Dagur - 28.12.1988, Side 9
28. desember 1988 - DAGUR - 9
'■
■■■■■ ■ ■■
körfubolta. Hér sjást Tindastólspiltarnir Haraldur Leifsson og Eyjólfur Sverrisson í harðri
; Kristján Rafnsson. My"d: EHB
árinu. Lilja IVlaría Snorradóttir frá Sauðárkróki
lun á Heimsleikum fatlaðra í Kóreu. Mynd: t>jb.
Lim. Mynd: AP.
eyri. Þeim bættist góður liðsauki
í Torfa Ólafssyni sem flutti norð-
ur yfir heiðar og það hefur borið
mikið á honum síðan.
Hann setti heimsmet í rétt-
stöðulyftu á Heims- og Evrópu-
móti unglinga í Luxemburg í des-
ember og lyfti þar 337,5 kg.
Reyndar setti Torfi íslandsmet
í réttstöðulyftu á Dagsmótinu í
apríl. Par lyfti hann 370,5 kg og
er það mesta þyngd sem lyft hef-
ur verið hér á landi.
í sumar sigraði síðan Torfi í
keppninni um sterkasta mann
landsbyggðarinnar.
Peir Flosi Jónsson og Kári Elí-
son létu ekki heldur sitt eftir
liggja og stóðu sig vel á þeim
mótum sem þeir tóku þátt í á
árinu. Einnig bættust ungir og
efnilegar kraftlyftingamenn í
hópinn og verður gaman að fylgj-
ast með þeim á komandi árum.
Fimleikar . . .
Fimleikafólk var ekki fyrir-
ferðarmikið á Norðurlandi á
árinu. Það bar helst til tíðinda að
þær Elva Jónsdóttir og Harpa
María Örlygsdóttir komust á pall
á Afmælismóti Fimleikasam-
bands íslands í Reykjavík í
febrúar.
Á Akureyrarmótinu í apríl
varð Guðrún Gísladóttir fjórfald-
ur meistari í 3. gráðu í flokki 13
ára og eldri. Matthea Sigurðar-
dóttir stóð sig einnig vel á mótinu
og sigraði í þremur greinum í 3.
gráðu.
Hulda Guðmundsdóttir hafði
mikla yfirburði í flokki 9 ára og
yngri og sigraði í öllum fjórum
greinunum.
íþróttir fatlaðra . . .
Fáir íþróttamenn vöktu eins
mikla athygli á árinu eins og þeir
fötluðu. Þar bar hæst glæsilegan
árangur íslenskra keppenda á
Heimsleikum fatlaðra í Kóreu.
Samtals vann íslenska íþrótta-
fólkið til 11 verðlauna á leikun-
um, tveggja gullverðlauna,
tveggja silfurverðlauna og sjö
bronsverðlauna.
Þau Lilja María Snorradóttir
frá Sauðárkróki og Haukur
Gunnarsson hlutu gullverðlaun
og tvö brons, Jónas Óskarsson
frá Húsavík og Geir Sverrisson
hlutu silfurverðlaun og Ólafur
Eiríksson og Sóley Axelsdóttir
hlutu brons.
Þar að auki kepptu þau Rut
Sverrisdóttir og Elvar Thoraren-
sen frá Akureyri á leikunum. Rut
í sundi og Elvar í borðtennis og
stóðu þau sig bæði mjög vel.
Rut Sverrisdóttir hlaut fimm
gullverðlaun á Islandsmóti fatl-
aðra og þeir Stefán og Elvar
Thorarensen hlutu einnig gull-
verðlaun á mótinu.
Hængsmótið var haldið að
vanda í íþróttahöllinni í mars og
voru keppendur rúmlega 100 víðs
vegar al' landinu. Elvar Thoraren-
sen hlaut Hængsbikarinn en þann
bikar hlýtur sá keppandi ÍFA er
bestum árangri nær á mótinu.
Stefán Thorarensen, Elvar
Thorarensen, Rut Sverrisdóttir
og Sigurrós Karlsdóttir unnu öll
til verðlauna á íslandsmótinu í
sundi á árinu.
Sund . . .
Þingeyingar stóðu sig vel á sund-
sviðinu á árinu. HSÞ sigraði á
Sundmeistarmóti Norðurlands
sem haldið var á Siglufirði í júlí
og í haust gerði félagið betur og
vann sig upp í 1. deild í Bikar-
keppni Sundsambands íslands.
Sundfélagið Óðinn á Akureyri
varð í 2. sæti á Norðurlandsmót-
inu og situr enn í 3. deildinni.
En Óðinn hefur nú ráðið til sín
þýskan þjálfara, Wolfgang Shar,
og vænta má mikils af starfi hans
með akureyrskru sundfólki.
