Dagur - 04.03.1989, Page 11
bílar
i
Laugardagur 4. mars 1989 -
no'” i . ■ .-v-,-.... t
DAGUR-11
> • • 'i <•, n . a>
Fáeinar athyglisverðar nýjungar
Mitsubishi Pajero
Síðastliðið haust nefndum við
lítillega nokkra nýja eða endur-
bætta jeppa sem væntanlegir
voru á markaðinn. Sumir þessara
bíla hafa þegar sést hér á landi,
s.s. Suzuki Vitara og Daihatsu
Feroza.
Nýlega kom svo til landsins
Mitsubishi Pajero allnokkuð
breyttur og endurbættur. Reynd-
ar er útlitið hið sama og verið
hefur ef frá er talin lítilsháttar
breyting á „grillinu“ að framan.
Geta eigendur eldri Pajero bíla
glaðst yfir því, þar eð útlitsbreyt-
ingar hafa oft í för með sér verð-
lækkun bíla með eldra útlit. Þeg-
ar litið er undir yfirborðið hafa
þó orðið meiri breytingar á
Pajero en nokkru sinni áður.
I fyrsta lagi er nú fáanleg 3,0
lítra V-6 bensínvél í Pajeroinn.
Vélin er framleidd hjá Mitsubishi
og er hin sama og notuð hefur
verið hjá Chrysler í bíl sem þeir
nefna Voyager. Hún er vel fallin
til notkunar í jeppa, er kraftmikil
og dregur vel á litlum snúnings-
hraða. Hún hefur yfirliggjandi
knastása og beina innspýtingu og
skilar u.þ.b. 145 hö.
í öðru lagi hefur sú breyting
orðið á undirvagninum í Pajero
að afturásinn fjaðrar nú á
Umsjón:
Úlfar
Hauksson
gormum. Þetta er án vafa mikil-
væg breyting í átt til bættra
aksturseiginleika, sem voru
reyndar ekki svo slæmir fyrir.
Við getum vonandi fljótlega gert
nánari grein fyrir þessum nýja bíl
hér á síðum Dags.
Range
Með 1989 árgerðinni af Range
Rover urðu umtalsverðar breyt-
ingar á þeim merkilega bíl.
Range Rover getur líklega far-
ið að teljast með klassiskum
bílum, þar eð hann hefur verið
nær óbreyttur frá upphafi fram-
leiðslunnar kringum 1970. Að
vísu hefur orðið nokkur þróun á
þessum tíma, 4ra dyra útgáfa
bættist við, bíllinn varð fáanlegur
með sjálfskiptingu og 4ra gíra gír-
kassinn varð 5 gíra svo eitthvað
sé nefnt.
Breytingarnar sem nú eru
gerðar á Range-Rovernum eru
því allrar athygli verðar og varða
vél, drifbúnað og innréttingu.
Vélin sem knýr Range-Rover
var upphaflega hönnuð hjá Buick
upp úr 1960, eins og flestir vita
sjálfsagt. Eftir að Rover keypti
framleiðslurétt og tæki frá Gen-
eral Motors (Buick) um miðjan
7. áratuginn hefur þessi 3,5 lítra
V-8 léttmálmsvél víða verið
notuð. Má þar nefna bíla Rover
fyrirtækisins, s.s. Range-Rover,
Land-Rover, Rover 3500 og að
auki í ýmsum breskum sportbíl-
um eins og Triumph TVR, Morg-
an Plus 8 og MG.k
Nú hafa Rovermenn tekið sig
til og aukið slagrými vélarinnar
úr 3,5 lítrum í 3,9 lítra. Vélin
telst nú 175-180 hö. með beinni
innspýtingu.
Ennfremur er nú nýr millikassi
í Range-anum. í stað gamla
kassans, þar sem tannhjól sáu um
tengsl fram- og afturása er nú
komin nýr millikassi frá Borg-
Warner (þekktur framleiðandi
gírkassa og sjálfskiptinga) þar
sem keðja tengir ásana eins og
algengast er í millikössum nú til
dags. Að auki er svo komin sjálf-
virk læsing í millikassann í stað
þeirrar handvirku. Þar með er
líklega úr sögunni slátturinn og
höggin í drifbúnaðinum, sem
Range-Rover er kraftmeiri en áður og liöggin og slátturinn eru horfin úr
drifbúnaðinuni og innréttingin hefur fengið andlitslyftingu.
fylgt hafa Range-Rover frá upp-
hafi og var ótvírætt til leiðinda í
annars ágætum bíl.
Innréttingin hefur einnig feng-
ið andlistslyftingu, meiri harðvið
á mælaborðið, Connolly-leður á
sætin, nýjar‘klæðningar innan á
hurðir og rafstýrð framsæti.
