Dagur - 11.03.1989, Page 10
1 o hh
myndasögur dags 1
ÁRLAND
Það gekk ekki... svo ég ætla að
byrja á nýrri sögu. Nokkurs konar
blöndu af njósnaspennu-náttúru
■gögu.
...sem „þema-rithöfundur“ hólt
ég að þú þyrftir að klæða þig eins| j
og persónurnar sem þú skrifar
um... hvers vegna ert þú klædd
eins og tré?
Ég ætla að kalla söguna..Trjá-
rótarveikin I Lystigarðinum"!
ANPRÉS ÖND
BJARGVÆTTIRNIR
Haldið ykkur! Stormur í aðsigi!... Ben
Lsjáðu hvort kofinn fari ekki að.
|komaj. Ijós...
“ Heyrðu væna, ég sagði þér að ég
væri flughræddur! Fyrst er það^
ijóargadýrið þitt... og núna/
•ÞETTAI! Ég get þetta ekkj'
’lengur! Ijr' . 'ý y'/l
Akureyri
Akureyrar Apótek .......... 2 24 44
Dagur...................... 2 42 22
Heilsugæslustöðin......... 2 23 11
Tímapantanir............ 2 55 11
Heilsuvernd............. 2 58 31
Vaktlæknir, farsimi.... 985-2 32 21
Lögreglan.................. 2 32 22
Slökkvistööin, brunasími.. 2 22 22
Sjúkrabill ................ 2 22 22
Sjúkrahús ................. 2 21 00
Stjörnu Apótek............. 2 14 00
2 37 18
Blönduós
Apótek Blönduóss............. 43 85
Sjúkrahús, heilsugæsla...... 42 06
Slökkvistöð................. 43 27
Brunasími....................41 11
Lögreglustöðin.............. 43 77
Breiðdalsvík
Heilsugæsla............. 5 66 21
Dalvík
Heilsugæslustöðin......... 61500
Heimaslmar..............6 13 85
61860
Neyðars. læknir, sjúkrabíll 6 13 47
Lögregluvarðstotan........612 22
Dalvíkur apótek...........61234
Djúpivogur
Sjúkrabíll ........... 985-2 17 41
Apótek ................... 8 89 17
Slökkvistöð................8 81 11
Heilsugæsla............... 8 88 40
Egilsstaðir
Apótek.................... 1 12 73
Slökkvistöð .............. 1 12 22
Sjúkrah.-Heilsug.......... 1 14 00
Lögregla.................. 1 12 23
Eskifjörður
Heilsugæsla.................61252
Lögregla.....................611 06
Sjúkrabíll ............. 985-217 83
Slökkvilið ................. 612 22
Fáskrúðsfjörður
Heilsugæsla.............. 512 25
Lyfsala..................512 27
Lögregla.................5 12 80
Grenivík
Slökkviliðið.............. 3 32 77
3 32 27
Hofsós
Slökkvistöð ................ 63 87
Heilsugæslan................ 63 54
Sjúkrabill ................. 63 75
Hólmavík
Heilsugæslustöðin............31 88
Slökkvistöð ................ 31 32
Lögregla.....................32 68
Sjúkrabill ................. 31 21
Læknavakt....................31 21
Sjúkrahús .................. 33 95
Lyfsalan ................. 31 88
Hvammstangi
Slökkvistöð.................. 14 11
Lögregla..................... 13 64
Sjúkrabíll .................. 1311
Læknavakl..................... 1329
Sjúkrahús ................... 13 29
13 48
Heilsugæslustöð.............. 1346
Lyfsala...................... 13 45
Kópasker
Slökkvistöð............... 5 21 44
Læknavakt..................5 21 09
Heilsugæslustöðin........ 5 21 09
Sjúkrabill ........... 985-2 17 35
Neskaupstaður
Apótek...................711 18
Lögregla.................713 32
Sjúkrahús, sjúkrabíll....714 03
Slökkvistöð ............. 7 12 22
Ólafsfjörður
Ólafsfjarðar apótek........ 6 23 80
Lögregluvarðstofan......... 6 22 22
Slökkvistöð.................6 21 96
Sjúkrabill ............... 6 24 80
Læknavakt...................6 21 12
Sjúkrahús - Heilsugæsla .... 6 24 80
Raufarhöfn
Lögreglan - Sjúkrabíll... 5 12 22
Læknavakt................ 5 12 45
Heilsugæslan............. 511 45
Reyðarfjörður
Lögregla...................6 11 06
Slökkviliö .................. 412 22
Sjúkrabíll .............. 985-219 88