Að vanda var Svavar Þ. Guð-
mundsson úr Óðni atkvæðamest-
ur norðlenskra sundmanna.
Hann setti nýtt íslandsmet í 400
m fjórsundi á móti í mars.
Ungur og efnilegur sundmaður
úr Óðni, Ömar Arnason, hefur
dundað við það sem af er árinu
að fella íslandsmetin í sveina-
flokki og má búast við miklu af
honum í framtíðinni.
Svavar varð Akureyrarmeistari
í karlaflokki og Birna H. Sigur-
jónsdóttir í kvennaflokki. Ómar
Árnason sigraði síðan í flokki 12
ára og yngri.
Badminton . . .
Karl F. Karlsson er tvímæla-
laust sá badmintonleikari sem
mest bar á á árinu. Hann raul'
áralanga sigurgöngu Kristins
Jónssonar á Akureyrarmótinu í
einliðaleik karla og sigraði þar að
auki í tvíliðaleik ásamt Sigurði
Rúnari Sveinmarssyni og í
tvenndarleik ásamt Guðrúnu Erl-
endsdóttur.
Karl er reyndar mjög fjölhæfur
leikmaður. Þrátt fyrir að vera
einungis 16 ára garnall er hann í
hópnum í meistaraflokki KA í
handbolta og þar að auki er hann
mjög liðtækur knattspyrnumað-
ur.
Elín Jónsdóttir stóð sig kepp-
enda best á Akureyrarmóti ungl-
inga í badminton. Hún sigraði í
þremur greinum en þau Kristjana
Jónsdóttir, Egill Hólmsteinsson,
Sonja Magnúsdóttir, Konráð
Þorsteinsson og Einar Karlsson
unnu tvo titla hvert.
TBA réð til sín hollenskan
þjálfara, Gustave Velberg, á
árinu og starfaði hann á Akureyri
í nokkra mánuði. Með komu
hans hljóp fjörkippur í starfsemi
TBA og á það sjálfsagt eftir að
skila sér í meiri áhuga á íþrótt-
inni norðanlands.
Yaxtarrækt. . .
Þó nokkur hópur æfir vaxtarrækt
á Akureyri undir öruggri hand-
leiðslu íslandsmeistarans Sigurð-
ar Gestssonar. Reyndar tókst
Sigurði ekki að verja titil sinn í
opnum flokki á árinu því hann
þurfti að sjá á eftir titlinum til
Jóns Páls Sigmarssonar.
Það þurfti að kalla þá þrisvar
sinnum fram til að dómendurnir
gætu gert upp hug sinn hvor væri
betur skorinn, eins og vaxtar-
ræktarmenn segja. En Sigurður
sigraði auöveldlega í 90 kg flokki
og er því íslandsmeistari í þeim
flokki.
Hrönn Einarsdóttir sigraði í B-
vaxtarræktarmótinu, sem er eins
konar undanúrslit, en gerði sér
síðan lítið fyrir og varð efst á
Islandsmótinu í 57 kg flokki.
Jón Norðfjörð varð íslands-
meistari í 70 kg flokki og Hjörtur
Guðntundsson varð efstur í sín-
um flokki á B-vaxtarræktarmót-
inu.
Golf. . .
Golfarar á Norðurlandi sátu ekki
auðum höndum á árinu. Þar bat'
hæst alþjóðlega mótið „Artic-
open“ á Jaðarsvellinum á Akur-
eyri. Björn Axelsson úr GA kom
þar, sá og sigraði með glæsibrag.
Þórhallur Pálsson, einnig úr GA,
varð í þriðja sæti og Eiríkur Har-
aldsson sigraði með forgjöf.
Björn Axelsson varð Ákureyr-
armeistari í karlaflokki og Inga
Magnúsdóttir í kvennaflokki.
Norðurlandsmótið var haldið á
Sauðárkróki og þar sigraði Ólaf-
ur Gylfason GA í karlaflokki og
Árný Lilja Árnadóttir í kvenna-
flokki.
Karlalið Golfklúbbs Húsavík-
ur og kvennalið GA tryggðu sér
síðan sæti í 1. deild GSI með sigri
í 2. deild en sú keppni fór fram á
Húsavík.
Öldungameistaramót íslands
var haldið að Jaðri í ágúst og
tóku hátt á annað hundrað kepp-
endur þátt í mótinu.
Af yngri kylfingum var það
helst að frétta að Árný Lilja
Árnadóttir og Magnús Karlsson
urðu í þriðja sæti í sínum flokki á
Unglingameistaramóti íslands í
golfi.
Golfklúbbar á Norðurlandi eru
starfandi á Skagaströnd, Blöndu-
ósi, Sauðárkróki, Ólafsfirði,
Akureyri og Húsavík. GA ber
ægishjálm yfir þessa klúbba, en
starfsemin hefur þrátt fyrir það
verið lífleg hjá þessum minni
klúbbum.