Þessu öllu fylgir svo allnokkur
verðhækkun. Range-Rover árg.
1989 kostar víst hérlendis u.þ.b.
3,5 millj. kr.
verður einmitt fáanleg sjálfskipt.
Tvær vélar verða fáanlegar í
Vectra 4x4, 1,8 1 og 2,0 1. Gert er
ráð fyrir að fyrstu Opel Vectra
bílarnir komi fljótlega til landsins
en óvfst með fjórhjólabílinn.
Opel Vectra - nýjung frá GM og arftaki Ascona. Einfalt en smekklegt mæla-
borð og stjórntæki.
Nokkuð er síðan Opel kynnti arf-
taka Ascona sem hlotið hefur
nafnið Vectra. Vectran hefur
hlotið afbragðs góða umsögn
erlendra bílasérfræðinga, einkum
fyrir aksturseiginleika og
fjöðrun, ásamt því að verðinu
þykir stillt í hóf.
Nýlega kom svo á markaðinn
fjórhóladrifin útgáfa af Vectr-
unni, sem sömuleiðis hefur vakið
mikla athygli fyrir góða aksturs-
eiginleika og hagstætt verð.
Einkum þykir drifbúnaðurinn í
Vectrunni háþróaður. Þar er um
að ræða sídrif með sjálfvirkum
læsingum og sérstakri plötulæs-
ingu sem slítur tengsl fram- og
afturhjóla þegar hemlað er.
Þannig getur þessi búnaður nýst
með ABS bremsukerfi. Auk þess
er svo sérstakur „plánetugír" í
millikassanum sem tryggir réttan
snúningshraða á drifskaftinu til
afturhjólanna og auðveldar notk-
un sjálfskiptingar en Vectra 4x4
Opel Vectra 4x4
Meiri breytingar hafa oröiö á Pajero en nokkurn tímann áður,
Til sölu jörð
í Hrafnagilshreppi, 52 hektara ræktað land.
152 hektara girt land.
Bústofn: 45 kýr, 50 geldneyti, 22 ær, 2 hrútar.
Góður kvóti.
Vélar að verðmæti 2,8 milljónir.
Fasteignasala - Sími 26441
Hafnarstræti 108.
Sölumaður: Páll Halldórsson,
heimasími: 22697.
Lögmaður: Björn Jósef Arnviðarson.
ANorrænir starfs-
______menntunarstyrkir
Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finnlands, Noregsog Svíþjóð-
ar veita á námsárinu 1989-’90 nokkra styrki handa Islendingum til
náms við fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirnir eru einkum
ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnskólapróf eða hliðstæða
menntun, til undirbúnings kennslu í iðnskólum eða framhalds-
náms iðnskólakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntun sem
ekki er unnt aö afla á íslandi.
Fjárhæð styrks í Danmörku er 15.500 d.kr., í Finnlandi 19.800
mörk, í Noregi 20.400 n.kr. og í Svíþjóð 10.000 s.kr. miðað viö
styrk til heils skólaárs.
Umsóknir skulu berast menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6,
150 Reykjavík, fyrir 15. apríl nk., og fylgi staðfest afrit prófskír-
teina, ásamt meðmælum. Sérstök eyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið, 24. febrúar 1989.
Auglýsing
frá Menntamálaráði íslands
um styrkveitingu árið 1989
Samkvæmt fjárveitingu á fjárlögum 1989 veröa á árinu
veittir styrkir úr Menningarsjóði Islands:
Útgáfa tónverka
Til útgáfu íslenskra tónverka veröa veittir einn eöa fleiri
styrkir en heildarupphæð er kr. 160.000,-. Umsóknum
skulu fylgja upplýsingar um tónverk þau sem áformað er
að gefa út.
Dvalarstyrkir listamanna
Veittir verða 8 styrkir að upphæð kr. 110.000,- hver. Styrkir
þessir eru ætlaðir listamönnum sem hyggjast dveljast er-
lendis um a.m.k. tveggja mánaða skeið og vinna þar að
listgrein sinni. Umsóknum skulu fylgja sem nákvæmastar
upplýsingar um fyrirhugaða dvöl. Þeir sem ekki hafa fengið
sams konar styrk frá Menningarmálaráði síðastliðin 5 ár,
ganga að öðru jöfnu fyrir við úthlutun.
Umsóknir um framangreinda styrki skulu hafa borist
Menntamálaráði íslands, Skálholtsstíg 7, 101 Reykjavík,
fyrir 5. apríl 1989. Nauösynlegt er að kennitala umsækj-
anda fylgi umsókninni.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Menningar-
sjóðs á Skálholtsstíg 7, Reykjavík.