Dagur - 04.03.1989, Blaðsíða 5
Laugardagur 4. mars 1989 - DAGUR - 5
Umræður um atvinnumál í Bæjarstjórn Húsavíkur:
Húsavík vantar 2000 tonn af fiski
Kristján Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Höfða og Ishafs
lagði fram tillögu, á fundi
Bæjarstjórnar Húsavíkur sl.
þriðjudag, þess efnis að bæjar-
stjórn samþykkti að leggja
fram hlutafé, allt að 25 millj-
ónum, til kaupa á skuttogara.
Hlutaféð skyldi fjármagnað
með lántöku að hluta eða öllu
leyti. Tillögu Kristjáns var vís-
að til bæjarráðs en miklar
umræður um atvinnumál urðu
á fundinum. Sérstaklega um
stöðu og hráefnisöflun fisk-
vinnslunnar og rekstur togara-
útgerðanna, hugsanlega sölu á
togaranum Júlíusi Havsteen og
kaup á öðru skipi, „fullorðn-
um skuttogara“, eins og Krist-
ján orðaði það.
Tryggvi Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjusamlags
Húsavíkur sagði vanda fyrir
dyrum, segja mætti að um 90
milljónir króna hefðu runnið frá
fyrirtækjunum þremur, FH,
Höfða og íshafi á síðasta ári.
Lýsti hann orsökum rekstrar-
vanda FH, skýrði fjármagns-
kostnað og erfiðleika við hráefn-
isöflun. Sagði hann að dregið
hefði úr kvóta hjá almennum
útgerðarmönnum sem fyrirtækið
skipti við og einnig hefði aukist
að þeir ynnu úr eigin afla með því
að salta sjálfir. Nú væri svo kom-
ið að verulega vantaði á, eða um
Jakvæð byggðastefna:
Om Ingi fer suður
- og skreytir skóla
Myndlistarnámskeið Arnar
Inga víðs vegar á Norðurlandi
hafa vakið það mikla athygli
að nú hefur hann verið kallað-
ur suður til Reykjavíkur. Þar
mun Örn Ingi hafa yfirumsjón
með umhverfisfegrun í Árbæj-
arskóla og vinna að vegg-
skreytingum í skólastofum
ásamt um 300 nemendum í 7,-
9. bekk og foreldrafélagi
skólans. Verkið mun taka eina
viku og Ijúka með afhjúpun og
fjölskylduhátíö.
Þetta verður 20. námskeið
Arnar Inga í þessari lotu, en nú á
einu ári hefur hann haldið 13
myndlistarnámskeið á Akureyri
og víða á Norðurlandi, síðast á
Raufarhöfn. Námskeið hans hafa
mælst vel fyrir á viðkomandi
stöðum og hefur þeim lokið með
allsherjar sýningu þar sem oft
hafa fleiri mætt en íbúafjöldi
staðarins segir til um.
í Árbæjarskóla er málum
þannig háttað að þar er sérstök
kennslustofa fyrir hverja náms-
grein og meiningin er að mynd-
skreyta þær út frá námsefninu.
Örn Ingi sagði að hér gæti verið
um að ræða 6 fermetra málverk í
hverri stofu. Fólkinu verður rað-
að á veggina og unnið frá morgni
og langt fram á kvöld. Síðan
verður klykkt út með hátíð laug-
ardaginn 11. mars.
„Það er virkilega gaman að
vera kallaður suður, ekki síst
með tilliti til þess fjölda sem þar
starfar við myndlist. Þetta gerðist
svo til fyrirvaralaust og ég fer til
Reykjavíkur núna á sunnudag-
inn,“ sagði Örn Ingi og má telja
þessa ferð dæmi unt jákvæða
byggðastefnu. SS
2000 tonn af hráefni, til að hægt
væri að tala um skynsamlega nýt-
ingu á aðstöðu fyrirtækisins, þó
væri sjálfsagt að að stefna frekar
á fullvinnslu aflans en magn.
Stjórn FH hefur skipað þriggja
manna nefnd til að leita leiða til
lausnar vandans. Frarn hefur
komið sú hugmynd að skipta á
Júlíusi fyrir stærra skip eða selja
Júlíus og kaupa annað skip.
Tryggvi sagði að ef til tíðinda
drægi mundu ýmsir þurfa að taka
á til að leysa þetta verkefni og
gera Höfða að rekstrarhæfu fyrir-
tæki. Tryggvi sagði einnig að taka
yrði tillit til margra ólíkra þátta,
Kolbeinsey mundi sigla með afl-
ann úr yfirstandandi veiðiferð en
Júlíus verða á þorskveiðum fram
að páskum. Júlíus Havsteen hef-
ur stundað rækjuveiðar og fryst
aflann unt borð.
