúar
1989 kl. 13.00-14,30.
Þátttakendur leggi fram staðfest gögn um að þeir
hafi lokið námskeiðunum, eða sambærilegu námi.
Rafmagnseftirlit ríksins.
Harmoniku-
dansleikur
verður í Lóni
föstudaginn 30. desember n.k. frá kl. 22-03.
Þetta verður áramótadansleikurinn okkar!
Hvað skeður kl. 24.00?
Allir velkomnir!
FÉLAG HARMONIKUUNNENDA.
_Til viðskiptamanna_
banka og sparisjóóa
Lokun
2. janúar
og eindagi
voda
Vegna áramótavinnu verða
afgreiðslur banka og sparisjóða
lokaðar mánudaginn
2.janúar1989.
Leiðbeiningar um eindaga víxla
um áramót
liggjaframmi í afgreiðslum.
Reykjavík, 14. desember 1988
Samvinnunefnd banka og sparisjóða
Allar auglýsingar sem þarf að vinna sérstak-
lega, þurfa að berast til auglýsingadeildar
tveimur til þremur dögum fyrir birtingu.
Auglýsingadeild Dags.