Dagur - 04.03.1989, Page 7
0SGf etam lugabisgueJ - R13.0AQ -- 3
Lauqardagur 4. mars 1989 - DAGUR - 7
11 poppsíðan
i
Umsjón: Valur Sæmundsson.
Gott að vita um hljómtæki - 3. þáttur:
Hvað ræður gæðum
plötuspilara?
Þá er komið að þriðja þættin-
um í umfjölluninni um plötu-
spilara. Einnig er fjallað um
óaðskiljanlega hluti sem
tengjast honum, hljóðdós og
arm. Að lokum er drepið á
hvernig stilla á þessi tæki.
Taka ber fram að margir, ef
ekki allir spilarar sem fylgja
hljómtækjasamstæðum í
ódýrari kantinum, eru mjög
einfaldir í sniðum og því
mörg af eftirfarandi atriðum
sem ekki eiga við þá.
Upplýsingarnar í greininni
eru fengnar úr bæklingnum
Gott er að vita, 1. hefti, sem
fræðsludeild Sambands
íslenskra samvinnufélaga
gaf út árið 1985.
Plötuspilara er eðlilegt að flokka eft-
ir útfærslu á þeim atriðum sem hafa
hvað mest áhrif á gæði þeirra.
Annars vegar er það gangverk
þeirra, mótor og plötudiskur. Hins
vegar er það einangrunarhæfni
þeirra, en þar ræður fjaðrabúnaður
mestu um.
Drifbúnaður spilaranna getur verið
tvenns konar, í reimdrifnum spilur-
um (belt drive) er mótor og diskur
aðskilið, í beindrifnum (direct drive)
er diskurinn tengdur ankeri mótors-
ins.
Vandamál sem hrjá plötuspilara-
hönnuði eru mars konar, má þar
nefna hraðabreytingar í mótorum
sem skiptast í hægar breytingar
(wow) og hraðari breytingar (flutter).
Þær hægari gera tóninn falskan en
þær hraðari gera hann flöktandi.
Mótorniður (rumbel) er vandamál
sem auðveldara hefur reynst að
sniðganga í reimdrifnum spilurum.
Gæði spilaranna ráðast ekki af því
HVORT þeir eru reim- eða bein-
drifnir heldur hvernig útfærsla drif-
búnaðarins er. Þegar miðað er við
verð eru reimdrifnir spilarar mun
heppilegri valkostur en þeir bein-
drifnu. Samt eru til virkilega góðir
beindrifnirspilarar en þeir eru flestir
í efstu verðflokkunum. Beindrifnir
spilarar eru einnig í lægstu verð-
flokkunum og fylgja oft ódýrum
samstæðum. Slíkir spilarar hafa því
miður enga möguleika til þess að
skila hljómgæðum. Allir beindrifnir
spilarar og margir reimdrifnir eru
með fjöðrunina í fótunum.
Margir hinna reimdrifnu eru aftur á
móti þannig að diskur og armur
fjaðra saman en eru einangraðir frá
kassanum, oft þannig að armurinn
og diskurinn eru hengdir í gormana
frekar en að liggja á þeim.
Fyrir nokkrum árum var yfirleitt ráð-
lagt að nota meirihluta þeirra fjár-
muna sem eyða átti í hljómtæki, til
kaupa á hátölurum. Og enda þótt
þróunin hafi gert það að verkum að
framleiðslukostnaður hátalara hafi
hlutfallslega aukist mikið við önnur
hljómtæki, hefur þeim farið fjölgandi
sem ráðleggja að mestu sé eytt í
plötuspilarann.
Hvort plötuspilari sé góður má ein-
faldlega finna út með því að hlusta
á hann!
Staðsetning spilarans getur haft
afgerandi áhrif á hljómgæðin. Hljóð-
dósin breytir hreyfingum (titring)
nálar í rafmerki, utanaðkomandi titr-
ingur er því óæskilegur. Líkleg
uppspretta þessa vandamáls er
jákvæð afturverkun (positivt
feedback) sem getur orðið með
tvennum hætti. Ef plötuspilarinn og
hátalari hvíla á sömu undirstööunni
er um beina titringsleiðni að ræða
eða þá að undirstaða spilarans er
stór, mikið opin og þung (sbr. hillu-
samstæður og stereoskápa) og/eða
spilarinn er of nálægt hátölurunum,
þar er loftleiðni orsökin. Þegar ramt
kveður að þessu er talað um að
„sóni“ á milli. Þótt ekki sóni hefur
afturverkunin oft slæm áhrif á
tóninn, sérstaklega á bassann. Hjá
þessu má auðveldlega komast með
því að hafa undirstöður spilarans
léttar en traustar, annað hvort létt
en stöðugt borð eða trausta vegg-
hillu. Vegghillan er aö því leytinu til
betri að hægt er að hafa hana í
þægilegri hæð.
Hljóðdós
Hljóðdósum (pick up) er skipt í tvo
flokka: Með hreyfanlegum segli,
(moving magnet) skammstafað MM
og með hreyfanlegum spólum
(moving coil) skamstafað MC.