Sjúkraskýli ..................412 42
Sauðárkrókur
Sauðárkróksapótek ......... 53 36
Slökkvistöð ............... 55 50
Sjúkrahús ................. 52 70
Sjúkrabíll ................ 52 70
Læknavakt.................. 52 70
Lögregla................... 66 66
Seyðisfjörður
Sjúkrahús ...............2 14 05
Læknavakt................21244
Slökkvilið .............. 212 22
Lögregla.................21334
Siglufjörður
Apótekið ................. 714 93
Slökkvistöð .............. 718 00
Lögregla................. 7 11 70
'7 1310
Sjúkrab. - Læknav. - Sjúkrah. 711 66
Neyðarsimi ..........„....; 7 16 76
Húsavík
Húsavíkur apótek...........4 1212
Lögregluvarðstofan.........4 13 03
4 16 30
Heilsugæslustöðin..........413 33
Sjúkrahúsið.............. 4 13 33
Slökkvistöð................414 41
Brunaútkall ...............4 19 11
Sjúkrabíll ................ 4 13 85
Kristinn G. Jóhannsson skrifat
Bakþankar
Þá verður alit svo undur hvítt.
Nú er nokkuð um liðið síðan bakþankar
minir birtust síðast og kemur ýmislegt
til sem ekki verður rakið hér. Hinu ber
að fagna að nú hefur blað allra lands-
manna, Morgunblaðið, fyrir nokkru tek-
ið upp eftir okkur þennan þátt og birtir
nú bakþanka í hverri viku. Eins og oft
vill verða um eftirlíkingar eru þeir þank-
ar auðvitað ekki svipur hjá sjón en virða
ber viðleitnina.
En hvað sem nú svona hógværum
yfirlýsingum liður er þar til máls að taka
að nú er kominn snjór. Hann var ýms-
um kærkominn enda margir sem vilja
hafa svona úrkomu um vetrin. Þá verð-
ur allt svo undur hvítt og fallegt að mað-
ur nú ekki tali um skíðafærin, sleðafær-
in og tækifærin öll sem bjóöast til að
ástunda súrefnisrlkar skemmtanir í
byggðum og uppi til fjalla. Alll er þetta
voða gaman. Þetta er líka afar skemmti-
legt hér í þéttbýlinu þangað til maður
þarf að komast leiðar sinnar á milli húsa
eða flandra i vinnuna og þess háttar
óþarfa ferðalög. Ég er reyndar svo
heppinn að hafa upp á síðkastið búið
við götur sem verða að teljast til öræfa.
Náttúruleg snjóalög þeirra fá að halda
sér og þannig er reyndar líka háttað
með götuna sem skólinn minn stendur
við. Að vísu myndast með tímanum
dálítii einstigi eftir farartæki íbúanna en
við erum blessunarlega laus við öll stór-
virkari tæki svo sem ýtur eða gröfur eða
þessháttar sem okkur er sagt að sé not-
að til að raska jafnvægi náttúrunnar í
sumum götum. Að visu fylgir þessu
skammrifi sá böggull að vegna fjar-
lægða hér innan bæjar ætla menn
stundum að nota bílanasína. Það er nú
verkurinn. Þetta hefur hent mig llka
nokkuð oft. Ég hef verið býsna heppinn
á þessum ferðum og mér telst svo til að
ég hafi ekki misst neitt af bílnum eða
skemmt hann að ráði. Þá er óg ekkert
að nefna pústkerfið sem ég skildi ein-
hvers staðar eftir í fönninnl á dögunum
né stuðarann að aftan sem hún frænka
mln tók af mér þegar ég mætti henni á
milli skafla (fyrragær. Hún var líka á
bíl. Hún er af Hreiðarsstaðakotsættinni.
Nú er frá því að segja að þar sem
Brattahlfð er stutt gata og fáfarin var
afar mjó slóð þar og þess vegna engin
leið að leggja þar bílum né í næsta
nágrenni. Eg greip því það til bragðs að
fá góðan mann og stæðilegan á pinu-
lítilli ýtu til að ryðja bilastæðið okkar við
skólann. Þetta gerði hann fljótt og vel
gegn vægu gjaldi og gátum við nú öðru
hverju rennt okkur inn á þennan auða
blett. Það gerðum við þegar okkur auðn-
aðist að böðlast þangað á bilunum okk-
ar gegnum ófærðina allt í kring. Við vor-
um dálítið stolt af þessu auða og fal-
lega bílastæði.