Kristján sagði nauðsynlegt að
bæjarstjórn hefði fruntkvæði svo
hægt væri að gera eitthvað og
ræddi hann þá hugmynd að auka
hlutafé í Höfða og kaupa skut-
togara án þess að selja Júlíus í
staðinn. Þorskveiðikvóta Júlíusar
hefur verið miðlað til Kolbeins-
eyjar og sala Júlíusar með fullurn
kvóta mundi því skerða mögu-
leika Kolbeinseyjar til hráefnis-.
öflunar.
Vegna þess hve alvarlega
horfir í atvinnumálum voru for-
svarsmenn stærstu fyrirtækja í
bænunt boðaðir á fund Atvinnu-
málanefndar í síðustu viku, og í
framhaldi af því var samin álykt-
un til stjórnvalda sem send var
bæjarstjórn til afgreiðslu. Á
fundinum kom fram að vegna
hagræðingaraðgerða hjá FH og
KÞ á síðasta ári fækkaði stöðu-
gildum hjá fyritækjunum um 50.
IM
Athugasemd frá Kristbjörgu Antonsdóttur:
Vegna fréttar um þotuflug frá Keflavík
Vegna samtals er Kristján Krist-
jánsson fréttastjóri Dags átti við
undirritaða í Degi í fyrradag, 2.
mars 1989 þætti ntér vænt um að
eftirfarandi kæmi fram.
í undirfyrirsögn fréttarinnar
(samtalsins) kemur fram stórum
stöfum að viðtalið sé við Krist-
björgu Antonsdóttur „bæjar-
stjórafrú" og mátti þar með skilja
að ég hafi verið að koma fram
kvörtunum mínum við Flugleiðir
sem slík („bæjarstjórafrúin") og
jafnframt að ég hafi vitað um þá
ætlan fréttastjórans að nafn- og
titilgreina mig í viðtalinu. En svo
er aldeilis ekki. Stöðuheiti manns
míns nota ég aldrei, hvorki í
þessu máli né nokkru öðru þar
sem ég vil koma skoðunum mín-
um á framfæri. Mér nægir að vera
Kristbjörg Antonsdóttir og tel
mig reyndar fullsæmda af nafni
mínu einu saman. Reyndar hélt
ég þegar KK ræddi við mig upp-
haflega að hann vildi fá álit mitt
sem óánægðs farþega eingöngu
og svo sem allt í lagi að nafn mitt
kæmi fram en bæjarstjórafrúar-
titilinn hefði ég aldrei samþykkt.
Það að KK scr ástæðu til að
koma stöðu eiginmanns míns á
framfæri er því frá honum
komið, sem mér að vísu þykir
óþægilegt í þessu máli.
Annað atriði vil ég og nefna og
það er að í viðtali okkar bar laus-
lega á górna atriði það er KK set-
ur í fyrirsögn samtalsins og gerir
að lokasetningu minni, þ.e.
„Minnir einna helst á gripaflutn-
inga“ (fyrirsögnin) og „Þetta
ferðalag til og frá Keflavík minnti
einna helst á gripaflutninga . . .“
(lokasetningin). Þetta atriði var
ekki aðalatriði samtals okkar
heldur rétt nefndi ég að þegar unt
svona flutninga á farþegum Flug-
leiða væri að ræða í innanlands-
flugi þá hefði ég heyrt ýmsa aðila
líkja því við gripafíutninga, sem
og KK var samþykkur. En að ég
hafi upplifað þetta ferðalag allt
sem slíkt voru ekki mín orð og
síst af öllu að ferðalagið frá
Keflavík hafi verið slíkt. Þotu-
flugið sjálft var ágætt í alla staði
svo sem eins og KK sjálfur veit
þar sem hann var þar farþegi. I
þessu atriði samtals okkar hefur
gætt óþarfa ntisskilnings.
Akureyri 03.03. '89
Kristbjörg Ántonsdóttir.
Vegna at-
hugasemdar
Vegna athugascmdar Krist-
bjargar Antonsdóttur vill
undirritaður ad fram komi
eftirfarandi:
Það er rétt hjá Kristbjörgu að
það var alfarið mín ákvörðun að
nota bæjarstjórafrúartitilinn í
viðtalinu. Þetta var alls ekki illa
meint, heldur kannski frekar til
þess að vekja meiri athygli á
fréttinni. Það aö Kristbjörg hafi
orðið fyrir óþægindum ber að
harma og vil ég nota tækifærið og
biðja hana afsökunar vegna
þessa.