MM hljóðdósir hafa þá kosti að þær
eru ódýrari í framleiðslu m.a. vegna
þess að spólur þeirra eru undnar í
vélum (2-3000 vindingar), þær gefa
háa útgangsspennu og auðvelt er
að skipta um nál í þeim. En þær
hafa lakari hljómgæði en MC hljóð-
dósir.
MC hljóðdósir eru dýrar í fram-
leiðslu enda eru spólur þeirra hand-
unnar (10-20 vafningar), gefa lága
útgangsspennu sem gerir það að
verkum að nota verður formagnara
eða spenni með þeim. Sjaldnast er
hægt að skipta um nál í þeim, en
þær hafa mikil hljómgæði. Einnig
eru til MC hljóðdósir með fleiri vafn-
ingum sem gefa hærri spennu (high
output) sem tengjast magnaranum
beint í spilarainngang (phono). Með
hliðsjón af verði og gæðum má
skipa þeim í sæti milli hinna fyrr-
nefndu.
Algengustu nálar í dag eru spor-
öskjulagaðar (elliptical) en hring-
laga lögun er einnig til í ódýrustu
hljóðdósunum. Af vönduðum slíp-
ingum á nálum má nefna Van den
Hul og Shipata.
Armur
Armurinn hefur það hlutverk að
stýra nálinni þvert yfir plötuna. Hvort
hann er beinn, S-laga eða J-laga
virðist ekki skipta máli í sambandi
við hljómgæði. Það sem máli skiptir
er bygging hans að öðru leyti og
aðallega þó legur hans. Armurinn
liggur í tvöföldu pari af legum, enda
þarf hann að hreyfast bæði lóðrétt
og lárétt. Állt los í legunum skemmir
hljómgæðin. Laus armskel er eng-
inn kostur og býður upp á hættu á
losi þar sem hún tengist arminum.
Los í festingum er varhugavert og á
það jafnt við um festingu hljóðdósar
við arminn og festingu arms við spil-
arann. Til eru spilarar með armi
sem færist allur þvert yfir plötuna
(linear tracking). Fræðilega séð er
þetta rétta útfærslan því með þess-
ari aðferð er platan skorin en í þess-
um flokki eins og hinum finnast
bæði lélegir og góðir spilarar.
Stilling
Ef stilla þarf arm t.d. þegar ný hljóð-
dós er keypt er byrjað á því að
koma henni rétt fyrir undir arminum.
Á örmum og/eða spilurum er gefin
upp fjarlægð nálar frá spindli disks-
ins þegar hún er yfir honum,
(overhung) nálægt 1,5 sm. Næst er
að setja svokallað stillispjald á
diskinn, út frá spindlinum og er nálin
stillt á tvo punkta á leið hennar yfir
diskinn. Hljóðdósinni er þá snúið í
festingunni svo hliðar hennar liggja
eins og þverrákirnar þ.e. 90 gráður
á beinu línuna. Þá er spegli brugðið
undir nálina og hún stillt lóðrétt með
því að horft er beint framan á hljóð-
dósina. Með öllum hljóðdósum er
gefin upp sú þyngd sem nálin á að
leggjast á plötuna með. Lóðið á
enda armsins er stillt á þessa þyngd
þannig að fyrst er armurinn settur í
jafnvægi og kvarði lóðsins stilltur á
0 en síðan er lóöinu snúið uns rétt
þyngd er fundin. Mikilvægt er að
vera ekki undir þeirri þyngd sem
framleiðandinn gefur upp. Þá er
komið að mótvægisstillingunni (ant-
iskating eða bias) þar rlkir sú regla
að stillt er á samsvarandi tölu og á
lóðinu. Mótvægisstilling er nauð-
synleg vegna þess að á ferð sinni
inn eftir plötunni leitast nálin við að
leggjast þyngra á innri hlið rákanna
sem hún gengur í. Nálarþyngd er
vanalega á bilinu 1 til 3 grömm.
Upp og ofan hjá öldruðum
Föstudagskvöldið 24. sl. mánaðar,
eða fyrir rúmri viku, voru haldnir tón-
leikar í bækistöðvum löggiltra
gamalmenna á Akureyri. Þessi tón-
leikar voru þó ekki haldnir af Félagi
aldraðra, heldur stóð útvarpsstöðin
Ólund fyrir þeim. Tónleikunum var
ætlað að afla fjár til að rétta af bág-
borinn fjárhag stöðvarinnar, en það
virðist ekki hafa tekist nógu vel,
vegna þess að stöðin hætti starf-
semi daginn eftir. En nóg um það, á
tónleikunum áttu að koma fram
hljómsveitin Ham úr Reykjavik og
Lost frá Akureyri. Þeir Ham(m)-arar
boðuðu hins vegar forföll kvöldið
fyrir tónleikana en þeir Ólundar-
menn brugðust skjótt við og höfðu
samband við meðlimi Sjálfsfróunar,
sem búið er að endurreisa, og lögðu
þeir kappar af stað frá Reykjavík
um miðjan dag á föstudeginum.