Nú unum við sátt við okkar hlut og
bílastæðið okkar i annars óspjallaðri
mjöllinni allt um kring og ber fátt til tíð-
inda. Svo verður sá atburður síðdegis á
þriðjudag að ókunnur hvinur heyrist
utan af götunni og þegar að er gáð
kemur í Ijós að nú er snjóruðningstæki
komið að eyðileggja snjóinn en það
þótti okkur samt drengilegt og fórum að
horfa á þetta furðuverk og hvernig það
fór að þvi að vinna og búa til bílfæra
slóð um götuna. Það þarf ekki að taka
það fram að auðvitað stóð bíllinn minn
með nýtt pústkerfi og stuðara bæði að
aftan og framan á fínmokuðu bilastæð-
inu við skólann og þegar tækið nú fer
fyrstu ferðina fram hjá myndast dálítill
hryggur fyrir aftan hann eins og verður
einatt við slik tækifæri. Það þótti mér
ekki tiltökumál en þar sem ég þurfti að
mæta í vinnu á öðrum stað innan
skamms sagði ég samstarfsmanni mín-
um að ég ætlaði út til þess að ég lokað-
ist nú ekki inni. I þann mund fór ruðn-
ingstækið framhjá öðru sinni og torfær-
an hækkað milli bílsins og götunnar.
Enn var nokkur timi til stefnu svo að ég
set bílinn i gang og stilli mér upp aftan
vlð hann til að nota merkjamál við ýtu-
stjórann þegar hann kemur hið þriðja
sinnið. Enn hækkaði farartálminn en
þar sem ég vissi að maðurinn sem
hreykti sér á tækinu hafði orðið min var
beið ég rólegur þess að hann kæmi
mér ( vegasamband að götumokstri
loknum. Þegar hér var komið sögu var
ég orðinn heldur seinn i hina vinnuna
en lét samt ekki á neinu bera. Enn æðir
ferlíkið framhjá með gleðibros á vör en
bros mitt hins þolinmóða og skilnings-
ríka borgara dálítið farið að stirðna. Þá
gerist það næst að hvinurinn dvín og
allt í einu er þessi góði bæjarstarfsmað-
ur horfinn fyrir næsta skafl á leikfanginu
sinu og kemur ekki framar.
Ég var dálitla stund að átta mig á
þessu og vildi bara ekki trúa því að
strákar væru sendir langar leiðir til þess
eins að auka á ófærðina hjá okkur. En
svona var þetta nú samt og nú stóð ég
þarna handan ófærunnar með bílinn
minn og stórum verr settur en áður en
ég varð aðnjótandi þjónustu bæjarins.
Þar sem ég nú stóð þarna bjargar-
laus gagnvart máttarvöldunum fann ég
fyrir máttvana bræði og þess konar
skilningslausri heift að ég held mig hafi
helst langað til að fara að skæla.
Nú tók hins vegar við mokstur, spól
og festur fram eftir degi eða þar til
drengilegur maður frá „Möl og sandi"
kemur aðvífandi á sínu tæki og bjargar
mér vesalingnum.
Nú veit ég auðvitað ekkert um það til
hvers bærinn okkar setur menn upp á
svona tryllitæki og það getur svo sem
vel verið að þeim sé fyrirskipað að
grlpa hvert tækifæri sem gefst til að
loka menn inni, einkum ef auðséð er að
þeir eru rétt í þann mund að bakka út á
götuna. Þá er þetta sennilega dálítið
spennandi starf og keppni milli manna
hverjum auðnast að loka fleiri af. Þegar
hins vegar ósvífnin ekur framhjá manni
glottandi hvað eftir annað á stórvirkri
vél liggur við að maður hrósi happi hve
sjaldan þessi tæki sjást i venjulegum
íbúðargötum.
Æ, já. Þetta var nú dálitil saga um
snjóinn og því sem honum fylgir i
mannabyggð, saga um hjálpsemina og
þjónustuna i umferðinni á milli húsa.
Og verður nú ekki meira spólað að
sinni. Kr. G. Jóh.