Kristján Kristjánsson, fréttastjóri
Páskaferðir:
Skíðaferð: Borovets. Hotel Sokoléts.
Flogið um Frankfurt til Sofia 19/3,
gist í eina nótt á útleið. Komið til
baka 29/3.
Verð: 35.000, flug + gisting m/morg-
unmat, miðað við 2ja manna her-
bergi.
Orlofsferð:
Albena Hotel, Dobrudsja. Flogið um
Frankfurt 19/3, gist eina nótt á út-
leið. Komið til baka 29/3.
Verð: 39.000, flug + gisting, hálft
fæði miðað við 2ja manna herbergi.
Aðstaða i heilsurækt og polyklinik
(Tannlækningar). Greiðist aukalega
á staðnum. Þátttaka tilkynnist fyrir
10. mars.
Verð þessi eru miðuð við gengi og flugverð 10. jan. 1989 og kunna að
breytast fram að þeim tíma að farmiðar eru afgreiddir mánuði fyrir brott-
för. Tekið er á móti pöntunum i skrifstofu okkar og þarf að staðfesta
pantanir með innágreiðslu kr. 5.000 á fullorðinn mann. Við sendum
bæklinga og veitum frekari upplýsingar á skrifstofu okkar. Opið alla virka
daga 8-17 og laugardaga 9-12 fh.
Pantið tímanlega. Ekki missir sá er fyrstur fær.
BULGARIA
Flogið um Luxembourg til Varna samdægurs (skipt um vél í Lux). Tekið á
móti farþegum I Varna af íslenskum fararstjórum. Hægt að dveljast allt að 3
mánuðum. Tvær baðstrendur Albena og Drushba. Meðan á dvölinni stendur
er hægt að stunda heilsurækt á glæsilegum heilsuræktarstöðum auk þess er
hægt að fá tannviðgerðir Polyklinik sem margir notfærðu sér I fyrra, verð
mjög hagstætt. islensk hjúkrunarkona er á staðnum.
Skoðanaferðir verða til Istanbul með skipum auk
margra skemmri skoðanaferða um landið. Þá verða
farnar vikuferðir um landið dagana 27. júní, 18. júlí
og 8. ágúst og verður þá hægt að dveljast á bað-
strandarhótelum eftir því sem farþegar óska.
1989
Baðstrandaferdir í
gæðaflokki
Hægt er að dveljasat á baðstrandarhótelum eftir sigling-
una. Gera má ráð fyrir að hægt verði að tvinna saman
ferðir til Aþenu og Kairó. Hagstæð verð, barnaafsláttur
að 12 ára aldri 100% uppbót á gjaldeyri.
Þá munu farþegar eiga þess kost að fara í vikusigl-
ingu á Doná. Er þá flogið til Salzburg og ekið til
Vínar með lest en viku sigling um Doná frá Vin til
Roosse hefstdaginn eftirflug. Panta þarf tímanlega.
Hótel/ strönd: 23 maí 26 sept. 13júní 4. og 25 júlí 15. ágúst 5. september Hálft fæði:
Drushba/ Grandhótel Vama: 1 vika 2 vikur 36.520- 47.450- 39.375- 52.955- 42.075- 55.655- 38.520- 49.450- Engir matarmiðar.
3 vikur 58.375- 66.635- 69.355- 60.375- Máltíðir fastbundnar.
Albena/ Hótel Drobrudsja 1 vika 32.755- 34.725- 37.445- 34.755- 6 levar á dag.
2 vikur 39.750- 45.685- 46.405- 41.750- Matarmiðar, morgun-
3 vikur 46.750- 52.645- 55.365- 48.740- matur fastbundinn
Albena/ Hótel Slavianka: 1 vika 2 vikur 31.775- 37.390- 32.755- 39.750- 35.475- 42.470- 33.775- 39.390- Matarmiðar 10
3 vikur 43.200- 46.740- 49.460- 45.200- levar á dag á mann
Albena/ Hótel Bratislava: 1 vika 2 vikur 30.000- 34.250- 31.970- 38.175- 34.690- 40.895- 32.000- 36.250- Matarmiðar 10
3 vikur 38.49(1- 44.780- 47.500- 40.490- levar á dag á mann
Ferðaskrifstofa
Kjartans
Helgasonar
| Gnoðavoci 44-104 Revkjuvík-Sími ^1-68 62 55