Dagur - 04.03.1989, Blaðsíða 9

Dagur - 04.03.1989, Blaðsíða 9
Laugardagur 4. mars 1989 - DAGUR - 9 Hermann Sigtrygsson segist ekki hafa eins miklar áhyggjur af unglingunum og fullorðna fólkinu í sambandi við bjórinn. Mynd: tlv nefndar. Ég vona bara að hún verði ekki ófullgerð um aldur og ævi. Mig langar mest til að klára íþróttahöllina en auðvitað liggja önnur mikilvæg verkefni fyrir á borð við sundlaugina í Glerár- hverfi. Þólt ég sé hvorki sáttur við stærð né staðsetningu laugar- innar þá verður þetta eflaust góð sundlaug af þessari stærð, góð kennslulaug og kannski hægt að æfa í henni. Ef sundlaugin hefði verið 25 metrar á lengd hefði verið hægt að keppa í henni allan veturinn og sundfólk haft æfingaðstöðu innanhúss í löglegri laug. En þetta er búið og gert og nú liggur bara fyrir að hún verði tilbúin í haust og vonandi nýtist hún á sem bestan hátt. - Verður þessi sundlaug ekki líka opin fyrir almenning? „Jú, það er meiningin að geta haft hana opna fyrir almenning, en reynslan verður að leiða það í ljós. Akureyrarsundlaug er oft þétt setin á sumrin og við höfum í mörg ár falast eftir því að byggja þar einhvers konar barna- laug, eða 25 metra laug, til að rýmra verði um þá sem vilja synda í stóru lauginni. Á hinn bóginn er það af hinu góða þegar íþróttamannvirkin dreifast um hverfin eins og verið hefur á undanförnum árum og hið sama má segja um æskulýðs- miðstöðvar. Það hefur smám saman verið að skapast meiri jöfnuður og meira framboð á tómstundastarfi í hverfum bæjar- ins. Miðað við stærð held ég að Akureyri bjóði upp á býsna marga kosti í félagsmálum." Áfengisneysla unglinga og B-dagurinn - Víkjum þá að æskulýðsmálun- um. Drykkjuskapur unglinga hefur verið í sviðsljósinu að undanförnu. Er þetta nokkuð nýtt vandamál? „í rauninni ekki. Æskulýðs- ráð bókaði í janúarmánuði áhyggjur þess af drykkjuskap ungl- inga, en það hefur' ekki oft verið gert. Það var ákveðið að opna umræðu um þessi mál á þennan hátt, en það er ekki þar með sagt að það sé allt á niðurleið hjá unglingum. Þessi umræða, t.d. í Degi og bæjarstjórn, hefur haft þau áhrif að unglingarnir sjálfir eru farnir að velta hlutunum fyrir sér og við finnum að það hefur slaknað á þessari spennu og drykkjuskapur minnkað. Þetta er bara eitt af vopnum okkar, að halda umræðunni opinni, ekki fela hlutina. Ég tel að unglingarnir sjálfir hafi næga skynsemi til að bera til að taka á áfengismálunum í sín- um röðum. Við verðum að athuga eitt að það er ekkert ungl- ingavandamál til. Þeir eru ekkert vandamál en auðvitað koma upp vandamál hjá þeim eins og öðrum. Þar er bara um lítið brot af heildinni að ræða. Við verðum að líta til þess að á þessum aldri eru unglingarnir í fullu fjöri og geta rasað út án þess að bera of mikla ábyrgð og fá kannski aldrei tækifæri til þess aftur. Við meg- um ekki vera of hörundssár út af smávægilegum uppákomum." - Hvað með bjórinn í þessu sambandi? (viðtalið tekið 27.Ö2.) „Nú er búið að magna þennan B-dag upp í fjölmiðlunum og sjálfsagt bíða þei.r spenntir eftir því hvort unglingarnir standast prófið og kannski verður smjatt- að á því ef þeir gera það ekki. Ég treysti unglingunum, jafnvel bet- ur en fullorðna fólkinu, til þess að standast þetta próf. Það er búið að magna þennan dag upp svo lengi að fólki finnst að það verði að prófa bjórinn og sjálf- sagt er það eins með unglingana. Misgóðir árgangar Ef við ætlum að laga þetta svo- kallaða „unglingavandamál" þá held ég að við verðum að byrja á almenningsálitinu. Umræðan um brennivínsmál unglinga á Akur- eyri að undanförnu stafar af því að málin eru að koma upp á yfir- borðið. Ástandið er ekkert verra en oft áður, þetta gengur í sveifl- um og er misjafnt eftir árgöng- um. Þeir eru misgóðir eins og síldarárgangarnir, en að lang- méstu leyti er þetta allt saman ágætis fólk. Ég hef kynnst því vel hve ungl- ingar vinna vel að sínum málum, t.d. í sambandi við félagsmið- stöðvarnar. Þeir stjórna þeim að nriklu leyti og ráða alveg eins vel við áfengismálin og fullorðna fólkið. Þeir taka þetta fyrir viku- lega á fundum og koma með virkilega góðar hugntyndir. Við sem störfum að æskulýðsmálum erum ekkert óvön gagnrýni frá unglingunum og oft er það sann- gjörn gagnrýni. I flestum tilfellum þegar vandamál skapast hjá unglingum er hægt að rekja þau