Geysileg ofankoma var um kvöldið,
og kann það að hafa haft áhrif á
aðsóknina, því aðeins tæplega
hundrað manns sóttu tónleikana,
sem er þó engan veginn lélegt.
Dálítil bið varð á því að tónleikarnir
hæfust, en á meðan var haft ofan af
fyrir viðstöddum með ýmsum óund-
irbúnum uppákomum, m.a. lék
Kristján útvarpsstjóri Hani, krummi,
hundur, svín, á munnhörpu af stakri
prýði, og Röggi bassaleikari Losts,
lék einleik á bassa. En um síðir
steig Lost á sviðið og lék þar í um
klukkutíma. Þeir léku barasta
ágætavel, voru t.d. mun öruggari
heldur en þegar ég sá þá f Borgar-
bíói fyrr í vetur. Lögin sem ég ekki
hafði heyrt áður lofa góðu og ekki er
að efa að Lost er að styrkja sig í
sessi sem ein af bestu rokksveitum
landsins. Það er áreiðanlega komin
ástæða fyrir því að fara í hljóðver,
þar sem þeir hnökrar sem voru á
leik sveitarinnar fyrr í vetur eru nú
að mestu horfnir. Allt gott um þetta
atriði að segja. Um það leyti sem
Lost hætti leik sínum, komu með-
limir Sjálfsfróunar á staðinn eftir
strangt ferðalag. Sveitin, sem
samanstendur af trommuleikara,
hljómborðsleikara og tveim syngj-
andi gítarleikurum, dreif sig í að
tengja og hefja spiliríið. Það er
skemmst frá því að segja, að ég hef
aldrei á ævinni séð jafnlélega hljóm-
sveit og þessa. Þeim hefur farið aft-
ur síðan Rokk í Reykjavík var og
hét. Eftir korters hörmungar, gat ég
ekki meira og fór heim.
Hundaþjálfunin auglýsir
Innritanir hafnar á hlýðninámskeiðin sem byrja í
mars.
Sími 96-33168. Susanna.
___________________________________/
Til sölu á Akureyri
Á Akureyri er til sölu þjónustufyrirtæki í fullum
rekstri og með víðtækaviðskiptavild.Samhliða er til
sölu framleiðslufyrirtæki tengt rekstri hins fyrra.
Hentugur rekstur fyrir tvo menn.
Upplýsingar gefnar á skrifstofunni næstu daga frá
kl. 9-18.
Fasteignatorgið
Gierárgötu 28, II. hæð, sími 21967
Sötustjóri Bjöni Kristjánsson, heimasími: 21776
FRAMSÓKNARMENN
AKUREYRI
Matarspjallsfundur
verður laugardaginn 4. mars kl. 13.00 að Hafnarstræti
90.
Konur úr stjórn Landssambands framsóknarkvenna,
mæta og ræða sveitarstjórnarmál.
FÉLAGSMÁLASKÓLI
Gissur Pétursson
Egill H. Gíslason
Finnur Ingólfsson
Helgi Pétursson
Arnar Bjarnason
Hrólfur Ölvisson
Samband ungra framsóknarmanna og kjördæmissambönd Fram-
sóknarflokksins hafa ákveðið að fara á stað með Félagsmálaskóla
þar sern boðið verður uppá eftirfarandi námskeið:
A. Grunnnámskeið í félagsmálum:
Efni: Fundarsköp og ræðumennska, tillögugerð, stefnumál
Framsóknarflokksins o.fl.
Tímalengd: 8 klst.
Leiðbeinendur verða: Gissur Pétursson, Egill Heiöar Gísla-
son, Finnur Ingólfsson, Arnar Bjarnason og Hrólfur Ölvisson.
Stefnt er að því að halda námskeiðið í febrúar og mars á
eftirtöldum stöðum ef næg þáttaka fæst: Reykjavík, Keflavík,
Selfossi, Vestmannaeyjum, Höfn, Egilsstöðum, Akureyri,
Sauðárkróki, ísafirði, Ólafsvík og Akranesi.
B. Fjölmiðlanámskeið:
Efni: Framkoma í sjónvarpi og útvarpi. Undirstöðuatriði í
frétta og greinaskrifum. Áhrif fjölmiðla.
Tímalengd: 16 klst.
Leiðbeinandi: Helgi Pétursson, fréttamaður. Stefnt er að því
að halda námskeið á Akureyri.
Þeir sem hafa áhuga á þessum námskeiðum eru hvattir til að
hafa samband við eftirtalda aðila:
Norðurland eystra: Skrifstofa Framsóknarflokksins,
mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16-18, sími
96-21180 og Snorri Finnlaugsson, sími 96-61645.
Norðurland vestra: Bogi Sigurbjörnsson, sími 96-71527.
Austurland: Ólafur Sigurðsson, sími 97-81760.
Samband ungra framsóknarmanna
Kjördæmissambönd Framsóknarflokksins