Berglind Bjarnadóttir úr Tinda-
stóli var Iþróttanyaður Skaga-
fjarðar og Arnar Snorrason var
kosinn íþróttamaður Svarfdæla
fyrir árið 1987. Þess má geta að
Árnar keppti í 400 m hlaupi og
4x400 m boðhlaupi með íslenska
landsliðinu í Luxembourg á
árinu.
Frjálsíþróttafólk úr UMSE var
áberandi á árinu. Þóra Einars-
dóttir sigraði í þremur greinum á
íslandsmótinu í atrennulausum
stökkum í febrúar. Þar kom Flosi
Jónsson gullsmiður og kraftlyft-
ingamaður á óvart og varð
íslandsmeistari í langstökki.
Á Meistarmóti íslands innan-
húss fyrir 15-18 ára hlutu UMSE-
krakkarnir fimm gullverðlaun og
tvenn bronsverðlaun. Þetta voru
þau Hreinn Karlsson, Pétur
Friðriksson og Snjólaug Vil-
helmsdóttir. Einnig hlaut Berg-
!ind Bjarnadóttir verðíaun á mót-
inu.
Stefán Gunnlaugsson úr
UMSE varð þrefaldur íslands-
meistari á íslandmótinu fyrir
yngri en 14 ára.
Á-Húnvetningar áttu sterkustu
frjálsíþróttasveitina á Norður-
landi og urðu þeir meistarar á
Norðurlandsmótinu á Akureyri í
ágúst. Þar að auki komst USAH
upp í 1. deild ásamt UMSK í
Bikarkeppni FRÍ. Skagfirðingar
unnu kvennaflokkinn á Norður-
landsmótinu.
Meistaramót íslands var hald-
ið á Húsavfk 23. og 24. júlí og
mættu þar urn 300 keppendur til
leiks.
Þeir Friörik Steinsson og
Gunnar Sigurðsson úr UMSS
urðu íslandsmeistarar í tugþraut
karla á íslandsmeistarmótinu í
september.
Þó nokkrar hræringar voru í
frjálsíþróttamálum Norðurlands
á árinu. Þar ber hæst að stofnað
var nýtt Ungmennafélag á Akur-
eyri, UFA, og er líklegt að mikið
af frjálsíþróttafólki sem keppt
hefur undir nafni UMSE gangi til
Haraldur Ólafsson náði að bæta árangur sinn verulega á árinu og æfir nú af
kappi fyrir Norðurlandamótið sem haldið verður á Akureyri í apríl.
Ungur og efnilegur kylfingur,
Örn Sölvi Halldórsson, varð
meistari hjá Golfklúbbi Sauðár-
króks og var hann valinn til æf-
inga með unglingalandsliðinu.
Kristján Ö. Hjálmarsson varð
meistari hjá Golfldúbbi Húsavík-
ur og var í sveit GH sem tryggði
sér sæti í 1. deild.
Þó nokkuð líf hefur verið í
Blönduósingum og þess má til
gamans geta að Golfklúbbur
Húsavíkur er með stærri söluaðil-
um í knattspyrnugetraunum á
Norðurlandi.
Frjálsar . . .
Frjálsar íþróttir stóðu í miklum
blóma í landsfjórðungnum á
þessu ári. Það sést best á því að
hvorki meira né minna en fjögur
héraðs- eða sérsambönd kusu
frjálsíþróttamann sent íþrótta-
mann ársins hjá sér.
Cees van den Ven var kosinn
íþróttamaður ársins hjá UMSE,
Daníel Guðmundsson var kosinn
íþróttamaður ársins hjá USAH,
liðs við þetta nýja félag. UFA
stóð fyrir nokkrum mótum á
árinu og lofar starfsemin góðu
fyrir frjálsíþróttalíf á Akureyri,
sem hefur verið í nokkurri lægð
undanfarin ár.
Glíma . . .
Glímumenn úr Þingeyjarsýslu
héldu uppi merki glímuíþróttar-
innar á Norðurlandi, eins og
undanfarna áratugi. Pétur
Yngvason sigraði í Islandsglím-
unni og Eyþór Pétursson og
Kristján Yngvason lentu í 2. og
3. sæti.
HSÞ sigraði einnig í sveita-
keppninni og, auk fyrrnefndra,
áttu -þeir Arngrímur Jónsson og
Hjörtur Þráinsson sæti í sveit-
inni.
Ungir glímumenn úr HSÞ stóðu
sig vel á grunnskólamótinu f
glímu. Þar má t.d. nefna að
Tryggvi Héðinsson sigraði í sín-
um flokki og sigraði þar að auki á
miklu axlartakamóti í Englandi
seinasta sumar.