til ytri aðstæðna. í ekki stærra bæjar- félagi en þessu held ég að við eig- um góða nröguleika á að taka skynsamlega á málunum og að við þurfum ekki að tala um ungl- inga og vandamál í sömu andrá. Við þurfum að fleyta unglingun- um yfir erfiðan aldur og það eru margir sem vilja þeirn vel. Fyrir utan æskulýðsstarf bæjar- ins, skátana og íþróttastarfsemi félaga má nefna skákfélag, hesta- mannafélag, bílaklúbba og margt fleira. Það er víða mjög vel unnið að æskulýðsmálum og ég vil taka það fram að þótt Dynheimar séu einhvers konar toppventill á þá óreglu sem við erum að tala um þá fer þar margt annað fram en dansleikjahald og þar er ágætt starf unnið.“ Krakkarnir hræddir við eiturlyf Hermann minntist á þátt foreldra í þessu sambandi. Þeir verða að vera félagar barna sinna í blíðu og stríðu og sýna þeim umhyggju. Gagnkvæmt traust verður að ríkja milli barna, foreldra og for- ráðamanna æskulýðsmiðstöðva. Hann sagði að það kæmi fyrir að unglingur kæmi ofurölvi á ball í Dynheimum og í framhaldi af því vildi hann að hægt væri að hringja í foreldrana sem myndu taka við barni sínu í þessu ástandi, án þess að rjúka upp með látum. „Eitt verðum við að athuga í sambandi við brennivínið. Ég tel það vera fyrstu undirrót þess að menn fari út í eiturlyf. Við verð- um að vera hörð í því að fræða krakka um skaðsemi víns, tó- baks og eiturlyfja, strax á barna- skólaaldri, og ég tel að hver fullorðinn maður, hvort sem hann drekkur brennivín eða ekki, eigi að vera heill í því að predika yfir unglingum að þeir eigi ekki að fara út í þetta. Æski- legt væri að koma á svipaðri hug- arfarsbreytingu í sambandi við áfengisneyslu og gerðist með tóbakið. Það á ekki að vera sjálf- sagður hlutur að fá sér í glas.“ - Hefur þú orðið var við eit- urlyfjaneyslu meðal unglinga? „Nei, ég hef ekki orðið var við hana. Ég var á fundi með fólki úr félagsmálastofnun og skólafull- trúa og enginn fundarmanna hafði fengið mál tengt eiturlyfja- neyslu inn á sitt borð. Við veltum því fyrir okkur hvort það sé svona leynt með þetta farið eða hvort við höfum einangrað okkur frá þessu máli og við ætlum að kanna það hvort þetta umtal sé staðreynd. Við vitum það í raun- inni ekki. Þegar eiturlyfjamál hafa komið upp í bænum hafa þau yfirleitt tengst fullorðnu fólki. Krakkarnir eru að ég held hræddir við eiturlyf og gera ekki meira en að prófa t.d. hass. Hins vegar hefur það gerst að krakkar á Akureyri hafa lent í eiturlytjum og farið þá til Reykjavíkur." „Hét því að verða betri afí en pabbi“ Við ræddum frekar um ungling- ana og ýmsar þjóðfélagsbreyting- ar, sjónvarpsgláp og fleira. Einnig um aðra þætti í starfi Hermanns, s.s. vinabæjatengslin sem hann hefur unnið við í 25 ár, en þau heyra nú undir skóla- og menningarfulltrúa. Gervigras bar einnig á góma, íþróttasamband íslands, en Hermann var kjörinn í stjórn ÍSÍ 1986. Lottó kom inn í umræðuna en mér finnst rétt aö hverfa aðeins frá starfinu í lokin og víkja að persónulegum áhuga- málum Hermanns. „Ég hef mjög gaman af því taka ljósmyndir og hef einnig mikla ánægju af göngu- og fjalla- ferðum og ferðalögum. Svo hef ég óskaplega gaman af því að föndra. Ég er með lítið verkstæði heima og föndra þar í frístund- um, sker út o.fl. Ég þarf bara að gefa mér meiri tíma til þess að sinna þessum áhugamálum. en vissulega má ég teljast heppinn að vinna við þau mál sem ég hef áhuga á; íþróttir og æskulýðs- mál.“ Hermann er kvæntur Rebekku Guðmann, en hún er innfæddur Akureyringur eins og Hermann. Þau hjónin eiga tvær dætur, Eddu og Önnu. Þær eru báðar íþróttakennarar. „Félagsmálin hafa tekið mik- inn tíma fyrir utan hinn hefð- bundna vinnutíina og þetta hefur auðvitað bitnað á fjölskyldunni. Barnabörnin eru Ííka áhugamál hjá mér og eitt það skemmtileg- asta sem ég þekki er að brasa með þeim. Maður hefur oft heit- ið því að verða betri afi en pabbi því svo til allur rninn tími fór í félagsmál og stúss þegar dæturn- ar voru að alast upp. Nú gefst tækifæri til þess að sinna fjöl- skyldunni betur,“ sagði Hermann að lokum og vil ég þakka honum kærlega fyrir spjallið. Norðurlandsmeistarar 1951 í 4x100 m boðhlaupi. Frá vinstri: Jón Arnþórs- son, Höskuldur G. Karlsson, Hreiðar Jónsson og Hermann Sigtryggsson. (Mynd úr KA-bókinni.)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.